Þjóðviljinn - 18.01.1986, Side 14
Sparisjóðsstjóri
óskast
Staða sparisjóðsstjóra (önnur staða af
tveimur) hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar er laus
til umsóknar.
Umsóknir um stöðu þessa ásamt upplýsing-
um m.a. um menntun og fyrri störf skulu
sendar formanni sparisjóðsstjórnar, Stefáni
Jónssyni, Hamarsbraut 8, Hafnarfirði eigi
síðar en 16. febrúar n.k.
Stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar.
r
....... ■ " ■'#----
ijl Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboð-
um í eftirfarandi fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur:
1. 30 dreifispenna
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 25. febrúar n.k.
kl. 11.
2. Háspennustrengi
Tilboðin verða opnuð miðvikudaginn 26. febrúar
n.k. kl. 11.
3. Lágspennustrengi
Tilboðin verða opnuð miðvikudaginn 26. febrúar
n.k. kl. 14.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík, og verða þau opnuð á sama stað á
ofangeindum tíma.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirk|uvogi 3 Siiru 25800
Lestu
aöeins
slíörnarbioðin?
DJðÐVIUINN
Höfuðmálgagn
stjórnarandstöðunnar
Askriftarsími (91) 681333
Laus staða
Laus er til umsóknar lektorsstaða í lífeðlisfræði (heil staða)
við læknadeild Háskóla íslands.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf, rann-
sóknir og ritsmíðar, svo og námsferil sinn og störf skulu
sendar menntamálaráðuneytinu fyrir 15. febrúar 1986.
Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1. júlí 1986.
Staða þessi er endurauglýst til leiðréttingar á auglýsingu
dags. 6. janúar 1986.
Menntamálaráðuneytið.
15. janúar 1986.
Útför
Sigríðar Hjartardóttur,
áður hjúkrunarkonu á Kleppsspítala, sem andaðist 10.
þessa mánaðar, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
20. janúar kl. 15.
Aðstandendur hinna látnu
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. janúar 1986
Fjársöfnun
Gleymum
þeim ekki
Kiwainis-hreyfingin
stendurfyrir fjársöfn-
un til kaupa á eld-
varnarkerfifyrir
Kópavogshœli
Hafin er fjársöfnun á vegum
Kiwanishreyfingarinnar á íslandi
tii kaupa á fullkomnu bruna-
varnarkerfi fyrir Kópavogshæli.
Þegar bruninn varð á hælinu fyrr
í vikunni kom í ljós að ekkert
eldvarnar- né eldviðvörunarkerfi
er í hælinu, þar sem heilbrigðis-
ráðherra hefur látið undir höfuð
leggjast að verða við óskum
stjórnenda ríkisspítalanna um
fjárveitingu til kaupa á slíkum
tækjabúnaði.
Kiwanishreyfingin hefur látið
opna bankareikning við Lands-
banka íslands í Breiðholtsútibúi
vegna söfnunarinnar og er númer
hans 979. Þá mun hreyfingin hafa
til sölu dagbækur fyrir árið 1986 í
fjáröflunarskyni og eru þær sér-
merktar þessari söfnun. Þá munu
fyrirtæki og stofnanir sem gefa 10
þúsund kr. eða meira fá sérstök
viðurkenningarskjöl. Loks mun
Kiwanishreyfingin sjálf leggja
fram fé til söfnunarinnar.
-S.dór
Happdrætti
Sjálfsbjargar
Dregið hefur verið í happ-
drætti Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra og komu vinning-
ar á eftirtalin númer:
Aðalvinningur: Toyota Landc-
ruser á miða nr. 21856.
49 vinningar: Vöruúttekt hver
á kr. 20.000:
1318, 1848, 4673, 5060, 5421,
7483, 9250, 10288, 10626 , 10673,
10798, 10947, 11162, 14535,
16632, 16768, 20199, 21653,
21903, 22215, 23066, 23654,
24316, 25047, 30038, 32688,
34630, 36378, 36491, 37664,
38266, 39073, 39097, 40807,
41081, 42828, 43014, 47899,
52197, 53787, 53834, 53900,
53925, 53944, 54078, 55736,
56189, 58833, 59640.
Hættið þessum vél-
byssuleik, strax
Stór hluti greinar sem Þjóðvilj-
inn birti eftir mig í gær, brenglað-
ist illilega í prentun. Hér á eftir
prentast hann vonandi rétt.
Líkur á því að stofnanir hér á
landi dragi að sér hryðjuverk
þessara manna eru hverfandi,
nema ef vera skyldi bandaríski
herinn. Við herstöðvaandstæð-
ingar höfum reyndar alltaf bent á
að herinn skapi hættu á ger-
eyðingarárás á Island. Títtnefnd-
ir hryðjuverkamenn skapa hins
vegar ekki slíka hættu. Ef Banda-
nkin óttast um her sinn hér vegna
nokkurra hryðjuverkamanna,
ættu þeir bara að koma sér í ör-
uggara skjól vestur um haf.
Þegar ég segi að hverfandi
hætta sé á að hryðjuverkamenn
finni sér mikilvægt pólitískt árás-
artilefni hér á landi, þá á ég við að
hættan sem stafar af vélbyssu-
væðingu „drengjanna okkar“ er
margfalt meiri.
Hún ýtir undir dýrkun á byss-
unni sem lausnara okkar og alls-
herjar verndara.
Hún skapar líka hættu á mis-
beitingu vopnanna við atburði
eins og flugrán og því líkt, og ögr-
ar til ofbeldis.
Kagnar Stefánsson
Neskaupstaður
Tölvur frá Japan
Hugi flytur inn tölvuteikna og skjái
Fyrirtækið Hugi hf. á Nes-
kaupstað hefur hafið innflutning
á tölvuteiknivélum og tölvuskjám
frá Rolandsverksmiðjunum í jap-
an. í fréttatilkynningu frá fyrir-
tækinu segir, að tölvuteiknivélar
þessar ryðji sér ört til rúms í Evr-
ópu vegna tæknilegra eiginleika
og hagstæðs verðs.
Teiknivélarnar sem boðið er
upp á eru átta penna og hafa bæði
rað- og samsíða tengi. Skrifa þær
jafnt á glærur sem pappír. Þær má
tengja við hvaða tölvur sem er og
bjóða upp á að unnið sé með
eigin forrit sem og flest stöðluð
grafísk forrit. Þær henta að sögn
mjög vel til verkfræði- og
arkitektateikninga en einnig við
alla myndræna framsetningu svo
sem súlu- og flæðirit. Þá eru vél-
arnar héntugar við vinnslu
kennslugagna, undirbúning fyrir-
lestra, framsetningu fjárhagss-
töðu og þannig mætti lengi telja.
Skjáirnir frá Huga eru af þrem
gerðum og er sérstök athygli vak-
iná svart-hvítum skjá. Þykir hann
henta vel til ritvinnslu og grafík-
vinnu. Hægt er að hafa svarta
stafi á hvítum grunni og hvíta
stafi á svörtum grunni.
Að lokum skal þess getið að
Hugi býður upp á gerð hvers-
konar hugbúnaðar og hefur þeg-
ar unnið mikið fyrir sveitarfélög.
- Sáf.
Austfirðir
Mannslíf á 30 togara
Aðalfundur Sindra: öryggi á sjó verulega ábótavant.
Fundurinn andvígur fiskveiðistefnu FFSÍ
Á undanförnum þrem ára-
tugum hafa svo margir sjómenn
farist við störf sín að hægt væri að
manna þrjátíu skuttogara af
minni gerð væru þeir enn á lífi.
Þetta kom fram í umræðu um ör-
yggismál sjómanna á aðalfundi
Skipstjóra- og stýrimannaféiags-
ins Sindra, sem haldinn var í Val-
höll á Eskifirði í lok desember, en
öryggismálin voru ofarlega á
baugi á fundinum og voru menn
sammála umað verulegt átak
þyrfti að gera í þeim málum.
Á fundinum var samþykkt á-
lyktun þar sem lýst var andstöðu
við fiskveiðistefnu þá, sem sam-
þykkt var á þingi Farmanna- og
fiskimannasambands íslands fyrr
í vetur.
Ýmis önnur mál bar á góma og
var ferskfisksútflutningurinn
meðal þeirra. Kom fram að tog-
arasjómenn hafa beina kjara-
skerðingu af þessu fyrirkomulagi
á meðan útgerðin hagnast á því.
Var ákveðið að fara fram á við-
ræður um þetta.
Þá voru málefni Landhelgis-
gæslunnar rædd og hafði Magni
Kristjánsson framsögu um þau.
Bar Höskuldarmálið svokallaða
einnig á góma. Að loknum um-
ræðum var samþykkt ályktun þar
sem það er átalið harðlega hve
mjög hefur dregið úr allri útgerð
gæslunnar og þar með því öryggi
og þjónustu sem hún á að veita.
Er skorað á stjórnvöld að bæta úr
því hið fyrsta.
Þá var lýst fullum stuðningi við
Höskuld Skarphéðinsson skip-
herra, í deilum hans við stjórn
Gæslunnar. Telur fundurinn að
Höskuldur gjaldi þess málarekst-
urs sem hann hefur staðið í fyrir
hönd Skipstjórafélags íslands,
sem hann er formaður fyrir.
Formaður Sindra er Ólafur
Gunnarsson, Fáskrúðsfirði.
-Sáf.
Stjörnufræði
Sex ný tungl
finnast hjá
Úranusi
Pasadena — Bandarískir vís-
indamenn hafa fundið 6 ný
tungl sem sveima umhverfis
reikistjörnuna Úranus. Er nú
vitað um 12 fylgitungl stjörn-
unnar en búist er við að fleiri
eigi eftir að finnast.
Þessi fundur er afrakstur ljós-
mynda sem geimfarið Voyager 2.
hefur tekið en nálgast nú Uranus.
Vísindamennirnir höfðu átt von á
að finna fleiri fylgihnetti og búast
jafnvel við að fleiri komi í ljós.
Tunglin eru frá 32 upp í 48 km í
þvermál. _ÞH/reuter
Laugarnessókn
Happdrætti frestað
Sóknarnefnd Laugarnessóknar
fór af stað með happdrætti í lok
síðasta árs. Ráðgert var að draga
23. desember 1985. Vegna ófyrir-
sjáanlcgra atvika verður dregið í
stað 10. mars 1986.
Velunnurum Laugarneskirkju
er bent á að hægt er að nálgast
miða í kirkjunni. Aðeins eru út-
gefnir 7500 miðar. Hægt er að fá
senda miða heim í gíró. Haft er
þá samband í síma kirkjunnar.
• Blikkiöjan
Iðnbúð 3, Garðabæ
önnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboö
SIMI 46711