Þjóðviljinn - 07.03.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 07.03.1986, Blaðsíða 15
Leikurínn í tölum Markaröð Bjarni Alfreð Sigurður Kristján/v Guðmundur Kristján/v Bjarni Kristján Bjarni Kristján Atli Guðmundur Páll Kristján/v Guðmundur Atli Siqurður/v Atli óttar Wislander Jilsen/v Jilsen Hajas Wislander Jilsen Jilsen Carlén Óttar Guðmundur Sigurður/v Sigurður/v 1-0 0-2 0-3 0-4 1- 4 1 -5 Carlén 2- 5 2-6 2- 7 3- 7 3-8 3- 9 4- 9 4- 10 Carlsson 5- 10 6- 10 7-10 7- 11 8- 11 8-12 8- 13 9- 13 9-14 9-15 (hlé) 9- 16 10- 16 10- 17 Carlsson 11- 17 12- 17 12- 18 Hajas 13- 18 13- 19 Hajas 14- 19 14- 20 Wislander 15- 20 15-21 Jilsen 15- 22 Hajas 16- 22 16- 23 Járphag 17- 23 18- 23 18-24 Hajas 18- 25 Carlén 19- 25 19-26 Jilsen 19- 27 Hajas 20- 27 21- 27 22- 27 23- 27 Járphag Carlén Jilsen Jilsen Carlsson Bengtsson Kristján Arason skoraði 5 mörk (þarf þrjú úr vítum), átti tvö misheppnuð skot (eitt víti), 3 góðar sendingar. Atli Hilmarsson skoraði 3 mörk, átti 9 misheppnuð skot, tvær góðar sendingar. Bjarni Guðmundsson skoraði 3 mörk, átti eitt misheppnað skot. Alfreð Gíslason skoraði eitt mark, tapaði bolta tvisvar. Guðmundur Guðmundsson skoraði 4 mörk, átti 3 misheppn- uð skot, fiskaði tvö víti. Þorbergur Aðalsteinsson átti eitt misheppnað skot. Þorbjörn Jensson tapaði boita einusinni. Sigurður Gunnarsson skoraði 4 mörk (þaraf 3 úr vítum), átti 6 misheppnuð skot, tvær góðar sendingar, fiskaði eitt víti, tapaði bolta tvisvar. Þorgils Óttar Mathiesen skoraði tvö mörk, átti tvö mis- heppnuð skot, eina góða send- ingu, fiskaði 3 víti. Páll Ólafsson skoraði eitt mark, átti eitt misheppnað skot, eina góða sendingu, tapaði bolta einusinni. Einar Þorvarðarson varði sjö skot, 4 þannig að íslendingar fengu boltann, 3 þannig að Svíar fengu boltann. Hann átti eina góða sendingu (í hraðaupp- hlaupi). Kristján Sigmundsson varði tvö skot, einusinni fór boltinn til Svía, einusinni til íslendinga. Mörk Svía: Jilsen 8 (/lv), Hajas 6, Carlén 4, Wislander 3, Carlsson 3, Járphag 2, Bentsson 1. IÞROTTIR Olympíusætið í höfn íslendingar íhópi sex bestu íheimi, þráttfyrir slœmt tap gegn Svíum 23-27. íslenska liðið náði sér aldrei eftir hrun í byrjun - og afleita dómgœslu. Svíar eru sterkastir á Norður- löndum en íslendingar fvlgja þeim á Ólympíuleikana í Seoul árið 1988. Þrátt fyrir tapið gegn Síum í Bern í gærkvöldi, 23-27, leikur Island um fímmta sætið í keppninni í dag. Mikill áfangi er í höfn - ísland er í hópi sex bestu þjóða i heimi og fer beint á Ólym- píuleikana, sleppur við B- keppnina á Italíu næsta vetur og getur farið að einbeita sér að næsta stórverkefni. Úrslitin í Bern í gærkvöldi réð- ust á fyrstu tíu mínútunum þegar Svíar komust í 4-0 og 5-1. Ekkert gekk upp hjá íslenska liðinu, boltinn tapaðist og skot mistók- ust. Við vorum óheppnir, ekki samtaka í vörninni og fengum á okkur leiðindamörk og komumst aldrei inní leikinn eftir það, sagði Þorbjörn Jensson fyrirliði. Byrj- unin sló okkur útaf laginu, ótíma- bær skot, taugaspenna, dæmdur af okkur boltinn á hæpinn hátt - við vorum lamaðir í vörninni, sagði Kristján Arason. Fyrstu tíu mínúturnar lék liðið illa, dómar- arnir gerðu mistök þrisvar til fjórum sinnum og strákarnir voru nervusir, sagði Bogdan. Eftir þetta komst sigur Svía varla í hættu. Vonin var fyrir hendi þegar ísland minnkaði muninn í 7-10 og 8-11 en síðan komust Svíar í 9-15, og 10-17 í byrjun seinni hálfleiks. Munur- inn fór aldrei niður fyrir fimm mörk nema í lokin, var mestur átta, 19-27, en íslenska liðið rétti vel sinn hlut síðustu tvær mínút- Fagnað á víxl Eftir leikinn í gærkvöldi var fyrst tilkynnt að Suður-Kórea hefði unnið Ungverja. Svíarnir stigu gríðarlegan stríðsdans á fjölum hátíðarhallarinn- ar í Bern - gleði þeirra var taumlaus. íslendingar voru hinsvegar daprir, leikur um sjöunda sætið blasti við. En eftir mikinn rugling fram og til baka komust úrslit loks á hreint, Ungverja- land hafði sigrað. Svíarnir komust niðrá jörðina en Bogdan þjálfari Is- lands ljómaði allur við tíðindin. Hann hafði verið heldur daufur að útskýra tap íslands og vonbrigði sín með leikinn við Svía á blaðamannfundi. íslendingar fögnuðu - það var loksins orðið ljóst að ísland hafði unnið sér sæti á Ólympíuleikunum. VS/Sviss urnar og skoraði þá síðustu fjögur mörk leiksins. Svíar voru betri, vörn og mark- varsla hjá okkur voru ekki í lagi og það var of mikið að fá á okkur 27 mörk. Þegar upp var staðið sýndi fjögurra marka munurinn réttan mun á liðunum í leiknum, sagði Bogdan. Svíar höfðu að meiru að keppa, þeir áttu von um sjálfan heimsmeistaratitilinn, og það kom fram í leik þeirra. Örslitin voru ekki ósanngjörn eftir þessa slæmu byrjun íslenska liðsins, sagði Jón Hjaltalín Magnússon formaður HSÍ. Svíar eru svipaðir og Rúmen- ar, Tékkar og Úngverjar - mun- urinn var sá að við lékum illa í kvöld. Leikurinn olli mér og okk- ur öllum miklum vonbrigðum, sagði Kristján Arason. A góðum degi vinnum við Svía, þeir eru ekki betri en Danir. En við náðum okkur aldrei á strik og vonleysið greip um sig þegar leið á leikinn, sagði Þorbjörn Jensson fyrirliði. Það sem vó þyngst í leiknum var stórleikur Björns Jilsen, stór- góð markvarsla og vörn Svía. Þeir tóku Kristján úr umferð, og íslenska liðið fann aldrei al- mennilega réttu leiðina gegn vörn þeirra. Atli og Sigurður öxl- uðu mestu ábyrgðina við að kom- ast í gegn en hvorugur náði sér á strik. Hornamennirnir, Bjarni og Guðmundur, komust best frá leiknum ásamt Þorgils Óttari. Guðmundur var besti leikmaður íslenska liðsins, skoraði góð mörk og fiskaði þrjú víti. Þorgils Óttar nældi einnig í þrjú vítaköst og var mjög drjúgur. Það geta ekki öll kvöld verið kvöld íslands, sagöi Þorbjörn fyr- irliði, og það er rétt. Þegar á heildina er litið var sænska liðið einfaldlega betri aðilinn í leiknum og verðskuldar fyllilega að leika um bronsið. Það var sárt að íslenska liðið skyldi ekki ná betri leik í gærkvöldi en við skulum gleðjast yfir því að Norð- urlönd eiga fulltrúa í hópi fjög- urra bestu handknattleiksþjóða heims - og tvo fulltrúa í þeirra sex bestu. hópi Kristján meiddur Það er óvíst að Kristján Arason geti leikið með íslenska liðinu um fímmta sætið í heimsmeistara- kcppninni í dag. Hann meiddist þegar danskur leikmaður skellti honum í gólfíð snemma í leiknum á þriðjudag, og eftir leikinn kom í Ijós að vöðvafesting í öxl hafði rifnað. -,Ég var sprautaður fyrir leikinn en það kom ekki nógu vel út. Við vissurn að ég yrði tekinn úr umferð og það var í sjálfu sér ágætt, ég hefði ekki getað beitt mér mikið," sagði Kristján. Hörmuleg dómgæsla jt OHM86 VÍÐIR SIGURÐSSON Frammistaða júgóslavnesku dómaranna í leiknum við Svía í gærkvöldi þótti vera heldur hag- stæð Svíum. Það er ekki í fyrsta sinn, Svíar hafa jafnan dómara á sinu bandi þegar niikið liggur við á alþjóðamótum - dómarar hræðast almennt hina alræmdu „IHF-mafíu“ sem öllu ræður, og í henni eru Svíar valdamestir. „Ég er ekki vanur að gagnrýna Svíar Betur undirbúnir „Mér viröist sem við höfum verið betur undirbúnir fyrir leikinn. Við höfum skoðað íslenska liðið vel af myndbandi, - ísland er með baráttu- lið sem hefur staðið sig vel hér í Sviss,“ sagði Björn Jilsen sænska stórskyttan, eftir leikinn í gærkvöldi. Björn átti stórkostlegan leik, var ásamt markverðinum Olsson maður- inn á bakvið sigur Svía, og skoraði átta mörk í 100. landsleik sínum. Eiga Svíar möguleika á að sigra Austur Þjóðverja og hljóta bronsið? „Við munum gefa allt okkar í leikinn og berjast fyrir bronsinu. Það yrði glæsilegt að ná því og það yrði mikil viðurkenning fyrir sænskan hand- knattleik," sagði Björn Jilsen. VS/Sviss mikið dómara en sem gantall leikmaður með góða tilfinningu fyrir því hvernig eðlilegur leikur gengur fyrir sig verð ég að segja að dómararnir í kvöld voru okkur óhagstæðir í öllunt vafaatriðum," sagði Jón Hjaltalín Magnússon formaður HSÍ. „I keppninni í heild hefur dómgæsla verið mjög sérstök, það er slærnt þegar mis- tök, innan gæsalappa, dómara ráða úrslitum í jöfnum leikjum. Það er leitt þegar leikmenn hafa lagt sig alla fram við undirbúning og dómarar eyðileggja leiki með slakri og ójafnri dómgæslu bætti Jón við. „Nú verður að koma á samræmi í dómgæsluna í heimin- um.“ -VS/Sviss. Karfa - úrslit Algert burst Slappir Haukar teknir ígegn íNjarðvík Það lýsir leik Hauka og UMFN í gær ágætlega að Ilaukarnir kom- ust einu sinni yfir, og þá í 2-0. Eftir það var leikurinn alger ein- stefna, algert burst. Haukarnir voru mjög slappir og áttu sér aldrei viðreisnar von. Munurinn frá 20-35 stig fyrir Njarðvík allan leiktímann, nema Njarðvík, 6. febr. UMFN-Haukar 94-53 (45-28) 21-4, 40-21, 45-28, 57-32, 79-45, 94- 53. Stig UMFN: Valur 22, Jóhannes 15, Kristínn 13, Teitur 13, fsak 10, Ingimar 8, Helgi 7, Ellert 4, Hreiðar 2. Stig Hauka: (var 13, Henning 12, Eyþór 10, Pálmar 9, Leifur 4, Halfdán 2, Ólafur 2. Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Sig- urður Valur Halldórsson - góðir. Maður leiksins: Valur Ingimundar- son. í lokin ennþá meiri. Haukarnir vour óhittnir, en Njarðvíkur- vörnin var líka mjög traust, og þeir sýndu skínandi körfubolta. Valur Ingimundarson er mað- ur leiksins, lék mjög vel og átti fallegar körfur. Jóhannes lék ágætlega, en vildi einsog oft áður leika fullmikið uppá eigin spýtur. Kristinn var góður í fyrri hálf- leiknum, lék lítið í þeim seinni, þegar Teitur kom inná og átti góðan leik og frábærar lokamín- útur, skoraði þá hvað eftir annað. Njarðvíkurliðið var í heildina mjög gott, - en Haukarnir að sama skapi daufir, - ívar skárstur þeirra, og Henning góður það sem hann spilaði. Vonandi verður næsti leikur lið- anna um meistartitilinn á laugar- dagskvöldið í Hafnarfirði heldur jafnari. SOM/Suðurnesjum. Föstudagur 7. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 Úrslitígœr Júgóslavar gegn Ungverjum Spánn vann DDR, - en Pýskarar keppa samí um bronsið við Svía Heimsmeistarar verða annað- hvort Júgóslavar cða Ungverjar, og um bronsið bítast Svíar og Austurþjóðverjar. Auk þeirra hafa íslendingar og Spánverjar tryggt sér rétt til þátttöku í Ól- ympíuleikunum árið 1988. Leikirnir í gær fóru nokkuð eftir bókinni, í vel endurskoöaðri út- gáfu eftir óvænt tíðindi síðustu daga. Þar skar sig úr sigur geysi- öflugra Spánverja yfir DDR, en Austurþjóðverjar komast samt í bronsleikinn. Úrslitin í gær: Milliriðill I Spánn-A-Þýskaland21-19 (11-13) Sovétríkin-Sviss.... 24-15 (8-8) Júgósl.-V-Þýskal. 19-17 (9-8) Lokastaðan: Júgóslavía...5 5 0 0 112-95 10 A-Þýskaland 5 3 0 2 109-92 6 Spánn.........5 2 1 2 92-87 5 V-Þýskaland...5 2 0 3 88-95 4 Sovétríkin....5 2 0 3 104-109 4 Sviss.........5 0 1 4 85-107 1 Vesturþjóöverjar fá sæti ofanvið So- vétmenn vegna 25%-reglunnar, Sviss tapaði fyrir V-Þjóðverjum 17-18 en fyrir Sovétmönnum í gær meö 9 marka mun, og þetta gerir markatölu Þjóð- verja hagstæðari: 70-78 þegarSviss- leikurinn er dreginn frá, á móti 80-94 hjá Sovét. Milliriðill II Svíþjóð-Ísland....27-23 (15-9) Ungverjal.-S-Kórea34-28 (16-16) Danmörk-Rúmenía 18-16 (10-7) Lokastaðan: Ungverjaland 5 5 0 0 122-108 10 Sviþjóð......5 4 0 1 112-93 8 island.......5 2 0 3 114-117 4 Danmörk......5 2 0 3 107-117 4 S-Kórea......5 1 0 4 132-137 2 Rúmenia.....5 1 0 4 78-93 2 25%-reglan breytir ekki markatöluhlut Islands og Danmerkur. Island er með betri rauntölu, og eftir að 25%-reglu er kúplað inn verður munurinn miklu meiri, Island 68-75, Danmörk 58-74. Neðstu lið: Pólland-Kúba......27-23 (16-10) Tékkóslóvakía-Alsír 24-19 (9-8) Lokastaða: Tékkóslóvakía..3 3 0 0 74-64 6 Pólland.........3 2 0 1 77-69 4 Kúba............3 1 0 2 71-80 2 Alsir...........3 0 0 3 66-77 0 Tékkóslóvakia og Pólland fá að vera með í B-keppninni á Ítalíu. Úrslitaleikirnir: Leikirnir um gullverðlaun og um 11. sætiö verða á laugardag, hinir á morg- un. 1 .-2. Júgóslavía-Ungverjaland/ Zúrich 3.-4. Svíþjóð-A-Þýskaland/ Basel 5.-6. Ísland-Spánn/Olten 7.-8. Danmörk-V-Þýskaland/ Basel 9.-10. Suður-Kórea-Sovétr./ Olten 11.-12. Sviss-Rúmenía/Zurich

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.