Þjóðviljinn - 18.01.1986, Page 13
HEIMURINN
Lesotho
Fréttir um
valdarán
bomar
til baka
Maseru — Útvarp stjórnarinnar
í Suður-Afríku sagði frá því í
gær að til átaka hefði komið
milli sveita úr her smáríkisins
Lesotho eftir að hluti hersins
reis upp gegn stjórnvöldum. í
Maseru, höfuðborg Lesotho,
var þessu harðlega mótmælt
og sagt að þar væri allt með
friði og spekt.
Fréttamaður Reuters segist
hafa ekið í gegnum Maseru í gær
og ekki orðið var við neina
spennu né vopnaviðskipti.
Stjórn Lesotho hefur sakað
stjórn hvíta minnihlutans í
Suður-Afríku um að hafa sett
landið sem er inni í miðri Suður-
Afríku í einangrun. Farið er að
bera á skorti á sumum vöruteg-
undum, svo sem bensíni og lyfj-
um, og við landamærin hafa
myndast langar biðraðir því
suðurafrískir landamæraverðir
hafa fyrirmæli um að leita
gaumgæfilega í öllum bifreiðum.
Tilgangurinn með þessari ítar-
legu landamæravörslu er að sögn
stjórnvalda .í Pretoríu sá að
stöðva skæruliða Afríska þjóð-
arráðsins, ANC, sem þau segja
að leynist í Lesotho og geri svo
skæruárásir inn í Suður-Afríku.
Stjórnvöld í Lesotho hafa mót-
mælt því að þau skjóti skjólshúsi
yfir liðsmenn ANC. í gær hófust
viðræður embættismanna beggja
ríkja í Pretoríu og að þeim lokn-
um lýsti fulltrúi Suður-Afríku því
yfir að stjórnin í Lesotho yrði að
skuldbinda sig til að reka alla fé-
laga í ANC úr landi. Skæruhern-
aður ANC hefur aukist verulega
á undanförnum vikum og mánuð-
um og er það ástæðan fyrir
aukinni hörku af hálfu Suður-
Afríku í samskiptunum við ná-
grannaríki sín.
ERLENDAR
FRÉTTIR
haraldsson/R EUTER
hinu stríðshrjáða Líbanon er það orðið vinsælt meðal þátttakenda í átökunum að leika rússneska rúllettu þegar hlé
verður á bardögum. Ungir baráttumenn á borð við þessa segjast ekki leika sér við dauðann með þessum hætti til þess að
sýna hugrekki sitt og manndóm heldur örvæntingu. „Ef maður drepst var það orðið tímabært, ef ekki er þetta bara
gaman," segja þeir.
Líbanon
Barist enn á ný
Erufriðarsamningarnir endanlega úr sögunni?
Bikfaya — Harðir bardagar
geisuðu í bænum Bikfaya
austur af Beirut í Líbanon í gær
en þar eru bækistöðvar Amin
Gemayels forseta. Áttust þar
við sveitir hliðhollar sýrlend-
ingum og sveitir kristinna
manna sem nú lúta forystu
manna sem andvígir eru friðar-
samkomulagi því sem gert var
fyrir tilstilli sýrlendinga.
Bardagar hófust að nýju fyrir
þremur dögum þegar Elie Hob-
eika herstjóra kristinna manna
var bolað í burtu en hann hafði
undirritað samkomulagið ásamt
leiðtogum drúsa ogsjíta. Gemay-
el forseti hefur lýst andstöðu við
friðarsamkomulagið og sat hann
marga fundi með sýrlenskum
stjórnvöldum í því skyni að draga
úr ágreiningnum en án árangurs.
Er því mikil hætta á að friðar-
samningarnir séu runnir út í sand-
inn.
Kristnir falangistar hafa þrátt
fyrir þennan ágreining gefið í
skyn að þeir vilji að sýrlendingar
miðli málum milli kristinna og
múslima í Líbanon. Þeir gátu hins
vegar ekki sætt sig við þær
breytingar á valdahlutföllum í
landinu, múslimum í vil, sem
friðarsamningurinn gerði ráð
fyrir. Drúsar hafa lýst því yfir að
brottvikning Hobeika merki að
friðarsamningarnir séu úr sög-
unni og hefja þurfi friðarvið-
ræður að nýju frá byrjun.
Bretland
Hluthafar vildu ekki taka
tilboði Sikorsky í Westland
London — Ekki tókst stjórn
breska þyrlufyrirtækisins
Westland að tryggja sér næg-
an stuðning á hluthafafundi í
gær við þann ásetning sinn að
Frakkland
Kosningaslagurinn æsist
París — Bilið milli vinstri- og
hægriflokka í Frakklandi virð-
ist hafa mjókkað talsvert upp á
síðkastið ef marka má skoð-
Skák
Timman vann
fyrstu skákina
Tilburg — Hollenski stór-
meistarinn Jan Timman tók
forystu í áskorendaeinvígi
hans og sovéska stórmeistar-
ans Artur Júsupofs í gær. Tim-
man hafði betur í fyrstu einvíg-
isskákinni.
Júsupof hafði hvítt í fyrstu
skákinni og gaf hann skákina eftir
40. leik. Þá var hann lentur í
tímahraki. í einvíginu sem fram
fer í Tilburg í Hollandi sigrar sá
sem fyrstur nær 5,5 vinningum en
gert er ráð fyrir því að tefldar
verði 10 skákir.
í hinu einvíginu sem fram fer í
Minsk í Sovétríkjunum eigast
þeir við sovésku stórmeistararnir
Andrei Sokolof og Rafael Vag-
anjan. Þegar síðast fréttist af því
einvígi hafði Sokolof unnið tvær
skákir en þeirri fyrstu lauk með
jafntefli.
anakannanir. Fyrir nokkrum
vikum höfðu hægriflokkarnir
17% meira fylgi en vinstri-
flokkarnir en nú er munurinn
ekki nema 8%.
í skoðanakönnun sem dag-
blaðið Le Matin birti í gær
reyndust sósíalistar hafa 30%
fylgi og vinstriflokkarnir í heild
44% fylgi. Hægriflokkarnir
höfðu 52% fylgi og þar af hafði
nýfasistaflokkur Le Pen 5%. Það
síðastnefnda er minna en búist
hafði verið við vegna þess að
flokkur Le Pen hlaut 11% at-
kvæða í kosningum til Evrópu-
þingsins í fyrra. 27% aðspurðra
kváðust ekki hafa gert upp hug
sinn.
Hægriflokkarnir hafa birt sam-
eiginlega kosningastefnuskrá þar
sem megináhersla er lögð á sölu
ríkisfyrirtækja, einkum banka og
iðnfyrirtækja, og að draga úr
ríkisafskiptum á flestum sviðum
þjóðlífsins. Flestir fréttaskýrend-
ur eru þó sammála um að stefnu-
skráin sé mun hófsamari en búist
hafði verið við. Benda þeir á að í
henni sé undirstrikað að ekki
standi til að afnema þá félagslegu
ávinninga sem unnist hafa í
stjórnartíð sósíalista, svo sem
lækkun eftirlaunaaldurs, lenging
orlofs í 5 vikur og hærri eftirlaun.
taka tilboöi bandaríska fyrir-
tækisins Sikorsky og ítölsku
bílaverksmiðjanna Fíat í 30%
hlutafjár í verksmiðjunum sem
eru nær því gjaldþrota.
Á fundinum sem haldinn var í
Albert Hall í London greiddu
handhafar 65% hlutafjár atkvæði
með tilboði Sikorsky/Fíat en 35%
voru því andvígir. Er þetta meiri
andstaða en búist hafði verið við.
Ekki var borið undir atkvæði til-
boð evrópskrar fyrirtækjasam-
steypu sem Michael Heseltine,
fyrrum varnarmálaráðherra, ber
fyrir brjósti í nafni evrópskrar
samvinnu.
Stjórnarformaður Westland,
John Cuckney lávarður, gat ekki
leynt vonbrigðum sínum með
niðurstöðu atkvæðagreiðslunn-
ar. Höfðaði hann til sómatilfinn-
ingar evrópsku fyrirtækjanna og
bað þau að draga tilboð sitt til
baka því bæði starfsmenn, stjórn-
endur og hluthafar í Westland
væru mótfallnir samstarfi við
þær. Samkvæmt lögum fyrirtæk-
isins þurfa handhafar 75% hluta-
fjár að leggja blessun sína yfir
hlutabréfasöluna.
Þessi niðurstaða fundarins í
gær þýðir að málefni Westland
verða áfram til umræðu í Bret-
landi og það eru ekki góð tíðindi
fyrir Margaret Thatcher. Öll af-
skipti hennar og samráðherra
hennar af málefnum fyrirtækisins
þykja einkennast af valdahroka
og fylgið hrynur af íhalds-
flokknum í skoðanakönnunum.
Telja margir að þessi stjórnar-
kreppa geti orðið til þess að binda
endi á frama Járnfrúarinnar í
breskum stjórnmálum.
Suður-Jemen
Viðræðum
hætt, barist
áfram
Kaupmannahöfn — Danska
dagblaðið Börsen birti í gær
niðurstöður skoðanakönnun-
ar sem sýndu að 40% danskra
kjósenda hyggjast greiða at-
kvæði með tillögum um
breytingar á stofnskrá Efna-
hagsbandalags Evrópu ef þær
verða bornar undir þjóðarat-
kvæði. 35% voru andvígir
breytingunum og 24% höfðu
ekki gert upp hug sinn.
Poul Schluter hefur lýst þvi yfir
að haldi jafnaðarmenn því til
streitu að fella tillögurnar við at-
kvæðagreiðslu á danska þinginu á
þriðjudaginn muni hann leggja
tillögurnar í dóm kjósenda í
næsta mánuði.
Danska Alþýðusambandið,
LO, gaf út yfirlýsingu í gær þar
sem það hvatti stjórnina til að
semja við EBE um að breyta til-
lögunum. Einnig varaði það við
því að málinu yrði snúið upp á
spurningu um áframhaldandi að-
ild dana að EBE. Ekki eru taldar
miklar líkur á að EBE sé til við-
ræðu um að endurskoða tillög-
urnar því þær eru afrakstur
langra og erfiðra viðræðna for-
ystumanna ríkjanna 12 sem
mynda EBE.
Danmörk
40% með
EBE-tillögunum
Djibouti — Svo virðist sem við-
ræður stríðandi fylkinga í
Suður-Jemen um að koma á
friði í landinu hafi farið út um
þúfur í fyrrinótt. Bardagar eru
sagðir hafnir að nýju fimmta
daginn í röð en litlar fréttir er
að hafa frá Aden því ekkert
heyrist í útvarpsstöðvum þar
og fjarskiptasamband við
landið er rofið.
Sovétríkin og ríki Vestur-
-Evrópu gerðu í gær ráðstafanir til
að flytja sendimenn sína, skyldu-
lið þeirra og aðra þegna á brott
frá Aden. Utanríkisráðherra Dji-
bouti sem er andspænis Aden
hinum megin við Bab Al-
Mandab sundið skýrði frá því í
gær að sovéski sendiherrann í
Aden hefði haft samband við sig
og beðið sig að veita aðstoð við
brottflutninginn.
Ráðherrann túlkaði þessa
beiðni á þann veg að úr því sovét-
menn sem eru nánustu banda-
menn Suður-Jemen hygðust
koma sér í burtu færi ástandið í
landinu versnandi. Fréttir í San-
aa, höfuðborg Norður-Jemen,
hermdu í gær að harðir bardagar
geisuðu í Khormaksar hverfinu í
Aden þar sem mörg sendiráð er-
lendra ríkja eru. Ekki er vitað
hve mikið mannfall hefur orðið í
bardögunum en talið er að það sé
mikið.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Alusuisse
Mikill hallarekstur í fynra
Tveir yfirmenn fyrirtœkisins, þ.á.m. Meyer, látnir fjúka
Zurich — Svissnesk blöð
skýröu frá því í fyrradag að
mikið tap hefði orðið á rekstri
Alusuisse, móðurfyrirtækis
ísals í Straumsvík, og að í kjöl-
far þess hefðu a.m.k. tveir yfir-
menn verið leystir frá störfum.
Að sögn blaðanna nemur bók-
fært tap Alusuisse í fyrra ekki
undir tveimur miljörðum króna
og þarf fyrirtækið af þeim sökum
að afskrifa eignir að upphæð
fimm miljarðar króna. Afskrift-
irnar munu væntanlega verða í
því fólgnar að bókfært verðmæti
hlutabréfa Alusuisse í
dótturfyrirtækjum sínum verður
lækkað.
Að sögn blaðanna hefur þessi
lélega útkoma fyrirtækisins kost-
að tvo af yfirmönnum fyrirtækis-
ins embættin. Er þegar búið að
reka þá Emanuel Meyer stjórn-
arformann og aðalforstjórann
Bruno Sorato. Alusuisse hefur
ekki svarað þessum skrifum
öðruvísi en að segja að ekki sé
tímabært að fyrirtækið tjái sig um
þau.
Árið 1984 var Alusuisse rekið
með verulegum hagnaði eftir
þriggja ára samfelldan taprekst-
ur. Iaprfl í fyrra spáði Sorato þvf
að útkoman árið 1985 yrði svipuð
og árið áður en í september var
staða fyrirtækisins sögð vera „tal-
svert veikari". Stjórn fyrirtækis-
ins kennir slæmu ástandi á álm-
örkuðum heimsins um þessa út-
komu.