Þjóðviljinn - 22.12.1985, Page 6

Þjóðviljinn - 22.12.1985, Page 6
Hlýr og vandaður mokkafatnaður með rúskinns- og leðuráferð. 5% staðgreiðsluafsláttur, greiðslukjör. Frakkastíg 12 • Blikkiðjan lönbúð 3, Garöabæ Önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar biikksmiði. Gerum föst verðtilboð SIMI 46711 Hún er komin, drottning héraðsins er komin (Helga Jónsdóttir, Arnar Jónsson og Sigurður Skúlason). Fram hjá vanda og upp undir pilsin Villihunang í Pjóðleikhúsinu - Spjallað við Arnar Jónsson, sem leikur Platonof Þú barðist við Sevastopol, karl minn? (Bessi Bjarnason og Þorsteinn Ö Stephensen). Annan í jólum frumsýnir Þjóö- leikhúsið gamanleikinn Villihun- ang eftir Anton Tsjekhof í leik- gerö Michaels Freyn. Hér er um að ræöa ófullgert æskuverk hins rússneska meistara, sem fannst reyndar ekki fyrr en sextán árum eftir dauöa hans. Þaö hefur síðan verið sýnt í ýmsum útgáfum og sú leikgerð sem Bretinn Michael Freyn samdi hefur hlotnast verö- ugt lof fyrir að þar er farið djarf- lega með efniviðinn - án þess að bregðast trúnaði við Anton Tsjek- hof. Arnar Jónsson fer með stærsta hlutverkið í leiknum (en kannski eru þar engin lítil hlutverk, þegar að er gáð). Hann leikur Platonof þann, sem leikgerðir verksins hafa einatt verið kenndar við - manninn sem fyrir skömmu var svo gáfaöur og efnilegur, en er nú skólastjóri í litlu þropi, lífs- þreyttur fyrir aldur fram, en lifir enn á því að vera allt í senn, póli- tískur siðameistari, samkvæmis- trúður og flagari. Nú beygjum við hjá í stuttu spjalli spurðum við Arnar Jónsson hver honum fynd- ist Platonof vera. Hann er nokkuð margir menn, þegar grannt er skoðað. Kannski er hann einna helst sá sem er alltaf að beygja hjá erfiðleikum og andstreymi, fela sig fyrir þeim. Minnir að nokkru á Pétur Gaut reyndar. Altént þekkjum við kauða, göngum með hann í okk- ur að hluta til. Upplagið er það sama í okkur öllum - hvort held- ur við svo beygjum hjá eða náum því, að komast í einhvern sæmi- legan farveg, fyrir tilviljun eða með tilstilli viljastyrks. Og kom- umst þá hjá þeim óskaplegu hrellingum sem yfir Platonof dynja. Hrellingum, sem eru sjálfskap- arvíti auk þess sem allskonar rammar aðstæður hjálpa til. Og svo er Platonof settur í þessi flóknu kvennamál. Ég held það sé vegna þess að Tsjekhof var spaugari og líklega fannst honum sniðugt að nota þessa léttu skrýtlu sem uppistöðu í leikinn, því hún er sígild. Og það versta sem ósjálfstæður karlmaður lendir í - það er að fara upp undir of mörg pils í einu! Það þarf skratti mikla snerpu í það. Að mölva og smíða leikmynd Sjálfur hefi ég aðeins leikið í einu Tsjekhofverki áður, segir Arnar. Það var í einþáttungnum Björninn á fyrstu árum Sjón- varpsins. Ég lék Bangsa þennan á móti Þóru Friðriksdóttur og undir lokin átti ég að leggja húsið Hvers vegna varð ekki meira úr þér Þlatonof? (Guðbjörg Thoroddsen). í rúst - þ.e.a.s. brjóta leikmynd- ina í mask og mél. Það gat því ekki verið um nema eina töku að ræða og það tókst, sem betur fer. En því miður - annað hefi ég ekki leikið eftir Tsjékhof. Og kannski höfum við verið alltof ódugleg við að færa upp þennan yndislega höfund. Það er Þórhildur Þorleifsdóttir sem leikstýrir Villihunangi en leikmyndina gerir rússneskur listamaður, Alexander Vasfléf. Það fer ekki á milli mála, sagði Arnar, að hann þekkir vel Rúss- land og tímabilið, það er allt í réttu horfi, bæði í búningum og leikmynd. Ég held að það hafi verið tvímælalaust fengur að fá hann til að gera þessa fallegu og „rússnesku“ umgerð um verk- ið... Konur Platonofs leika þær Helga Jónsdóttir, Guðbjörg Thoroddsen, Lilja Guðrún Þor- valdsdóttir og Steinunn Jóhann- esdóttir. Önnur hlutverk eru í höndum Péturs Einarssonar, Ró- berts Arnfinnssonar, Bessa Bjarnasonar, Rúriks Haralds- sonar, Sigurðar Skúlasonar, Hákons Waage og Þorsteins Ö. Stephensens. Þýðinguna gerði Árni Bergmann. 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 22. desember 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.