Þjóðviljinn - 22.12.1985, Síða 16
Michel Platini tryggir Juventus Evrópumeistaratitilinn - skorar sigurmarkið gegn Liverpool, 1 -0, i hinum harmþrungna úrslitaleik á Heysel-leikvanginum í Brussel sl. vor.
Michel Platini
FyEDDUR SIGURVEGARI
Strdkurinn með útstœðu eyrun frá litla námabœnum í Frakklandi hefur 17,4 miljónir króna í
grunnlaun á ári. Hefur verið kjörinn knattspyrnumaður Evrópu tvisvar og besti knattspyrnu-
knattspyrnutímaritum maður heims tvö síðustu árin af tveimur virtum
Michel Platini er fæddur sigur-
vegari. Að mati margra er hann
besti knattspyrnumaður heims
um þessar mundir og saga hans
er glæstum sigrum stráð. Sér-
staklega síðustu þrjú árin —
hann hefurorðiðmarkakóngurít-
ölsku 1 .deildarinnar þrjú ár í röð,
Evrópumeistari með Frökkum
1984 og var þá langmarkahæsti
leikmaður úrslitakeppninnar,
hann hefurverið valinn „besti
knattspyrnumaður heims“ sl. tvö
áraftveimurafvirtustu knatt-
spyrnutímaritum sem gefin eru
út, World Soccerog France Foot-
ball.
Michel Platini fæddist í Joeuf,
litlum námubæ í hinu sögufræga
Lorraine-héraði í austurhluta
Frakklands. Afi hans og amma
voru ítölsk og faðir hans var
stærðfræðikennari sem var með
knattspyrnu á heilanum og þjálf-
aði lið staðarins.
Aldo, faðir hans, náði aldrei
lengra en að leika með áhuga-
mannaliði Lorraine. En hann var
fljótur að átta sig á hæfileikum
sonarins.
—Hvenær áttaðir þú þig á að
þú værir gæddur sérstökum
knattspyrnuhæfileikum?
„Þessi spurning felur í sér alltof
stór orð. Ég fékk mitt fyrsta leik-
leyfi — samkvæmt kerfinu í
Frakklandi — þegar ég var 10
ára. Það er ekkert óvenjulegt, á
þeim aldri ganga flestir drengir til
liðs við félög. Síðan þegar ég var
17 ára vildu fjögur atvinnulið fá
mig til sín. Þá fyrst áttaði ég mig á
að ég gæti átt framtíð fyrir mér í
íþróttinni. Ég get ekki dæmt
sjálfur um hvort ég hafi einhverja
sérstaka hæfileika. Ef þjálfarar
og íþróttafréttamenn eru á þeirri
skoðun er ég að sjálfsögðu upp
með mér en ég get ekki farið að
fullyrða neitt slíkt sjálfur“
Platini hóf að leika með
Nancy-Lorraine árið 1972. Faðir
hans þjálfaði hjá félaginu og
hafði ásamt móður hans umsjón
með skrifstofum þess. Platini var
ekki fastamaður fyrstu tvö árin
en á þriðja árinu, þegar Nancy
hafði fallið í 2.deild, vann hann
sér fast sæti og skoraði 17 mörk í
32 leikjum. Nancy fór beint upp á
ný og næsta keppnistímabil,
1975-76, var fyrsta alvöru keppn-
istímabil Platinis í l.deild. Hann
lék alla 38 leikina og skoraði 22
mörk og þann 27.mars 1976 lék
hann sinn fyrsta A-landsleik,
gegn Tékkóslóvakíu — 21 árs að
aldri. Og hann hélt uppá það með
því að skora mark með snúnings-
skoti úr aukaspyrnu — vöru-
merki sínu í dag.
Þar með hafði Platini leikið
fyrir Frakklands hönd með A-
landsliði, 21-árs landsliði, ung-
lingalandsliði, liði franska hers-
ins og einnig með áhugamanna-
landsliðinu sem lék á Ólympíu-
leikunum 1976. Árið 1976 var
hann kjörinn íþróttamaður árs-
ins í Frakklandi.
Stórliðin fóru að fylgjast með
þessum ört vaxandi knattspyrnu-
manni. Valencia og Inter Milano
höfðu samband við Nancy en
miljón punda kaupverð fældi þau
frá. Loks gekk hann til liðs við
Saint-Etienne eftir að hafa
skorað 98 mörk í 175 deilda-
leikjum fyrir Nancy.
—Afhverju St.Etienne;
„Það var einfaldlega besta lið
Frakklands. Sjö meistaratitlar og
fimm bikarsigrar á 12 árum og lék
til úrslita í Evrópukeppni
meistaraliða 1976. Allir franskir
piltar vildu leika með Saint-
Etienne."
Platini lék með St.Etienne frá
1979-1982. Liðið varð franskur
meistari í lO.sinn árið 1981 en síð-
an tók að halla undan fæti. Næsta
keppnistímabil var það versta hjá
Platini, þó hann skoraði 22 mörk
í 36 leikjum. Saint-Etienne var
slegið út í l.umferð Evrópu-
keppninnar og missti af
meistaratitlinum til Monaco á
einu stigi,
—Varstu þarna tilbúinn að
fara til Ítalíu?
„ftalir höfðu aflétt banni á er-
lenda leikmenn árið 1980. En þá
var ég samningsbundinn Saint-
Etienne sem hafði engan áhuga á
að láta mig fara og hafði engar
áhyggjur af fjármálunum. ítalir
leyfðu aðeins einn erlendan leik-
mann á lið til að byrja með. En
árið 1982 fjölguðu þeir þeim í tvo
og þá var einmitt samningur minn
við Saint Etienne útrunninn.
Eftir lokakeppni HM á Spáni
gekk ég til liðs við Juventus..
Margir hafa sagt að ég hafi
tekið stöðu Liams Brady, jafnvel
rutt honum til hliðar, en það er
mikil einföldun. Juventus hafði
Brady en vildi bæði mig og Pól-
verjann Zbigniew Boniek. Það
var ekki pláss fyrir okkur alla þrjá
svo Brady fór til Sampdoria."
—Hver voru viðbrigðin að fara
úr frönsku knattspyrnunni yfir í
þá ítölsku?
„Þau mestu voru satt best að
segja þau að ítalir leggja höfuðá-
herslu á góðan varnarleik.
Mottóið er að ef lið fær ekki á sig
mark er það öruggt með a.m.k.
eitt stig. Urslitin skipta öllu máli.
Og þegar ítalir tala um „úrslit“
eiga þeir við jafntefli eða sigur.
Tap flokkast ekki undir úrslit —
það er stórslys."
—Hvað með áhorfendur? Að-
sókn er meiri á Ítalíu en í Frakk-
iandi og ítalir hampa hetjum sín-
um meira.
„Ég neita því ekki að aðsóknin
í Torino er betri en í Frakklandi.
En ég tel að ég hafi verið heppinn
meðan ég lék heima því aðdáend-
ur Nancy og Saint-Etienne eru
jafn stórkostlegir og aðdáendur
Juventus."
Meðal hinna nýkrýndu ítölsku
heimsmeistara og erlendu stjarna
nutu hæfileikar Platinis sín betur
en nokkru sinni fyrr. Hann varð
markakóngur deildarinnar þrjú
ár í röð, fékk Gullboltann og
Gullskóinn fyrir að vera besti og
markahæsti leikmaður úrslita
Evrópukeppninnar í Frakklandi
1984. Hann var kjörinn knatt-
spyrnumaður ársins í Evrópu
bæði 1983 og 1984.
Platini er orðinn auðugur mað-
ur. Hann er þó aðeins talinn ní-
undi tekjuhæsti knattspyrnumað-
ur landsins með 17,4 miljónir fs-
lenskra króna í grunnlaun en
öfugt við hina átta sem meira
þéna fær hann að halda óskertum
öllum auglýsingatekjum. Hann
stjórnar knattspyrnuskóla og er
kynnir í sjónvarpsþættinum Tele
Monte Carlo sem fjallar um
knattspyrnu. Gömlu skólafélag-
arnir sem áður stríddu honum á
útstæðum eyrunum sitja nú
stjarfir vikð sjónvarpið þegar
snilli hans ber þar fyrir augu.
—Hvernig er að leika með Ju-
ventus?
„Það er stórkostleg reynsla,
einhver sú stórkostlegasta sem
nokkur getur upplifað. Allir
leikir eru mikilvægir. Þú ert að
leika á toppnum. Juventus er
geysilega metnaðargjarnt félag,
þrátt fyrir allt sem unnist hefur,
og það smitar útfrá sér til allra
sem því tengjast. Þetta er líka
sanngjarnt og örlátt félag.
Andinn meðal leikmanna er
mjög góður og árangurinn und-
anfarin ár talar sínu máli.“
—Þið hafði þó ekki unnið allt
— hvað fór úrskeiðis í úrslitaleik
Evrópukeppninnar gegn Ham-
burger í Aþenu árið 1983?
„Urslitalið í jafn sterkri keppni
hljóta alltaf að vera svipuð að
styrkleika. Þeir sem töldu okkur
örugga sigurvegara litu ekki
raunsæjum augum á málið, þeir
vanmátu Hamburger. Fyrirliði
þeirra, Felix Magath, skoraði
snemma leiks og þar með höfðu
þeir undirtökin. Hamburger
vörðust vel, voru vel skipulagðir
og ákveðnir í að halda fengnum
hlut. Við gátum enganveginn
brotið þá niður.“
—Og að lokum, hvað svo þegar
Evrópumeistaratitillinn vannst
loksins, i Brussel?
„Þeim degi vil ég gleyma. Við
unnum leikinn en hvaða máli
skipti það? Við í Juventus ætlum
okkur að verða Evrópumeistarar
aftur í vetur til að sýna að við
verðskuldum þann titil. En harm-
leiknum í Brussel...honum
gleymi ég aldrei. Ég vil ekki ræða
hann, þá rifjast of mikið upp.“
—VS (þýtt og endursagt)
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 22. desember 1985