Þjóðviljinn - 07.03.1986, Page 3
____________________________________FRÉTT1R___________________
_ Öryrkjar
Ihaldið bakkar að hluta
Tillaga GuðrúnarÁgústsdóttur um aðfallafrá hœkkunfelld. íhaldið í félagsmálaráði ákveður
að hœkka um 40%. íbúum endurgreiddar800 krónur.
etta sýnir að mínu mati að það
borgar sig að berjast sé mað-
ur órétti beittur og það getur bor-
ið nokkurn árangur, jafnvel þótt
við íhaldsmeirihluta sé að eiga,
sagði Guðrún Ágústsdóttir borg-
arfuiltrúi Abl. í samtali við Þjóð-
viljann í gær eftir að íhaldið í fé-
lagsmálaráði hafði ákveðið að
falla frá 67% hækkun á fram-
leigðu húsnæði til öryrkja, en
hækka það þess í stað um 40%.
Gunnar A. Þorláksson hús-
næðisfulltrúi Fél-
agsmálastofnunar ásamt þremur
deildarfulltrúum og yfirmanni
fjölskyldudeildar höfðu ákveðið
að hækka leiguna um 67%, úr
rúmlega 3000 krónum í um 5000
krónur.
Guðrún Ágústsdóttir mót-
mælti þeirri hækkun á fundinum í
gær og lagði til að fallið yrði alfar-
ið frá hækkuninni, en tillagan
fékk ekki stuðning. Þá fluttu
Guðrún Jónsdóttir Kvennafram-
boði og Gerður Steinþórsdóttir
Framsóknarflokki tillögu um að
hækka leiguna um 33%, en sú til-
laga var sömuleiðis felld. Fjórir
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
ákváðu þá að hækka leiguna um
40%, sem þýðir að íbúum þessa
húsnæðis á Vatnsstíg og í Síðu-
múla verða endurgreiddar um
800 krónur af því sem þeir
greiddu um síðustu mánaðamót.
Sem kunnugt er hækkaði líf-
eyrir þessa fólks aðeins um 5%
um mánaðamótin og mótmæltu
íbúarnir hækkununum harðlega,
kváðust alls ekki geta mætt svo
skyndilegri hækkun. Húsnæði
sem leigt er, er almennt í mjög
slæmu ásigkomulagi og hefur við-
haldi ekki verið sinnt svo árum
skiptir, þrátt fyrir kvartanir íbúa.
Guðný Aradóttir einn leigj-
endanna sagði um þessa ákvörð-
un að hún breytti engu um henn-
ar afstöðu til hækkunarinnar. „Á
meðan húsnæðið er í þessu ást-
andi er ekki hægt að samþykkja
neina hækkun nema þá kannski
vísitöluhækkun húsnæðiskostn-
aðar.“
í gærkvöldi héldu fulltrúar Fé-
lagsmálastofnunar húsfund með
íbúum á Vatnsstíg en frá honum
verður greint í Þjóðviljanum á
morgun.
-g g/K.Ól.
Egilsstaðir
Arndís í
baráttusæti
Hreppsráð Alþýðubandalags-
ins á Egilsstöðum samþykkti á
sunnudaginn framboðslista
vegna sveitarstjórnarkosning-
anna í vor. Alþýðubandalagið á
nú tvo fulltrúa í hreppsnefnd.
5 efstu sæti listans skipa: 1. Sig-
urjón Bjarnason bókari, 2. Elsa
K. Jónsdóttir kennari, 3. Arndís
Þorvaldsdóttir ritari, 4. Friðjón
Jóhannsson mjólkurfræðingur og
5. Guðrún Aðalsteinsdóttir hús-
mæðrakennari.
-gg-
Norðurland
Breyttir
fundatímar
Alþýðubandalagið hefur að
undanförnu staðið fyrir al-
mennum fundum í Norðurlands-
kjördæmi vestra og hafa þau
Ragnar Arnalds alþingismaður
og Kristín Á. Ólafsdóttir varafor-
maður flokksins verið á þessum
fundum. Næstu fundir verða urn
helgina og er búið að breyta fund-
artímum. Sá fyrri verður á Siglu-
firði í Alþýðuhúsinu, laugardag
kl. 17.00 og sá síðari á Sauðár-
króki í Villa Nova, sunnudag kl.
16.00. Sjá flokksdálk bls. 14.
Gunnar Þórðarson og Þórir Baldursson við upptökúr á lögunum sem fara í úrslitakeppnina. Ljósm. E.ÓI.
Eurovision
Söngvakeppni í kvöld
Ikvöld, sendir Sjónvarpið út
fyrsta þáttinn af fimm þar sem
lögin tíu sem komust í úrslit í
Hafskip
Kröfum rignir
360 kröfur komnar. Kröfulýsingarfrestur rennur út í
maí. Rannsókn lýkur einnig ímaí. Kröfur
Útvegsbankans óbreyttar. Greitt úr málum erlendis.
Skaftá seld í apríl
10 lög í úrslit af 287
keppninni um sigurlag íslands í
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í
lívrópu verða kynnt. Tvö lög
verða kynnt í hverjum þætti en
hver þeirra er 12 mínútur að
lengd.
I samkeppni sem sjónvarpið
efndi til um gerð sönglags sem
yrði framlag íslands til keppninn-
ar bárust alls 287 lög. Sérstök
dómnefnd valdi úr þessum fjölda
10 lög til úrslitakeppninnar en
sigurlagið verður valið af annarri
dómnefnd í undanúrslitakeppn-
inni sem sjónvarpað verður beint
úr sjónvarpssal laugardaginn 15.
mars nk. Sigurlagið verður síðan
flutt af íslenskum listamönnum í
Björgvin í Noregi 3. maj nk. og
verður keppninni sjónvarpað
beint víða um heim en áætlaður
fjöldi áhorfenda er 600 miljónir.
Á undanúrslitunum á fslandi
verða hér viðstaddar norsku
stúlkurnar í Bobbysocks en þær
sigruðu í söngvakeppninni fyrir
ári með laginu „Lad det svinge“.
Lögin tíu sem komust í úrslit
voru útsett af þeim Gunnari
Þórðarsyni og Þóri Baldurssyni
en þau verða flutt af Stórsveit
Sjónvarpsins undir stjórn þeirra
Mosfellssveit
Listinn
ákveðinn
Auður Laxness í
heiðurssœtinu
Framboðslisti Alþýðubanda-
lagsins í Mosfellssveit vegna
byggðakosninganna í vor hefur
verið ákveðinn. Efst á lista er Að-
alheiður Magnúsdóttir, í sæti 2
situr Sigríður Halldórsdóttir Lax-
ness frá Gljúfrasteini og í 3. sæt-
inu er Fróði Jóhannsson. Fjórða
sætið vermir Soffta Guðmunds-
dóttir og það fimmta Pétur
Hauksson. f heiðurssæti G-
listans í Mosfellssveit situr svo
Auður Laxness húsfreyja á
Gljúfrasteini.
Dalbraut
6 sóttu um
Akvörðun á
þriðjudaginn
Félagsmálaráði borgarinnar
hafa borist sex umsóknir um
stöðu forstöðumanns dvalar-
heimilis aldraðra við Dalbraut.
Umsóknirnar voru kynntar á
fundi ráðsins í gær, en líklcga
verður tekin ákvörðun um hver
hlýtur starfíð á þriðjudaginn.
Umsækjendurnir sex voru:
Anna Margrét Einarsdóttir
hjúkrunarfræðingur, Gunnar J.
Gunnarsson guðfræðingur, Ingi-
björg S.E. Arelíusar þvottahús-
tæknir, Margrét S. Einarsdóttir
sjúkraliði og Sigurður Hjartarson
framkvæmdastjóri.
-gg-
Ráðningar
Garðar ríkis-
skattstjóri
Garðar Valdemarsson var í
gær skipaður í stöðu ríkisskatt-
stjóra frá og með 1. júlíísuniaren
þá lætur Sigurbjörn Þorbjörns-
son af störfum. Garðar hefur að
undanförnu gegnt stöðu skatt-
rannsóknarstjóra. Auk hans
sóttu um stöðuna Guðmundur
Guðbjarnarson deildarstjóri við
embætti ríkisskattstjóra og
Gunnar Jóhannsson formaður
ríkisskattanefndar. _ v
Leiðrétting
Sú meinlega prentvilla slæddist
inní grein Ævars Kjartanssonar
„Sameinaðir stöndum vér -
hvar?“ í blaðinu í gær, að í þriðja
dálki, þar sem segir - „það hefðu
þeir aldrei gert þegar verðið á
þeirri vöru" o.s.frv. en á að
standa aðeins þegar verðið o.s.
frv.
egar hafa borist um 360 kröf-
ur í þrotabú Hafskips en
kröfulýsingafresturinn í þrotabú-
ið rennur ekki út fyrr en í maí, er
vonast til að rannsókn málsins
Ijúki upp úr því.
Markús Sigurbjörnsson, skipt-
aráðandi, sagði að rannsóknin
væri komin vel af stað. Sagði
hann að mjög aðgengilegt væri að
vinna þetta verk og að bókhald
fyrirtækisins væri í góðu ásig-
komulagi. Ekki kvaðst hann geta
sagt hversu háar þær kröfur væru
sem þegar hefðu borist, hinsveg-
ar mun krafa Útvegsbankans í
þrotabúið vera óbreytt frá því
sem kom fram í haust.
í febrúar fóru skiptaráðendur
til Evrópu til að greiða úr málum
umboðsskrifstofa Hafskips, í Sví-
þjóð, Danmörk, Bretlandi, Hol-
landi og Belgíu. „Þau mál eru nú í
réttum farvegi einsog önnur mál
þrotabúsins,“ sagði Markús í
gær.
í apríl er svo búist við að Skaft-
áin verði seld á uppboði í Belgíu.
Jón Þorsteinsson, hæstaréttar-
lögmaður, sem er formaður þrig-
gja manna nefndar, sem Alþingi
skipaði til að kanna samskipti
Hafskips og Útvegsbankans,
kvaðst í gær ekkert geta sagt um
hvað rannsóknin hefði leitt í ljós.
Sagði hann að í lok rannsóknar-
innar yrði ráðherra og Alþingi af-
hent skýrsla um málið og bjóst
hann við að hún yrði gert opin-
HEIMILISLÆKNIR
Hef opnað læknastofu
í Domus Medica Egilsgötu 3.
Viðtalstími virka daga kl. 10-12 og 13.30-15.00.
Tímapantanir og vitjanabeiðnir í síma 1 16 66.
Símaviðtalstími virka daga kl. 9-10 í síma 1 16 66.
Skráning fer fram hjá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur, Tryggvagötu 28, sími 18440.
Ólafur Friðrik Magnússon læknir.
Sérgrein: heimilislækningar.
Föstudagur 7. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3