Þjóðviljinn - 21.02.1986, Qupperneq 23
ÍÞRÓTTIR
Úrvalsdeildin
Stórieikur Pálmars
Gerði 48 stig. KR úr leik, Haukar íséns
Pálmar Sigurðsson fór á kost-
um þegar Haukar sigruðu KR 95-
89, í Hafnarfirði í gærkvöldi.
Hann skoraði 48 stig, þar af 8
þriggja stiga körfur og mun það
vera met. Eftir þennan sigur
Hauka eiga þeir möguleika á efsta
sætinu, tapi UMFN fyrir ÍBK á
morgun. KR-ingar eiga hinsvegar
ekki möguleika á sæti í úrslita-
keppninni og enda í 5. sæti.
„Fyrri hálfleikurinn var frá-
bær, það besta sem við höfum
sýnt. Við sofnuðum svo á verðin-
Handbolti
KR upp
í felum
KR-ingar endurheimtu 1. deildar-
sæti sitt á laumulegan hátt í fyrra-
kvöld þegar þcir unnu Þrótt 31-12 í
fcluleik í Seljaskúla. Leikurinn átti að
fara fram í gærkvöldi en í gærdag
kvisaðist út að hann hefði þegar farið
fram!
KR og Haukar eru örugg með sæti í
1. deild næsta vetur, svo framarlega
sem ársþing HSI leggur blessun sína
yfir aukakeppnina. Staðan fyrir síð-
ustu umferð er þessi:
KR............5 4 0 1 131-96 8
Haukar........5 3 0 2 112-101 6
HK............5 2 0 3 104-102 4
Þróttur.......5 1 0 4 94-142 2
Haukar eru öruggir upp þar sem
þeir unnu báða leiki sína við HK.
__________________________—VS
Frakkland
Paris SG
slapp
Paris St.Germain mátti þakka fyrir
1-1 jafntefli á útivelli gegn 2. deildar-
liðinu Montpellier í fyrrakvöld. Þetta
var síðari leikur liðanna í 2. umferð
frönsku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu en Parísarliðið hafði unnið
fyrri leikinn naumlega, 2-1.
Nice var eina 1. deildarliðið scm féll
fyrir 2. deildarliði, 1-1 (samanlagt 1-
2) gegn Mulhouse. I innbyrðis viður-
eignum 1. deildarliða vann Rennes Le
Havre, Brest vann Lille og Auxerre
vann Sochaux. —VS/Reuter
Skotland
Bett útaf
Aberdeen komst í annað sæti
skosku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu í fyrrakvöld með því að sigra
Rangers 1-0. lan Angus skoraði
markið. Merkilegast við lcikinn var
þó að Jim Bett hjá Aberdeen (áður
Rangers) og Dougie Bell hjá Rangers
(áður Aberdeen) voru reknir saman
af lcikvelli eftir stimpingar.
—VS/Reuter
um í þeim síðari,“ sagði Einar
Bollason þjálfari Hauka eftir
leikinn í gær. „Villuvandræði
drógu okkur svolítið niður en við
erum í mjög góðu formi og ein-
beitum okkur að bikarleiknum
gegn ÍBK á sunnudaginn."
Það er ekki hægt að segja ann-
að en að Hukar hafi átt frábæran
fyrri hálfleik. Með Pálmar sem
aðalmann yfirspiluðu þeir KR-
inga. Allt gekk upp, jafnt í vörn
sem sókn.
í síðari hálfleik snerist dæmið
Hafnarfjörður 20. feb.
Haukar-KR 95-89 (62-44)
12-3, 20-9, 32-19, 58-36, 62-44, 69-
55, 71-61, 83-82, 93-87, 95-89.
Stig Hauka: PálmarSigurðsson48,
ívar Webster 20, Kristinn Kristinsson
8, Henning Henningsson 8, Ólafur
Rafnsson 5, Ivar Ásgrímsson 4 og
Eyþór Árnason .
Stig KR: Birgir Mikaelsson 33,
Guðni Guönason 19, Páll Kolbeinsson
10, Garðar Jóhannsson 10, Ástþór
Ingason 8, Þorsteinn Gunnarsson 4,
Guðmundur Jóhannsson 3 og Guð-
mundur Björnsson 2.
Domarar: BergurSteingrímsson og
Sigurður Valur Halldórsson - slakir.
Maður leiksins: Pálmar Sigurðs-
son, Haukum!
við. KR-ingar mættu ákveðnir til
leiks og söxuðu jafnt og þétt á
forskot Hauka. Minnstur varð
munurinn eitt stig 82-83, en
Haukarnir áttu góðan endasprett
og sigruðu.
Það er sem ekkert fái stöðvað
Haukana, þessi leikur var 14.
sigurleikur þeirra í röð og kernur
það ekki á óvart. Liðið hefur náð
mjög vel saman nú í síðustu
leikjum. Pálmar átti frábæran
leik, þó hann hafi fengið sína 4.
villu þegar 10 mínútur voru til
leiksloka. Aðrir léku vel ef und-
anskildar eru nokkrar slæmar
mínútur í síðari hálfleik. Þeir
Ólafur, Eyþór, Henning og
Webster áttu allir góðan leik og
svo nrá einnig segja um þá Kristin
og ívar Ásgrímsson þó þeir hafi
verið óheppnir.
KR-ingar hófu síðari hálflcik af
miklum krafti eftir slakan fyrri hálf-
leik. Liðiö náði upp góðri baráttu og
leit lengi út fyrir að þeir næðu að stela
sigrinum. en óheppni á lokamínútum
kom í veg fyrir það. Þeir Guðni og
Birgir voru aðalmennirnir í liði KR og
einnig áttu þeir Ástþór og Garðar
góðan leik. -Logi
Badminton
Stúlkumar unnu
Islenska kvennalandsliðið
vann léttan sigur á Frökkum, 5-0,
í heimsmeistarakeppninni í
Vestur-Þýskalandi i gærmorgun.
Síðdegis töpuðu þær hinsvegar 0-
5 fyrir Hollendingum. Holland og
Sovétríkin berjast um sigur í riðl-
inum en ísland er í þriðja sæti og
lcikur við Noreg í dag.
Karlalandsliðið tapaði 0-5
fyrir Hollandi og er í 3.-4. sæti í
sínum riðli ásamt Frökkum.
Austurríki og Svíþjóð berjast um
sigur í riðlinum. Islensku karl-
arnir mæta Frökkum í dag.
—VS/Reuter
Pálmar Sigurðsson átti stórkostlegan
skoraði 48 stig, þaraf 8 þriggja stiga körfur.
hinsvegar erfitt að sþá I. Mynd: E.ÓI.
leik með Haukunum í gærkvöldi,-
Hvað hér er á seyði hjá honum er
lnnanhússmótið
Seinni hluti um helgina
Verja Fylkir og Breiðablik meistaratitlana?
Síðari hluti Islandsmótsins í
innanhússknattspyrnu fer fram í
Laugardalshöll um helgina og
hefst reyndar um fjögurleytið í
dag. Keppt er í 1. og 4. deild karla
og í kvennaflokki.
Eftirtalin félög eru í eldlínunni
um helgina:
l.deild:
A-riðill: Fram, Grótta, ÍBK og
ÍA.
B-riðill: Haukar, Valur, FH og
KA.
C-riðill: Breiðablik, KR,
Þróttur R. og Selfoss.
D-riðill: Skallagrímur, Fylkir,
KS og Þór A.
4.deild:
A-riðill: Súlan, Þórsmörk,
Skotfélag Reykjavíkur, Geislinn
og Vaskur.
B-riðill: Tindastóll, Grundar-
fjörður, Trausti, Hrafnkell og
Hveragerði.
C-riðill: Augnablik, Reynir
Hn, Völsungur, Eyfellingur og
Sindri.
D-riðill: HSS, Baldur, Huginn,
Höttur og Efling.
Kvennaflokkur:
A-riðilI: Breiðablik, Stokks-
eyri, Fram og Skallagrímur.
B-riðill: Afturelding, Valur,
Þór A. og KS.
C-riðiIl: FFI, Stjarnan, ÍA,
Grindavík og ÍBK.
D-riðilI: IBI, KA, KR og
Haukar.
Sigurvegararnir í riðlum 1.
deildar karla og kvennaflokks
fara í undanúrslit. Sigurliðin í
riðlum 4. deildar fara hinsvegar
beint uppí 3. deild og leika þar
næsta ár. Núverandi íslands-
meistarar í karlaflokki eru Fylkis-
menn en Breiðablik í kvenna-
flokki. Keppni í dag hefst kl.
16.06 en kl. 9 bæði laugardag og
sunnudag. Úrslitaleikur í
kvennaflokki hefst kl. 21.48 á
sunnudagskvöldið og úrslita-
leikurinn í karlaflokki kl. 22.06.
Nánari tímasetningar eru í dag-
skrárkynningu.
—VS
Knattspyrna
Æþýskir
sterkir
Austur-Þjóðverjar, sem eru meðal
mótherja íslendinga í næstu Evrópu-
keppni landsliða, sýndu styrk sinn
með því að sigra HM-lið Portúgala
3-1 í fyrrakvöld, og það í Lissabon.
Thom, Kirsten og Ernst skoruðu eftir
skæð skyndiupphlaup í fyrri hálflcik
en Gomes svaraði fyrir heimaliðið í
seinni hálfieik.
Spánverjar möluðu Belga
sannfærandi í Elche, 3-0. Það voru
Butragueno, Salinas og Maceda sem
skoruðu mörkin. Bæði lið lcika í úr-
slitum HM í Mexíkó, og það gera líka
lið Marokkó og Búlgaríu sem gerðu
0-0 jafntefli í Rabat í fyrrakvöld.
—VS/Reuter
AFRAM ISLAND
Heildarverðmæti vinninga 7,4 milljónir 15BÍLAR I
HAPPDRÆTTI HSÍ
DREGNIR UT
í KVÖLD
15 BÍLAR
HAPPDRÆTTI HANDKNATTLEIKSSAMBANDS ISLANDS
r.'K ■■
MIÐAVFRD
150
■■ ;.i'
SLAND
15 BÍLAR
15BÍLAR
5 SUZUKI FOX413 High Rool Kr 490 þus. hver
1 0 FORD ESCORT LASER Kr 375 þu.. hver
B a" r cregr.r ut 21 FEBRUAR
40 FERÐAVINNINGAR
Kr. 30 þus. ^tt-SamvmnufenSir.Landsýn HEILDARVERÐMÆTI
2: -'e i • e-eqra- 10. JANÚAR 20 F.rð-r 'ut 7. FEBRÚAR VINNINGA KR. 7,4 MILLJÓNI
ÞESSI MIOI GILDIR I HVERT SlNN SEM OREGIO ER EFTIR AD HANN ER GREIDDUR