Þjóðviljinn - 07.03.1986, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 07.03.1986, Blaðsíða 9
HEIMURINN Svíþjóð Fyrsta vtsbendingin Teikningin sem birt var ígœrþykir benda til að morðinginn séaf suðrœnu bergi brotinn og er nú verið að rannsaka möguleg tengsl Kúrda við morðið Teikningin sem birt var í gær, lögreglan segist viss um að þannig líti morðinginn út. Stokkhólmi — Sænska lögregl- an leitar nú að manni á þrítugs- aldri, grönnum og dökkum á hörund í rannsókn sinni á því hver myrti Olof Palme, forsæt- isráðherra Svíþjóðar. Með rafeindatækni hafa sænskir og vestur-þýskir sérfræðingar sett saman mynd eftir teikningu 22 ára gamallar konu sem mætti morðingjarium á götu og rissaði síðan upp af honum mynd. Myndin var birt í sænskum blöð- um í gær og strax eftir að blöð komu út hringdu hundruð manna í lögregluna til að gefa upplýsing- ar um hver morðinginn væri. Myndin sem lögreglan birti er mjög skýr og sögðu talsmenn hennar að þeir væru vissir um að þannig liti morðinginn út. Sérfræðingarnir frá Vestur- Þýskalandi unnu þar alla síðustu nótt með stúlkunni sem sá morð- ingjann fyrir viku síðan. Nú virðist rannsóknin helst beinast því að Kúrdar eigi þátt í morðinu. íhaldsblaðið sænska, Svenska Dagbladet sagði í for- síðufrétt í gær frá því að hinn vinstri sinnaði Verkamanna- flokkur Kúrda, (PPK), væri þeir líklegustu sem gætu hafa myrt Palme. Blaðið sagði frá því að sérstakur hópur lögreglumanna væri nú að athuga hvort tengsl gætu verið milli PPK og morðsins á Palme. Blaðið hefur það eftir leynilögreglumanni að „PPK hafði góða ástæðu til að myrða hann.“ Sænska leyniþjónustan mun hafa nefnt það í skýrslu árið 1984 að PPK hefði í hyggju hefndarað- gerðir gegn Palme vegna afstöðu stjórnar hans til flokksins. Tveir menn sem sagðir eru meðlimir í PPK eru nú að afplána lífstíðar- dóma í fangelsi í Svíþjóð. Myndin af hinum grunaða manni er hins vegar fyrsta vísbendingin í þá átt að lögreglan leiti nú manns af er- lendum uppruna. Ráðherra í sænsku stjórninni sem sér um innflytjendamál, sagði um síðustu helgi að hann óttaðist að útlendingahatur myndi aukast að mun ef morðingi Palmes reyndist vera útlending- ur. En hinn nýi forsætisráðherra Svíþjóðar, Ingvar Carlsson sagði hins vegar að lýðræði í Svíþjóð væri það sterkt að slíkur ótti væri ástæðulaus. ERLENDAR FRÉTTIR HJÖRLBFSSONl/R £ U1 E R Og þetta tíka... Washington — Annar yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA hefur sagt af sér embætti. Með afsögn hans opnast nú leiðir fyrir þá aðila innan CIA sem vilja stór- auka stuðning við and- kommúnískar skæruliðasveitir víða um heim. Moskvu — Sovésk geimflaug tók í gær fyrstu litmyndir af Halley hal- astjörnunni. Sovéskir vísinda- menn segja að myndirnar sýni að innviðir Halley halastjörnunnar séu úr þéttum kjarna. Sovéska geimflaugin sem tók myndir af Halley er aðeins sú fyrsta af flaug- um sem koma til með að mynda stjörnuna, margar þjóðir hafa með sér samstarf um rannsóknir á halastjörnunni. Túnis — Agreiningur innan forystu PLO kemur nú í veg fyrir að PLO hefji aftur viðræður við Hussein Jórdaniukonung en fyrir nokkru siitnaði upp úr viðræðum við þessa aðila um framtíð Palestínu. Vín — Fyrrum aðalritari Samein- uðu Þjóðannna, Kurt Waldheim, hóf í gær kosningabaráttu sína fyrir því að verða valinn forseti Austurríkis í maí næstkomandi. Hann segist viss um að ásakanir i hans garð um að hann sé fyrrum nasisti, muni ekki hafa áhrif i kosn- ingunum. Hann neitar harðlega öllum sakargiftum. Jóhannesarborg — í gær varð sprenging í skrifstofum samtaka sem berjast fyrir þvi að Nelson Mandela verði látinn laus úr fang- elsi. Miklar skemmdir urðu á hús- næðinu og talsmenn samtakanna segjast þess fullvissir að sprengju hafi verið komið fyrir. Filippseyjar Herinn spilltur Kommúnistar vilja hreinsun íher Filippseyja Manila—Skæruliðar kommún- ista sögðu í gær að stjórn landsins yrði að hreinsa til í hernum ef hún vildi uppfylla þær vonir sem almenningur í landinu byndi við hana. Þessi yfirlýsing NPA kom ein- um degi eftir að stjórnin lét fjóra helstu foringja kommúnista lausa úr fangelsi. Sú ákvörðun stjórn- arinnar hafði mætt mikilli and- stöðu innan hersins. Fulltrúi NPA, Hins nyja þjóðarhers, sagði að sú ákvörðun Aquino að setja Juan Ponce Enrile í stöðu varnarmálaráðherra og Fidel Ramos sem yfirmann hersins væri ekki í samræmi við þær vonir sem bundnar hefðu verið við hinn nýja forseta. „Það verður að athuga það að þessir nýju yfirmenn hersins voru stuðningsmenn harðstjórnar Marcosar og þó þeir hafi verið snöggir að snúast á sveif með hin- um nýja forseta landsins er vafa- samt að telja þá til lýðræðiselsk- andi manna,“ sagði í yfirlýsingu kommúnista. Yfirlýsing þessi var gefin út í höfuðstöðvum kommúnista í Bic- ol. Þargerðu sveitirkommúnista, lögreglumönnum fyrirsát á mán- udaginn og létust 15 lögreglu- menn og einn óbreyttur borgari. Spánn Spánn úr Nató? Skoðanakannanir benda mjög sterklega til þess að Spánverjar vilji úrsögn úr Nató Madrid — Samkvæmt svo til öllum skoðanakönnunum sem birtar hafa verið undanfarandi daga um áhuga fólks fyrir aðild Spánar að Nató, munu Spán- verjar segja nei í atkvæðag- reiðslunni um þetta mál sem fram fer á miðvikudaginn í næstu viku. Skoðanakannanir fjögurra dagblaða spá því að meirihluti spánverja muni segja nei við spurningunni hvort Spánn eigi að vera áfram í Nató. Meirihlutinn fyrir neituninni verður á bilinu 4 til 10 % samkvæmt könnunum blaðanna. Þessar kannanir voru birtar í Madrídarblöðunum E1 Pais og Diario 16. Einnig í Barce- lona blöðunum La Vanguardia og E1 Peiodico. Hin opinbera stofnun fyrir félagsfræðilegar kannanir var einnig með skoð- anakönnun um þetta mál. Niður- staðan þar var sú að meirihluti væri fyrir aðild, upp á 1%. Sam- kvæmt spænskum lögum er bann- að vera með skoðanakannanir f fimm daga fyrir atkvæðagreiðslu. Varaforsætisráðherra Spánar, Alfonso Guerra, viðurkenndi í gær að skoðanakannanirnar sýndu ósigur stjórnarinnar. „Við munum auka átak okkar til að tryggja jákvætt svar þjóðarinnar við aðild að Nató,“ sagði hann. Þjóðaratkvæðagreiðslan er ekki bindandi en Felipe Gonzales forsætisráðherra Spánar hefur lýst því yfir að hann muni draga aðild landsins að Nató til baka ef þjóðin segi svo í atkvæða- greiðslu. Frá 27. þingi sovéska kommúnistaflokksins. Ef vel er rýnt má þekkja Gorbatsjoff í ræðustól. Sovétríkin Flokksþinginu lokið Gorbatsjoffhnýtti í Bandaríkjastjórn og tilkynnti nýjaforystu í lokaræðu sinni Moskvu — Mikhail Gorbatsjoff, leiðtogi sovéska kommúnist- aflokksins, gagnrýndi Banda- ríkin í lokaræðu sinni á 27. þingi sovéska kommúnista- flokksins sem lauk í gær. Til- kynnt var um miklar breytingar í forystu flokksins. Gorbatsjoff sagði að Banda- ríkjastjórn vildi einhverja sér- staka tegund varna fyrir sig en sagði að Sovétríkin myndu ekki fylgja neinni árásarstefnu í fram- tíðinni. Hann sagði að kominn væri tími til að byggja alþjóðas- amskipti á einhverju haldbetra en vopnum. „Því miður eru enn ákveðnir aðilar í heiminum sem vilja helst varnir sem byggðar eru eftir pöntun.../...Það er eins og ákveðnir aðilar hreinlega hræðist þau tækifæri sem nú bjóðast til þess að breyta á róttækan hátt og til frambúðar, samskiptum Sov- étríkjanna og Bandaríkjanna," sagði Gorbatsjoff. Gorbatsjoff tilkynnti ígær nýja forystu í kommúnistaflokknum. Þar á meðal er Anatólí Dobryn- in, sendiherra Sovétríkjanna í Washington og Alexandra Bíry- ukóva, 57 ára gömul, fulltrúi í verkalýðsfélagi verslunarmanna. Hún er fyrsta konan sem tekur sæti í æðstu stjórn Sovétríkjanna frá því Yekaterína Fúrtseva var menntamálaráðherra en hún fór úr framkvæmdanefndinni árið 1961. Bíryukóva var áður ein af mörgum konum í hinni fjöl- mennu miðnefnd. f miðnefndinni voru tilkynntar allt að því helm- ings mannabreytingar og eru þær sagðar staðfesting á gagnrýni Gorbatsjoffs á leiðtogatíð Brésn- effs. í lok ræðu sinnar hvatti Gor- batsjoff alla Sovétmenn til að leggjast á eitt með flokknum um að „endurnýja hið sósíalíska heimili okkar,“ eins og hann orð- aði það. Föstudagur 7. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.