Þjóðviljinn - 07.03.1986, Blaðsíða 1
ÞJÓÐMÁL
GLÆTAN
HEIMURINN
UM HELGINA
Félagsmálastofnun
Okurleiga
á ónýtu
húsnæði
Borginframleigir útherbergi við
Suðurlandsbraut á 8 þúsund krónur.
Borgar sjálfmunminna. Guðrún
Jónsdóttir: Með öllu óíbúðarhœft.
Borgin getur ekki leyftsér þetta.
Þetta húsnæði við Suðurlands-
braut er með öllu óíbúðar-
hæft og það er mín skoðun að
borgin geti ekki leyft sér að leigja
þessi herbergi út á 8000 krónur
hvert, á sama tíma og hún borgar
15.000 krónur fyrir hverja hæð
þar sem eru 4 herbergi. Félags-
málastofnun á ekki að vera gróð-
afyrirtæki, sagði Guðrún Jóns-
dóttir borgarfulltrúi í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Guðrún vakti máls á því í fé-
lagsmálaráði í gær, að borgin
leigir einstaklingum herbergi
með aðgangi að eldhúsi og snyrt-
ingu fyrir 8 þúsund krónur. Borg-
Norðurlandaráð
Fjárlögin
stórskert
Frá fréttaritara Þjóðviljans á
Norðurlandaráðsþingi í Kaup-
mannahöfn:
Morðið á Palme er ekki það
eina sem skyggir á Norðurlanda-
ráðsþingið hér í Kaupmanna-
höfn. Fjárlög norræns samstarfs
sem ráðherranefndin ákveður
hafa verið skorin niður. í máli
margra þingmanna hefur komið
fram hörð gagnrýni á þennan
niðurskurð.
Sverrir Hermannsson minnti á
í gær að alþjóðlegt sjónvarpsefni
myndi brátt flæða yfir Norður-
Iönd og því sé full þörf á að skapa
norrænt mótvægi með auknu
norrænu menningarsamstarfi.
Norski menntamálaráðherrann
setti fram þá hugmynd að stofn-
aður verði sérstakur norrænn
sjónvarpssjóður sem styrki þátta-
gerð á vegum einstakra landa og
samstarfsverkefna. Ýmsir hafa
tekið undir þessa tillögu, þar á
meðal Eiður Guðnason en hann
er einmitt formaður menning-
armálanefndar ráðsins.
Að vísu er búist við því að dreg-
ið verði úr niðurskurði fjárlaga
við endanlega afgreiðslu þeirra á
morgun. Á meðal hinna
„heppnu“ er norræna eldfjalla-
stöðin, sem gert verður fært að
færa nokkuð út kvíarnar. Hins
vegar er enn óljóst hvort hægt
verður að tryggja norræna
sumarháskólanum viðunandi
starfsskilyrði á næsta ári.
- g.g. Kaupmhöfn.
in leigir hvert herbergi hins vegar
á mun lægra verði, eða innan við
4 þúsund. Þarna er um að ræða 4
hæðir í húsinu við Suðurlands-
braut 12. Eigandi húsnæðisins er
Skúli Árnason. Borgin hefur leigt
þetta um nokkurra mánaða
skeið.
Stigagangurinn í húsnæðinu er
mjög illa farinn, mikill raki er í
steypu og málning víða flögnuð
af. Húsnæðið er að öðru leyti
frámunalega óvistlegt og á mörk-
um þess að vera íbúðarhæft, svo
ekki sé meira sagt. Sums staðar
vantar gluggatjöld, óvíða eru
perurnar strípaðar í loftum.
„Ég fagna því mjög að þetta
mál er komið upp á yfirborðið.
Það er auðvitað með öllu ófært að
borgin skuli innheimta meira
fyrir þetta en hún borgar sjálf,“
sagði Guðrún Ágústsdóttir borg-
arfulltrúi þegar Þjóðviljinn bar
þetta undir hana í gær. Guðrún
Jónsdóttir benti á að enda þótt
íbúarnir gætu sótt um endur-
greiðslur á leigunni, væri óþarfi
að niðurlægja þetta fólk með
slíku.
í leigusamningi eins íbúanna
segir m.a. að skrifað sé undir með
þeim fyrirvara að alger reglusemi
verði við höfð, ella hafi starfs-
menn Félagsmálastofnunar ré'tt á
að rýma húsnæðið fyrirvaralaust.
Svona er víða útlits innanhúss. Mynd: E.ÓI.
Snœfellsnes
Landburður af fiski
Bátarfrá Rifi með 24-45 lestir eftir nóttina. Margir Ólafsvíkurbátar
langt komnir með kvótann ogfarnir aðfœkka netum. Guðmundur
Kristjónsson skipstjóri: Breiðafjörður erfullur affiski. Einhver besta
Þetta er einhver besta vetrar-
vertíð sem menn rnuna cftir.
Það fer saman einmuna tíð og
þvílíkur afli að með fádæmum er,
sagði Guðmundur Kristjónsson
skipstjóri og núverandi hafnar-
vörður í Ólafsvík, i samtali við
Þjóðviljann í gær.
Guðmundur sagði að Breiða-
fjörðurinn væri fullur af fiski, það
væri alveg sama hvar lagt væri,
allsstaðar væri fiskur. Hann sagði
ennfremur að bátar frá Ólafsvík
væru farnir að fækka netum,
væru með 8 trossur, vegna þess
vertíðin sem menn muna
að þeir væru flestir langt komnir
með kvótann sinn og ljóst væri að
þeir yrðu allir búnir með hann.
Afli báta frá Ólafsvík eftir að ne-
tum var fækkað hefði verið þetta
10 og uppí 35 lestir eftir nóttina.
Guðmundur sagði að minna
hefði verið hent í sjóinn af lé-
legum fiski nú en var í fyrra og
árið þar áður, vegna góðra gæfta.
Leifur Jónsson á hafnarvigtinni
á Rifi sagði að á miðvikudag
hefði afli báta frá Rifi verið 21 og
uppí 45 lestir eftir nóttina. Hann
sagði að stóru bátarnir þaðan
væru enn ekki farnir að fækka
netum, þar sem kvóti þeirra væri
meiri en báta frá Ólafsvík. Hann
sagði það samt ekki langt undan
að þeir færu að fækka netum, því
ljóst væri að ef svo vel veiðist
áfram, yrðu allir búnir með kvót-
ann um páska.
Það sem háir okkur er fólks-
ekla í fiskvinnslunni. Það berst
svo mikið að af fiski að það rétt
hefst undan að vinna aflann,
sagði Leifur.
- S.dór.
Þjófnaður
Hundur
rændur
Liverpool — Gæludýraeigendur í
Bretlandi eru æfir í dag. í gær
gerðist það nefnilega í fyrsta
skipti svo vitað sé, að ráðist var á
lítinn hund og hann rændur.
í gær gerðist það að lítill sjö ára
gamall hundur af blönduðu kyni
sem hélt á peningabuddu eiganda
síns í kjaftinum var sleginn niður
ágötu og rændur. Fegurð, eins og
hundurinn heitir, var að koma úr
verslunarleiðangri með eiganda
sínum, Margaret McDonnell,
þegar atburðurinn átti sér stað.
„Nógu slæmt er það þegar fólk er
rænt, en þegar farið er að ræna
hunda finnst mér of langt
gengið“, sagði McDonnell um
ránið.