Þjóðviljinn - 10.01.1986, Page 13
HEIMURINN
Frakkland
Sósíalistar sækja á
París — Franskir sósíalistar
höfðu ástæðu tit að fagna í gær
þegar birtar voru niðurstöður
skoðanakönnunar um fylgi
franskra stjórnmálaflokka.
London — Ronald Reagan
forseti Bandaríkjanna ákvað í
fyrrakvöld að frysta allar eigur
Líbýu og líbýumanna í Banda-
ríkjunum. Forsetinn tók þessa
ákvörðun eftir að Ghaddafi
hafði átt fund með sendiherr-
um ríkja í Vestur-Evrópu íTríp-
olí.
Á fundi Ghaddafis með sendi-
herrunum hótaði hann því að
gera árásir á eigur bandarískra
yfirvalda eða fyrirtækja í þeim
ríkjum sem leyfðu bandarískum
her að nota land sitt til hernaðar-
árása á Líbýu. Jafnframt bauð
hann upp á aukna samvinnu Lí-
býu og ríkja Vestur-Evrópu á
Bandaríkin
Verðfall í
Wall Street
London — Talsvert verðfall
varð á evrópskum verðbréf-
amörkuðum í gær og fylgdi
það í kjölfar mestu kollsteypu
sögunnar í kauphöllinni í Wall
Street í New York.
í fyrradag féllu verðbréf í
kauphöllinni í Wall Street um 39
stig sem er meira verðfall en varð
28. október 1929 og boðaði upp-
haf heimskreppunnar. í gær-
morgun hélt verðfallið áfram og
féll verð á hlutabréfum um 13 stig
á fyrstu opnunartímum kauphall-
arinnar.
Bandarísk stjórnvöld drógu
mjög úr mikilvægi verðfallsins
sem þau sögðu stafa af því að
kaupahéðnar hefðu gert sér vonir
um vaxtalækkun í Bandaríkjun-
um. Sú von hefði ekki ræst. í
kauphöllinni í London varð
meira verðfall en tíðindin frá
Wall Street gáfu tilefni til og olli
því vaxtahækkun upp á 1% sem
kom mjög á óvart. Þessi vaxta-
hækkun gengur þvert á efnahags-
stefnu Thatchers og er sagt að
hún geti valdið henni talsverðum
óþægindum.
Flóttamenn
Liggur
straumurinn
til Berlínar?
Vestur-Berlín — Yfirvöld í
Vestur-Berlín óttast mjög að
2.000 flóttamenn frá Austur-
löndum nær muni leita skjóls í
borginni eftir að þeim verður
úthýst í Danmörku.
Danska þingið hefur nýlega
samþykkt lög sem takmarka
mjög rétt flóttamanna sem leita
hælis í landinu. Samkvæmt lög-
unum ber dönum að senda þá til
Austur-Þýskalands en þaðan
komu flestir þeirra til Danmerk-
ur. Ef austurþýsk yfirvöld neita
að taka við þeim búast yfirvöld í
Vestur-Berlín að þeir reyni fyrir
sér vestan múrs.
Fylgi þeirra hafði aukist um 5%
frá síðustu könnun og njóta
þeir nú fylgis 26,5% kjósenda.
Þessi ánægjulegu tíðindi fylgdu
í kjölfar góðrar frammistöðu for-
ýmsum sviðum, svo sem í barátt-
unni gegn hryðjuverkum.
Ekkert ríki hefur enn tekið
áskorun Reagans um þátttöku í
efnahagslegum refsiaðgerðum
gegn Líbýu. Helmut Kohl kansl-
ari Vestur-Þýskalands kvaðst
setja á oddinn velferð þeirra
1.500 vesturþjóðverja sem búa í
Líbýu. Vesturþjóðverjar eru
næststærsta viðskiptaþjóð Líbýu í
Vestur-Evrópu á eftir Ítalíu.
Stjórn Bettino Craxi í Róm á-
kvað í gær að banna sölu á til-
teknum gerðum vopna til Líbýu
um skeið. Einnig var ítölskum
fyrirtækjum bannað að yfirtaka
eignir eða starfsemi bandarískra
fyrirtækja sem hverfa munu úr
Líbýu í kjölfar aðgerða Reagans.
í hinum arabíska heimi voru
refsiaðgerðir Reagans hvarvetna
fordæmdar í gær og egyptar sem
eru einna nánustu bandamenn
Bandaríkjanna í röðum arabar-
íkja neituðu að kalla heim eg-
ypska verkamenn sem vinna í Lí-
býu. Ghaddafi hefur gert ýmsar
ráðstafanir til að afla sér stuðn-
ings meðal arabaríkja, td. hafa
blöð í Líbýu alveg látið af árásum
á önnur arabaríki.
sætisráðherrans, Laurent Fabius,
í sjónvarpsumræðum í fyrra-
kvöld. Fabius sem um tíma var
vinsælasti stjórnmálamaður
Frakklands hefur dalað talsvert í
vinsældum undanfarna mánuði.
Er sagt að frammistaða hans í
fyrrakvöld hafi að mestu bætt
fyrir hrakfarir sem hann fór fyrir
Jacques Chirac leiðtoga gaullista
í sjónvarpsumræðum í haust.
Skoðanakönnunin sýndi að
hægriflokkarnir leiða enn í bar-
áttunni um hylli kjósenda og er
munurinn sagður vera 57 á móti
41. Sósíalistar binda vonir við að
straumurinn liggi til þeirra þegar
kjósendur gera sér grein fyrir
góðri stöðu franskra efnahags-
mála. Benda þeir á að verðbólg-
an sem var 14% þegar þeir tóku
við völdum árið 1981 sé komin
niður í innan við 5%.
Kosningabaráttan er að kom-
ast í algleyming og eru plaköt
flokkanna farin að setja svip sinn
á París. Á einu plakati sósíalista
er mynd af illvígum úlfi sem á að
tákna hægriöflin og undir mynd-
inni er þekktur texti: „Af hverju
ertu með svona stórar tennur?“
Hægriöflin standa sameinuð í
kosningabaráttunni ef frá er tal-
inn fasistaflokkur Le Pen. Samt
er enn deilt um það hver veita
skuli forystu hugsanlegri hægri-
London — Michael Heseltine
varnarmálaráðherra í ríkis-
stjórn Margaret Thatchers
sagði sig úr stjórninni í gær
eftir harðar deilur á ríkis-
% .Æm jT
Laurent Fabius forsætisráðherra
Frakklands hefur dalað talsvert í vins-
ældum vegna ýmissa hneykslismála,
td. Greenpeace-málsins. Hann þykir
nú vera að rétta úr kútnum.
stjórn að kosningum loknum.
Skoðanakannanir sýna að Ray-
mond Barre nýtur mests fylgis,
54%, en næstur kemur Chirac
með 36%.
Skiptar skoðanir eru líka um
það hvort hægriöflin geti stjórnað
landinu í samvinnu við eða öllu
heldur þrátt fyrir það að Mitter-
rand situr á forsetastóli. Chirac
og Valery Giscard d Éstaing
fyrrum forseti hafa fyrirfram sætt
sig við „sambýlið" en Barre telur
það fásinnu að ætla að stjórna
ríkinu við slíkar aðstæður. Segir
hann að þær muni leiða til ringul-
reiðar sem geri alla mótun efna-
hagsstefnu óhugsandi.
stjórnarfundi um málefni þyrl-
ufyrirtækisins Westland. Kom
það í sjálfu sér ekki á óvart þótt
mörgum fyndist Heseltine of
fljótur á sér.
pyngdarlögmál
Reykinga-
menn brenna
meiri orku
Boston — Svissneskir vísinda-
menn hafa komist að þeirri
niðurstöðu að reykingamenn
brenni orku 10% hraðar en þeir
sem ekki reykja. Er þetta talin
líkleg skýring á því hvers
vegna fólki hættir til að fitna
þegar það hættir að reykja.
Það er alkunna að reykinga-
menn geta yfirleitt borðað meira
en þeir sem ekki reykja án þess
að eiga á hættu að hlaupa í spik.
Ástæðan er sú að reykingar örva
efnaskipti líkamans um allt að
10%. Segja vísindamennirnir að
þeir fyrrnefndu brenni uþb. 200
hitaeiningum umfram hina en
það jafngildir einu súkkulaðis-
tykki á dag.
„Þess vegna getur reykinga-
maður sem svælir 24 sígarettur á
dag og hættir að reykja, átt von á
því að bæta við sig allt að 10 kí-
lóum í líkamsþunga haldi hann
mataræði sínu óbreyttu," segir í
skýrslu vísindamannanna.
ERLENDAR
FRÉTTIR
ER
Flestir höfðu átt von á því að
hann myndi bíða með afsögn sína
fram yfir hluthafafund í Westland
næsta þriðjudag. Þá verður tekin
endanleg afstaða til þess hvort
fyrirtækið tekur tilboði banda-
ríska þyrlufyrirtækisins Sikorsky
og ítölsku Fíat-verksmiðjanna
eða samsteypu evrópskra fyrir-
tækja en þessi fyrirtæki hafa boð-
ið í tæplega þriðjung hlutabréfa í
Westland sem er svo gott sem
gjaldþrota.
Stjórn Westland hefur lagt hart
að hluthöfum að taka tilboði
Sikorsky/Fíat en Heseltine dreg-
ur taum evrópsku fyrirtækjanna.
Hefur hann í rúman mánuð reynt
að fá samráðherra sína til að
leggja að Westland að taka evr-
ópska tilboðinu en ekki fengið
hljómgrunn.
í baráttu sinni vísaði Heseltine
til ummæla ráðamanna í evróp-
skri þyrluframleiðslu í þá veru að
ef Westland tæki tilboði
Sikorsky/Fíat yrði það útiiokað
frá samstarfi um evrópska þyrl-
usmíð. Þessi ummæli voru ítrek-
uð í höfuðstöðvum Nató í gær
eftir að afsögn Heseltine spurðist
út og tekið fram að Westland
fengi ekki aðild að undirbúningi á
smíði nýrrar þyrlu sem Nató ætlar
að taka í notkun á næsta áratug.
Varnarmálaráðherra Hollands
ítrekaði fyrri yfirlýsingu sína um
að hollendingar muni ekki skipta
við Westland framar ef fyrirtækið
gengur til samstarfs við Sikorsky.
Thatcher hafði snör handtök
og skipaði þegar í stað eftirmann
Heseltine á ráðherrastóli. Nýi
varnarmálaráðherrann heitir Ge-
orge Younger, 54 ára skoti af að-
alsættum. Hefur hann farið með
málefni Skotlands í stjórn Thatc-
her síðan hún komst til valda árið
1979. Younger er sannfærður um
að utanríkisstefnu verði að fylgja
eftir með sterkri hernaðarstöðu
og vakti hann ma. athygli á per-
sónu sinni árið 1984 þegar hann
sniðgekk skipulagsyfirvöld í
Skotlandi og laumaði framhjá
þeim áformum um að koma upp
aðstöðu fyrir Trident-
kjarnorkukafbáta í Faslane flot-
astöðinni.
Open Every
SATURDAY& SUNDAY
From 9.00am-5.00pm
Þótt lög sem takmarka verslun á sunnudögum hafi verið í gildi í Bretlandi síðan 1448 fer þeim verslunum fjölgandi
sem hundsa bannið. Hér er ein þeirra á Camden Market í London.
Bretland
Leyftad versla á sunnudögum?
London — Leiðtogar kirkju og verkalýðs-
hreyfingar, kaupmenn og stjórnmálamenn
úr öllum flokkum hafa tekið höndum saman
og hafið baráttu gegn áformum stjórnar
Thatchers um aö afnema hömlur á opnunart-
íma verslana á sunnudögum.
Fjölmennur fundur var haldinn í miðborg
Lundúna í gær þar sem fluttar voru ræður og
lesin skilaboð frá ýmsum stórmennum, svo sem
dr. Robert Runcie erkibiskupi af Kantaraborg.
Var því ma. haldið fram á fundinum að opnun
verslana á sunnudögum væri brot gegn alda-
gömlum hefðum breta sem myndi setja þúsundir
smáverslana á hausinn og gerbreyta bresku
þjóðlífi.
Gildandi lög um opnunartíma verslana eru
mjög óvinsælar. Þau banna að vísu að verslanir
séu opnar á sunnudögum en á því eru ýmsar
undarlegar undantekningar. Til dæmis fer það
mjög fyrir brjóstið á kirkjunnar mönnum að
söluturnar megi selja bersöglisrit með berum
stelpurössum en ekki heilaga ritningu. Mikið er
um að reglurnar séu brotnar og skoðanakannan-
ir sýna að meirihluti breta vill afnema þær.
í baráttunni gegn áformum Thatchers er ákaft
höfðað til tilfinninganna. Þannig benti talsmað-
ur kaupiqanna á að opnun verslana á sunnu-
dögum þýddi það að ein miljón breta,
mestmegnis konur, þyrfti að vinna á sunnu-
dögum. „Það þýðir að miljón fjölskyldur verða
að borða sunnudagssteikina að mömmu fjarver-
andi,“ bætti hann við.
Líbýa
Ghaddafi hótar
og býður aðstoð
Bretland
Heseltine segir af sér
haraÍdsson/REUI
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13