Þjóðviljinn - 27.03.1986, Side 9
Brynjólfur Eyjólfsson ásamt syni sínum Halldóri Bjarka. Mynd: Sig.
Stjórnvöld
hundsa
friðardrið
Brynjólfur Eyjólfsson frá Samstarfshópi
friðarhreyfinga: Erlendis veita
stjórn völd fé til friðarstarfs á
alþjóðlegu friðaráriSP
Aö samkomunni í Gerðubergi
á páskadag standa 10 f riöarsam-
tök: Friðarhópurfóstra, Samtök
um friðaruppeldi, Samtök lækna
gegn kjarnorkuvá, Samtök ís-
lenskra eðlisf ræðinga gegn
kjarnorkuvá, Samtök um kjarn-
orkuvopnalaustísland, Friðar-
hreyfing íslenskra kvenna, Frið-
arhópurlistamanna, íslenska
friðarnefndin, Samtök her-
stöðvaandstæðinga og
Menningar- og friðarsamtök ís-
lenskra kvenna.
Brynjólfur Eyjólfsson eðlis-
fræðingur er einn þeirra sem
staðið hafa að undirbúningi
Friðarpáska og sagði hann að
þeir væru haldnir í tilefni af því að
nú stendur yfir friðarár Samein-
uðu þjóðanna. „Partur af tilgang-
inum er að benda fólki á að ís-
lensk stjórnvöld virðast ekkert
ætla að gera úr þessu friðarári.
Víðasthvar erlendis eru veittir
peningar í friðarstarf og menn
settir í það á launum að hrinda af
stað starfi að friðarmálum. Einu
svörin sem fengist háfa frá
stjórnvöldum hér er að Félagi
Sameinuðu þjóðanna hafa verið
falið að sinna friðarmálum í ár en
frá þeim samtökum hefur ekkert
heyrst nema það að hugsanlega
verði eitthvað gert síðar á árinu."
— Er samstarfshópurinn með
fleira á prjónunum?
„Já, í maí er von á bandarískri
konu í heimsókn en hún flúði frá
Bandaríkjununi til Kanada ásamt
manni sínum á sínum tíma vegna
þess að hann vildi komast hjá að
gegna herskyldu í Víetnam. Þessi
kona, Bonnie Sherr Klein, hefur
gert kvikmynd um konur, frið og
völd, friðarmál frá sjónarhóli
kvenna, og verður hún sýnd hér.
Einnig er meiningin að í júlí komi
hingað friðarskip sem samtök í
Skotlandi gera út á Norður-
Atlantshafi í sumar. Auk þess er
verið að ýta á ýmislegt en hópur-
inn hefur lítið fé umleikis og því
er erfitt fyrir okkur að takast á
hendur einhverjar skuldbinding-
ar.
í Gerðubergi verður teikniað-
staða fyrir börn og verða bestu
myndirnar sem þar verða til send-
ar á sýningu á friðarmyndum
barna í Nottingham á Englandi.
Sú sýning er til komin fyrir frum-
kvæði bresku friðarsamtakanna
CND sem heyja baráttu fyrir af-
námi kjarnorkuvopna. Seinna
verður sýningin svo sett upp í
Lundúnum á vegum Félags Sam-
einuðu þjóðanna. Ólíkt hafast
menn að hér og þar,“ sagði
Brynjólfur.
—ÞH
Krokket
í Kína
Krokket, sem fólk tengir yfir-
leitt við enskar garðveislur, slær í
gegn um þessar mundir í Henan í
Kína
Þá mun þessi leikur einnig vera
mjög vinsæll meðal ellilífeyris-
þega í borginni Wuxan í austur
hluta landsins. Dagblað alþýð-
unnar í Kína sagði nýlega að aldr-
að fólk væri sérstaklega hrifið af
þessum leik vegna þess að leikur-
inn krefðist ekki mikilla líkam-
legra átaka og væri ekki hættu-
legur. Ekki var minnst á hvort
jarðarber og rjómi væru borinn
fram meðan á leiknum stæði, eins
og þeir gera víst í Englandi.
Mengaður
heilag-
leiki
Hið heilaga fljót hindúa,
Ganges á Indlandi, er ekki bara
heilagt heldur einnig afskaplega
skítugt og mengað enda skola
ekki bara hindúar syndir sínar af
sér í íljótinu. í það rennur skólp
og annar úrgangur frá yfir 100
borgum og bæjum. Mengunin í
fljótinu er orðin svo mikil að tví-
vegis hefur kviknað í því.
Bíll frá Hreyfli flytur þig þægilega og á
réttum tíma á flugvöllinn.
Þú pantarfyrirfram
Við hjá Hreyfli erum tilbúnir að flytja þig á
Keflavikurflugvöll á réttum tíma i mjúkri límosinu.
Málið er einfalt. Þú hringir í síma Ó8-5522 og
greinir frá dvalarstað og brottfarartima. Við
segjum þér hvenær bíllinn kemur.
Eitt gjald fyrir hvern farþega
Við flytjum þig á notalegan og ódýran hátt á
flugvöllinn. Hver farþegi borgar fast gjald. Jafnvel
þótt þú sért einn á ferð borgarðu aðeins
fastagjaldið.
Viö vekjum þig
Ef brottfarartírni er að morgni þarftu að hafa
samband við ollur milli kl. 20:00 og 23:00 kvöldið
áður. Við getum séð um að vekja þig með góðum
fyrirvara. ef þú óskar. Þegar brottfarartími er
siðdegis eða að kvöldi nægir að hafa samband
við okkur milli kl. 10 00 og 12:00 sama dag.
UREYFILL
Ó85522
TRYGGIR ÞÉR ÞÆGINDI FYRSTA SPÖLINN
Fimmtudagur 27. mars ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9