Þjóðviljinn - 10.01.1986, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 10.01.1986, Blaðsíða 7
Hann áafmæli ídag...Rod Stewarttekur lagið á Broadway ífyrra. Ljósm.E.ÓI.. Elvis Presley lést 16. ágúst 1977 Rokkskáldið og gítaristinn Chuch Berry er faeddur 18. október 1931 og leggur (fæddur 8. janúar 1935). Þessar enn stund á rokk. myndir eru teknar með rúmlega 5 ára millibili. Rokksaga í hljóðritröð í fyrrasumar tók Almenna bókafélagið upp á því að stofna hljómplötuklúbb og koma í gegnum hann áfram- færi hljóðritröðinni The Hist- ory of Rock. Nú eru viðskipt- avinir klúbbsins búnir að fá fjögurfyrstu plötuhefti Rokk- sögunnar, eða 7 hljómplötur alls, þar sem hér er um tvöföld plötualbúm að ræða, nema það fyrsta, og hafa borgað 1828 krónur fyrir þessa hei- lögu tölu. Þetta eru heilmikil kjarakaup og mikill fengur að þessari útgáfu fyrir þásem áhuga hafa á sögu rokksins og tónlist þeirra sem mestan svip hafa sett á rokksöguna sem ekki telst nema rétt lið- Iega30 áragömul. Fyrsta hefti Rokksögunnar hefur að geyma elstu og bestu lög rokkkóngsins Elvisar Presley og fá ungir músíkpælarar, sem ekki hafa heyrt þau áður, eflaust ann- að og meira álit á honum, sem var orðinn feitur, latur og sjúkur maður er hann lést fyrir tæpum níu árum. Annað heftið inniheldur perlur rokkarans Bills Haley sem hefur gert nafn sitt ódauðlegt með Rock around the clock en hann lést fyrir fáum árum; Buddy Holly fórst 22 ára að aldri í flugslysi, en þrátt fyrir stuttan starfsaldur gerði hann marga perluna sem telst til klassíkur í rokkinu (Peggy Sue og That’Il be the day t.d.) og Elvis Costello er ekkert að fela að Holly er fyrirmynd hans; hin heftin í öðru heftinu er feitlagni söngvarinn og píanóleikarinn skemmtilegi Fats Domino, sem er 8 barna faðir í New Orleans og skemmtir af og til með gömlu lög- un.um sínum;... og svo Little Ric- hard, sem er sko bráðlifandi og skemmtandi enn þann dag í dag. og mælir gjarnan með sér sjálfur, bæði hvað músíkhæfileikum og útliti við víkur. Lont tall Sally er líklega þekktasta útgáfa Bítlanna af því lagi. Auk þess að vera sér- stakur söngvari þykir Richard litli, sem verður 54 ára næsta að- fangadag, vera hinn besti orgel- leikari. í 3. og 4. hefti rokksögunnar eru söngvar þriggja látinna lista- manna: „sól‘"söngvarans Sam Cooke sem skotinn var til bana tæplega þrítugur að aldri í des- ember 1964. Þekktasta lag þessa ljúfrómaða manns er Only six- teen; Vinirnir Eddy Cochran og Gene Vincent eiga sína plötusíð- una hvor og ber auðvitað hæst lög þeirra Summertime Blues sem hljómsveitin Who gerði að vöru- merki sínu í minningu Cochrans og svo hið glæsilega ekkóhlaðna lag Vincents, Be-Bop-A-Lula. Sá fyrrnefndi lést í bílslysi 1960 sem sá síðarnefndi slapp lifandi úr en náði sér aldrei að fullu. Hann lést svo í október 1971, á 37. aldurs- ári, og hafði þá átt langt samneyti við Bakkus sem reyndist honum vondur meðreiðarsveinn og kom í veg fyrir áframhaldandi frama hans. Aðrir í 3. og 4. hefti eru Chuck Berry, sem nefndur hefur verið faðir gítarleikaranna og hefur sett saman ótrúlegan fjölda laga og texta sem er algjör klassík í rokkinu: Sweet little sixteen, Memphis, Johhny B. Goode o.s.frv. o.s.frv....; Söngsveitin Platters, bræðradúettinn Everly Brothers sem hvað þekktastir eru fyrir Wake up little Susie, hinn óstýriláti rokkari og píanisti, þótt rúmlega fimmtugur sé, Jerry Lee Lewis (Whole lotta shaking’ goin’ on), og svo kántrýrokkarinn Carl Perkins sem samdi lagið sem Presley gerði frægt, Blue suede shoes. Frá þessum gömlu brautryðj- endum í rokkinu, sem margir hverjir eru enn að þrátt fyrir tölu- vert mannfall í þessari atvinnu- grein, mun svo rokksagan halda þræðinum fram á vora daga, þótt líklega verði farið fljótar yfir sögu þegar nær nútímanum dregur... En, sem sagt, þessar gömlu klass- ísku upptökur eru ómetanlegar í safni áhugamanna um rokksögu- na, sem er reyndar ekki „bara“ saga rokksins, heldur þjóðfélags- lýsing hvers tíma þegar best lætur. Þess má líta geta að undir sama heiti The History of Rock, hafa verið gefnir út bæklingar og fengist hér í bókabúðum, a.m.k. í Eymundsson. Hvað plötukúbb AB varðar er hægt að ganga inn í hann hvenær sem er, en ef fólk vill fá plöturnar frá byrjun þarf að geta þess sér- staklega. Svona í lokin má kannski geta þess að einn ágætur rokkari, sem mun eiga lög í safni þessu, er 41 árs í dag: Rod Stewart, sem heim- sótti okkur í fyrra. Minna þekktir rokkarar deila með honum af- mælisdegi, Donny Hathaway (fæddur 1945 eins og Rod) sem sungið hefur ljúflega með Ro- bertu Flack, Ronnie Hawkins sem hefur verið í slagtogi með The Band og Bob Dylan og kom fram í myndinni frá kveðjuhljóm- leikum The Band, The Last Waltz (fæddur 1935), og Jim Croce (fæddur 1943) sem fórst í flugslysi 1973 (Bad bad Leroy Brown líklega hans þekktasta lag). ... og þar með er sleginn botn í þessa ábendingu um gott innlegg til rokksögunnar. A Vinsældalistar Þjóðviljans Fellahellir (1) 1. Hjálpum þeim - íslenska hjálparsveitin (2) 2. Say You Say Me - Lionel Ritchie (-) 3. Broken wings - Mister Mister (2) 4. You’re a woman -Bad Boys Blues (5) 5. In the heat of the night - Sandra (7) 6. Samurai - Michael Credu (-) 7. Sentimental eyes - Rickshaw (3) 8. Don’t mess with Doctor Dream - Thompson Twins (10) 9.1’m your man - Wham! (4) 10. Pretty young girl - Bad Boys Blues Grammið (1) 1. Holidays in Europe - Kukl (3) 2. Frankenchrist - Dead Kennedys (-) 3. Easy pieces - Lioyd Cole and the Commotions (-) 4. Can your pussy eat the dog? - Cramps (-) 5. Slave to the rythm - Grace Jones (6) 6. Cut the crap - Clash (-) 7. Wishfull thinking - Propaganda (7) 8. Terminal tower - Pere Ubu (-) 9. Nail - Scrappin’ Poetus of the Wheel (-) 10. The evening visits -The Apartments Rás2 (1) 1. Hjálpum þeim - íslenska hjálparsveitin (5) 2. Allur lurkum laminn - Bubbi Morthens (2) 3. In the heat of the night - Sandra (4) 4. Gaggó-Vest — Eiríkur Hauksson, Gunnar Þóröarson o.íl. (3) 5. Fegurðardrottning - Ragnhildur Helgadóttir (10) 6. Segðu mér satt - Stuðmenn (7) 7. Sentimental eyes - Riskshaw (11) 8. Saving all my love for you - Withney Houston (20) 9. Brothers in arms - Dire Straits (9) 10.1’m your man - Wham! Föstudagur 10. januar 1986 ÞJÓÐViLJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.