Þjóðviljinn - 21.02.1986, Qupperneq 11
HEIMILIÐ
Húsgögn
I forn-
verslun
Í36
ár
Hannes Ágústsson í
Fornversluninni
sótturheim. Dauf
salaundanfariö.
Enginn uppastæll
Ég opnaði þessa verslun í
nóvember fyrir 36 árum og það
verður ekki annað sagt en að
margt hafi breyst í þessum við-
skiptum síðan, sagði Hannes
Ágústsson eigandi Forn-
verslunarinnar við Grettisgötu
í Reykjavík í samtali við blaða-
mann Þjóðviljans fyrir
skömmu.
Hannes verslar aðallega með
gömul húsgögn af ýmsu tagi. í
versluninni gefur að líta allt frá
lömpum upp í tvíbreiða
svefnsófa. Þetta eru notaðir
hlutir, allt upp í 20 ára gamlir og
farnir að láta á sjá, og fást enda
gegn vægu verði.
„Hingað kemur alls lags fólk,“
segir Hannes. „Dálítið er nú um
að ungt fólk líti hér inn, kannski
aðallega skólafólk, en það er ekki
einhlítt. Mínir viðskiptavinir eru
á öllum aldri. “
Og hvernig gengur reksturinn
svo?
„Það var miklu meiri gróska í
þessu hér áður, enda eru nú ekki
nema þrjár verslanir af þessu tagi
eftir í borginni. Þetta hefur
breyst. Manni virðist fólk vera
miklu blankara nú en áður og það
skiptir mun síður um húsgögn.
Einhverra hluta vegna hefur ver-
ið mjög dauft yfir þessu undan-
farið. Þetta er varla til að iifa af
því núorðið.“
Pú verslar ekki með antík?
Hannes Ágústsson fornsali: Hingað
kemur fólk á öllum aldri. Mynd: Sig.
„Nei, það er strax orðið mun
dýrara. Það er svolítið um það að
fólk komi hér með antík og það
eru helst minni hlutir, en ég hef
ekki tekið við því. Mín sérgrein
er húsgögn,"1 segir Hannes.
Blaðamaðurinn litaðist vitan-
lega um hjá honum og
sannfærðist um að þarna er hægt
að gera ágæt kaup. Að vísu er
enginn uppastæll á vörunni, en
margt vel brúklegt og sumt meira
en það, allt á góðu verði. Ekki
meira um það.
-gg-
Húsgagnaframleiösla
Geysihörð
samkeppni
Húsgagnaiðja Kaupfélags Rangæinga
á Hvolsvelli hefurframleitt húsgögn í
fjórtán ár. Samkeppnin viö erlenda
vöru erfið
Þessi rekstur gengur þokka-
lega, en því er ekki að neita að
samkeppnin við innflutning er
ansi hörð. Nú er svo komið að
það lifir enginn af þessari
framleiðslu einni saman, sagði
Ólafur Ólafsson fram-
kvæmdastjóri Húsgagnaiðju
Kaupfélags Rangæinga á
Hvolsvelli í samtali við Þjóð-
viljann á dögunum.
Húsgagnaiðjan hefur framleitt
húsgögn með einkaleyfi frá
skandinavískum framleiðendum
frá árinu 1973. Ólafur sagði að
reksturinn grundvallaðist á því að
framleiða vönduð húsgögn sem
teljast vera í milliverðflokki og
eru seld um allt land.
En erfiðleikarnir eru margir.
„Það er bjartsýni að ætla sér að
geta rekið þetta fyrirtæki til
lengdar við óbreyttar aðstæður.
Hér eru engir verndunartollar
síðan við gengum í EFTA og það
er erfitt að berjast við þessa er-
lendu risa. Þar að auki er fjár-
magnskostnaður allt of hár. En
þetta fyrirtæki er rekið í þeim til-
gangi fyrst og fremst að halda
uppi atvinnu fyrir fólkið hér og
við erum staðráðnir í því að
þrauka og sjá hvort skilyrðin
skána ekki,“ sagði Ólafur.
Sem stendur starfa 15 manns
við framleiðsluna, iðnverkafólk,
bólstrarar og smiðir.
-gg
Sérverslun meö húsbúnað
Frábær hönnun
Hringið eða skrifið eftir bæklingum
SlÐUMÚLA 20, 108 REYKJAVlK, PÓSTHÓLF 8976, SlMI (9D-36677
Föstudagur 21. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11