Þjóðviljinn - 24.12.1985, Blaðsíða 3
FRETTIR
Jólatrésfagnað ur
Alþýðubandalagið
Lœknafélags Reykjavíkur og
lyfjafrœðingafélags Islands
verður í DOMUS MEDICA
föstudaginn 27. desember kl.
15-17.
Jólasveinarnir.
Fjársöfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar gengur framar vonum enda á færi
flestra aö leggja góðum málstað lið mitt í jólakauptíðinni. Ljósm. E. 01.
Hjálparstofnunin
Met söfnun
Líkur á að söfnunin verði á!5. miljón hjá
Hjálparstofnun kirkjunnar
Alaugardagskvöld höfðu um 13
miljónir króna safnast á veg-
um Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar. A sunnudag var svo safnað í
kirkjum landsins og lá ekki fyrir í
gær hvc mikið safnaðist þar, þó
var Ijóst að í seðlum og ávísunum
söfnuðust 350 þúsund krónur en
myntina átti að telja í Sparisjóði
Reykjavíkur eftir lokun í gær.
Síðan var safnað víða í gærdag og
má gera ráð fyrir að heildarsöfn-
unin nálgist 15 miljónir króna
þegar upp verður staðið.
Þjóðviljinn fékk þessar upplýs-
ingar hjá Gunnlaugi Stcfánssyni
starfsmanni Hjálparstofnunar-
innar um miðjan dag í gær. Það
verður því um metsöfnun að
ræða hjá stofnuninni, en sem
kunnugt cr fer söfnunarfcð til
matarkaupa handa hungruðum
heimi.
-S.dór
Eg er þeirrar skoðunar að
þingflokkurinn hefði átt að
haga kosningu í bankaráð í sam-
ræmi við stefnumótun frarn-
kvæmdastjórnar flokksins um
þessi mál og endurkjósa ekki
það er hins vegar útbreiddur mis-
skilningur. l’að er bankastjórnin
(bankastjórar) senr hefur alfarið
með þau mál að gera. Ef þing-
flokkurinn hefði sett Garðar út úr
bankaráðinu hefði t'alist í því
þungur áfellisdómur um störf
hans í ráðinu. Sá dómur hefði
verið í hæsta máta óeðlilegur og
ósanngjarn", sagði Ragnar.
Varðandi kosningu Helga Selj-
an sem varamanns í bankaráð
Búnaðarbankans vildi Ragnar
taka það fram að í tilviki sem
þessu er gert ráð fyrir undantekn-
ingum og sagt að endurnýjunar-
regluna skuli framkvæma „eftir
því sem fært þykir og aðstæður
leyfa". Við kusurn ágæta konu í
bankaráð Búnaðarbankans en
' hún býr úti á landi og það þótti
heppilegt að varamaður hennar
þekkti vel tii innan bankans og
ætti auðvelt með að mæta í hugs-
anlegum forföllum hennar sagði
Ragnar að lokum.
Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins vildi ekki tjá
sig um málið þegar Þjóðviljinn
leitaði til hans í gær.
Guðrún llelgadóttir aiþingis-
maður sagði í samtali við blaðið í
gær að hún vildi ítreka þá skoðun
sína að Alþýðubandalagið ætti
alls ekki að kjósa í bankaráð
meðan enn ríktu lög um banka-
leynd. Hún sagði einnig að hún
hefði engan þátt átt í kosningu
þingflokksins um helgina. „Það
hefði verið allt í lagi að hlusta á
hvað framkvæmdastjórn hefur
unr þetta að segja". sagði Guð-
rún.
AB
Tillaga Svavars
bankaráð Útvegsbankans. Það
hefði verið best fyrir bankann, al-
þingi og tvímælalaust best fyrir
flokkinn, sagði Ólafur Ragnar
Grímsson formaður fram-
kvæmdastjórnar Alþýðuhanda-
lagsins þegar hann var inntur
álits á kosningu þingllokks Al-
þýðubandalagsins í bankraáð um
helgina.
Framkvæmdastjórn samþykkti
nýlega tillögur þar sem segir m.a.
að bankaráð Útvegsbankans
skuli ekki endurkjörið og því
beint til þingflokksins að hann til-
nefni ekki þingmenn í bankraráð
ríkisbankanna. „Framkvæmda-
stjórn hefur mótað ákveðna
stefnu í þessum málum og ég
hefði talið það sterkara fyrir Al-
þýðubandalagið að þingfiokkur-
inn hefði tekið mið af þeirri
stefnumótun. En væntanlega
mun þingflokkurinn gera grein
fyrir þessari afstöðu sinni með
einhverjum formlegum hætti",
■iagði Ólafur. Hann sagði einnig
að það hefði komið honum á
óvart að Helgi Seljan skyldi hafa
verið kosinn varamaður Þórunn-
ar Egilssdóttur í bankaráð Bún-
aðarbankans þar senr virtist vera
ótvírætt brot á 35. grein laga Al-
þýðubandalagsins þar sem fjallaö
er um kosningar í ráð og nefndir á
vegum flokksins.
„Garðar ber
enga ábyrgð“
Það er rétt að þingflokkurinn
tók ekki mið af samþykkt fram-
kvæmdastjórnar", sagði Ragnar
Arnalds formaður þingflokksins í
gær. „Það er viðurkennt af öllum
að kosningar á alþingi eru í
verkahring þingflokksins en ekki
verkefni framkvæmdastjórnar.
Varðandi kosningu í bankaráð
Útvegsbankans verð ég að benda
á að Garðar Sigurðsson ber enga
ábyrgð á lánveitingum bankans
til Hafskips eða þeim tryggingum
sem bankinn tók. Bankaráð fjalla
alls ekki um lánveitingar banka.
Formaður Alþýðubandalags-
ins, Svavar Gestsson, hefur að
gefnu tilcfni óskað eftir því að
blaðið birti eftirfarandi tillögu
sem hann lagði fram í fram-
kvæmdastjórn Alþýðubandalags-
ins þann 16. desember síð-
astliðinn. Afgreiðslu tillögunnar
var frestað, þannig að hún liggur
enn fyrir framkvæmdastjórninni.
Útgáfustjórn Þjóðviljans hefur
hins vegar fjallað um málið og
afgreitt það af sinni hálfu með til-
lögu sem birt var í Þjóðviljanum
fyrir helgi.
„Framkvæmdastjórn Alþýðu-
bandalagsins mun hér eftir sem
hingað til leggja áherslu á útgáfu
Þjóðviljans og telur ekki að til
greina komi að leggja blaðið nið-
ur, enda aldrei meiri þörf en nú á
öflugu baráttutæki sósíalisma,
verkalýðshreyfingar og þjóð-
frelsis.
Framkvæmdastjórnin telur
hins vegar eðlilegt að taka þátt í
umræðum við fulltrúa NT og Al-
þýðublaðsins um útgáfumál dag-
blaða vegna sameiginlegra yfir-
ráða þessara blaða og Þjóðviljans
yfir Blaðaprenti hf. og vegna þess
ægivalds sent íhaldsöflin hafa nú
með útgáfu DV og Morgunblaðs-
ins og yfirráðum hægri aflanna
yfir ríkisútvarpinu. Framkvæmd-
astjórnin leggur fyrir sitt leyti
áherslu á nauðsyn þess að skapa á
blaðamarkaði mótvægi við ein-
okun íhaldsaflanna og telur eðli-
legt að kanna til þrautar hvort
unnt er að skapa slíkt mólvægi
með nýju fjölmiðlunarfyrirtæki.
Bendir framkvæmdastjórnin
einnig á það í þessu sambandi að
eðlilegt væri að Alþingi sam-
þykkti ráðstafanir til þess að
tryggja lýðræði á blaðainarkaöi
og í skoðanamyndun í þjóðfé-
laginu með opinberum ráðstöf-
unum eins og tíðkast hafa um ár-
atugaskeið í grannlöndum okk-
ar.“
Blaðastyrkir
DV fær sitt
DVfœr andvirði 250 eintaka daglega eins og
hin dagblöðin
Blaðastyrkur sá sem dagblöðin
fá frá ríkinu er sá að ríkið
kaupir fyrir stofnanir sínar 250
eintök af hverju dagblaðanna
daglega. DV tönnlast á því sí og æ
að það, eitt dagblaðanna, fái eng-
an styrk frá ríkinu. En DV fær
greitt eins og hin blöðin fyrir þau
250 eintök sem ríkið kaupir.
Styrkir þeir sem þingflokkarnir
fá til sinnar starfsemi, þar á með-
al til útgáfu héraðsblaða, kemur
dagblöðunum ekkert við, nema
ef þingflokkarnir taka þá ákvörð-
un að láta hluta af þessu fé renna
til dagblaðanna. Ef þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins ákveður að
láta DV hafa einhvern hlut af því
fé sem flokkurinn fær, þá varðar
enga aðra um þá ákvörðun. En
greiðslu fyrir 250 eintök fær DV
eins og önnur blöð. -S.dór
Kosning Garðars umdeild
Þingflokkurinn kaus í bankaráð gegn vilja framkvæmda-
stjórnar. Ólafur Ragnar: Hefði ekki áttað endurkjósa
bankaráðið. Ragnar Arnalds: Garðar ber enga ábyrgð.
Þriðjudagur 24. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3