Þjóðviljinn - 27.03.1986, Page 6

Þjóðviljinn - 27.03.1986, Page 6
Jg áttl m mm X ^ jorð i Afríku“ Silja Aðalsteinsdóttir skrifar um Karen Blixen og frœgustu bók hennar, Jörð í Afríku Karen Blixen er meðal fremstu rithöfunda á Norður- löndum á þessari öld. Hún er líka einn sá vinsælasti. Bækur hennar seldust í stórum upp- lögum bæði austan hafs og vestan, því í Ameríku varð hún fræg fyrst. Fyrirfjórum árum kom út þar í landi vel unnin og bráðskemmtileg ævisaga Karenar eftir skáldið og gagnrýnandann Judith Thurman. Bók sína kallar hún: Isak Dinesen. The Life ofa Storyteller( St. Martin’s Press, New York, 1982). Spjallið hér á eftir byggist á þeirri bók og frásögnum Kar- enar sjálfrar í Jörð iAfríku. Sú bók er í sviðsljósinu núna vegna þess að ameríkanar hafa enn gert vel við Karen Blixen og búið til stórmynd eftirævisögunni nýju og Jörðí Afríku. Mál og menning gaf það verk út árið 1952 í þýð- ingu GíslaÁsmundssonarog það hefur nú verið endur- prentaðfyrir UGLUNA, ís- lenska kiljuklúbbinn. Karen Blixen átti hundrað ára afmæli í fyrra. Hún fæddist árið 1885, næstelsta barn foreldra sinna, og var skírð Karen Christ- entze. Stéttaruppruni hennar var blandaður. í móðurætt stóðu að henni traustir (og leiðinlegir) borgarar, en heillandi (og úr- kynjaðir) landeigendur í föðu- rætt. Karen hugsaði mikið um uppruna sinn alla tíð, og það var böl hennar hvað hún dáði aðra ættina takmarkalaust og var til- finnanlega upp á hina komin. Faðir hennar hét Wilhelm Dines- en, mikill ævintýramaður þar tii hann settist að með Ingeborg Westenholz í Rungstedlund, skammt frá Dyrehaven og ekki langt frá Kaupmannahöfn. Hann var vinur bókmenntafræðingsins Georgs Brandes og skrifaði nokkrar bækur sjálfur. Karen bar snemma höfuðið hátt, hún var tilfinninganæmt barn og viðkvæmt, þótti fyrtinn krakki og fullur lífsorku. Og hún var eftirlæti föður síns. Þegar- og þá sjaldan að hann var heima, fór hann með henni í langar göngu- ferðir og kenndi henni á náttúr- una. Hann fann hvað hún hafði ríkt ímyndunarafl og ýtti undir það með ráðum og dáð. Hann laðaði hana frá kvennaheiminum innanhúss, þar sem móðirin beið með systurnar tvær og litlu dreng- ina, að spennandi karlaheimi sín- um. Þessar stundir með föðu- rnum voru Karen óendanlega dýrmætar og sér þeirra víða stað, beint og óbeint, í verkum hennar. Sárasta sorgin En þegar Karen var tíu ára framdi faðir hennar sjálfsmorð, vonsvikinn maður og smitaður af sárasótt. Áhrif þessa atburðar á eftirlætið hans getur hver og einn ímyndað sér, enda hafa gagnrýnendur séð sjúklegar föðurbindingar skína í gegnum sögur hennar. Einnig má sjá hvernig sambandið við föðurinn endurtekur sig í samskiptum hennar við aðra karlmenn. Hún vill eins og þá vera kyrr, vera hornsteinn í lífi hins frjálsa karl- manns sem kemur og fer. Á gelgjuskeiðinu var Karen unglingur í nútímaskilningi, full af uppreisn gegn móðurfólkinu og siðuðum kvennaheiminum í Rungstedlund sem henni fannst hafa fordóma gagnvart föðurnum dáða og vilja gleyma honum sem fyrst. Henni þótti meira gaman að vera hjá þjónustufólkinu og Isak Dinesen á efri árum. hlusta á mergjaðar sögur um ást- ir, girnd, svik og hefndir, en hella tei í bolla fínu frúnna hjá móður sinni og þola innantómt yfirstétt- arhjal þeirra. Henni leiddist óumræðilega siðprútt og svip- laust bernskuheimilið og fékk ævinlega þunglyndisköst þegar hún kom í heimsókn til móður sinnar seinna meir. Karen byrjaði ung að skrifa sögur og smáleikrit fyrir sjálfa sig og fjölskylduna. Hún dáði Georg Brandes í fjarlægð, ekki síst af því að hann hafði verið vinur föður hennar, en henni tókst ekki að hitta hann fyrr en hún stóð á fer- tugu. Hins vegar las hún allt sem hann skrifaði, og hann kveikti í henni rómantískan loga með rit- um sínum um rómantísku stefn- una. Sá logi brá birtu á flest það sem hún skrifaði upp frá því og sjálf var hún rómantísk í skapi og fasi. Fyrsta sagan sem hún birti fjallaði um yfirdrifna ást á dauðanum, hún hét „Einbúarn- ir" og kom í Tilskueren, virtu bókmenntatímariti, árið 1907. Þá var Karen rúmlega tvítug. Karen Dinesen skrifaði og málaði, gekk um skeið í listaskóla og dreymdi listamannsdrauma. A hinn bóginn var stöðugt ýtt á hana - eins og aðrar konur fyrr og síðar - að giftast og stofna heim- ili. Listamannslíf var ekki fyrir konur. Togstreitan bjó líka í Kar- en sjálfri. Arfurinn var tvenns konar og leitaði í gagnstæðar átt- ir, ævintýralöngunin, listhneigð- in og ástríðurnar frá föðurnum, siðprýðin og löngunin til að lifa öruggu lífi frá móðurinni. Hún varð ástfangin af frænda sínum í föðurætt, Hans Blixen-Finecke, sænskum aðalsmanni, en hann vildi ekkert með hana hafa. Ást- arsorgin var sár og setti mark sitt á Karen í nokkur ár. Af öllum sorgum fannst henni ástarsorgir ævinlega verstar. Tvfburabróðir Hans, Bror Blixen, gekk hins vegar opinskátt á eftir Karen og tókst að lokum að fá hana til að játast sér með því að lofa að flytj- ast með henni úr landi en ætlast ekki til að hún settist að á kúabúi ættarinnar á Skáni. Bror Blixen-Finecke barón þótti ekki eins laglegur og sjarm- erandi og tvíburabróðir hans, en hann var skemmtilega ósvifinn strákur og hafði enga hugsjón aðra í lífinu en að skemmta sér sem mest og best. Móður Karen- ar þótti hann ekki góður ráðahag- ur. auk þess óttaðist hún að dóttir hennar elskaði þennan tilvonandi mann sinn lítið. Þó sagði Karen löngu síðar að framan af hefði hún verið hamingjusamari með Bror en hún varð nokkru sinni aftur á ævinni. Til Afríku Góðborgararnir í móðurætt Karenar lögðu fram fé til að ungu hjónin gætu keypt land til nautgriparæktar í Afríku. Bror fór á undan þangað, hætti við nautgriparæktina en keypti í staðinn kaffiplantekru í Kenya. Það var örlagaríkt. Á þessu svæði var regn of stopult og jarðvegur of súr til að kaffi yxi nógu vel. Reyndar hefði jörðin hentað miklu betur til að hafa þar kúabú, eins og næsti eigandi hennar átt- aði sig á. Síðla árs 1912 lagði Karen af stað til Afríku til að hitta unnusta sinn. Móðir hennar og systir tóku sig upp og fylgdu henni á skipsfjöl í Napolí. Hún hafði með sér mik- inn farangur, ættarsilfur, kristal, stóreflis málverk og glæsileg hús- gögn, til að búa sér og Bror menningarheimili í þessari fjar- lægu heimsálfu. Daginn eftir að hún steig á land í Mambasa giftu þau sig. Svaramaður Brors var Wilhelm prins af Svíþjóð. Hann lýsir brúðinni þannig: Hún er grönn, vel vaxin, gáfuleg augun silja djúpt, andlitsdrœttir reglulegir undir þungu og miklu, kastaníubrúnu hári. Kjóllinn sem hún ber er einfaldur en velsniðinn og greinilega œttaður úr fyrsta flokks tískuhúsi. Fögur og glœsi- leg ung kona, komin langt frá öllu þess háttar. Hún er komin hingað ein til að sameina örlög sín og mannsins sem stendur hjá henni. Engin fjölskylda, engir vinir nema þeir sem hún hefur kynnst á leið sinni. Karen Dinesen var orðin Kar- en Blixen barónessa, kaffiræktar- bóndi í Kenya. Hún dvaldi í Afr- íku í átján ár við erfiðar aðstæð- ur, því kaffiræktin vildi aldrei ganga vel. Þessi ár lagði hún listir að mestu á hilluna, gaf sig alla búskap, villidýraveiðum og öðru sem fylgdi lífinu í Afríku. Hins vegar skrifaði hún mikið um veru sína þar eftir að hún var komin aftur heim til Danmerkur. Hún varð undir eins hrifin af innfæddum íbúum álfunnar, þeir höfðuðu, fannst henni, til djúp- stæðra tilfinninga hjá henni, „bernskudrauma, hjartfólginna ljóða sem ég hafði lesið fyrir löngu ...“ Gamall kikujúi minnist 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. mars 1986

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.