Þjóðviljinn - 21.02.1986, Blaðsíða 24
Aðalsími: 681333. Kvóldsími: 681348. Helgarsfmi: 81663.
UÖÐVIUINN
Föstudagur 21. febrúar 1986 43. tölublað 51. örgangur.
Samningarnir
Enga samninga
um niðurskurð
Kristján Thorlacíus: Frjálshyggjan semfelst íþví
að skera niður opinbera þjónustu er
andverkalýðssinnuð. Trúiþvíekki.
r
Eg vil benda á, að sú frjáls-
hyggja sem felst í því að skera
niður opinbera þjónustu er and-
verkalýðssinnuð og ég trúi því
ekki að Alþýðusambandið sé að
semja um slíkt, sagði Kristján
Thorlacíus í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær, en í blaðaviðtali á mið-
vikudag lýsti forsætisráðherra
því að hluta af kostnaðinum við
að greiða niður verðbólguna ætti
að mæta með niðurskurði.
Talaö er um aö mæta kostnaði
við að koma verðbólgunni niður í
7 prósent með því að lífeyrissjóð-
irnir verji allt að 750 miljónum í
kaup á skuldabréfum ríkissjóðs.
Afganginum af kostnaðinum,
sem er álíka há upphæð og kemur
úr lífeyrissjóðunum, á að mæta
með niðurskurði samkvæmt því
sem Steingrímur Hermannsson
sagði í viðtali við DV á miðviku-
dag.
„Allt launafólk í landinu tapar
á því að þjónusta sé skorin nið-
ur,“ sagði Kristján í gær. Við
verðum að gera okkur grein fyrir
því að stærsti hiuti opinberra út-
gjalda fer í sjúkraþjónustu,
menntakerfið og almannatrygg-
ingakerfið og allt eru þetta félags-
leg atriði, sem tók verkalýðs-
hreyfinguna áratugi að ná fram.
Það væri kaldhæðni örlaganna ef
Alþýðusambandið færi að semja
þetta af okkur með frjálshyggju-
öflunum, að verkalýðshreyfingin
yrði til að skera þetta niður. Ég
trú; því ekki að þeir ætli sér það.
Þetta hljómar ekki ólíkt því að
það sé Hannes Hólmsteinn sem
ráði ferðinni ef þetta er satt,“
sagði Kristján að lokum.
-Sáf
Grundarfjörður
Augastaður á
nýju skipi
Grundfirðingar hyggjast
bjóða ískip ístað Sigur-
fara sem þeir misstu
Grundfirðingar hyggjast bjóða
í nýtt skip í stað Sigurfara II,
sem tapaðist frá bæjarfélaginu á
dögunum. Fundur var haldinn í
Siglunesi h/f og þar var samþykkt
að halda hlutafélaginu áfram.
Þar var ákveðið að kaupa skip til
Grundarfjarðar og gert verði til-
boð í það á næstu dögum.
Siglunes h/f var upphaflega
stofnað til að endurheimta Sig-
urfara II til Grundarfjarðar, en
Akurnesingar keyptu skipið af
Fiskveiðasjóði nú á dögunum.
Formaður Sigluness h/f er Hjálm-
ar Gunnarsson sem var aðal-
eigandi Sigurfara II meðan það
var í eigu Grundfirðinga. Þeir
Grundfirðingar sem Þjóðviljinn
hafði samband við í gær, kváðust
ekki vilja gefa upp nafn skipsins
sem ætlunin er að bjóða í að svo
stöddu.
GÞR/AS
ísafjörður
íhaldið á
móti jafnrétti
Bæjarstjórn ísafjarðar hefur
ákveðið að setja á laggirnar
starfsmatsnefnd og að hún endur-
meti sérstaklega störf kvenna
innan bæjarkerfisins með það
fyrir augum að hækka þær innan
launastigans. Athygli vakti að
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
Jafnréttisnefnd ísafjarðar, Guð-
mundur H. Ingólfsson var tillög-
unni andvígur og greiddi atkvæði
gegn henni við afgreiðslu málsins.
Tillöguna flutti bæjarfulltrúi
Alþýðubandalagsins, Þuríður
Pétursdóttir. í henni segir m.a.
að endurmat á störfum kvenna
eigi að fela í sér nýtt verðgildi á
hefðbundnum kvennastörfum og
að þættir eins og þjónusta,
umönnun og uppeldi verði metn-
ir til jafns við ábyrgð, frumkvæði
og stjórnunarþætti hefðbundinna
karlastarfa.
Stefnt er að því að hið nýja mat
liggi fyrir áður en komið verður
að sérkjarasamningum. Tillaga
Þuríðar var samþykkt með 5 at-
kvæðum gegn 2. _
Námsmannahanastél
Albert: nei
Sverrir: já
Verkfræðinemar í bjóði
hjá menntamálaráðherra
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra bauð til sín í Rúg-
brauðsgerðina öllum verkfræði-
nemum í gærkvöldi og bauð þeim
uppá snittur og snafs einsog hver
gat í sig látið.
Þessi atburður var í tengslum
við árshátíð verkfræðinemanna
sem framin var eftir hanastélið
hjá ráðherra.
Það fylgir sögunni að forystu-
mönnum í skemmtanalífi verk-
fræðinema hugkvæmdist fyrst að
biðja Albert Guðmundsson iðn-
aðarráðherra um að sýna þvílík-
an rausnarskap en ráðherrann
treystist ekki til. -m
Friðarár
Mikill áhugi
friðarsinna
Samstarfshópur íslenskrafriðarhreyfinga. Opinberir
aðilar tregir tilþátttöku. Friðardagur um páska.
Friðarskip í júlí
að er mikill áhugi á að minna
á friðarár Sameinuðu þjóð-
anna sem nú stehdur yfir, og það
eru margar hugmyndir í skoðun,
sagði Steinunn Harðardóttir, for-
maður Menningar- og friðarsam-
taka íslenskra kvenna í samtali
við Þjóðviljann í gær, en hún er
fulltrúi sinna samtaka í sam-
starfshóp íslenskra friðarsam-
taka sem stofnaður hefur verið í
tilefni af friðarárinu 1986.
Það hefur ekki borið mikið á
því hér á landi að líðandi ár hefur
verið tileinkað friði í heiminum.
Nú er hins vegar von um að bætt
verði úr því. Samstarfshópurinn
hefur verið starfandi í nokkrar
vikur og hefur ýmsar áætlanir á
pijónunum. Steinunn sagði í gær
að stefnt væri að því að gera einn
dag um páskana að sérstökum
friðardegi. Skipulagðarverðaað-
gerðir í tilefni af komu friðarskips
hingað í júlí, en þetta skip kemur
hingað á vegum Friðarsamtaka
norðurhafa. Áform er uppi um
ýmislegt fleira.
Opinberir aðilar á Islandi hafa
hingað til ekkert aðhafst í tilefni
af ári friðarins, þrátt fyrir að allar
aðildarþjóðir S.Þ. hafi verið
hvattar til að sinna þessu máli
með öflugum fjárframlögum og
öðrum stuðningi við friðarsinna.
Nágrannaþjóðir okkar hafa orðið
við þessari áskorun og er ætlunin
að reyna að ýta íslenska kerfinu í
sama farveg.
Samtökin sem eiga aðild að
samstarfshópnum eru auk Menn-
ingar- og friðarsamtaka kvenna,
samtök lækna og eðlisfræðinga,
Samtök herstöðvaandstæðinga,
Friðarhópur fóstra, Kjarnorku-
vopnalaust ísland, íslenska frið-
arnefndin og Friðarhreyfing
kvenna.
-gg
Steinunn Harðardóttir. Ýmislegt í bígerð á friðarári. Mynd Sig.
Menntaskólanemar
Yfir 70% vinna með námi
Vaxandi vinna unglinga meðfram námi ímenntaskólum. Yfir 70%
vinna í 4. bekk. 60% allra nema í Menntaskólanum við Sund
vinna meðfram námi
Yfir 70% nemenda í fjórða
bekk menntaskólans við Sund
vinna með náminu, samkvæmt
niðurstöðum úrtakskönnunar
sem gerð var nýlega í skólanum.
Ari Trausti Guðmundsson kenn-
ari við skólann telur að töluvert
fleiri nemendur vinni í ár heldur
en í fyrra meðfram námi.
í skólanum eru 820 nemendur
og er talið að um 500 þeirra vinni
með náminu, en í úrtakskönnun í
fyrra kom fram að um helmingur
þeirra vinnur með námi.
í 1. bekk vinna 38.6% með
námi, í 2. bekk 55.3%, í 3. bekk
65.5% og í 4. bekk 70.3%. Ef
allir eru teknir með kemur fram í
könnuninni að 54% nemenda
vinna með náminu.
Hins vegar er reiknað með að
heildartalan sé enn hærri, eða
58%, þarsem ekki náðist til
margra nemenda vegna vinnu
þeirra.
Af hverju vinna krakkarnir sf-
fellt meira?„Til að geta lifað. Það
vinna flestir með skólanum, mað-
ur þarf á þessu að halda til að geta
keypt föt, skólabækur, farið í bíó
og skemmt sér,“ sagði einn við-
mælandi Glætunnar í Þjóðviljan-
um í dag, en þar er greint nánar
frá þessari könnun og talað við
nokkra krakka og einn kennara í
Menntaskólanum við Sund.
-óg
Sjá bls. 5-6