Þjóðviljinn - 07.03.1986, Qupperneq 7
Umsjón:
Sigríður
Arnardóttir
„I skólanum í skólanum er skemmtilegt að vera“, kyrjuðu menntskælingar í bróðerni í hléinu. Morfískeppnirn-
ar eru sameiningartákn allra framhaldsskóla landsins.
Ofar þeim - uppí geim
Sagt frá úrslitum í ræðukeppni
framhaldsskólanna í Háskólabíói í fyrrakvöld
„MR-in
um sta
vegna
Niður með Challenger!
Ofar þeim, upp í geim. Ekkert breim, MR heim!
Slagorð af þessu tagi ómuðu úr Háskólabíói á miðviku-
dagskvöldið þegar MR-ingar og MH-ingar kepptu í ræð-
ukeppni framhaldsskólanna. MR sigraði, en þó var mjótt
á munum því MR-liðið var aðeins með 18 stig fram yfir
MH.
Sigurlið Menntaskólans í Reykjavík skipuðu 4 strákar.
Þeir heita: Hlynur Níels Grímsson nemandi í 6. bekk,
Magni Þór Pálsson í 6. bekk, Gylfi Magnússon einnig í 6.
bekk og Sveinn Valfells nemandi í 5. bekk.
Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipuðu: Ásdís Þór-
hallsdóttir, Benedikt Erlingsson, Helgi Hjörvar og Katrín
Sigurðardóttir.
Umræðuefni kvöldsins var: Á að leggja niður
geimferðir? MR-ingar mæltu með því en MH-ingar and-
mæltu.
Heigi Hjörvar var kjörinn ræðumaður kvöldsins með
541 stig sem er undraverður árangur. Alls voru gefin 2844
stig í keppninni.
Gefið var m.a. fyrir ræðutækni (það er raddbeiting og
augnaráð), framkomu (það er t.d. klæðnaður), handa-
hreyfingar og rökfestu. Einnig var gefið fyrir uppbygg-
ingu ræðu og hvort ræðumenn nota gott íslenskt mál.
Mikil spenna var í loftinu í Háskólabíói og menn voru
duglegir við að hvetja sitt lið til dáða. En myndir segja
meira en mörg orð.
-------------- SA
„Ég bara trúi þessu ekki,“ þeir kalla okkur apa í kjólfötum, „Benedikt
Erlingsson MH-ingur á ekki orö. Katrín Sigurðardóttir liðstjóri og Helgi Hjörvar
ræðumaður framhaldsskólanna: „Við verðum að svara þessari andsk vit-
leysu."
arhaldaaðhungriðíheimin-
1 31^aðbiöog «*** a^hy"ÍSt
JSÍttS HIW »»
lamsi. Ljósm. Sig.
Föstudagur 7. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN — SfÐA 7