Þjóðviljinn - 24.12.1985, Qupperneq 19

Þjóðviljinn - 24.12.1985, Qupperneq 19
ÍÞRÓTTIR Steinar Birgisson og félagar í landsliðinu eru staðráðnir í að hafa betur í leikjunum þremur við Dani. Mynd: E.ÓI. Hlaup Jón og Martha Jón Diðriksson, FH, og Martha Ernstsdóttir, Ármanni, urðu sig- urvegarar í Miðbæjarhiaupi Gamla Miðbæjarins og KR sem fram fór í hjarta Reykjavíkur á iaugardaginn. Hlaupnir voru 3,5 km. Annar í kariaflokki varð Guðmundur Sigurðsson, UMSK. Getraunir Fimm með 12 rétta I 18.1eikviku Getrauna komu fram fimm raðir með 12 rcttum leikjum og fær hver um sig 255,435 krónur í vinning. Með 11 rétta voru 67 raðir og er vinning- ur þar 8,169 krónur. Vinnings- potturinn var alls 1,824,570 krón- ur. Næsta lcikvika er 4.janúar 1986 en þá eru á scðlinum leikir úr 3.umferð ensku bikarkcppn- innar. 1x2 1x2 England Island-Danmörk Danir sigraðir? Þrír leikir milli jóla og nýárs, tveir í Höllinni og einn á Akranesi. ísland með betri útkomu úr síðustu 10 leikjum þjóðanna Síðustu fjögur árin hefur ís- landi gengið vel í landsleikjum í handknattleik gegn Danmörku, a.m.k. ef miðað er við fyrri tíð. Af 10 leikjum þjóðanna á þessu tímabili hefur ísland sigrað flmm sinnum, einu sinni hefur orðið jafntcfii en Danir hafa sigrað fjór- um sinnum. Nú á milli jóia og ný- árs gefst frekara tækifæri til að leggja Dani að velli, þrír lands- leikir fara fram hér á landi. Sá fyrsti í Laugardalshöll kl. 20 á föstudagskvöldið 27.desember, annar á Akranesi laugardaginn 28.des. kl. 13.30 og sá þriðji í Höllinni kl.20 á sunnudagskvöld- ið, 29.desember. Bæði ísland og Danmörk tefla fram mjög sterku liði í þessum leikjum. Allir okkar sterkustu menn eru í landsliðshópnum nema Atli Hilmarsson og Alfreð Gíslason. í liði Dana eru fjöl- margir snjallir og kunnir leik- menn og má þar nefna Jan Röp- storff, Erik Veje Rasmussen (Gummersbach), Klaus Sletting Jensen, Morten Stig Christensen, Hans Hattesen, Jörgen Gluver (Alicante) ogMichael Fenger. Þá eríliðinueinn nýliði, Kim G.Jac- obsen. Hann skoraði 11 mörk þegar Danmörk vann ísland í tví- framlengdum leik í heimsmeistarakeppninni undir 21-árs fyrr í þessum mánuði. Það þarf varla að nefna hinn mikla ríg milli íslands og Dan- merkur sem svo oft kemur fram í leikjum þessarra þjóða í hinum ýmsu íþróttagreinum. Fyrir ís- lendinga er alltaf jafn sætt að sigr- ast á Dönum og að sama skapi svíður Dönum jafnan sárt að tapa gegn íslendingum. Fyrir fjórum árum, 29.desember 1981, vann ísland einn sinn allra sætasta sigur í handknattleik, vann Dani 32-21 á Akranesi, og þær minn- ingar rifjast eflaust upp þegar lið- in mætast þar á föstudaginn. Það má búast við skemmti- legum leikjum. Danir eiga á að skipa einu skemmtilegasta lands- liði heims, leika ávallt léttan og fjörugan handknattleik þannig að það má reikna með hraða og mörgum mörkum í Höllinni og á Akranesi. Hættir Swansea? Enska knattspyrnufélagið Swansea City fékk í gær 10 daga frest til að forða gjaldþroti. Á föstudaginn var úrskurðað fyrir rétti að félagið skyldi leyst upp vegna skulda. Stjórnarmenn bíða og vona að fjárstcrkur aðili grípi inní og bjargi félaginu, eins og gerðist hjá Charlton, Wolves og Bristol City sem lent hafa í sams- konar aðstöðu síðustu árin. Swansca komst á topp l.deildarinnar um tíma fyrir fjór- um árum en hefur síðan hrapað mjög og er nú næstneðst 13.deild. Lcikmcnn liðsins hafa samþykkt að leika kauplaust gegn Cardiff á annan í jólum. Úrvalsdeildin —vs —VS/Reuter Skíði Petrovic sigraði Aftur klúðrar ÍR yfirburðaforystu Júgóslavinn ungi Rok Petrovic vann glæsilegan sigur í svig- keppni heimsbikarsins í Kranjska Gora í heimalandi sínu á laugar- daginn. Svíinn Jonas Nilsson varð annar og Thomas Stangassinger frá Austurríki þriðji. Af 82 keppendum voru aðeins 38 sem luku fyrri ferð og meðal þeirra sem féllu var Marc Girar- delli frá Luxemburg, sem er efst- ur í stigakeppni heimsbikarsins. Ingemar Stenmark féll í síðari ferðinni. Girardelli er með 80 stig, Peter Muller frá Sviss 70, Peter Wirns- berger frá Austurríki 65, Petrovic 62 og Nilsson 57 stig. Nilsson ei efstur í stigakeppninni í svigi með sín 57 stig en Petrovic er annar með 50 stig. —VS/Reuter Það leit ekki vel hjá íslandsmeist- urum Njarðvíkinga í hálfleik gegn botniiði ÍR. ÍRingar höfðu spilað af skynsemi í fyrri hálflciknum og upp- skorið eftir því, höfðu 23ja stiga for- ystu, 53-30. En Njarðvíkingar tóku við sér og yfirspiluðu ÍR-inga í scinni hálfleiknum og sigruðu 81-79. Njarðvíkingar gerðu útum leiktnn snemma í seinni hálfleik með því að gera 30 stig gegn aðeins 6 stigum ÍR. Eftir það áttu ÍR-ingar enga mögu- leika, öll barátta var horfin úr liðinu. Það skipti t.d. engu máli hvort Njarð- víkingar næðu að skora úr víta- skotum, þeir'áttu alltaf frákastið! Og smátt og smátt náðu þeir að vinna upp forskotið og sigra. Það var erfitt að ímynda sér að það væru sömu lið sem léku seinni hálfleik og þann fyrri. Njarðvíkingar léku vægast sagt illa í fyrri hálfleik en blómstruðu í þeim síðari. Nánast allt gekk upp hjá þeim. Þeir Jóhannes og Valur voru bestir hjá Njarðvík ogáttu stórleik, hittu báðir vel. Ilelgi og Kristinn léku einnig vel í seinni hálf- leik. Vörn liðsins var sterk og áttu ÍR-ingar ekkert svar við henni. Það er ótrúlegt að lið geti tapað niður 23ja stiga forskoti á 15 mínútum en það tókst ÍR-ingum. Þegar 15 mín. voru eftir stóð 62-39, þeim í hag. Eftir það gekk ekkert upp. Tauga- veiklun einkenndi leik þeirra og virt- ust þeir ekki trúa því að þeir gætu sigrað toppliðið. Sóknirnar voru stuttar og árangurslitlar. Þá háði það IR-ingum að fimm leikmenn voru komnir með 4 villur strax í byrjun seinni hálfleiks. Bestir hjá ÍR voru þeir Vignir og Karl. Þetta er annar leikurinn í röð sem í R-ingar tapa eftir að hafa verið 20-30 stigum yfir. Þó þeir séu með ágætt lið hefur þeim ekki gengið sem skyldi og tapað flestum leikjunum með 2-3ja stiga mun. En það efast enginn um að ÍR-i ngar geta betur, það er bara spurning um hvenær þeir hrökkva í gang. —Logi Seljaskóli 21 .des. ÍR-UMFN 79-81 (53-30) 7-6, 29-19, 44-25, 53-30 - 62-39, 62-51, 68-62, 73-70, 75-78, 79-81. Stig ÍR: Vignir Hilmarsson 14, Karl Guðlaugsson 13, Jón Örn Guðmunds- son 13, Björn Leósson 11, Hjörtur Oddsson 11, Ragnar Torfason 9, Jó- hannes Sveinsson 4, Benedikt !ng- þórsson 4. Stig UMFN: Jóhannes Kristbjörns- son 27, Valur Ingimundarson 21, Krist- inn Einarsson 10, Helgi Rafnsson 9, Hreiðar Hreiðarsson 6, fsak Tómas- son 5 og Ellert Magnússon 3. Dómarar: Bergur Steingrímsson og Ómar Scheving — slakir. Maður leiksins: Jóhannes Krist- björnsson, UMFN. Staðan i úrvaisdeildinni í körfuknattleik: UMFN......... 13 11 2 1104-999 22 Haukar.........13 9 4 1033-981 18 IBK...........13 7 6 996-1015 14 Valur........ 13 6 7 1019-1006 12 KR.............13 4 9 1004-1090 8 IR............13 2 11 1033-1098 4 Stigahæstir: Valur Ingimundarson, UMFN..........324 PálmarSigurðsson, Haukum...........283 BirgirMikaelsson, KR...............263 RagnarTorfason, |R.................251 Jón Kr.Gíslason, ÍBK................233 Þriðjudagur 24. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.