Þjóðviljinn - 01.03.1986, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 01.03.1986, Blaðsíða 14
MINNING \ Sigrún Bjamadóttir fœdd: 19. okt. 1917 dáin: 23. febr. 1986 Það er fyrsti góudagur. Kon- udagurinn. Ég kaupi blóm, nokkra rauða túlipana, sem ég ætla að gleðja frænku mína með, sem hefur verið veik og liggur á sjúkrahúsi. Það er milt og gott veður. Ég geng inn í sjúkrahúsið, inn í sjúkrastofnuna þar sem hún liggur. Ég nálgast rúmið hennar með hægð, því mér er ljóst að ég stend hér í návist dauðans. Líf hennar er að fjara út. Það er að slokkna á skarinu. Ég sit um stund ein við dánarbeðinn henn- ar, og þakka henni fyrir allt. Signi síðan náinn og bið guð að blessa hana. Ég geng hnípin út úr stof- unni og finn að ég átti þessari konu skuld að gjalda. Áður en ég veit af er ég komin út úr sjúkrahúsinu, og finn hvað það er gott að ná andanum úti í góða veðrinu. Ég held ennþá á blómunum, rauðum túlipönum, sem eiga eftir að springa út. Hvað á ég að gera við þessi blóm? Án þess ég eiginlega viti af, er ég komin á leið til þeirra hjónanna Ágústu Óskarsdóttur og Magn- úsar Sigurðssonar á Kleppsvegin- um. Gústa frænka á að fá þessi blóm. Auðvitað. Hún brást aldrei þessari einmana móðurs- ystur okkar og Magnús studdi hana alltaf til góðverkanna. Sigrún Bjarnadóttir hét hún, var fædd á Eyrarbakka 19. okt. 1917. Foreldrar hennar voru þau hjónin Bjarni Vigfússon frá Söndum í Meðallandi og seinni kona hans Sigríður Hösku- ldsdóttir frá Stóra Klofa í Lands- sveit. Sigríður og Bjarni áttu þrjú börn saman, en áður átti Bjarni afi minn 7 börn með fyrri konu sinni, sem var Skaftfellingur eins og hann. Hún lést um 1910. Bjarni og Sigríður bjuggu á Eyrarbakka, þar misstu þau tvö börn sín. Þegar Sigrún var tíu ára og ein eftir af börnunum, fluttu þau á Akranes. Þar byggði afi þeim bæ, sem hann nefndi Bjarnastaði. Þar bjó þessi litla fjölskylda, afi og Sig- ríður, ásamt dótturinni Sigrúnu og Ágústu dótturdóttur afa, sem þau Sigríður ólu upp frá frum- bernsku, en móðir hennar hún Lína var alltaf vinnukona á Kol- viðarhóli. Þetta var kyrrlát fjöl- skylda. Ég man oftast eftir afa í litlu smíðahúsi áföstu við bæinn, með hefilspæni í svörtu vaðmáls- buxunum og í gráu skegginu sem náði niður á bringu, og timbur- lyktinni af honum, þegar við litlu telpurnar kúrðum okkum í skeggið, eða þegar hann stóð við aflinn í smiðjunni sinni. Hann var völundur í höndunum og áttum við barnabörnin hans marga fal- lega hluti sem hann smíðaði handa okkur, allt frá trédúkkum og rúmum, að stærri hlutum eins og kommóðum. Sigríður móðir Sigrúnar var ein af þessum hljóðu alþýðukonum, sem unnu verk sín af fórnfýsi og veittu af fátækt sinni. Við þessa kyrrlátu önn ólst Sig- rún upp. Hún var vel gefin til munns og handa, sótti nám sitt vel, sem var auðvitað lítið annað á Akranesi en barnaskólinn. Á sumrin vann hún ýmis störf við hæfi unglinga, gætti barna, vann í fiskvinnu og annað slíkt. Á ung- lingsárum sínum missti hún báða foreldra sína, og upp úr því verð- ur hún að standa á eigin fótum. Þá fer hún til Reykjavíkur, lærir að sauma og verður meistari í þeirri iðn. Hún var mjög hög í höndum og sóttust margir eftir verkum hennar. Hún var í mörg ár fyrir saumastofunni Feldi, sem þá var stórt fyrirtæki. Kápur frá Feldi þóttu fínar. Á þessum árum var hún glöð og falleg ung stúlka. Hún giftist aldrei, en átti einn son, Baldur, með Magnúsi Ásmundssyni úr- smiði í Reykjavík. Baldur er starfsmaður hjá Alþýðusamb- andi fslands, mikill tölvumaður, hagur í höndum eins og hann á kyn til. Hans kona er Jónína Þor- steinsdóttir. Þau eiga þrjá syni, einn son átti Baldur áður, hann Bjarna litla, sem var augasteinn ömmu sinnar. Það urðu snögg umskipti í lífi Sigrúnar eftir að hún átti Baldur. Lífsbaráttan var enginn leikur þá fremur en nú, fyrir einstæða móður í Reykjavík. Hún barðist fyrir framtíð drengsins síns og nú saumaði hún mest heima hjá sér, til þess að hún gæti annast drenginn um leið. Hún hafði alltaf nóg að gera, og þegar fram í sótti komust þau þokkalega af. Á sumrin dvaldi hún alltaf í sumarleyfi með Bald- ur litla hjá okkur á Akranesi, fyrst hjá foreldrum mínum, en síðan hjá mér og þá kom hún stundum með Bjarna litla. Bald- ur var snemma stæltur og fjörug- ur strákur, og hefur komið sér vel áfram. En svo missti hún heilsuna, og varð smátt og smátt að öryrkja og það má segja að upp frá því hafi líf hennar verið þrautaganga. Milli sjúkrahúsa, reyna þó öðru hvoru að vinna eitthvað. Síðast dvaldi hún að Ási í Hveragerði og þar var hún farin að una hag sín- um vel. Sátt við örlög sín, sem ekki urðu umflúin. Og sáttust við lokin, að fá nú að yfirgefa þennan líkama sem svo lengi ivar búinn að vera til tafar á lífsgöngunni. Sigrún frænka mín var góð kona, skemmtileg og glaðlynd, meðan hún var og hét. Aldrei hallaði hún orði að nokkrum manni, var aðeins þakklát og gladdist einlæglega yfir öllu sem gert var fyrir hana. Hún var tilbú- in að leggja öðrum lið af mætti sínum. Henni á ég að þakka að ég gat lokið námi. Þegar hvergi var hægt að fá húsnæði í Reykjavík, á stríðsárunum, skaut hún yfir mig skjólshúsi, þótt hún hefði aðeins eitt herbergi. Hjá henni leið mér vel og fannst ég aldrei geta full- þakkað henni. Hennar dýpsta gleði var að sjá drengina hans Baldurs vaxa úr grasi, fá að fylgjast með uppvexti þeirra. Enginn var Sigrúnu eins góður og Gústa, sem ólst upp með henni. Þau hjón Ágústa og Magnús voru hennar athvarf, skjól og hlíf. Fyrir það var hún þakklát og við öll hin, sem allt of oft stóðum álengdar. Blessuð sé minning Sigrúnar og megi ljós kærleikans sem hún bar til ástvina sinna, verða ljós á vegi þeirra. „Næsta skipt er nú um kjör, grátur er í gleði snúinn, guðleg hvíld og rósemd búin, stríði breytt í friðarför". H.J. Bjarnfríður Leósdóttir Akranesi. Samvinnuferðir 13 miljóna hagnaður Velta Samvinnuferða-Landsýn á síðasta ári var nær 450 milj- ónir króna og hagnaður af rekstr- inum nam rúmlega 13 miljónum. Þetta kom fram á aðalfundi fyrir- tækisins sem haldinn var nýlega I frétt frá ferðaskrifstofunni segir að reksturinn hafi á síðasta ári gengið mun betur en bjartsýnustu menn hafi þorað að vona og varð veruleg aukning á fjölda farþega. Farþegar í skipu- lögðum hópferðum á vegum Samvinnuferða - Landsýn voru um 10.200, farþegar í áætlunar- flugi voru um 8.900 og fyrirtækið tók á móti 6.200 erlendum ferða- mönnum í fyrra. DV-maðurinn Aminntur Þorgeir Ástvaldsson, forstöðu- maður rásar tvö, sagðist hafa rætt við Eirík Jónsson, blaðamann á DV, og beðið hann að gera grein fyrir því að hafa svarað lesenda- bréfi í þættinum Dæmalaus ver- öld sl. sunnudag, sem hann hefði átt að svara á öðrum vettvangi. „Það er ekki rétt að Eiríkur hafi verið víttur heldur sagði ég honum að þetta væri ámælisverð misnotkun á miðlinum og var hann áminntur um að þetta end- urtaki sig ekki“, sagði Þorgeir. Þorgeir sagðist álíta þetta jað- armál og ekki vilji gera úlfalda úr mýflugu. Þá sagðist hann hafa heyrt að Eiríkur mismunaði fjöl- miðlum í þætti sínum, en Eiríkur hefði neitað því. Tók Þorgeir það svar gilt en sagði að fylgst yrði með þættinum framvegis. -Sáf HVAÐ ER AÐ GERAST í ALÞÝÐUBANDALAGINU? AB Siglufirði Aðalfundur verður haldinn sunnudaginn 2. mars kl. 17.00 að Suðurgötu 10. Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Samningarnir. 3) Önnur mál. AB Akureyri Forval stendur yfir Alþýðubandalagið á Akureyri minnir á yfirstandandi forval. Skrif- stofan í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18 er opin fram á föstudag á milli kl. 17 og 19 en laugardaginn 1. mars (síðasta forvalsdaginn) er opið frá kl. 14 tll 18. Munið opið hús á laugardag í Lárusarhúsi! - Uppstillingarnefnd. AB Vestmannaeyjar Félagsmálanámskeið verður haldið í Alþýðuhúsinu dagana 7. - 9. mars nk. Námskeiðið hefst fyrri daginn kl. 20.00. Allir félagar og stuðningsfólk velkomið. Leiðbeinandi verður Baldur óskarsson. ' AB Norðurlandi vestra Almennir fundir Kristín Á Ólafsdóttir, varaformaður Alþýðu- bandalagsins, og Ragn- ar Arnalds alþingismað- ur mæta á almennum fundum: Á Blönduósi (Félagsheimili) laugardag 1. mars kl. 16:00 Á Hvammstanga (Félagsheimili) laugardag 1. mars kl. 20:30 Á Skagaströnd (Félagsheimili) sunnudag 2. mars kl. 16:00 Á Sauðárkróki (Villa Nova) laugardag 8. mars kl. 16:00 Á Siglufirði (Alþýðuhúsinu) sunnudag 9. mars kl. 16:00 Ragnar Kristín AB Egilsstöðum Áríðandi fundur í hreppsmálaráði verður haldinn sunnudaginn 2. mars kl. 20.30 í Valaskjálf. Fundarefni: Framboðsmál, 2) Kosningastarfið, 3) Önnur mál. Mætið vel og stundvíslega. Undirbúningsnefnd AB í Kjósarsýsiu Vetrarfagnaður í Mosfellssveit verður haldinn í Þrúðvangi (Álafossi) laugardaginn 1. mars og hefst fagnaður- inn kl. 20.30. Gestur kvöldsins verður Svavar Gestsson formaður Alþýðu- bandalagsins. Allir velkomnir. - Nefndin. Svavar Málefnahópar Alþýðubandalagsins Hafið áhrif! AB og verkalýðshreyfingin: Næsti fundur verður haldinn mánu- daginn 3. mars kl. 20.30. Fjárhags- og viöskiptamál: Næsti fundur verður haldinn þriðju- daginn 4. mars kl. 20.30. Á dagskrá: 1) Seðlabankinn, 2) verðlags- og neytendamál. Valddreifing - lýðræði: 1. fundur miðvikudaginn 5. mars kl. 20.30. Rætt um m.a. atvinnulýðræði, launamannasjóði og dreif- ingu valds um landið. Allir fundirnir eru haldnir í Miðgarði Hverfisgötu 105 4. hæð. Hóparnir eru opnir öllum félögum AB og stuðningsfólki. Alþýðubandalagið AB Selfoss og nágrennis Starfshópar um bæjarmál Nú er að hefjast vinna starfshópa um málefni bæjarins. Fyrstu fundir hópanna verða sem hér segir: 1. Atvinnumál mánudaginn 3. mars, 2. Fræðslu- og menn- ingarmál og æskulýðs- og íþróttamál þriðjudaginn 4. mars, 3. Almennar tryggingar, félagshjálp, heilbrigðis- og húsnæð- ismál miðvikudaginn 5. mars, 4. Umhverfis- og skipulagsmál fimmtudaginn 6. mars. Allir fundirnir verða að Kirkjuvegi 7 og hefjast kl. 20.00. Félagar og stuðningsfólk er hvatt til að mæta og taka þátt í mótun stefnu- skrár félagsins fyrir bæjarstjórnarkostningarnar í vor. Listafólk AB Keflavíkur og Njarðvíkur Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 6. mars kl. 20.30 í húsi Verslunar- mannafélagsins Hafnargötu 28. Frummælendur verða: Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins sem ræðir um stjórnmálaástandið og kosningarnar í vor og Tryggvi Þór Aðai- steinsson framkvæmdastjóri MFA sem ræðir um fræðslu- og félagsmál verkalýðshreyfingarinnar. Stjórnin Abl. Akureyri Opið hús Opið hús verður í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 181. mars kl. 14-18. Fjölbreytt dagskrá. Munið forvalið. Stjórnin. AB Akranesi Góufagnaður á Akranesi Góufagnaður Alþýðubandalagsins á Akranesi verður haldinn í Rein laugardaginn 1. mars og hefst hann með borðhaldi kl. 20.30. Húsið verður opnað kl. 20.00. Ræðumaður. Össur Skarphéðinsson ritstjóri. Spilverkog söngur: Ragnar Skúlason, Jónina Magnúsdóttir, Ragnheiður Þóra og Anna Margrét, Ingibjörg Gestsdóttir. Spurningakeppni. Diskó- tekið Dísa leikur fyrir dansi. Miðapantanir í símum 3036 og 2251 eftir kl. 20.00. Einnig fimmtudagskvöldið í Rein kl. 21-22. Sími 1630. - Skemmtinefndin. AB Reyðarfjarðar Samkoma í Félagslundi laugardagskvöldið 1. mars kl. 20.30. Á dagskrá verður: Pólitísk ávörp, kosning kosningastjórnar, samþykktir félagsins, upplestur og söngur, kaffiveitingar. Gestir fundarins verða Steingrímur J. Sigfússon og Helgi Seljan. Allir velkomnir til að njóta góðs félagsskapar. - Undirbúnings- nefnd. AB Bessastaðahrepps og Garðabæjar Fundur 3. mars Fundur verður haldinn í Alþýðubandalagsfélagi Bessastaðahrepps og Garðabæjar mánudaginn 3. mars kl. 20.30 í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Dagskrá: 1. Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga - prófkjör. 2. Afmæli Þjóðviljans. 3. Innheimta félagsgjalda. 4. Önnur mál. Framkvæmdastjórn. 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 1. mars 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.