Þjóðviljinn - 27.03.1986, Síða 15
Kvikmyndir
Spielberg
ÚTI í
kuldanum
Jörð í Afríku dró að sér flesta Óskara
en Spielberg fékk engan. Sigur
gamlingjanna ÍHollywood
Á mánudagskvöldið var Ösk-
arshátíðin í Los Angeles.
Þessi árlega uppskeruhátíð
bandarísks kvikmyndaiðnað-
Helstu
Óskarar
1986
Hér fer á eftir listi yfir helstu
Óskarsverðlaunin árið 1986:
Besta kvikmyndin: Jörð í Afríku.
Besti leikstjórinn: Sidney Pollack.
Besta leikkona í aðaihlutverki:
Geraldine Page í Ferðin til Gnægta-
bæjar.
Besti leikari íaðalhlutverki: William
Hurt I Koss köngulóarkonunnar.
Besta leikkona í aukahlutverki:
Anjelica Huston í Heiður Prizzis.
Besti leikari í aukahlutverki: Don
Ameche í Cocoon.
Besta erlenda myndin: Opinber út-
gáfa eftir Luis Puenzo (Argentína).
Besta langa heimildarmyndin:
Rofinn regnbogi, framleiðendur Mar-
ia Floria og Victoria Mudd.
Besta teiknimyndin: Anna og Bella
eftir Borge Ring.
Bestu buningarnir: Ran eftir Akiro
Kurosawa.
Besta frumsamda handritið: Vitnið
eftir Earl W. Wallace, Pamela Wall-
ace og William Kelley.
Besta handrit unnið úr öðrum
miðli: Jörð í Afríku eftir Kurt Luedtke.
Besta kvikmyndalagið: Say you,
say me eftir Lionel Ritchie.
Besta klippingin: Vitnið, Thom No-
ble klippti.
Besta hljóðrásin: Jörð í Afríku, John
Barry hljóðsetti.
ar er einn af hápunktum árs-
ins hjá kvikmyndaunnendum
og þótt deildar meiningar séu
um þær gæðakröfur sem
liggja að baki verðlaununum
eru engin verðlaun vísari
trygging fyrir frægð og frama
þeirra sem þau hljóta.
Að þessu sinni hafði fyrir-
fram verið spáð hörðu einvígi
tveggjakvikmynda. Myndin
Jöró íAfríku sem byggð er á
frásögn dönsku skáldkonunn-
ar Karen Blixen var útnefnt til
11 Óskara og nýjasta mynd
Stephen Spielberg, Purpura-
liturinn, var sömuleiðis út-
nefnd til 11 Óskara. Sidney
Pollackog hans lið fór með
sigurinn úr þeirri orrahríð.
Jörð í Afríku hlaut samtals 7
Óskara en Spielberg engan.
Bamamyndir?
Ástæðurnar fyrir þessu eru
fyrst og fremst raktar til íhalds-
semi akademíunnar sem veitir
Óskarana en hún telur 4.223
manns. Spielberg hefur gert
mestu aðsóknarmyndir síðari
ára, myndir eins og ET, Leitin að
týndu örkinni ofl. hafa slegið
hvert aðsóknarmetið á fætur
öðru. Samt hefur Spielberg verið
hálfgerður utangarðsmaður í
hinni rótgrónu mafíu sem ræður
ríkjum í Hollywood. Sumir
þeirra sem stjórna Óskarsaka-
demíunni hafa sagt sem svo að
Spielberg fáist einungis við gerð
barnamynda og aðrir hafa fundið
að þeim mörgu aukabúgreinum
sem hann hefur komið sér upp,
Geraldine Page hlaut Óskar fyrir besta leik í aðalhlutverki
en hún er fyrst og fremst þekkt sem sviðsleikkona.
William Hurt hlaut Óskar fyrir besta leik í aðalhlutverki í
myndinni Koss köngulóarkonunnar. Þar leikur hann
homma sem deilir fangaklefa með pólitískum fanga. Hurt
sagðist eftir afhendinguna ekki hafa lifað sig inn í hlutverk
hommans heldur manneskjunnar.
svo sem framleiðslu og sölu alls
kyns fatnaðar, leikfanga oþh.
sem allt ber nöfn kvikmynda
hans. Á þessu hefur Spielberg
þénað ófáar miljónir dollara en
bakað sér óvinsældir í leiðinni.
Önnur kvikmynd sem talin var
líkleg til afreka á hátíðinni var '
mynd John Huston, Heiður
Prizzis, sem segir frá viðskiptum
bandarískra mafíósa. í hennar
hlut kom aðeins einn Óskar en
hann hlaut Anjelica Huston,
dóttir Johns, fyrir besta leik í
aukahlutverki. Gamli maðurinn
hafði verið útnefndur til verð-
launa sem besti leikstjórinn en sá
Óskar hafnaði hjá Sidney Poll-
ack.
hún kappi við helstu stórstjörnur
Hollywood um þessar mundir,
Meryl Streep, Jessicu Lange,
Anne Bancroft og Whoopi Gold-
berg, blökkukonuna sem Spiel-
berg uppgötvaði.
Page sagði eftir afhendinguna
að leikaraverðlaunin í ár hefðu
verið sigur fyrir gamalmennin í
bransanum. Þar átti hún við eigin
frammistöðu og ekki síður Don
Ameche sem hlaut sín fyrstu Ósk-
arsverðlaun 77 ára gamall eftir 50
ára kvikmyndaleik í jafnmörgum
myndum. Gamli maðurinn hlaut
verðlaun fyrir besta leik í auka-
hlutverki í myndinni Cocoon en
þar dansaði hann breikdans.
Gamla fólkið
stal senunni
Geraldine Page fékk Óskarinn
fyrir besta leik í aðalhlutverki.
Hún er komin á sjötugsaldur og
þegar blaðamenn ræddu við hana
eftir afhendinguna sagði hún að
þetta væri í áttunda sinn sem hún
væri útnefnd til verðlauna en í
fyrsta sinn sem hún hlyti þau. „Ég
átti Óskarinn skilinn í öll
skiptin,“ sagði hún.
Page er einkum þekkt fyr-ir
sviðsleik en hún sló fyrst í gegn á
Broadway árið 1952 þar sem hún
leikur enn. Að þessu sinni átti
Argentínskt uppgjör
Að þessu sinni voru tveimur
mönnum veitt heiðursverðlaun
án útnefningar. Annar þeirra var
leikarinn góðkunni, Paul New-
man, sem hefur 6 sinnum verið
kallaður til Óskars en aldrei út-
valinn. Honum var veitt viður-
kenning fyrir leik sinn í mörgum
minnisstæðum hlutverkum. Hin
heiðursverðlaunin hlaut Alex
North, tónskáld sem hefur 15
sinnum verið útnefndur til Ósk-
arsverðlauna fyrir kvikmynda-
tónlist sína en aldrei hlotið styttu.
Það var Lionel Ritchie sem
hlaut tónlistaróskarinn í ár fyrir
lag sitt „Say you, say me" sem
hann samdi og söng sjálfur í
myndinni Hvítar nætur. Þá má
geta þess að kvikmyndin Vitnið
sem sýnd var hér í fyrra við mikla
aðsókn hlaut tvenn verðlaun,
fyrir besta frumsamda handritið
og fyrir klippingu.
Að vanda voru veitt verðlaun
fyrir bestu erlendu kvikmyndina
og hlaut þau argentínska myndin
Opinber útgáfa eftir Luis Pu-
enzo. Sú mynd er hluti af því
uppgjöri sem nú fer fram í Arg-
entínu eftir uppgjöf herforingja-
stjórnarinnar. Myndin fjallar um
móður sem uppgötvar að uppeld-
isdóttir hennar á vingott við
spilltan herforingja sem heldur
henni uppi. Puenzo sagði við
blaðamenn eftir afhendinguna:
„Við munum aldrei gleyma þess-
ari martröð, en nú er okkur farið
að dreyma betur."
Einn norðurlandabúi komst á
verðlaunapall í Los Angeles á
mánudagskvöldið. Daninn Borge
Ring hlaut Óskar fyrir bestu
teiknimynd ársins en hún heitir
Anna og Bella og er sjö mínútur
að lengd. Ring er 65 ára og hefur
undanfarin 35 ár starfað í Hol-
landi. Hann vinnur mest fyrir
aðra en Anna og Bella er önnur
sjálfstæða myndin hans, hin var
líka útnefnd til Óskarsverðlauna.
—ÞH/reuter
Eddie Harris Trio
Bassinn álti leikinn
Af hljómleikum Eddie Harris Trio í
Broadway 17. mars sl.:
Tríó Eddies Harris erekki
viö einafjölinafelltí
djassinum. Þeirfélagarspila
gamlan djass og nýjan djass,
blúsog sýnajafnvel ásér
rokktakta-sérstaklega
bassaleikarinn Ralph
Armstrong, sem er hreint
frábær. Mér datt í hug, þegar
hann var í hvað mestu
stuðinu, að þarna væri leikur
áborðifyrir
þungarokkshljómsveitar-
stjóra að hleypa nýju blóði í
sitt músikform
með þvi að reka
gítarleikarann og fá einhvern
á borð við Ralph Armstrong til
að sjá um bæði
þungamiðjunaog
framlínuna.En kraftakarlar
eða -kerlingar á borð við hann
eru víst ekki á hverju strái.
Eddie Harris er reyndar aðal-
nafnið í tríóinu, en virðist ekki á
neinu stjörnuflippi og munu fáir
sólóistar gefa meðleikurum sín-
um jafnmikið rúm til sólóleiks og
hann. Eddie er fjölþreifinn til
hljóðfæra af ýmsum gerðum og
lék í Broadway á saxófón, trom-
pet og píanó og söng alveg skolli
vel og brá röddinni m.a. í hljóð-
færalíki og hermdi eftir frægum
sólóum Charlies Parker og Dissi-
es Gillespie. Saxófónninn hljóm-
ar ákaflega mjúklega og fallega í
munni og höndum Eddies Harris
og hann er mikill hljómamaður í
allri sinni spilamennsku, sem ger-
ir hann mjög áheyrilegan, jafnt
djassistum sem rokkurum sem
hlaupa út undan sér á eitt og eitt
dj assframhj áhald.
Eddie Harris Trio er mjög vel
samspilandi og jafnréttissinnað
eins og áður segir, og enda þótt
það teljist ekki frumleg hljóm-
sveit er það með sinn sérstaka
stíl, og ekki sakar léttur húmor
stjórnandans, sem m.a. má lýsa
með því að hann ákvað að snúa
píanóinu þannig að hann horfði í
vegg og enginn sæi framaní hann,
því að hann gat ekki gert það upp
við sig hver af hinum þrem áhorf-
enda.,stúkum“ skyldi fá að njóta
ásýndar sinnar. En hvort sem
fólk nú horfði á bakhluta eða
vanga Eddies Harris er óhætt að
fullyrða að engum hefur leiðst,
síst af öllum þeim sem kunna að
meta gott samspil og þekkja mun
á góðum bassaleik og frábærum.
Djassvakning veit greinilega
hvað hún syngur - og hverja hún
á að fá til að syngja með.
A
Fimmtudagur 27. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15