Þjóðviljinn - 21.02.1986, Blaðsíða 6
GLÆTAN
meö skólanum
-------- pT^ctir í bekknum vinna
ó&d^Smáói^eison. .Flesdr
ekKert hækkað í ár~
peninð n'e
retdrun'jm
Pétur
Gautur
Svavarsson
nemandi í 4. bekk: „Já, ég vinn
með skólanum. Ég vinn í Bóka-
verslun Snæbjarnar á laugar-
dagsmorgnum og stundum á virk-
um dögum milli 4 og 6. Svo stilli
ég út í glugga fyrir þá öðru
hverju. Mig langar endilega að
taka það fram að kaupið mitt hef-
ur ekki hækkað um krónu í eitt
ár. Ég er með 110 kr. í dagvinnu-
laun og 175 kr. í næturvinnu. Ég
talaði við framkvæmdastjórann
og hann lét mig fá 2000 kr. í
launauppbót og síðan ekki sög-
una meir. Launin mín eru svona
kringum 3000 á mánuði. Það eru
engin laun, búin á 10 dögum".
Attu einhvern afgang af sumar-
kaupinu?
„Nei, og samt vann ég eins og
brjálæðingur í allt sumar. Ég
vann á skyndibitastað frá kl. 11 á
morgnana til 1 á nóttunni og líka
hjá Snæbirni öðru hverju í afleys-
ingum. Égkeypti mér bíl fyrir 30
þúsund en hitt fór í föt og
skemmtanir. Um jólin vann ég
hjá Snæbirni og fékk þar 15000 í
laun en ég hafði látið skrifa hjá
mér skólabækurnar og þegar
búið var að draga það frá voru
3000 kr. eftir.
Færðu peninga hjá foreldrun-
um?
„Já, svona 2000 á mánuði og
stundum bensín á bílinn. Aður
gat maður keypt sér buxur, farið í
bíó og skemmt sér fyrir svona 2
þúsund kall en nú dugir þetta
bara fyrir buxum“.
Af hverju heldur þú að nemar
vinni með skólanum í meira mæli
en áður?
„Nú leyfa krakkar sér meira.
Fara í ferðalög o.fl..“
Hvað ætlar þú að gera eftir
menntaskólann?
„Ég ætla að reyna við mynd-
listarskólann. Mig langar helst að
fara í lestarferðalag í sumar
(Inter-rail), vinna mér svo inn
peninga og fara í hnattferð í ár og
svo vona ég að myndlistarskólinn
taki við“.
Guðmundur
Þorri
Jóhannesson
nemandi í 4. bekk: „Ég vinn með
náminu. Reyndar er það hér í
skólanum, ég er eftirlitsmaður í
tölvuherberginu 6-7 tíma á viku.
Við félagarnir vorum svo mikið
hérna í tölvunum að okkur var
boðin vinna við að hafa eftirlit
með því að ekki séu læti og að-
stoða nema ef eitthvað kemur
upp á. Launin eru svona sirka
3500 á mánuði“.
Att þú eitthvað eftir af sumar-
kaupinu?
„Já, því ég vann mjög mikið í
sumar. Ég vann í Grasköggla-
verksmiðjunni í Gunnarsholti og
þar fékk ég frítt fæði og húsnæði
og útborguð laun voru um 25000
á mánuði. Peningarnir fara aðal-
lega í föt, skemmtanir, skóla-
bækur, SVR miða, bíó og bara að
lifa. Svo keypti ég mér tölvu en ég
fékk hana á mjög góðum kjörum.
Hefurðu nægan tíma til að læra
heima?
„Þetta er fyrsta árið sem ég
vinn með náminu og mér finnst
ég hafa nægan tíma fyrir heima-
námið“.
Vinna margir í þínum bekk
með skólanum?
„Já, flestir held ég og líklega er
meira um það að stelpur vinni en
strákar. Þær fá svo margar vinnu í
sjoppum t.d.“.
Hvað ætlar þú að gera eftir að
þú útskrifast?
„í sumar ætla ég að fá vinnu við
tölvu og svo ætla ég í tölvunám í
Háskólanum í haust“.
Steinunn
Hildur
Hauksdóttir
er nemandi í 1. bekk: „Nei, ég
vinn ekki. Mamma og pabbi gefa
mér peninga eins og ég þarf. Ég
eyði 700-800 kr. á viku, annars
fer mikið af þessu í strætómiða.
Svo gefur amma mér stundum
pening o.fl..“
Fékkst þú gott kaup í sumar?
„Ég var reiðskólakennari í
Þúfu í Kjós og fékk frítt fæði og
1 sjoppu skólans. ar9reu)a^^^
Ljósm. E.Ol.
húsnæði. Svo fékk ég 6 tonn af
heyi því ég á hesta og 5000 í pen-
ingum eftir sumarið. Annars
gerði ég þetta ánægjunnar vegna
en ekki til að þéna mikinn pen-
ing".
Vinna margir í þínum bekk
með skólanum?
„Ég held ekki. Við höfum eng-
an tíma. Við erum í skólanum til
6 á daginn og svo þarf maður að
læra á kvöldin“.
Óskar
Örn
Eiríksson
nemandi í 1. bekk: „Nei, ég vinn
ekki með skólanum og ég held að
ég eigi ekki eftir að gera það. Ég
hef varla tíma, það er nóg að læra
og svo er ég í kórnum".
Hvað gerðir þú í sumar?
-Ég vann hjá ístaki við að
steypa einingar í flugstöðina og í
hitaveiturör. Ég fékk svona 26-30
þúsund í laun á mánuði. Þetta var
erfið vinna og mikil yfirvinna. Ég
vann þarna í tvo og hálfan mán-
uð. Svo vann ég í jólafríinu við
hreingerningar“.
I hvað fara peningarnir þínir?
„Þeir fara í skemmtanir og föt.
Ég fæ peninga hjá mömmu og
pabba en þau setja það skilyrði
að ég fari sparlega með þá. Ég fer
með svona eitt til tvö þúsund á
viku“.
Vinsældalistar Þjóðviljans
Fellahellir
(1) When the going get’s tough - Billy Ocean
(2) Sara - Starship
(3) In a livetime - Clanad
(4) Sanctify yourself - Simple Minds
(5) West end girls - Pet Shop Boys
(6) Burning heart - Survival
(7) Living in America - James Brown
(8) Great Wall of China - Rikshaw
(9) Boarder line - Madonna
(10) Rebel yell - Billy Idol
Grammið
(9) 1. Raindogs -Tom Waits
(1) 2. Holidays in Europe - Kukl
(6) 3. Kona - Bubbi Morthens
(2) 4. Once upon a time - Simple Minds
(-) 5. Mcalla - Clannad
(-) 6. From the cradle to the grave -
Sub Humans
(-) 7. Steve McQueen - Prefab Sprout
(-) 8. Kill me in the morning - Float up CP
(-) 9. The missins Brazilians - Warzone
(-) 10. Biography - Bob Dylan
Rás 2
(2) 1. How will I know - Whitney Houston
(1) 2. Gaggó-Vest - Eiríkur Hauksson, Gunnar
Þórðarson ofl.
(8) 3. Rebel yell - Billy Idol
(5) 4. Burning heart - Survivor
(3) 5. Gull - Eiríkur Hauksson, Gunnar Þórðarson
ofl.
(4) 6. The sun always shines on TV - Ah-ha
(-) 7. Sanctify yourself - Simple Minds
(9) 8. Walk of life - Dire Straits
(7) 9. The Great Wall of China - Rikshaw
(-) 10. Borderline - Madonna
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. febrúar 1986