Þjóðviljinn - 07.03.1986, Qupperneq 14
Blaðamannafélag íslands
Dómur siðanefndar
vegna kœru Guðmundar G. Þórarinssonar á Þjóðviljann
Með bréfi dagsettu 24. jan.
1986 hefir Guðmundur G. Þórar-
insson kært skrif Þjóðviljans, þau
er birtust á forsíðu blaðsins 7.
jan. s.l., fyrir siðanefnd Blaða-
mannafélags íslands.
Umrædd skrif eru aðalfrétt
blaðsins þennan dag, sett upp yfir
þvera forsíðu þess. Aðalfyrir-
sögnin er: „Gripnir í skyndiút-
hlaupi“, og er þar vísað til fyrir-
tækisins Þýsk-íslenska h.f..
Undirfyrirsöng er í 4 línum, einn-
ig yfir þvera síðu: „Eitt stærsta
innflutningsfyrirtæki landsins
grunað um að hafa dregið á ann-
að hundrað miljónir kr. undan
skatti. Víðtæk rannsókn nær til
síðustu ára. Fyrrum stjórnarfor-
maður og framkvæmdastjóri
fyrirtækisins var Guðmundur G.
Þórarinsson fyrrum þingmaður
Framsóknar og gjaldkeri flokks-
ins“.
í fréttinni sjálfri segir m.a., að
Þýsk-íslenska sé grunað um að
hafa svikið þessa upphæð „undan
skattgreiðslum, ýmist með röng-
um innflutningsskýrslum eða
undandrætti söluskatts. Kom
þetta í ljós við skyndirannsókn
skattrannsóknarembættisins.
Starfsmenn skattrannsóknar-
stjóra hafa farið ýtarlega ofan í
skattaskil fyrirtækisins að undan-
förnu og ljóst er að mikið er enn
órannsakað í málinu en rann-
sóknin á bókhaldi Þýsk-íslenska
nær nokkur ár aftur í tímann“.
Einnig stendur til, samkvæmt
fréttinni, að málinu verði vísað til
„Rannsóknarlögreglu ríkisins til
ýtarlegri rannsóknar á brotum á
bókhaldslögum þegar frumniður-
stöður skattrannsóknarembættis-
ins liggja fyrir“.
Síðar segir í fréttinni: „Stjórn-
arformaður fyrirtækisins og ann-
ar framkvæmdastjóri þess fram á
haustdaga 1984 var Guðmundur
G. Þórarinsson fyrrv. alþm.
Framsóknarflokksins og núver-
andi gjaldkeri flokksins. Hann er
einn af stærstu hluthöfum fyrir-
tækisins ásamt Ómari Krist-
jánssyni hálfbróður sínum.“
Við könnun þessa máls hefur
komið á daginn, að heimildir
blaðamannsins fyrir téðri aðild
Guðmundar G. Þórarinssonar að
félaginu eru þrenns konar. í
fyrsta lagi má telja tilkynningu til
hlutafélagaskrár dagsetta 20.
mars 1978. Samkvæmt henni var
Guðmundur G. Þórarinsson
stjórnarformaður Þýsk-íslenska
verslunarfélagsins h.f. og hafði
auk þess prókúruumboð. Slík
gögn eru vitaskuld ófullnægj-
andi, ef ekki er jafnframt stuðst
við yngstu tilkynningarnar, enda
kom á daginn, að fyrir mistök
hafði, að sögn blaðamannsins,
önnur heimild hlutafélagaskrár,
yngri og traustari, ekki komist í
hendur hans. Þess er og að gæta,
að viðhlítandi heimildir um
eignarhluta fást ekki hjá hlutafé-
lagaskrá.
í tilkynningu til hlutafélaga-
skrár 28. nóv. 1979, birtri 7. maí
1980, var Guðmundar hvorki get-
ið sem stjórnarformanns, fram-
kvæmdastjóra né prókúruhafa.
Síðari tilkynningar til hlutafé-
lagaskrár hafa í engu breytt
þessu. Samkvæmt skattframtali
Guðmundar 1980 hefir hann selt
eignarhlut sinn í fyrirtækinu
1979. Samkvæmt yfirlýsingu
Guðmundar sjálfs var hann ráð-
inn framkvæmdastjóri að sér-
verkefnum frá því í apríl 1983 og
fram í janúar 1984.
Önnur heimild blaðamannsins
er ritið íslensk fyrirtæki 1985. Þar
segir, að stjórn fyrirtækisins skipi
þau Ómar Kristjánsson formað-
ur, Edda K. Metúsalemsdóttir og
Guðmundur Þórðarson með-
stjórnendur en framkvæmda-
stjórar séu Ómar Kristjánsson og
Guðmundur G. Þórarinsson.
Þessar upplýsingar eru þó ó-
traustar, því að í ritinu er ekki
fjallað um breytingar á stjórn fyr-
irtækja.
Þriðja heimild að fréttinni er
símtal blaðamannsins 6. jan. s.l.
við Guðmund Þórðarson lög-
fræðing, framkvæmdastjóra fjár-
málasviðs Þýsk-íslenska.
í samtali þessu segir Guð-
mundur Þórðarson m.a.: „Hann
(þ.e. Guðmundur G. Þórarins-
son) er ekki hér“. Og er blaða-
maður innir hann eftir, hvort
hann hafi ekki aðstöðu hjá Þýsk-
íslenska, svarar hann því svo:
„Nei, hann er bara á sinni verk-
fræðiskrifstofu. Hann er ekkert í
þessu fyrirtæki". Blaðamaður
spyr hann þá, hvort hann sé ekki
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
eins og ritið íslensk fyrirtæki 1985
greini. Neitar Guðmundur Þórð-
arson því og segir, að það sé
„eitthvað gamalt. Hann var
hérna eitt ár fyrir tveimur árum
eða eitthvað svoleiðis“.
Þetta símtal hefði öðru fremur
átt að verða til þess, að blaða-
maðurinn tæki upplýsingar sínar
til endurskoðunar.
Svo sem fyrr greinir, fer ekki
milli mála, að nafn Guðmundar
G. Þórarinssonar er tengt ætluðu
brotamáli um umfangsmikil
skattsvik. Frásögnin er hins vegar
bæði röng og villandi um atriði,
sem kunna að hafa verulega þýð-
ingu um ábyrgð Guðmundar í
þessu efni.
Heimildir blaðamannsins um
aðild Guðmundar G. Þórarins-
sonar að Þýsk-íslenska standa
engan veginn undir fréttinni.
Vinnubrögðum er hér greinilega
áfátt bæði um gagnasöfnun og úr-
vinnslu. Krafa um vönduð vinnu-
brögð hlýtur að vera því brýnni
þeim mun alvarlegri sökum, sem
maður er borinn, og æru hans
misboðið. Athugasemdir Þjóð-
viljans 2 dögum seinna hagga
ekki þessari niðurstöðu.
Frétt Þjóðviljans er merkt
stöfunum lg. Lúðvík Geirsson
blaðamaður kom á fund nefndar-
innar 5. febr., og kvaðst hann
hafa skrifað umrædda frétt. Guð-
mundur G. Þórarinsson kom á
fund nefndarinar 12. febr. s.l.
Siðanefnd greinir brot á siða-
reglum svo skv. 6 gr. þeirra: a)
óverulegt, b) ámælisvert, c) al-
varlegt, d) mjög alvarlegt.
Úrskurður siðanefndar Blaða-
mannafélags íslands er sá, að
frétt Þjóðviljans sé alvarlegt brot
á 3. gr. siðareglna Blaðamanna-
félagsins. Fyrsta mgr. þeirrar
greinar hljóðar svo: „Blaðamað-
ur vandar upplýsingaöflun sína
svo sem kostur er og sýnir fyllstu
tillitssemi í vandasömum mál-
um“.
Þroskahjálp
Vinningar!
Almanakshappdrætti Landssamtakanna Þroskahjálpar. Vinnin-
gurinn í janúar kom á nr. 14927 og í febrúar 16911. Ösóttir vinning-
ar á árinu 1985 eru: Nr. 9267 - 4226 - 8439 - 10936 og 1577.
Útsýn hf.
Samningur
við VISA
Samningur hefur verið undir-
ritaður milli VISA og Ferðaskrif-
stofunnar ÚTSÝNAR hf. vegna
ferðaviðskipta. Korthafi getur nú
staðfest farpöntun í hópferðir eða
kaup á farseðli, t.d. APEX, með
einu símtali, þar sem hann gefur
upp númer greiðslukorts og gild-
istíma þess og er um leið skuld-
færður fyrir greiðslunni að feng-
num öllum nauðsynlcgum upp-
lýsingum um ferðatilhögun og
ferðatíma. A þennan hátt tryggir
korthafinn sér hugsanlega lægra
fargjald en ella og sparar sér
tímafrcka snúninga.
Þetta er í fyrsta sinn, sem VISA
korthöfum gefst tækifæri til að
dreifa greiðslunni með heimild
fyrir mánaðarlegum millifærslum
sem innborgun vegna væntan-
legra sólarlandaferða.
Samkomulagið felur í sér að
VISA korthafi getur lagt fyrir á-
kveðna upphæð mánaðarlega og
þannig verið búinn að greiða all-
an eða mestan hluta ferðakostn-
aðar fyrir brottför.
Þjónusta þessi er háð því skil-
yrði að Visa korthafi skrifi undir
yfirlýsingu þess efnis, að hann
heimili Ferðaskrifstofunni Útsýn
hf. fyrrgreindar skuldfærslur af
Visaícort-reikningi sínum og að
hann sé í skilum gagnvart Visa
Island við móttöku farseðils.
Þessi samningur markar tíma-
mót í Visa viðskiptum í Evrópu,
þar eð ekki er vitað til að slíkt
fyrirkomulag hafi staðið Visa
korthöfum til boða annars stað-
ar.
Þjónusta þessi sparar Visa
korthöfum mikinn tíma og um-
stang, og staðfestir hið vaxandi
traust er söluaðilar bera til gjald-
miðils framtíðarinnar - VISA
kortsins.
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN hf.
er fyrsta ferðaskrifstofan hér-
lendis, til að taka upp þennan
hentuga greiðslumáta.
Visa korthafar á íslandi eru nú
að nálgast 50.000
HVAÐ ER AÐ GERAST í ALÞÝÐUBANDALAGINU?
AB Borgarness
Fundur
verður haldinn föstudaginn 7. mars kl. 20.30 í Röðli. Fundarefni:
undirbúningur sveitastjórnarkosninga.
Félagar og stuðningsmenn fjölmennið. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Félagsfundur
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði boðar til almenns félagsfundar
miðvikudaginn 12. mars kl. 20.30 í Skálanum Strandgötu 41.
Dagskrá:
1) Kynntar tillögur uppstillingarnefndar um framboðslista fyrir
sveitarstjórnarkosningar í vor.
2) Kosningastarfið.
3) Önnur mál.
Félagar hvattir til að mæta.
Stjórnin
AB Akureyri
Bæjarmálaráð
Fundur í bæjarmálaráði, mánudaginn 10. mars kl. 20.30 í Lárus-
arhúsi, Eiðsvallagötu 18.
Fundarefni:
1. Dagskrá bæjarstjórnarfundar 11.3.;
2. Starfað í málefnahópum: a) félagsmál, b) skólamál.
Félagar og stuðningsmenn! Mætið vel og dyggilega og hafið með
því áhrif á stefnuna.
Stjórn bæjarmálaráðs.
AB Akranesi
Bæjarmálar áð
er boðað til fundar í Rein mánudaginn 10. mars kj. 20.30.
Dagskrá: 1) Fjárhagsáætlun kaupstaðarins. 2) Onnur mál.
Mætum vel og stundvíslega! Stjórnin.
AB Selfoss og nágrennis
Opið hús
að Kirkjuvegi 7, Selfossi laugardaginn 8. mars kl. 15-18. Um-
ræður um bæjarmál, kaffi og með því. Allir velkomnir.
Nefndin.
AB Selfoss og nágrennis
Félagsmála-
námskeið
Fimmtudaginn 13.
mars hefst 5 kvölda
námskeið í ræðu-
flutningi og fund-
arsköpum sem opið
er öllum félögum og
stuðningsmönnum
Alþýðubandalags-
ins. Kristín Margrét
Leiðbeinendur verða Margrét Frímannsdóttir og Kristín Á.
Ólafsdóttir. Þátttaka tilkynnist til Önnu Kristínar í s. 2189 fyrir 9.
mars. Stjórnin.
AB Norðurlandi vestra
Almennir fundir
Búið er að breyta tímasetningu fundanna með Ragnari Arnalds og
Kristínu Á. Ólafsdóttur á Norðurlandi vestra.
Á Siglufirði á laugardag kl. 17.00 í Alþýðuhúsinu.
Á Sauðárkróki á sunnudag kl. 16.00 i Villa Nova.
Alþýðubandalagið
Ragnar Kristín
Alþýðubandalagið
Aðalfundur verkalýðsmálaráðs
verður haldinn sunnudaginn 9. mars kl. 14.00 í Miðgarði, Hverfis-
götu 105.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf, 2) staða verkalýðsmála-
ráðs AB, 3) tengsl flokks og verkalýðshreyfingar, 4) almenn kjara-
umræða.
Fundir verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins eru opnir öllum
flokksmönnum og stuðningsmönnum AB. - Formaður.
AB Vestmannaeyjar
Félagsmálanámskeið
verður haldið í Alþýðuhúsinu dagana 7. - 9.
mars nk.
Námskeiðið hefst fyrri daginn kl. 20.00.
Allir félagar og stuðningsfólk velkomið.
Leiðbeinandi verður Baldur óskarsson.
BYGGÐAMENN AB
Áhugamenn um sveitarstjórnarmál
Ráðstefnu frestað til 12.-13. apríl
Ráðstefnu Byggðamanna Alþýðubandalagsins um sveitarstjórn-
armál hefur verið frestað til helgarinnar 12.-13. apríl n.k.. Þar mun
verða rætt um sveitarstjórnarmálin almennt og undirbúning kosn-
inganna í vor. Nánar auglýst síðar.
Stjórn Byggðamanna AB
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN \ Föstudagur 7. mars 1986