Þjóðviljinn - 24.12.1985, Blaðsíða 20
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 81663.
DJÚÐVILJINN
Þriðjudagur 24. desember 1985 297. tölublað 50. órgangur.
Ráðherrabílar
875 þúsund á mánuði
í rekstuMQ bíla!
Hver ráðherra úti að aka fyrir sexföld dagvinnulaun verkamanns.
Jóhanna Sigurðardóttir: Burtu með þessi fríðindi!
Af'yrstu 4 mánuðum ársins nam
bif'reiðakostnaður ríkissjóðs
vegna tíu ráðherrabíla 3,5 milj-
ónum króna eða 875 þúsund
krónum á mánuði. Hcildarkostn-
aður við þennan bílaflota í fyrra
nam 8,5 miljónum á verðlani
þessa árs.
Þetta kemur fram í svari for-
sætisráðherra við fyrirspurnum
Jóhönnu Sif>urðardóttur um bíla-
fríðindi og bílakostnað ráðherra.
Meðalkostnaður á mánuði (janú-
ar til loka apríl 1985) er sem hér
segir: Halldór Ásgrímsson, 138
þúsund, Geir Hallgrímsson, 108
þúsund, Steingrímur Hermanns-
son, 100 þúsund, Alexander Stef-
ánsson, Sverrir Hermannsson og
Matthías Bjarnason 85 þúsund
hver, Matthías Á. Mathiesen 78
þúsund, Albert Guðmundsson 65
þúsund, Jón Helgason 64 þúsund
og Ragnhildur Helgadóttir 60
þúsund, samtals 875 þúsund á
mánuði.
Jóhanna Sigurðardóttir hefur
iagt fram þingsályktunartillögu í
framhaldi af þessu svari um að
fella úr gildi ákvæði um bifreiða-
fríðindi ráðherra og segir það
m.a. leið til þess að koma í veg
fyrir að bankastjórar njóti þess
sama en tillaga þar unr liggur fyrir
í a.m.k. einum ríkisbankanum
sem er Landsbankinn. Jóhanna
segir nauðsynlegt að alþingi lýsi
því yfir að það telji óeðlilegt að
ráðherrar eða embættismenn
ríkisstofnana hafi sérstök bifr-
eiðahlunnindi umfram það sem
almennt gildir og það hljóti að
þurfa athugunar við ef mánaðar-
legur rekstrarkostnaður ráðherr-
abíls geti numið allt að 6 mánaða
dagvinnulaunum verkafólks.
- ÁI.
Námslán
Gefst námsfólk upp?
Olafur Sigurðssonfulltrúi vinstri manna í HÍ: Líklegt að niðurskurðurinn geri
námsmönnum ókleift að halda áfram námi erlendis
Pað er Ijóst að nú blasir við
30% niðurskurður á náms-
lánum sem þýðir að fólk verður
að hætta námi hundruðum sant-
ait, sagði Ólafur Sigurðsson for-
maður Framkvæmdaráðs F'élags
vinstri ntanna í Háskóla Islands.
Ólafur sagði ennfremur að nú
væri það spurning hvort náms-
menn þeir sem eru erlendis við
nám og koma heim í jólaleyfi hafi
nokkuð með það að gera að fara
erlendis aftur. „Það er ekki ólík-
legt að þessi fyrirhugaði niður-
skurður geri fólki ókleift að
stunda nám erlendis", sagði
Ólafur.
„Það er svipað ástand nú og var
á sama tíma í fyrra. Þá kom fram í
Stúdentaráði Háskóla íslands sú
tillaga frá hægri mönnum að opna
lögin um námslán, þ.e. taka þau
til endurskoðunar. Þá var hún
felld með atkvæðum vinstri-
manna og Umbótasinna. Nú í
haust kom þessi tillaga aftur fram
frá hægrimönnum og þá var hún
samþykkt vegna þess að Umbar
samþykktu hana. Að þessu sinni
var tillagan borin upp undir því
yfirskini að endurskoða þyrfti af-
greiðslumáta sjóðsins.
Til að fólk skilji í nvaða farvegi
lánamál námsmanna eru stödd
um þessar mundir má benda á að
á frægu SUS-þingi (Ungir sjálf-
stæðismenn) sem haldið var fyrir
skömmu komu fram ýmsar til-
lögur sem beinast að því að
skerða hag LÍN. Og það voru
fjórir aðilar sem voru á SUS-
þinginu sem nú eiga sæti í nefnd
þeirri sem menntamálaneytið
hefur sett á stofn til að „athuga“
málefni LÍN. Þar á meðal er full-
trúi stúdenta í stjórn LÍN.
Ég vil hvetja stúdenta til að
halda vöku sinni í þessum mál-
um. Það má búast við því að ást-
andið fari versnandi, það hefur
sýnt sig í yfirlýsingum ráðamanna
undanfarið", sagði Ólafur að lok-
um.
- IH.
Suður-Afríka
Winnie
Mandela
handtekin
Um helgina var einn helsti leið-
togi blökkumanna í Suður-
Afríku, Winnie Mandela, eigin-
kona Nelson Mandela, hand-
tekin fyrir að hundsa bann yfir-
valda við að hún búi í Soweto,
útborg Jóhannesarborgar. Winn-
ie hefur á undanförnum vikum
risið til mikilla áhrifa meðal
blökkumanna sem berjast gegn
aðskilnaðarstefnunni og yfirvöld
hafa hikað í tvo mánuði við að
handtaka hana þótt hún hafi haft
að engu bann þeirra við því að
hafa afskipti af stjórnmálum og
ræða við fréttamenn.
Sjá bls. 2