Þjóðviljinn - 27.03.1986, Qupperneq 8
Páskahátíðin
Friðarmál í brennidepli
Samtök herstöðvaandstœðinga með fund á Borginni á laugardag og Samstarfshápur
friðarhreyfinga með dagskrá í Gerðubergi á páskadag
Um páskana verður mikið um
að vera hjá friðarsinnum. Á
laugardaginn minnast Samtök
herstöðvaandstæðinga þess á
Hótel Borg að daginn eftir, 30.
mars, verða liðin 37 ár síðan ís-
land gerðist aðili að Nató. Og
daginn eftir efnir Samstarfshópur
friðarhreyfingatil dagskrárí
Gerðubergi. Ersúdagskráliðurí
starfsemi friðarhreyfinganna á
friðarári Sameinuðu þjóðanna.
Hótel Borg
laugardag
Fundur SHA hefst á Hótel
Borg kl. 14 á laugardag en húsið
verður opnað hálftíma áður. Þar
les Jónas Árnason rithöfundur
smásögu sína sem nefnist Hattur-
inn, Aðalsteinn Ásberg Sigurðs-
son flytur tónlist og Ijóð, þjóð-
verjinn Jan Wuster segir frá
friðarbaráttunni í Vestur-
Þýskalandi, Páll Bergþórsson
veðurfræðingur flytur aðalræðu
dagsins og loks tekur Bubbi
Morthens lagið við eigin undir-
leik á gítar.
Að þessu loknu verður hlé en
síðan hefjast pallborðsumræður
um stöðuna og stefnuna í friðar-
baráttunni. I þeim umræðum
taka þátt fulltrúar 8 friðarhreyf-
inga auk SHA en einnig gefst
fundargestum kostur á að leggja
orð í belg. Fundarstjóri á Borg-
inni verðurÆvar Kjartansson en
ráðgert er að fundinum ljúki um
fimmleytið.
Gerðuberg
páskadag
Dagskráin í Gerðubergi hefst
kl. 15 á sunnudag og verður á
þremur stöðum í húsinu. I aðal-
salnum hefst hún á ávarpi séra
Helgu Soffíu Konráðsdóttur en
aðrir sem ávörp flytja eru María
Jóhanna Lárusdóttir, Árni Hjart-
arson og Ólafur Ragnar Gríms-
son sem fjallar um Olof Palme og
friðarfrumkvæði sex þjóðarleið-
toga. Milli ávarpa les Éinar Bragi
upp, Helga Bachmann les ljóð,
Eyvindur Erlendsson flytur Bréf
Seattle indíánahöfðingja til
Bandaríkjaforseta, Kristinn Sig-
mundsson syngur einsöng og tón-
listarmennirnir Kolbeinn Bjarna-
son, Páll Eyjólfsson og Sigur-
björn Einarsson leik listir sínar.
Loks flytja nemendur úr Pjálfun-
arskóla ríkisins við Stjörnugróf
leikþáttinn Síðasta blómið undir
stjórn Sigríðar Eyþórsdóttur við
tónlist Atla Heimis Sveinssonar.
í hliðarsal verður sérstök dag-
skrá fyrir börn þar sem lesnar
verða sögur, sungið og fleira gert.
Þar verður einnig teikniaðstaða
og gefst börnunum kostur á að
teikna friðarmyndir en þær sem
bestar þykja verða sendar á al-
þjóðlega sýningu á friðarmynd-
um barna sem haldin verður í
Bretlandi síðar á árinu.
Kaffistofan verður opin allan
tímann en milli kl. 16 og 17 flytur
Háskólakórinn þar hluta úr Sól-
eyjarkvæði Jóhannesar úr
Kötlum. Á göngum Gerðubergs
verða til sýnis veggspjöld um
friðarmál og frekara starf sam-
starfshópsins á friðarári verður
kynnt. Dagskránni lýkur um kl.
18.
—ÞH
Ingibjörg Haraldsdóttir formaður Samtaka herstöövaandstæðinga.
Samtök herstöðvaandstœðinga
Vígbúnaðar-
öflin í sókn
Ingibjörg Haraldsdóttir formaður SHA: Sú hlið vígbúnaðar-
kapphlaupsins sem snýr að okkur má ekki gieymast
„Við efnum til þessa fundar á
laugardaginn til að minna á aðild
íslands að Nató og til að benda
friðarsinnum á að ef þeir slaka á
kröfum sínum um brottför hersins
og úrsögn úr Nató færa vígbún-
aðaröflin sig upp á skaftið," sagði
Ingibjörg Haraldsdóttir kennari
og formaður Samtaka her-
stöðvaandstæöinga þegar Þjóð-
viljinn ræddi við hana um f und
SHA.
„Það hefur vissulega slaknað á
kröfunni um úrsögn úr Nató
innan ákveðinna hópa upp á síð-
kastið. En framkvæmdirnar sem
nú eru í gangi og fyrirhugaðar á
vegum hersins og Nató eru það
miklar að vígbúnaðaröflin hafa
greinilega sótt í sig veðrið. Þar
má benda á framkvæmdirnar í
Helguvík, komu F-15 orrustuvél-
anna, ratsjárstöðvarnar og um-
ræður sem orðið hafa um að gera
varaflugvöll fyrir Nató og Banda-
ríkin, hugsanlega á Sauðárkróki.
Samtök herstöðvaandstæðinga
eru friðarsamtök og þess vegna
þótti okkur rétt að bjóða öðrum
friðarsamtökum til viðræðna um
stöðuna og hvernig best sé að
heyja friðarbaráttuna. Vitaskuld
er meiningarmunur á milli sam-
taka en við í SHA leggjum á það
áherslu að sú hlið sem snýr að
okkur, aðildin að Nató, vígbún-
aðurinn hér á landi og í hafinu
umhverfis okkur þar sem bæði
Bandríkin og Sovétríkin eru að
verki, megi ekki gleymast. Að
þessu sinni ákváðum við þó að
láta vera að bjóða Varðbergi,
töldum rétt að bjóða aðeins þeim
samtökum sem berjast gegn hug-
myndunum um ógnarjafnvægið,“
sagði Ingibjörg.
—ÞH
Andsvar Japana
við stjörnustríði
Japanir veita stórfé til lausna á umhverfismengun, þverrandi auð-
lindum, málefnum aldraðra og offjölgun mannkyns
Japanirundirbúanú
rarinsóknaáætlun sem gæti
orðið sú umsvifamesta í
veröldinni ef frá er talin
stjörnustríðsáætlun
Reagans. En í stað þess að
nota vísindi og tækni til að
gera hernum kleift að færa út
landamæri sín í geimnum
hyggjast Japanir leysa
jarðbundnari vandamál fólks.
Á fundi leiðtoga vestrænna
ríkja í Tokyo í maí næstkomandi
kynnir japanski forsætisráðherr-
ann, Ysuhiro Nakasone, áætlun-
ina sem kosta á 4 miljarða sterl-
ingspunda og Japanir hyggjast
greiða að mestu leyti.
Áætlunin verður kölluð „já-
kvætt framlag Japana í þágu
heimsbyggðarinnar á rannsókna-
sviðinu". Henni er ætlað að leita
„grundvallandi lausna“ á vand-
amálum eins og umhverfismeng-
un, þverrandi auðlindum, mál-
efnum aldraðra og offjölgun
mannkyns. Þessi vandamál á að
leysa með því „að finna nýjar við-
miðanir fyrir vísindi og tækni sem
eru í samræmi við manninn og
náttúruna". Japanir hyggjast
koma á alþjóðlegu vísindasam-
starfi til að vinna að þessum mál-
um. Rannsóknaverkefnin verða
ákvörðuð af nefnd viðurkenndra
vísindamanna, væntanlega frá
fleiri löndum en Japan. Áhersla
verður lögð á rannsókn lífvera,
sérstaklega mannslíkamans.
Þ.á.m. verður hin æðri starfsemí
heilans könnuð, svo sem minn-
ingar og dómgreind, og ónæmis-
kerfi líkamans. Aðstandendur
áætlunarinnar telja að hún muni
hraða samruna hinna ýmsu
greina vísinda.
Japanir hafa töluverða reynslu
af umfangsmiklum rannsóknaá-
ætlunum. S< ’ ’mi má nefna
áætlunina u. ’ þróa fimmtu
tölvukynslóðina. Nvja áætlunin
mun þó taka tvöfalt lengri tíma
en sú áætlun og kosta 50 sinnum
meira. Hún er líka ólík fyrri áætl-
unum að því leyti að hún nær til
fleiri landa. M.a. verður lagt fé til
rannsóka í öðrum ríkjum.
Japönum finnst tími til kominn
að Ieggja sinn skerf til vísind-
anna. Með því móti snúa þeir frá
fyrri háttum, að flytja inn tækni,
beita henni í innlendum iðnaði og
flytja árangurinn út.
Einnig hefur verið litið á áætl-
unina sem andsvar við stjörnu-
stríðsáætluninni. Enda þótt ein-
stök japönsk fyrirtæki kynnu að
taka þátt í bandarísku áætluninni
kemur stjórnarskráin í veg fyrir
það að japanska stjórnin taki þátt
í hernaðarbrölti af því tagi. Ef af
þessari áætlun Japan verður
markar hún tímamót hvað varðar
tækniþróun án tengsla við vopn-
asmíði.
-ÁÓ (Byggt á New Scientist).
Yasuhiro Nakasone forsætisráðherra Japans mun í maímánuði kynna nýja
rannsóknaráætlun fyrir leiðtogum iðnríkjanna. Hún er andsvar Japana við
stjörnustríði Reagans og miðast við að leysa jarðbundnari vandamál fólks en
þau sem Reagan fæst við.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN' Fimmtudagur 27. mars 1986