Þjóðviljinn - 10.01.1986, Síða 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími:81663.
DJÓÐVILJINN
Föstudagur 10. janúar 1986 7. tölublað 51. örgangur.
KSÞ Svalbarðseyrar
Komið í rekstrarþrot
Tryggvi Stefánssonformaður kaupfélagsstjórnar: Tel okkur
ekki gjaldþrota. Eignir metnar á 288 miljónir - skuldirnar
aðeins minni. Samningar ígangi um að KEA taki
kaupfélagið á leigu. Kaupfélagið með um helming eiginfjár
Samvinnubankans að láni
Kaupfélag Svalbarðseyrar er
komið í rekstrarþrot. Vegna
þess standa yfir viðræður við
KEA á Akureyri um að taka
rekstur kaupfélagsins á lcigu, en
ekki hefur verið gengið frá því
Happdrœtti Þjóðviljans
Opið í
Þinghól
á morgun
Nú fer hver að verða síðastur
með að gera skil í Happdrætti
Þjóðviljans en dregið verður á
mánudaginn. Af því tilefni hefur
verið ákveðið í samráði við Al-
þýðubandalagið í Kópavogi að
skrifstofa flokksins í Þinghóli
verði opin á morgun, laugardag á
milli kl. 13.30 og 16.00. Þar geta
þeir Kópavogsbúar sem ekki hafa
greitt sína miða, gert skil.
Afgreiðsla Þjóðviljans er opin í
dag til kl. 17.00 og á morgun fram
til hádegis. Skrifstofa Alþýðu-
bandalagsins að Hverfisgötu 105
er opin í dag og þar er einnig tekið
á móti skilum. Þá má og greiða í
gíró. Viðskiptastofnun Þjóðvilj-
ans er Alþýðubankinn aðalbanki
en reikningsnúmer blaðsins 6572.
máli enn. Tryggvi Stefánsson for-
maður stjórnar kaupfélagsins,
sagði í samtali við Þjóðviljann í
gær, að hann teldi kaupfélagið
ekki gjaldþrota, það ætti enn veð
fyrir skuldum. Hann sagði að
eignir félagsins væru metnar á
288 miljónir króna. Ekki vildi
hann segja hverjar skuldirnar
væru, en að þær væru aðeins
minni. Tryggvi sagði það hins-
vegar alveg Ijóst að félagið væri
komið í rekstrarþrot.
Þjóðviljinn hefur fyrir því
heimildir að Samvinnubankinn
hafi lánað Kaupfélagi Svalbarðs-
eyrar um 80 miljónir króna, sem
er um helmingur eigin fjármuna
bankans, en eins ogTryggvi sagði
á félagið veð fyrir skuldum.
Tryggvi sagði að félagið hefði
staðið í miklum framkvæmdum,
byggt sláturhús og kjötvinnslu,
auk kartöfluverksmiðju. Fjár-
magnskostnaður vegna þess væri
svo geigvænlegur að ekki yrði
undir honum risið. Félagsmenn
kaupfélagsins eru mest sauðfjár-
bændur og kartöfluræktendur og
staða þeirra væri afar slæm og erf-
itt að innheimta útistandandi
skuldir. Þetta væri svo keðju-
verkandi.
„Annars er þetta ekkert eins-
dæmi með okkur, þau standa
mjög illa mörg kaupfélögin í
landinu um þessar mundir, enda
virðist enginn skilningur vera hjá
yfirvöldum á rekstri fyrirtækja í
landinu,“ sagði Tryggvi Stefáns-
son.
-S.dór
Á morgun um tvöleytið verður sett Listahátíð unga fólksins á Kjarvalsstöðum; en hugmynd að henni varð til I íþrótta-
og tómstundaráði Reykjavíkur á nýafloknu ári æskunnar. Á hátíðinni verða allar listgreinar yngdar upp af fólki á
aldrinum 15 til 22, og á myndinni sem E.ÓI. tók í gær eru þau Þórunn Hjartardóttir, Inga Þórey Jóhannsdóttir og
Gunnar Örn að setja upp hluta myndlistarsýningarinnar.
Sigurfari SH
Tvö tilboð frá
Grundarfirði
Fiskveiðasjóður auglýsir
Sigurfara SH og Sölva
Bjarnason til sölu
- í blöðjunum í dag auglýsir
Fiskveiðasjóður eftir tilboðum í
tvo togara, Sigurfara SH frá
Grundarfirði og Sölva Bjarnason
frá Tálknafirði.
Sem kunnugt er misstu Grund-
firðingar Sigurfara SH á uppboði
í haust vegna dollaralána. Nú
mun ákveðið að tveir aðilar frá
Grundarfirði geri tilboð í skipið.
Annars vegar Hjálmar Gunnars-
son sem var eigandi skipsins.
Hann hefur stofnað útgerðarfé-
lag á Grundarfirði sem mun gera
tilboð. Þjóðviljinn hefur fyrir því
heimildir og Hjálmar neitaði því
ekki fyrir nokkru þegar við hann
var rætt, að Heildverslunin
Hekla væri inní þessu kompaníi.
Hinn aðilinn sem býður er
Hraðfrystihús Grundarfjarðar,
en það er eitt af SÍS frystihúsun-
um á landi og að sumra dómi best
rekna frystihús landsins.
Um það hverjir ásælist Sölva
Bjarnason er minna vitað en það
skýrist á næstunni.
-S.dór
Þjóðviljinn
Hvar er
kæran?
Þjóðviljinn hafði í gærkvöld
ekki borist nein stefna frá gjald-
kera Framsóknarflokksins
Guðmundi G. Þórarinssyni eins
og hann hefði boðað í fjölmiðlum
í gær og fyrradag.
Guðmundur hefur í yfirlýsingu
sem hann lét birta í Morgunblað-
inu sl. miðvikudag lýst sig til-
neyddan til að stefna Þjóðviljan-
um „fyrir róg, lygar og ærumeið-
ingar,“ einsog segir í yfirlýsingu
gjaldkerans.
Þessum aðdróttunum gjald-
kera Framsóknarflokksins var
vísað á bug í Þjóðviljanum í gær,
en sjálf yfirlýsingin frá honum
hefur enn ekki borist blaðinu,
frekar en hin boðaða stefna.
-lg-
VOLVO FL6
mm
Verður tilsýnis
laugardag og sunnudag
frá 10-17 báða dagana