Þjóðviljinn - 30.01.1986, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 30.01.1986, Qupperneq 3
Ríkismat Tveir ráðnir Fjórum sagt upp um áramótin Tveir af fjórum yfirmats- mönnum sem sagt var upp hjá, Ríkismati sjávarafurða um ára- mótin hafa verið endurráðnir. Þetta eru þeir Sigurður Gunnars- son Vestmannaeyjum og Ragnar Franzson Reykjavík. Uppsagnir þessara fjögurra manna hafa valdið talsverðum deilum milli matsmanna og fisk- matsstjóra, Halldórs Árnasonar. Fjórmenningunum hafði verið tiíkynnt um uppsagnirnar skömmu fyrir áramót en þeim var þó ekki sagt upp fyrr en þá. Eins og Þjóðviljinn skýrði frá í des- ember kom upp geysileg óánægja meðal hagsmunaaðila í Vestmannaeyjum með uppsögn Sigurðar Gunnarssonar og segja heimildamenn blaðsins að upp- sögnin hafi verið dregin til baka fyrst og fremst vegna þess. Matsmennirnir tveir sem missa vinnuna eru þeir Ketill Jensson Reykjavík og Jón Ákason Akra- nesi, en þeir eiga báðir sutt eftir í eftirlaun. -gg Afnotagjöldin Rukkað fram í tímann Dráttarvextir innheimtir á gjöldfyrir þjónustu sem ekki er búið að veita Það stangast ekki á við lög að innheimta dráttarvexti á gjöld af þjónustu sem ekki er búið að veita, eins og gerist með inn- heimtu afnotagjalda Ríkisút- varpsins sem fallin eru í gjald- daga. Nú er farið að innheimta af- notagjöld Ríkisútvarpsins árs- fjórðungslega í stað hálfs árslega eins og verið hefur. Ef gjalddagi er löglega ákveðinn, er hægt að innheimta dráttarvexti fram í tímann. Theodór Georgsson, yfirmað- ur innheimtudeildar Ríkisút- varpsins, sagði að innheimtan væri um það bil 10% örari með nýja fyrirkomulaginu en hún hefði veriðíhaust. Þann21. janú- ar hefðu innheimtuseðlar verið úti í 15 rúmhelga daga og búið væri að innheimta 47% af þeim um það bil 105 miljónum sem kæmu inn í afnotagjöldum. IH Samningar Fundir í dag Miðar hœgt í viðrœðum BSRB og ríkisvaldsins Við munum kalla saman 50 manna nefndina fljótlega, sagði Kristján Thorlacius formaður BSRB í samtali við Þjóðviljann í gær, en í dag verða fundir beggja undirnefnda í samningavið- ræðum BSRB og ríkisvaldsins og fundur tíu manna nefndarinnar. Kristján kvað engin viðbrögð hafa enn komið fram af hálfu ríkisvaldsins við hugmyndum op- inberra starfsmanna um kaupmáttartryggingu og samn- ingsréttarmálin. -óg FRÉTTIR Fimmtudagur 30. janúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Stjórnvöld voru lýst ábyrg fyrir alvarlegum kennaraskorti í landinu, í ályktun sem geysifjöl- mennur fundur kennara í KI samþykkti einróma í gær. Segir í ályktuninni að þetta ástand stafl af slæmum kjörum kennara og að enn séu stjórnvöld að magna óánægju kennara með mismun í launum. Tilefni fundarins var að mót- mæla þeim mismun á launum sem er meðal kennara eftir því hvort þeir tilheyra KÍ eða HÍK. Munar um 5% á launum milli þessara aðila, þó svo að þeir inni af hönd- um sömu vinnu á sama vinnustað og þykir kennurum slíkt óviðun- andi. Yfirskrift fundarins var „Orð skulu standa", og var þar verið að minna á að yfirlýsingar stjórnvalda í málefnum kennara hafa sjaldnast verið meira en orð- in tóm. Sem dæmi um óábyrg lof- orð ríkisstjórnarinnar, sem svikin hafa verið, er bent á leiðréttingu á launamismuninum milli félaga í KÍ og HÍK. Þá lofaði fyrrverandi menntamáliráðherra kennurum að starfsheiti þeirra og starf yrðu lögvernduð á síðast þingi, en ekk- ert varð um efndir. Bætt kjör - betri skóli Valgeir Gestsson, formaður KÍ, talaði fyrstur á fundinum. Sagðist hann vonast til að Sverrir Hermannsson, sem var gestur fundarins, kæmi frumvarpinu um lögverndun kennarastarfsins fram á Alþingi. Þá krafðist Val- geir þess að tafarlaust yrði tekið á jöfnunarmálinu og kennurum í Kí tryggð sömu laun og kennur- um í HIK. Sagði hann að kennar- ar sættu sig ekki við slíkt ranglæti, að þjóðfélagið léti það við- gangast að mönnum væri mis- munað í launum eftir því hvar í félagi þeir stæðu. Það kom fram í máli Valgeirs að um áramótin hefðu um 20 kennarar hætt störfum vegna lé- legra launa og sagði hann viðbúið að fleiri fylgdu í kjölfarið. Sagðist hann vita um að í einum skóla á Vestfjörðum væru allir kenrrar- arnir að hugleiða uppsögn. Valgeir lauk máli sínu á því að minna á kjörorð félagsins: „Bætt kjör - betri skóli, því ætlum við að ná fram“. Sömu laun fyrir sömu vinnu María Nordal kennari í Árbæj- arskóla talaði á eftir Valgeiri. Sagði hún kaup og kjör kennara þannig að ekki yrði við unað. Fólk hefði einfaldlega ekki efni á því að stunda kennslu lengur. Sagði hún að kennarar neituðu að trúa því að það ætti að draga þá á asnaeyrunum lengur. „Við sættum okkur ekki við að menn vinni hlið við hlið á mis- munandi launum. Sömu laun fyrir sömu vinnu. Það eru allir sammála um það, en hvað tefur þá Þorstein og Sverri að leiðrétta mismuninn? Ætla þeir sér að draga skólahaldið rneira niður í svaðið en þegar hefur verið gert?“. Ása Björk Snorradóttir, kenn- ari í Víðistaðaskóla, tók mjög í sama streng og María. Sagði hún að mönnum væri ekki lengur mis- munað eftir kynjum heldur eftir því í hvaða félagi þeirværu. Sagði hún kennara tilbúna í átök til að ná fram rétti sínum. „Það þýðir ekkert að hlaupast undan merkj- um og bíða þess að aðrir vinni verkin fyrir okkur. Það mun eng- inn gera það“. Svik stjornvalda Kristján Thorlacius, formaður HÍK, var gestur fundarins. Sagði hann að vissrar tortryggni hefði gætt hjá félögum í KÍ í garð HÍK. Sagði hann að slík tortryggni ætti ekki við rök að styðjast, hún væri út í bláinn og byggð á vanþekk- ingu. Benti hann í því sambandi á samþykkt aðalfundar HÍK í haust, þar sem samþykkt var að vinna að sameiningu kennarafé- laganna. Kristján ræddi mismuninn á launum kennara og sagði að kjör kennara í HÍK bötnuðu ekkert þó einhverjir væru á lægri launum. Sagði hann að stjórnvöld hefðu lofað að leiðrétta þennan mismun á síð- asta ári en hefðu ekki staðið við það. „Stjórnvöld hafa enn einu sinni svikið gefin loforð“. Næstur á mælendaskrá var Geir Haarde, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, en Þorsteinn Pálsson gat ekki mætt vegna las- leika. Færði hann fundinum bréf frá fjármálaráðherra, þar sem Bandalagi kennarafélaga er veittur samningsréttur fyrir kennara. Komu skilaboð þessi mönnum mjög í opna skjöldu. Sagði Geir að eina leiðin til að jafna launamisrétti milli kennara væri, að BK færi með samnings- réttinn fyrir hönd allra kennara. Ef ég væri einráður Síðastur á mælendaskrá var Sverrir Hermannsson, mennta- málaráðherra. Sagðist hann ekki velkjast í vafa um að kennarar ætluðu að ná fram rétti sínum, eftir að hafa setið þennan fund. Sagði hann ástæðuna fyrir því að kennarar hefðu ekki náð fram því sem þeir hafa viljað vera þá, að hann sé ekki einvaldur. Síðan lofaði hann að beita sér fyrir lög- verndun starfsins, betri kjörum og afnámi launamisréttarins. Sagðist hann jafnframt vilja setj- ast niður með kennurum og ræða við þá um framtíðarskipan skóla- halds á íslandi. í lok fundarins var svo orðið gefið laust og tóku nokkrir til máls. Var málflutningi fulltrúa ríkisvaldsins fagnað en bent á að hingað til hefðu öll slík loforð verið svikin og orð ekki staðið. Að lokum var svo ályktun sú sem í upphafi var greint frá samþykkt. í henni er skorað á félagsmenn að standa saman í baráttunni um taf- arlausa leiðréttingu launa, sjálf- stæðan samnings- og verkfallsrétt fyrir KÍ, fulla verðtryggingu launa og verulegar launahækkan- ir og lögvernduð starfsréttiíHii og starfsheiti kennara. -Sáf Valgeir Gestsson: kennarar sætta sig ekki við það ranglæti að búa við misjöfn kjör eftir því hvar í félagi þeir eru. Ljósm. Sig. Bekkurinn á Hótel Sögu var þétt setinn í gær, svo þétt að menn urðu að setjast á gólfið. Ljósm. Sig. Kennarar Orð skulu standa Geysifjölmennur fundur Kennarasambands íslands á Hótel Sögu

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.