Þjóðviljinn - 10.01.1986, Page 8
Skuldirnar
Tillaga Kúbu um að Suður-Ameríkuríki neiti að borga
skuldirnar er til að þau losi sig undan því kverkataki sem
bankavaldið hefur á þessum ríkjum
Þessi grein fjallar um skulda-
kreppu Rómönsku Ameríku.
Pað er hægt að nálgast þetta efni
á ýmsan hátt. Eyða má miklum
tíma í að ræða hversu mikil skuld-
abyrðin sé, hvaða möguleikar séu
á því að leysa kreppuna, hvernig
vaxtaþróun hafi leikið þessi ríki
o.s.frv.
Ég hef valið að segja frá því,
hvemig kúbanir hafa notað þetta
mál til þess að hvetja til baráttu,
og hvernig þeir hafa tekið forystu
fyrir þeirri kröfu að neita að
borga þessar skuldir en nota þess
í stað féð til þess að stuðla að
aukinni efnahagsþróun í þessum
heimshluta.
Á ráðstefnu í sumar er leið í
Havana var ákveðið að helga 23.
október kröfunni um að neita að
borga skuldirnar.
Hér er í rauninni á ferð umbylt-
ingarkrafa. Þetta er tillaga um að
þau losi sig undan heimsauðvald-
inu. - Að þau losi sig undan því
kverkataki sem bankavaldið hef-
ur á þessum ríkjum. Að þau snúi
sér að því að byggja upp efna-
hagslíf sitt.
Skuldakreppan
Skuldabyrði ríkja Rómönsku
Ameríku er í ár um 360 miljarðar
dollara. Þetta eru skuldir sem
hafa safnast saman síðustu 20-25
árin. Fyrri hluta sjöunda áratug-
arins voru skuldir þessara ríkja
við alþjóðlega banka og
heimsvaldasinnuð ríki nánast
engar.
Ymsar ástæður eru fyrir því að
þessar skuldir hafa hlaðist upp.
Ég vil nefna nokkrar. Fram-
ieiðsluvörur þessara ríkja hafa
fallið í verði á heimsmarkaði bor-
ið saman við verðmæti þeirra
framleiðsluvara sem þau þurfa að
flytja inn frá iðnríkjunum miðað
við árið 1980. Háir vextir hafa
leikið þessi ríki grátt og sömu
sögu er að segja um hátt verð
dollara. Þá má nefna vopnakaup
þeirra einræðisstjórna sem þarna
hafa ríkt t.d. í Argentínu og
Chile. Beinan fjárdrátt, þjófnað
þeirra sem eru á toppnum í þess-
um löndum og hafa flutt fé yfir á
banka í Sviss og Bandaríkjunum.
Ennfremur fjármagnsflótta sem
hefur orðið er fólk hefur breytt
þeim gjaldmiðli sem er notaður í
þessum löndum yfir í dollara og
flutt úr landi.
Stærstu skuldunautarnir eru
Brasilía og Mexikó, sem hvor um
sig skulda um 100 miljarða doll-
ara, eða samtals rúman helming
skuldabyrðarinnar. Þetta segir
ekki alla söguna, því í löndum
Rómönsku Ameríku búa mis-
munandi margir, - þetta eru ólík
lönd. Aðrar tölur sem eru betri til
að leggja mat á þetta eru tölur
um, hve stór hluti útflutnings-
verðmæta þessara ríkja fer í að
greiða vexti af skuldum.
Þær þjóðir sem skulda mest
þurfa að greiða um og yfir helm-
ing útflutningsverðmæta í vexti,
einungis vexti til að skuldirnar
haldi ekki áfram að vaxa þ.e.a.s.
Bólivía (57%), Argentína (52%)
og Chile (46%). Brasilía, Mexikó
og Perú þurfa að greiða rúmlega
þriðjung eða um 36% af útflutn-
ingsverðmætum í vexti.
Á sama tíma er aimennt viður-
kennd staðreynd meðal hagfræð-
inga auðvaldsins að þegar yfir
20% af útflutningsverðmætum
fara í vexti og afborganir af
skuldum muni ekki líða á löngu
þar til efnahagskerfi þeirra hryn-
ur. Þetta gerist á sama tíma og
mikil verðbólga ríkir í þessum
löndum og - ef miðað er við tíma-
bilið 1981-1984, sem þjóðarfram-
leiðsla hefur snarminnkað. Þess-
ar þjóðir hafa smám saman verið
að gera sér ljóst að þessar skuldir
verða aldrei borgaðar. Það sér
hver heilvita maður.
Tillögur kúbana
Kúbanir settu fram tillögu um
að einfaldlega yrði neitað að
borga af þessum skuldum, þær
yrðu aldrei greiddar hvort sem
væri. Þessi hugmynd var sett fram
í ræðu Fidels Kastrós árið 1979 á
6. þingi Óháðra Ríkja í Havana á
Kúbu, en meginefni ræðunnar
snérist einmitt um skuldabyrð-
ina. Skömmu síðar hélt Fídel Ka-
stró ræðu á Allsherjarþingi Sam-
einuðu Þjóðanna um sama efni.
Kúbanir hófu þá þegar undirbún-
ing að þessari baráttu, meðal
annars með því að gera umfangs-
mikla skýrslu um heimskrepp-
una. Skýrslan var gerð af Efna-
hagsstofnuninni í Havana. Hún
var lögð fyrir 7. fund Óháðra
Ríkja sem var haldinn í Nýju Del-
hí á Indlandi 1983.
Kúbanir hafa verið spurðir ó-
talmargra spurninga í sambandi
við tillögur sínar. Ein þeirra er,
hvort þeir ætli að setja bankana á
hausinn. Þeir hafa svarað því til
að það sé alls ekki óumflýjanlegt,
heldur sé tiltölulega einfalt að
leysa það mál. Til að mæta tapi
bankanna geti ríkisstjórnir iðn-
ríkjanna borgað þeim. Einungis
10% af hernaðarútgjöldum
þeirra nægja til að mæta því. Ef
sú hávaxtastefna sem hefur ríkt
undanfarið heldur áfram, geta
það orðið um 12%. Það er að
segja ef ríkisstjórnir iðnríkjanna
minnka útgjöld til hernaðar um
10-12% er hægt að mæta tapi al-
þjóðlegra banka, neiti þjóðir
Rómönsku Ameríku að borga.
Fundir og viðtöl
í sumar er leið héldu kúbanir 3
stóra alþjóðlega fundi og ráð-
stefnur í Havana um skulda-
kreppuna með þátttöku
stjórnmálamanna og verkafólks
frá Rómönsku Ameríku. Sá fyrsti
var haldinn í júníbyrjun og var
fundur kvenna í Rómönsku Am-
eríku. Þá var haldinn fundur 330
verkalýðsleiðtoga frá 29 löndum.
Stærsti fundurinn var haldinn um
mánaðamótin júlí-ágúst. Þar
mættu 1000 manns, fyrrverandi
þjóðarleiðtogar, fyrrverandi og
núverandi ráðherrar frá Róm-
önsku Ameríku, þingmenn, hag-
fræðingar og vísindamenn, lista-
menn og rithöfundar þar á meðal
nóbelsverðlaunahafarnir Gabríel
Garcia Marquez og Perez Esqui-
vel. Auk þeirra var fjöldi frétta-
manna viðstaddur. Þarna áttu sér
stað umræður um, hvernig réttast
væri að snúa sér í þessum málum.
Það er engin tilviljun að fjöl-
miðlar skuli hafa veitt þessu at-
hygli. Þeir gera það vegna þess,
að þessi barátta er að byrja að ná
árangri, hún er að verða að
fjöldabaráttu. Því miður hefur
þessarar umræðu ekki orðið vart í
íslenskum fjölmiðlum nema að
takmörkuðu leyti. Fréttamenn
hafa þust til Kúbu til að spyrja
spurninga og Fídel Kastró hefur
verið afar viljungur að gefa sér
tíma til viðtala. Eitt fyrsta viðtal-
ið og sennilega það þekktasta
birtist á forsíðu mexikanska dag-
blaðsins Excelsior 5 daga í röð í
febrúar síðastliðnum. Þá kom
Kastró fram í viðtalsþáttum í
bandarískri sjónvarpsstöð 4
kvöld í röð einnig í febrúar og
voru þeir sýndir tvisvar um gerv-
öll Bandaríkin. Þar var hann
spurður spjörunum úr um af-
stöðu kúbönsku ríkisstjórnarinn-
ar um hin ýmsu atriði. Washing-
ton Post, Newsweek, spænska
fréttastofan EFE og Playboy
töluðu einnig við hann. Eina dag-
blaðið á íslandi sem hefur birt
eitthvað af þessum viðtölum er
DV, sem þýddi hluta af Playboy-
viðtalinu
Þessi viðtöl eru hluti af baráttu
kúbana fyrir kröfunni um að
borga ekki skuldirnar. Þeir taka
þau upp á segulband og gefa þau
út jafnharðan, nokkrum dögum
eftir að þau eru tekin. Þeim er
dreift í hundruðum þúsunda ein-
taka bæði innan 'Kúbu og eins
víðs vegar um heim, meðal ann-
ars eru þau fáránleg hjá Vinátt-
ufélagi Islands og Kúbu (VÍK),
Mjölnisholti 14.
Þessi útgáfustarfsemi er teikn
um hvers konar forysta er við
völd á Kúbu. Það er ríkisstjórn,
sem hefur fullan hug á að mennta
fólk um efnahagsmál og pólitík,
og ekki aðeins sína eigin þjóð
heldur einnig aðra, eins og til
dæmis okkur. Þetta eru alþjóða-
sinnar sem skirrast ekki við að
taka á því geggjaða ástandi sem
ríkir í efnahagsmálum heimsins
og takast á hendur þá ábyrgð sem
felst í að veita forystu í baráttunni
gegn því.
Kúbanska sendisveitin á al-
þjóðlegu kvennaráðstefnunni í
Nairóbí í Kenía í sumar er leið
hafði með sér heilu gámana af
þessum viðtalsbæklingum,
dreifði þeim þar og ræddi þessi
mál. Mér er sagt og ég les það í
erlendum blöðum, að þessi mál
Rómönsku Ameríku, svo og mál-
efni Suður-Afríku hafi verið þau
mál sem hæst bar á ráðstefnunni.
Kennedy og
Framfarabandalagið
John F. Kennedy þáverandi
forseti Bandaríkjanna setti á fót
Framfarabandalagið fyrir 24
árum, eða árið 1961. Áætlun
hans fólst í efnahagslegri sam-
vinnu við ríki Rómönsku Amer-
íku til þess að mæta efnahags- og
þróunarþörfum þeirra. Gert var
ráð fyrir að leggja fram 20 milj-
arði dollara til fjárfestinga á 10-
15 árum. Kveikjan að stofnun-
inni var að sporna við þeim áhrif-
um sem fordæmi byltingarinnar á
Kúbu vakti meðal a)þýðu þessara
ríkja, og átti að leiða til þess að
afnema þær aðstæður sem
sköpuðu hlutlæg skilyrði fyrir til-
komu fleiri byltinga.
Nú þúrfa íbúar þessara ríkja,
sem eru tvöfalt fleiri og búa við
a.m.k. þrefalt stærri félagsleg
vandamál, að borga iðnríkjunum
40 miljarði dollara í vexti af
skuldum á ári. Á 10 árum verða
það 400 miljarðar dollara eða 20-
föld sú upphæð, sem Kennedy
ætlaði þessum ríkjum til að mæta
efnahags- og þróunarþörfum á
10-15 ára tímabili.
Breyttar aðstæður
Pólitískar aðstæður í Róm-
önsku Ameríku hafa breyst frá
því sem var uppúr 1960, þegar
byltingin á Kúþu var að stíga sín
fýrstu skref. Þá krafðist Banda-
ríkjastjórn þess og fékk sam-
þykkt að kúbanir yrðu reknir úr
samtökum Ameríkuríkja (OAS).
Bandaríkjastjórn krafðist þess
verða aldrei greiddar
ennfremur - hvatti heitir það á
fínu máli - að önnur Ameríkuríki
slitu öll stjórnmálaleg og við-
skiptaleg tengsl við Kúbu.
Bandaríkjastjórn ætlaði að kæfa
þessa byltingu strax í upphafi.
Þeim varð svo vel ágengt að í
september 1964 höfðu öll ríki
Rómönsku Ameríku slitið
stjórnmálasambandi við Kúbu
nema Mexíkó. Á þessu hefur
orðið grundvallarbreyting. Þann
I. maí síðastliðinn setti Banda-
ríkjastjórn hafnbann á Nigarag-
ua. Efnahagsráð Rómönsku Am-
eríku (SELA), sem í eru 25 ríki á
svæðinu, hvatti Bandaríkjastjórn
til að láta af hafnbanninu og á-
kvað að styðja Nigaragua fjár-
hagslega gagnvart þessum
óskunda.
Á síðasta ári fóru viðskipti
Argentínu og Kúbu fram úr við-
skiptum Mexikó og Kúbu, en
undanfarin 20 ár hefur Mexikó
verið stærsti viðskiptaaðili Kúbu
af löndum Rómönsku Ameríku.
Þá gerðist það í apríl í ár að forseti
Ekvador Leon Febres Cordero
kom í heimsókn til Kúbu, en
hann er fyrsti þjóðarleiðtogi
Rómönsku Ámeríku, sem kemur
til Kúbu síðan 1959, að undan-
skildum þjóðarleiðtogum Mex-
ikó. Kastró bendir á að ein af
ástæðunum fyrir þessum breyttu
aðstæðum sé efnhagsleg. Á fyrri
hluta sjöunda áratugar hafi efna-
hagskreppan ekki herjað á þessi
ríki í þeim mæli sem hún gerir nú.
Ef Bandaríkjastórn gerir innrás í
Nikaragua munu ríki Rómönsku
Ameríku ekki sitja hjá. Og hann
bendir á að þegar breska
heimsveldið réðst á Malvinas-
eyjar (Falklandseyjar nefnast
þær í borgarapressunni) urðu
straumhvörf í hernaðarsam-
skiptum ríkja Rómönsku Amer-
íku og Bandaríkjanna, er ríkis-
stjórnir Rómönsku Ameríku
tóku sameinaða afstöðu gegn
breska heimsveldinu.
Þjóðarframleiðsla ríkja Róm-
önsku Ameríku hefur minnkað á
tímabilinu 1981-1984. f Uruguay
hefur hún t.d. fallið um 13,9%, í
Argentínu um 6%, í Chile um
5,4% og í Venesúela um 6,1%,
þrátt fyrir geysileg náttúru-
auðæfi. Á Kúbu hefur þjóðar-
framleiðsla hins vegar aukist á
sama tímabili um 22,6%. Þjóð-
arframleiðsla á íbúa hefur
minnkað enn meir í þessum
löndum, í Bólivíu minnkaði hún
um 24,6%, í Costa Rica um
14,1%, í Chile um 11,2%, í Mex-
ikó um 6,3%, í Argentínu um
II, 8% og í Venesúela og Urugu-
ay um 16,2%. Á Kúbu jókst
þjóðarframleiðsla á íbúa um
24,8%. Allar þessar tölur eru
miðaðar við tímabilið 1981-1984.
Fyrir þessu eru ýmsar ástæður.
Kastró hefur t.d. bent á að borið
saman við framleiðslu þróaðra
iðnríkja fer verðgildi framleiðslu
þróunarlandanna síminnkandi.
Hann tekur gjarnan dæmi af 180
hestafla jarðýtu sem kostaði 200
tonn af sykri árið 1960, en nú
kosti samsvarandi gripur 80 tonn
af sykri. Verðgildi hennar hefur
fjórfaldast miðað við sykurverð,
frá því á árunum áður en skulda-
byrðin kom til sögunnar.
Kúbandir benda á að beint
samband er á milli skuldakrepp-
unnar og hinnar alþjóðlegu efna-
hagskreppu, en þó sérstaklega
Fiedl Castro leggur mikla áherslu á
samstöðu fátækari ríkja í baráttunni
alþjóðlegu bankaauðvaldi.
ójafna viðskiptahætti. Því leggja
þeir ríka áherslu á að tengja sam-
an útstrikun skuldanna og nauð-
syn þess að koma á nýju efna-
hagsfyrirkomulagi. Verði það
ekki gert verða þessi ríki komin í
sömu vandræðin innan fárra ára.
Hreint rán
Hluta af aukningu skuldabyrð-
ar Rómönsku Ameríku á árinu
1984 má flokka undir hreint rán,
en það eru um 45 miljarðar doll-
ara. Þessi upphæð skiptist þannig
að 20 miljarðar eru vegna verri
viðskiptakjara, vegna þess að
vörur sem fluttar eru frá Róm-
önsku Ameríku falla í verði mið-
að við þær vörur sem þarf að
flytja inn. Vextir jukust á síðasta
ári, en það olli um 10 miljarða
aukningu. Vegna fjármagnsút-
streymis hurfu 10 miljarðar, er
fólk skipti fé yfir í erlendan gjald-
miðil og setti inn á erlenda bank-
areikninga. Þá var dollarinn of-
metinn í gjaldeyrisviðskiptum og
jukust skuldirnar a.m.k. um 5
miljarði vegna þess.
Tíund
Á einum þeirra funda í Havana
sem fyrr var greint frá kom fram
tillaga um að ríki Rómönsku Am-
eríku skyldu borga 10% af þjóð-
artekjum til þess að minnka
skuldirnar, nokkurs konar tíund.
Bandaríkjastjórn tók þessari til-
lögu vel og þótti sem þarna hefði
verið leikið á kúbani.
Kastró bendir á tvennt í þessu
sambandi. í fyrsta lagi er ástæðan
fyrir því að Bandaríkjastjórn
tekur þessa tillögu yfirleitt til um-
ræðu sú, að kúbanir eru búnir að
fjalla grimmt um þessi mál í rúmt
ár. Hefði þessi tillaga komið fram
fyrir ári síðan hefðu fáir lagt við
hlustirnar. í öðru lagi bendir Ka-
stró á, að enda þótt þessar þjóðir
mundu skuldbinda sig til þess að
borga 10% af þjóðarframleiðslu
til þess að „minnka" skuldirnar,
halda þær engu að síður áfram að
vaxa. Vextir eru einfaldlega það
háir. Þessi tillaga miðar því ein-
ungis að því að múlbinda þessar
þjóðir til að nota 10% af þjóðar-
framleiðslunni um ókomin ár til
að borga erlendum bönkum,
borga nokkurs konar tíund.
Nútíma þrælahald
Fídel Kastró líkir ástandinu við
þrælahald án hlekkja. Alþýða
manna í þessum löndum þarf að
þræla fyrir lítil sem engin íaun og
helmingur framleiðslunnar fer í
skuldir. Hann bendir á þá hlið-
stæðu að þegar þrælarnir á Haiti
risu upp gerðu þeir það með ein-
hliða yfirlýsingu. Þegar þrælarnir
risu upp í Bandaríkjunum á sín-
um tíma gerðu þeir það með ein-
hliða yfirlýsingu. Þeir lýstu því
einfaldlega yfir að þeir væru
frjálsir. Eins ættu þjóðir Rómön-
sku Ameríku að fara að.
25. nóvember 1985
Gylfi Páli Hersir
Höfundur dvaldi á Kúbu sumarið
1975. Hann er félagi í Alþýðu-
bandaiaginu í Reykjavík og Bar-
áttusamtökum sósíalista.
P.S. Grein þessi er að stofni til
samhljóða erindi, sem höfundur
flutti 23. október síðastliðinn á
fundi Vináttufélags íslands og
Kúbu (VÍK), El Salvadornefnd-
arinnar og utanríkisnefndar
ÆFAB. Greinin var boðin Morg-
unblaðinu til birtingar. Eftir viku
umhugsun var því hafnað.
Umboðsmenn
HAPPDRÆTTIS
ÞJÓÐVILJANS 1985
REYKJANES
Keflavík: Jóhann Geirdal, Hafnargötu 49,
sími 92-1054.
Garður: Kristjón Guðmannsson, Melbraut 12,
sími 92-7008.
Sandgerði: Elsa Kristjánsdóttir, Holtsgötu 4,
sími 92-7680
Mosfellssveit: Aðalheiður Magnúsdóttir, Dvergholt 12 (neðri hæð),
sími 666653.
Kópavogur: Sigurður Magnússon, Álfhólsveg 76,
sími 42657.
Garðabær: Ingólfur Freysson, Brekkubyggð 49,
sími 46072.
Hafnarfjörður: Jóhann Guðjónsson, Nönnustígur 8,
sími 52119.
Seltjarnarnes: Ragnhildur Helgadóttir, Sæbraut 6
sími 15634.
VESTURLAND
Akranes: Garðar Nordal, Vitateig 5B,
sími 93-2567
Borgarnes: Sigurður Guðbrandsson, Borgarbraut 43,
SÍmi 93-7122.
Ólafsvik: Jóhannes Ragnarsson, Hábrekku 18,
sími 93-6438.
Grundarfjörður: Matthildur Geirmundsdóttir, Fagurhólstúni 10,
sími 93-8715.
Stykkishólmur: Guðrún Ársælsdóttir, Lágholti 3,
sími 93-8234.
Búðardalur: Gísli Gunnlaugsson, Búðardal,
sími 93-4142.
VESTFIRÐIR
Patreksfjörður: Einar Pálsson, Laugarholt,
sími 94-2027.
Bíldudalur: Halldór Jónsson, Lönguhlíð 22,
sími 94-2212.
Þingeyri: Davíð Kristjánsson, Aðalstræti 39,
sími 94-8117.
Flateyri: Hafdís Sigurðardóttir, Þórustöðum,
sími 94-7658.
Suðureyri: Sveinbjörn Jónsson, Sætún 10,
sími 94-6235.
ísafjörður: Smári Haraldsson, Hlíðarveg 3,
sími 94-4017.
Bolungarvík: Kristinn Gunnarsson,
sími 94-7437.
Hólmavík: Jón Ólafsson,
sími 95-3173.
NORÐURLAND VESTRA
Hvammstangi: Flemming Jessen, Kirkjuvegur 8,
sími 95-1368.
Blönduós: Guðmundur Kr. Theódórsson, Húnabraut 9,
SÍmi 95-4196.
Skagaströnd: Edvald Hallgrímsson, Hólabraut 28,
sími 95-4685.
Sauðárkrókur: Ingibjörg Hafstað, Vík,
sími 95-5531.
Siglufjörður: Kolbeinn Friðbjarnarson, Hvanneyrarbraut 2,
sími 96-71271.
NORÐURLAND EYSTRA
Ólafsfjörður: Sæmundur Ólafsson, Vesturgötu 3,
sími 96-62267.
Dalvik: Rafn Arnbjörnsson, Öldugötu 3,
sími 96-61358.
Akureyri: Haraldur Bogason, Norðurgötu 36,
sími 96-24079.
Húsavík: Aðalsteinn Baldursson, Baughóli 31B,
sími 96-41937.
Raufarhöfn: Angantýr Einarsson, Aðalbraut 33,
sími 96-51125.
Þórshöfn: Dagný Marinósdóttir, Sauðanesi,
sími 96-81196.
AUSTURLAND
Neskaupstaður: Einar M. Sigurðarson, Sæbakka 1,
sími 97-7799.
Vopnafjörður: Gunnar Sigmarsson, Miðbraut,
sími 97-3126.
Egilsstaðir: Einar Pétursson, Bjarkarhlíð 2,
sími 97-1289.
Seyðisfjörður: Jóhanna Gísladóttir,
sími 97-2316.
Reyðarfjörður: Þorvaldur Jónsson, Hæðargerði 18,
sími 97-4159.
Fáskrúðsfjörður: Magnús Stefánsson, Hlíðargötu 30,
sími 97-5211.
Eskifjörður: Hjalti Sigurðsson, Svínaskálahlíð,
sími 97-6367.
Stöðvarfjörður: Ingimar Jónsson, Túngötu 3,
sími 97-5894.
Hornafjörður: Benedikt Þorsteinsson, Ránaslóö 6,
sími 97-8243.
Breiðdalsvík: Snjólfur Gíslason, Steinaborg,
sími 97-5627.
SUÐURLAND
Vestmannaeyjar: Ragnar Óskarsson, Hásteinsvegi 28.
Hveragerði: Ingibjörg Sigmundsdóttir, Heiðmörk 31,
sími 99-4259.
Selfoss: Sigurður R. Sigurðsson, Lambhaga 19,
sími 99-1714.
Þorlákshöfn: Þóra Sigurðardóttir, Sambyggð 4,
sími 99-3924.
Eyrarbakki: Auður Hjálmarsdóttir, Háeyrarvegi 30,
sími 99-3388.
Stokkseyri: Ingi S. Ingason, Eyjaseli 7,
sími 99-3479.
Laugarvatn: Torfi Rúnar Kristjánsson,
sími 99-6153.
HAPPDRÆTTI ÞJ0ÐVILJANS1985