Þjóðviljinn - 24.12.1985, Blaðsíða 9
ájólumleIKHÚS
Þjóðleikhúsið
Villihunang
Tsékovs
Áannan íjólumfrumsýnir
Þjóðleikhúsiö gamanleikinn
Villihunang eftir Anton
Tsjékov, í nýrri leikgerð eftir
Michael Frayn. Þýðinguna
gerði Árni Bergmann, leik-
stjóri er Þórhildur Þorleifsdótt-
ir, leikmynd og búningagerir
Alexander Vassiliev og lýs-
ingu annast Páll Ragnarsson.
Með helstu hlutverk fara: Arn-
ar Jónsson, Helga E. Jónsdóttir,
Guðbjörg Thoroddsen, Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, Pétur
Einarsson, Róbert Arnfinnsson,
Rúrik Haraldsson, Bessi Bjarna-
son, Steinunn Jóhannesdóttir,
Hákon Waage og Þorsteinn Ö.
Stephensen.
Tveir höfundar eru skrifaðir
fyrir Villihunangi, sem fjallar um
Platonov, gjálífshetjuna
harmrænu, sem er eins konar
nýrri gerð af Don Juan og hefur
óumræðilega sterk áhrif á allar
konurnarsem hann umgengst, en
er jafnframt of veikgeðja til að
hafa stjórn á sér eða axla ábyrgð.
Það er auðvitað fyrst og fremst
rússneska leikskáldið Anton
Tsjékov sem á heiðurinn að verk-
inu, en hann var einungis tvítugur
þegar hann samdi þetta mikla
verk sem upphaflega var svo
langt að nánast ógjörningur var
að sýna það óstytt. Það hefði út-
heimt sex til sjö klukkutíma setu í
leikhúsinu, enda lagði hann verk-
ið til hliðar - þessa fyrstu tilraun
sína til að semja leikrit - og hand-
ritið fannst ekki fyrr en árið 1920
eða 16 árum eftir dauða höfund-
ar. A síðustu 30 árum eða svo
hefur þetta verk, sem jafnan
gengur undir nafninu Platonov,
eins og aðalpersónan, verið sýnt
víða í ýmsum styttri gerðum. Sú
leikgerð sem hér er lögð til
grundvallar er eftir breska verð-
launahöfundinn Michael Frayn,
sem er einn helsti þýðandi Tsjék-
ovs í Bretlandi. Frayn er annars
þekktur hér á landi sem höfundur
gamanleiksins Skvaldur sem
Þjóðleikhúsið sýndi við gífur-
legar vinsældir fyrir tveimur
árum.
Villihunang Tsékovs verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í þýðingu Árna Berg-
manns 26. desember.
Iðnó
Sexið í LR
Áðuren Leikfélag Reykjavík-
ur ræðst til atlögu við Svart-
fugl Gunnars Gunnarssonar,
sem fer í æfingu um áramót,
ætlar það að slá á léttari
strengi og frumsýnir milli jóla
og nýárs sprellfjörugan bresk-
an farsa Sex í sama rúmi
(Move Over Mrs. Markham)
eftir Ray Cooney og John
Chapman í þýðingu Karls
Guðmundssonar leikara.
Leikmyndog búningagerir
Jón Þórisson og leikstjóri er
Jón Sigurbjörnsson en Jón
hefur leikstýrt mörgum af
vinsælustu leiksýningum
Leikfélagsins á undanförnum
árum m.a. Flóáskinni,
Skjaldhömrum, Þiðmunið
hann Jörund, Rommíog
Hassinu hennarmömmu.
Metsölufarsinn Sex í sama rúmi er á
fjölum Iðnó eftir jólin. Valgerður Dan
og Kjartan Bjargmundsson í hlutverk-
um sínum.
Níu leikarar fara með hlutverk
í leikritinu: Hjónin tvenn leika
Valgcrður Dan og Þorsteinn
Gunnarsson; Kjartan Ragnars-
son og Hanna María Karlsdóttir.
Kjartan Bjargmundsson leikur
fjöllyndan innanhúsarkitekt og
Margrét Ólafsdóttir fer með hlut-
verk barnabókahöfundarins sið-
vanda. Lilja Þórisdóttir leikur
vinnustúlku innflutta frá megin-
landinu og fólk, sem til er í fram-
hjáhald leika þau Sigurður
Karlsson og Rósa Þórsdóttir.
Þetta er fyrsta hlutverk Rósu hjá
Leikfélaginu að loknu námi en
hún lauk prófi frá Leiklistarskóla
íslands í vor. Hún lék í fyrravetur
hlutverk Helenu í Draumi á
Jónsmessunótt í sameiginlegri
sýningu LR og Nemenda-
leikhússins.
Frumsýningin á Sex i sama
rúmi verður laugardagskvöldið
28. desember, 2. sýning sunnu-
dagskvöldið 29. og síðan verður
leikritið sýnt samhliða söng-
leiknum Land míns föður eftir
áramót.
Á þriðja í jólum hefjast sýningar á
Reykjavíkursögum Ástu á ný. Sýn-
ingar verða á þriðja í jólum, laugar-
dag, sunnudag og mánudag. Miða-
salan að Vesturgötu 3 opnar annan i
jólum frá 4-6, miðapantanir eru í síma
19560.
Kardemommubœrinn
Þessir náungar fara aftur á
stjá um jólin, en þeir eru nú
samt ekki venjulegir jóla-
sveinar. Þetta eru þeir Kasp-
er, Jesper og Jónatan, ræn-
ingjarnir í Kardimommubæn-
um, en hann verðurtekinn
upp í Þjóðleikhúsinu að nýju á
millijólaog nýjárs.
ífyrra sáuyfir 30.000
manns sýninguna og verður
58. sýning áverkinu laugar-
daginn 28. desember. Leik-
stjóri er Klemens Jónsson en
auk þeirra Randvers Þorláks-
sonar, Pálma Gestssonar og
Arnar Árnasonar í hlutverkum
ræningjanna leika stór hlut-
verk þau Lilja Guðrún Þor-
valdsdóttir, Róbert Arnfinns-
son og Baldvin Halldórsson
að ógleymdum fjölda barna.
Þekkja ekki alllr þessa kumpána?
Islenska operan
Leðurblakan með Kristjáni
Hátíðarsýningar milli jóla og nýárs.
Kristinn Sigmundsson og Ólafurtrá Mosfelli veröa með á Nýársgleði.
Sú sígilda óperetta Leður-
blakan eftir Johann Strauss
verðursýnd um hátíðarnarog
í byrjun næstaárs. Sérstakur
gestur í sýningum milli jóla og
nýárs verður Kristján Jó-
hannsson, sem syngur lög að
eigin vali. Gestirá Nýársgleði
verða Kristinn Sigmundsson
og ÓlafurfráMosfelli.
í óperuhúsum víða um heim er
það gamall siður - og þykir góður
- að flytja Leðurblökuna um ára-
mót. Það er ekki að ósekju, því
söguþráður óperettunnar spinnst
um stórkostlega veislu í höllu
Orlofskís nokkurs, fursta.
Veisluglaumur Leðurblökunnar
er vel til þess fallinn að koma
fólki í hátíðaskap; tónlistin er
smitandi fjörug, söguefnið glettið
og grátbroslegt, búningarog ann-
ar umbúnaður glæsilegur. Óper-
an veitir kampavín í báðum
hléum á öllum sýningum.
Sumum kann að þykja þetta
ærið, en auk þessa bauð Óperan
til sín sérstökum gesti, Kristjáni
Jóhannssyni óperusöngvara, sem
kemur fram og syngur á öllum
sýningum milli jóla og nýárs.
Kristján tók boðinu, eins og hans
var von og vísa og mun syngja
endurgjaldslaust, Óperunni til
stuðnings.
Á nýársdag og laugardaginn 4.
jan. verða gestir Óperunnar
Kristinn Sigmundsson og Ólafur
frá Mosfelli. Kóngarnir fjórir -
allt valinkunnir söngvarar verða
leynigestir á nokkrum sýningum.
Hljómsveitarstjóri Leðurblöku-
nnar er Garðar Cortes.
Leðurblakan eftir Strauss kemur aftur
á fjalir Islensku óperunnar eftir jólin
og verður sýnd fram á næsta ár. Sér-
stakur gestur á hátíðarsýningunum
milli jóla og nýárs verður Kristinn Sig-
mundsson.
Þriðjudagur 24. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9