Þjóðviljinn - 21.02.1986, Page 15
HEIMILIÐ
Húsgögn
Allt
eftir
efnum
og
ástæðu
Húsgögnfrákr.0 Gestur Hjaltason.
uppí
hundruðþúsunda
Fyrir þá sem ekki eiga kost
að koma sér upp húsbúnaði
með því að kemba gamlar
geymslur hjá vinum og vanda-
mönnum er valið vandasamt
þegar kemur að þeim merka at-
burði þegar hýbýli eru „mubl-
eruð“, eins og gjarna er sagt á
vondri íslensku. Það þarf að
huga að mörgu, en kannski
hafa flestir verð vörunnar að
leiðarljósi.
Húsgögn eru vitanlega eins og
flest annað af ýmsum stærðum
og gerðum, þótt tilgangurinn sé
kannski einatt sá sami. Það er
hægt að koma sér upp einföldum
húsbúnaði fyrir lítið verð og una
þó glaður við sitt, en ef menn eiga
á annað borð nóg af peningum er
það heldur engum erfiðleikum
háð að komast yfir húsgögn fyrir
morðfjár. Þjóðviljinn spjallaði lítil-
lega við Gest Hjaltason rekstrar-
stjóra hjá IKEA fyrir nokkru og
spurði hvað það myndi hugsan-
lega kosta að eignast nauðsyn-
legan húsbúnað í litla, til að
mynda tveggja herbergja íbúð.
Gestur svaraði því til eins og
vænta mátti að það færi nú eftir
því að hverju fólk væri að leita.
„Við vorum með hér í versluninni
hjá okkur þar til fyrir skömmu litla
íbúð hugsaða fyrir einstakling og
settum í hana húsgögn fyrir innan
við hundrað þúsund krónur. Þar
var að vísu allt með einfaldasta
sniði, en þetta teldist engu að
síður góð íbúð hefðum við lagt
eins og 50 þúsund krónur í hana
til viðbótar. Innifalið í þessum 100
þúsund krónum var lítil bað-
innrétting, eldhúsinnrétting, allt
það nauðsynlegasta í stofuna og
í svefnherbergið. Þetta var eins
og ég segi alveg nóg, en ekkert
meira en það.
Ef þú ert að leita að húsbúnaði í
tveggja herbergja íbúð, við
skulum segja fyrir barnlaust par,
kemstu af með 150 þúsund krón-
ur. Þá ertu kominn með það
nauðsynlegasta í stofuna og
svefnherbergið og einfaldar
innréttingar I eldhús og í baðher-
bergi. Hins vegar er hægt að
innrétta svipaða íbúð fyrir marg-
falda þessa upphæð," sagði
Gestur.
Vöruúrvalið í IKEA höfðar að
sögn Gests fyrst og fremst til
ungs fólks. Viðskiptavinirnir eru
flestir á bilinu 20-40 ára, en þang-
að sækir eldra fólk að sjálfsögðu
einnig.
Þar höfum við það, þetta fer allt
eftir efnum og ástæðum. Sumir
fara létt með að fylla stofuna sína
með gömlum húsgögnum frá
pabba og mömmu eða jafnvel
afa og ömmu, aðrir láta sér ekki
duga minna en húsgögn í sama
pláss fyrir hundruð þúsunda. Svo
er auðvitað allt mögulegt þarna á
milli.
-gg
Útsala
Raunhæf kjarabót.
Alvöru útsala.
Mikill afsláttur.
FUPUHCISÍÐ HF.
SUÐURLANDSBRAUT 30 Sími 687080
Engin ein dýna er rétt fyrir alla.
úskir um verð og gerð eru margbreytilegar eftir efnum og ástæðum.
En þar komum við inn í málið og hönnum þá einu réttu fyrir hvern og einn
- fyrir öll hugsanleg rúm og aðstæður.
Og það er mesti misskilningur að slík persónuleg þjónusta sé dýrari.
Verðið fer eftir gerðinni og gerðirnar eru margar- já allt niður í ótrúlega ódýrar.
PÉTUR SNÆLAND HF
V/SUÐURSTRÖND,
SELTJARNARNESI. S. 24060
SÍOUMÚLA23,
REYKJAVÍK. S. 84161
PÚSTHÓLF 1227,
121 REYKJAVÍK
Rétt dýna
I tjaldið
Rétt dýna
í sumarhúsið
Föstudagur 21. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15