Þjóðviljinn - 06.03.1986, Qupperneq 14
Jóhann Helgason
LANDBUNAÐUR
Hlunnindi nýtt
í auknum mæli
Laxeldisstöð í undirbúningi við Skógalón. Þriðja
stórstöðiníN-Þing
Jóhann Helgason, bóndi í Leirhöfn.
Ef við byrjum á því að
rabba um tíðarfarið - það er
nú okkur sveitamönnunum
alltaf ofarlega í huga - þá
var vorið gott f ram að Hvíta-
sunnu. Þá kom vonsku hret
og kuldar héldust áfram
BÚVÉLAR UM
ALLTLAND
Dráttarvélar
Plógar
Mykjudælur
Haugsugur
Mykjudreifarar Áburöardreifarar
Ávinnsluherfi
Sláttuþyrlur
Sláttutætarar
Heyþyrlur
Múgavélar
Heykvislar
Heybindivélar
Rúllubindivélar
Heyhleösluvagnar Baggafæribönd
Heydreifikerfi
Heyblásarar og matarar
Flórsköfur
Mjaltatæki
V V
Mjólkurkælitankar
OPIÐHUS
OG ÞETTA ER AÐEINS
HLUTI AF ÚRVALINU
fram um miðjan júní.
Gróður var hinsvegar kom-
inn vel af stað fyrir hretið.
Það er Jóhann Helgason,
bóndi í Leirhöfn sem svo
segir frá veðurfari á Norð-
austurlandi.
- Tíðarfar skánaði svo seinni-
partinn í júní og hélst svo þar til
viku af júlí. Þá gekk í óþurrka,
sem héldust fram yfir göngur.
Heyskapur gekk því ákaflega
hægt og á Sléttu lauk honum ekki
fyrr en í október. Nokkru skárri
var þó heyskapartíðin innan til í
héraðinu. Hey eru yfirieitt mikil
en úr sér sprottin og hrakin og
fóðurgildið eftir því.
I nóvember setti niður mikla
fönn og var þá farið að hýsa fé
sem er mun fyrr en venjulegager-
ist. Vegna blota rann fönnin svo
smám saman í hjarnhellu og síð-
an svell. í febrúar hlánaði og tók
þá svellin nokkuð upp en þau eru
þó mikil enn. Gætum við því átt
von á kali í vor. En stórhríð hefur
aldrei komið í vetur.
Jú, fólki fækkar á bæjum,
sumsstaðar aðeins eftir öldruð
hjón en það er a.m.k. ekki mikið
um það, að jarðir fari í eyði. Og í
Núpasveit og Öxarfirði er tölu-
verð endurnýjun og ungt fólk við
búskapinn.
Hlunnindi eru hér víða, reki,
æðarvarp og silungsveiði og er nú
farið að nýta þau í auknum mæli.
Allar jarðir á Sléttu hafa einhver
hlunnindi, og bændur sinna þeim
með öðrum búskap. f Núpskötlu
á Sléttu er þó ungur bóndi sem
heita má að stundi eingöngu
hlunnindabúskap, en þar er bæði
silungsveiði og reki.
Laxeldi er stundað hér í stórum
stíl hjá ísnó í Kelduhverfi og Ár-
laxi við Krossdal. í undirbúningi
er svo enn ein eldisstöð, við
Skógalón í landi Ærlækjarsels, en
þar er sjóðandi vatn alveg á yfir-
borðinu. Að þessu fyrirtæki
standa Keldunes- og Öxarfjarð-
arhreppar og fleiri. Þarna er
mikið háhitasvæði og afsöluðu
landeigendur háhitasvæðinu til
hreppanna, sem svo hafa með
höndum alla samningagerð.
En nú held ég að Hjalti fari að
óróast, sagði Jóhann, en hann
starfar í búfjárræktarnefnd Bún-
aðarþings, undir stjórn Hjalta
Gestssonar, og átti að réttu lagi
að vera mættur á nefndarfund.
- Kannski ég hætti þó á að
minnast hér á tvennt enn: loð-
dýrarækt og riðuveiki, en loð-
dýrarækt er orðin hér í töluverð-
um mæli, líklega á einum 20 býl-
um.
Riðuveikin hefur herjað mjög í
Kelduhverfi. Undirskriftasöfnun
hefur fram um niðurskurð
sauðfjár á svæðinu milli Jökulsár
og Skjálfandafljóts og má heita
að einhugur sé um þær aðgerðir.
Verður þá fé lógað í haust þar
sem riðu hefur orðið vart sl. 5 ár
og svo áfram þar sem riðu kann
að verða vart á þessu svæði.
Og þar með hvarf Jóhann á vit
búfjárræktarnefndar.
-mhg
Laxárdalur
Aðför að
bændum
Atvinnumálanefnd Laxárdals-
hrepps kom saman til fundar 26.
febrúar sl. og samþykkti ályktun
þar sem segir m.a.:
„Atvinnumálanefnd Laxár-
dalshrepps lýsir áhyggjum sínum
yfir útfærslu þeirrar stjórnunar,
sem nú hefur verið komið á í
mjólkurframleiðslu. Að vísu ber
að fagna ákvörðun um svæðabú-
mark og hvetur nefndin til að ráð-
stöfun þessi verði í framtíðinni
heima í héraði. Hitt ber að
harma, að fullvirðimark bænda
skuli ákveðið svo seint á verð-
lagsárinu, og mun það augljós-
lega leiða til ringulreiðar í mjólk-
urframleiðslu, það sem eftir lifir
ársins.“
í ályktun atvinnumálanefndar
Laxárdalshrepps er þess m.a.
krafist að stjórnvöld kaupi um-
framframleiðslu fyrstu 5 mánaða
verðlagsársins, að gerðar verði
ráðstafanir til að þeir, sem staðið
hafa í uppbyggingu til mjólkur-
framleiðslu á allra síðustu árum,
fái viðunandi fullvirðismark þeg-
ar í stað til þess að standa undir
búrekstri sínum og að gerðar
verði ráðstafanir til að þeir, sem
séð er að rísa ekki undir kröfum
um nútímalega mjólkurfram-
leiðslu og hafa ekki getu eða
áhuga á að bæta þar um, eigi kost
á að hætta mjólkurframleiðslu og
taka sér annað fyrir hendur.
Verði þá búmark þeirra til ráð-
stöfunar innan svæðisins.
Bændur
Eiaum aftur á lager slógmeltu á aðeins kr.
4,50 pr. kg.
í einu kg af slógmeltu eru u.þ.b.:
15% MELTANLEG PRÓTEIN
4%-6% FITA
2% SALT OG STEINEFNI
Sýrustigið er alltaf lægra en 4,5 ph.
Vinsamlegast hafið samband við okkur og
fáið nánari upplýsingar.
Glettingur hf.
Þorlákshöfn
Símar 3757 og 3557.