Þjóðviljinn - 18.01.1986, Side 1
MENNING
SUNNUDAGS-
BLAÐ
Kína
Gengu 6.600
kílómetra á
136 dögum
Skarphéðinn Eyþórsson talsmaður
hópferðabílstjóra: Okkar tilboðifrá ífyrravor aldrei
verið svarað. Þiggþetta alveg eins gefins eins og hinir.
Oþolandi vinnubrögð
Við sendum inn til samgöngu-
ráðuneytisins í fyrravor til-
boð í eigur Umferðarmiðstöðvar-
innar þegar við fréttum utan af
okkur að til stæði að selja þessar
opinberu eignir. Við höfum ekk-
ert svar fengið ennþá frá ráðu-
neytinu en erum að frétta það
núna að ráðuneytið sé þegjandi
og hljóðalaust að ganga frá samn-
ingum við sérleyfishafa um að af-
henda þeim þessar eignir. Svona
vinnubrögð eru óþolandi, sagði
Skarphéðinn Eyþórsson forsvars-
maður hópferðabQstjóra í sam-
tali við Þjóðviljann í gær.
Eins og skýrt var frá í blaðinu í
gær eru nú í gangi viðræður á milli
stjórnvalda og Félags sérleyfis-
hafa og BSÍ um sölu Umferðar-
miðstöðvarinnar. Samkvæmt
heimildum Þjóðviljans er hér
frekar um gjöf en sölu á þessum
opinberu eigum að ræða.
„Við vorum flæmdir þarna út
af sérleyfishöfum á sínum tíma en
við lögðum okkar af mörkum í
þessa byggingu eins og aðrir og
eigum því skýlausan rétt til að
gera tilboð í þessar eigur. Þetta er
opinber eign, og ég get ekki sætt
mig við að rfkið sé að afhenda
þessa miljónaeign án þess að aðr-
ir fái að koma þar nærri. Ég þigg
þetta alveg eins gefins fyrir mína
menn eins og hinum virðist vera
boðið. Ég kann ekki við þessi
vinnubrögð og við munum gera
okkar athugasemdir", sagði
Skarphéðinn Eyþórsson. - lg.
Peking — Kínverskir bræður
tóku sig til á dögunum og
gengu þvert yfir Kínaveidi frá
þorpinu Mohe sem er nyrst í
landinu suður til Hainan eyjar
sem er úti fyrir suðurströnd
Kína.
Ferðalagið er 6.600 km og tók
það bræðurna 136 daga. Gengu
þeir að jafnaði 42 km á dag. Við
hlið þeirra fór systir þeirra á
reiðhjóli en hún fylgdi þeim alla
leið og sá þeim fyrir vistum.
Það er því greinilegt að Reynir
Pétur á sér göngubræður, nema
afrek hans á síðasta sumri hafi
kveikt hugmyndina hjá Yan-
bræðrunum.
—ÞH/reuter
hotti
Leikhús
Drauga-
gangur
í Breiö-
Skottur á kreiki í Breiðholtinu!
Á morgun verður þar frumsýnt
nýtt íslenskt barnaleikrit, Skottu-
leikur.
Höfundur og leikstjóri er
Brynja Benediktsdóttir, og verð-
ur sýnt í Breiðholtsskóla þarsem
Revíuleikhúsið hefur um stund
nælt sér í leikpláss í samkomu-
salnum, sem raunar er hið ágæt-
asta leikhús. Leikurinn fjallar um
Litlu-Skottu, Stóru-Skottu og
Fínu-Skotti og fer bil beggja, al-
þjóðlegrar trúðshefðar og ís-
lenskra þjóðsagnaminna. Frum-
sýnt á morgun klukkan þrjú, og
síðan sýnt á laugardögum kl. 3 og
5, og á sunnudögum kl. 4.
Sjá bls. 7.
Leikararnir Guðrún Alfreðsdóttir, Guðrún Þórðardóttir og Saga Jónsdóttir skottast á sviðinu í Breiðholtsskóla. Mynd: E.ÓI.
Alusuisse
Fjárhagsáœtlun
Dæmd til aö fara úrböndunum
Fjárhagsáœtlun Reykjavíkur 1986: Marklaust kosningaplagg. A ukin
skuldasöfnun. Unnin fljótt og flausturslega. Hrikaleg mistök í
lóðamálum. Engar launahœkkanir
Stóitap
í fyrra
Tveiryfirmenn reknir
vegna rangra spádóma
Samkvæmt blaðaskrifum í
Sviss hefur orðið tveggja milj-
arða króna tap á rekstri Alusuisse
í fyrra. Tveir yfirmenn fyrirtækis-
ins sem í apríl í fyrra höfðu spáð
hagnaði af rekstrinum hafa verið
látnir víkja úr starfi. Annar
þeirra er Emanuel Meyer sem.
kom mikið við sögu þegar verið
var að pranga Álverinu upp á
íslendinga fýrir 20 árum.
—ÞH/reuter
Sjá Erlendar fréttir
bls. 13, laugardag
Eftir átján klukkustunda
langan borgarstjórnarfund
var fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar afgreidd klukkan ellefu í
gærmorgun. Umræður um áætl-
unina einkenndust af harkalegri
gagnrýni fulltrúa minnihluta-
flokkanna á fjármálastjórn borg-
arinnar í tíð núverandi meiri-
hluta, óstjórn í fjármálum, aukna
skuldasöfnun, og hefur fjárhags-
áætlunin fengið þá einkunn að
hún sé marklaust kosningaplagg
sem dæmt er til að fara úr bönd-
unum.
Minnihlutaflokkarnir lögðu
fram fjöldann allan af breytinga-
tillögum við fjárhagsáætlunina,
en þær voru allar felldar af íhald-
inu. Heildarútgjöld borgarinnar
verða ef marka má þessa áætlun
4.2 miljarðar króna. Fulltrúar
minnihlutans fundu fjárhagsáætl-
uninni ýmislegt til foráttu. Áður
er nefnd fyrirsjáanleg aukning
skulda upp úr öllu valdi. Fjár-
magn til bygginga dagvistarstofn-
ana er skorið við trog. Ekki er
áætlað að hefja neinar fram-
kvæmdir í þágu aldraðra á árinu,
aðeins verður lokið við það eina
minnismerki sem núverandi
meirihluti hefur reist sér í þeim
efnum. Ekki er gert ráð fyrir
neinum launahækkunum á árinu.
íþróttir og æskulýðsmál eru í fjár-
svelti. Hrikaleg mistök varðandi
offjárfestingu meirihlutans í lóð-
um. Svona mætti endalaust halda
áfram.
Sigurjón Pétursson nefndi í
ræðu sinni við afgreiðsluna fjöl-
mörg dæmi um hvernig undanfar-
in ár hefur verið unnið „fljótt og
flausturslega" að fjármálastjóm
borgarinnar, sem hann nefnir
kjörorð Sjálfstæðisflokksins.
-gg-
Sjá bls. 2, 3 og baksíðu.