Þjóðviljinn - 21.02.1986, Side 5
Föstudagur 21. febrúar 1986! ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
AriTrausti Guðmundsson kennari: „Foreldrarog nemendurverða aðspyrjasig
þess hvort það sé þess virði að fórna menntuninni fyrir launavinnu."
Mun fleiri vinna
Ari Trausti Guðmundsson kennari:
Samanburðarkönnunin leiðir í Ijós
að mun fleirí nemendur vinna
með náminu
Sumir segja jafnvel: „Ég get ekki
mætt í próf, ég er að vinna“. Ef
„Þessi könnun var gerð til sam-
anburðar við úrtakskönnun sem
gerð var í fyrra og í ljós hefur
komið að mun fleiri nemendur
vinna með námi. í fyrra vann um
helmingur en nú eru það töluvert
fleiri. I skólanum eru 820 nem-
endur og líklega vinna 450-500
nemendur með skólanum. Það er
hátt hlutfall“, sagði Ari Trausti
Guðmundsson kennari í MS, sem
var einn þeirra sem stóð fyrir
könnuninni.
Telur þú þetta bitna á námsár-
angri?
„Góður nemandi getur unnið
nokkuð með námi meðan slakur
nemandi getur það ekki. Hins
vegar tel ég að nemendur þurfi að
verja að minnsta kosti 50 stund-
um á viku til námsins, með
heimanámi, til að uppfylla þær
kröfur sem skólinn gerir. Og ef
þeir vinna líka 10-12 stundir á
viku í launavinnu er vinnuvikan
orðin gífurlega löng og námið
verður í skötulíki.“
Skólinn aðlagar
sig þessu
„Við þurfum að standa í mikl-
um snúningum í sambandi við þá
sem vinna, því þeir eru oft að
reyna að fá skólann til að hliðra
til fyrir vinnunni og það getur
verið erfitt í 800 manna skóla.
þessi mikla launavinna nemenda
heldur lengi áfram verður ein af-
leiðingin sú að skólinn aðlagar sig
þessu og verður slakari. Og það
er alvarlegt mál bæði séð út frá
hagsmunum nemenda og af þjóð-
félagsins hálfu, því þá kemur
verri árangur út úr
menntakerfinu. Ég tel að foreldr-
ar og nemendur verði að spyrja
sig hvort það sé æskilegt að fórna
náminu fyrir launavinnu. Og
skólayfirvöld verða að spyrja sig
þess hvort ekki verði að herða
kröfurnar“.
Hver er ástœðan fyrir þessari
miklu launavinnu nemenda?
„Það eru náttúrlega margar
ástæður. En samkvæmt því sem
ég hef hlerað og spurt krakkana
telja þau sig þurfa að vinna fyrir
fötum, bókum og fleiru. Fjöl-
skylduástæðurnar hjá mörgum
eru þannig að þeir þurfa að
vinna. Sumarkaupið er að mestu
leyti búið um haustið. Fólk gerir
jú eitthvað á sumrin og tekur sér
sumarfrí. Yfir veturinn þurfa
krakkarnir nokkur þúsund á viku
í bækur og föt og venj ulegt launa-
fólk hefur.bara ekki efni á að
punga út kannski 10 þúsundum á
mánuði fyrir einn táning. Svo eru
líka aðrir krakkar sem vinna bara
til þess að geta verið ofboðslega
flott í tauinu og eytt í lúxus.“
Umsjón:
Sigríður
Arnardóttir
nemenda vinna
meó náminu
Vigdís Þórisdóttir: „ Vinn á bar um helgar"; Vigdis gægist þarna út um sjoppugat
skólans.
I Menntaskólanum við Sund var nylega gerð könnun
á vinnu nemenda meðfram naminu. Niðurstaðan var:
sláandi hátt hlutfall nemenda er í launaðri vinnu.
Glætan fór á stúfana og tók nokkra nemendur í MS tali
svo og einn kennara sem stóð að vinnukönnuninni.
Krakkarnirvoruspurðir: Vinnurþúmeðskolanum?
Vinnukönnunin Unnið Ekki
með unnið
námi með
Þátttaka námi
1. bekkur: um 90% 38,6% 61,4%
2. bekkur: um 88% 55,3% 44,7%
3. bekkur: um 81 % 65.5% 34,5%
4. bekkur: (eina bekkjardeild vantar)70,3% 29,7%
Heildin: (54%)
Ath.: Væntanlega er heildartala þeirra sem vinna með
náminu 58% því þeir nemendur sem ekki náðist í voru
fjarverandi vegna vinnu sinnar.
Kristín
Hauksdóttir
í 4. bekk: „Ég hef unnið með
skólanum öll 4 árin sem ég hef
verið í MS en ég er nýlega hætt.
Ég hætti til þess að geta einbeitt
mér að því að læra fyrir stúdents-
prófin.
Hvar vannstu?
„Ég vann í Hagkaupum tvisvar
í viku, 6-7 tíma í senn. Kaupið var
svona frá 7 þúsund upp í 10 þús-
und á mánuði. Svo vann ég líka í
Hagkaupum um jólin. Þar sem ég
vann í sumar fékk ég ekki nema
20 þúsund á mánuði“.
Af hverju vannstu alltaf með
skólanum?
„Til þess að geta lifað. Það
vinna flestir með skólanum.
Maður þarf á þessu að halda til að
geta keypt föt, skólabækur, farið
í bíó og skemmt sér“.
Hvers vegna heldur þú að
vinna með námi hafi aukist und-
anfarin ár?
„Það er dýrara að lifa og meiri
kröfur gerðar“.
Hvað ætlar þú að gera þegar þú
ert orðin stúdent?
„Mig langar að vinna og ferð-
ast í eitt ár. Síðan langar mig til
þess að læra myndlist eða auglýs-
ingateiknun".
Vigdís
Þórisdóttir
í 4. bekk: „Já, ég verð að vinna
því að ég er frá Njarðvík en leigi í
Reykjavík og þarf því að hafa
fyrir húsaleigu, mat, fötum og
þess háttar. Mamma og pabbi
hjálpa mér heilmikið en svo vinn
ég í Þjóðleikhúskjallaranum á
barnum um helgar. Yfirleitt vinn
ég bæði föstudags- og laugardags-
kvöld. Ég fæ ca. 3000 kr. í laun
fyrir hverja helgi“.
Hefurðu nægan tíma til að læra
heima?
„Ja, ég myndi örugglega gera
eitthvað fleira en læra ef ég ynni
ekkert með skólanum. Ég er líka
í körfubolta og svo læri ég heima í
svona klukkutíma á dag og meira
um helgar, svo tek ég stundum
tarnir. Ég fer hins vegar ekkert út
að skemmta mér því að á þeim
tíma er ég alltaf að vinna“.
Hvað varstu að gera í sumar?
„Ég vann hjá Essó. Þetta var
vaktavinna og því fékk ég 36 þús-
und á mánuði. Svo fór ég til út-
landa.
Hvað ætlarðu að gera eftir
stúdentsprófið?
„Ég ætla að vinna áfram hjá
Essó í sumar og fara svo í læknis-
fræði í Háskólanum í haust“. fl