Þjóðviljinn - 13.04.1986, Síða 3
Heilsufar
Slökunarsnœlda
komln á
Sálfræðistöðin sf. hefurgefið
útsnældu með leiðbeiningum
um slökun og fylgir henni
Eiti <xt''göfugustu mtkilmcnnum
hoims myrt á mcstu örlagatímum
mannkynsins
Tímaritið Réttur
70.
árgangur
hafinn
Tímaritið Réttur 1. hefti 1986 er
komið út og með því hefurganga
ritsins staðið í 70 ár. Það verður
geymt til 3. tölublaös að minnast
afmælisins en í þessu hefti er
burðargreinin eftir Öddu Báru
Sigfúsdóttur og fjallar um síðustu
fjögur ár í borgarstjórn
Reykjavíkur.
Af öðru efni ritsins má nefna
hugleiðingar ritstjórans, Einars
Olgeirssonar, við andlát Olof
Palme, smásögu eftir Pétur
Hraunfjörð um ýmislegt sem
gerðist á árum stúdent-
auppreisnarinnar 1968-9, birt er
útvarpserindi Brynjólfs Bjarna-
sonar frá því í desember sl. en
það nefnist Eyðileggjum kjarn-
orkuvopnin, rifjaðar upp tvær
svipmyndir úr sögu Dagsbrúnar í
tilefni af 80 ára afmæli félagsins
fyrir skömmu og sagt frá útgáfu
Alþýðublaðsins gamla sem hófst
árið 1906.
Einnig er í ritinu frásögn af
Bjöggu gömlu, alþýðukonu úr
Bolungarvík sem lést fyrir 40
árum, eftir Ágúst Vigfússon.
Minnst er Jóns Helgasonar próf-
essors og birt ljóð eftir suðuram-
erísku skáldin Ernesto Cardenal
og Roberto Fernandez Retamar í
þýðingu Ingibjargar Haralds-
dóttur.
markað
bæklingur þar sem þeir sem
sjálfir vilja læra slökun sem
aðferð gegn streitu geta sótt sér
fróðleik.
í frétt frá Sálfræðistöðinni
segir ma. að vöðvaslökun sé
þrautreynd aðferð til að vinna
bug á óróleika og streitu. „Streita
getur ma. valdið svefnleysi og
gert fólki erfitt fyrir að einbeita
sér í starfi — sem utan. Allir vita
að það er erfitt, ef ekki ógerlegt,
að vinna gegn streitu með því að
„taka sig á“. En það er fyllilega
hægt að ná valdi á þeim hluta
taugakerfisins sem lýtur stjórn
viljans. Það er hægt að læra að
dansa, hjóla og synda. Á sama
hátt þarf að læra að slaka mark-
visst á öxlum, magavöðvum
osfrv.
Sé slakað á þeim vöðvum sem
viljinn stjórnar, fylgja þau við-
brögð á eftir sem viljinn ræður
ekki yfir. Hjartsláttur hægist og
sviti minnkar, höfuðverkur lagast
eða hverfur osfrv. Sú ró sem
kernur yfir hugann við slökun
vinnurgegn kvíða. Eflíkaminner
afslappaður er nær ómögulegt að
vera andlega órólegur," segir í
fréttinni.
Slökunarsnældan verður seld í
hljómplötu- og bókaverslunum
unt allt land.
■ Fyrir uþb. 20 árum hugðust
menn auðga lífið í Viktoríuvatni í
Afríku og slepptu þar svonefnd-
um Nilaraborra sem getur orðið
allt að tveim metrum að lengd. Sá
hængur er á þessum mikla fiski að
hann er gráðugur og étur ein-
göngu fisk. Á sumum svæðum
hefur hann étið allt að 80% ann-
arra fisktegunda.
■ Bankarán eru víða mikið
vandamál og ómældu hugviti var-
ið í að koma í veg fyrir þau. Nú
hefur verið fundið upp lítið tæki
sem gjaldkerar geta laumað í
poka ræningjans ásamt pening-
unum. Þegar ræninginn fer út um
dyr bankans gefur tæki þetta frá
sér ýmist vonda lykt, lit eða tára-
gas.
■ Leysigeislinn leggur undir sig æ
fleiri svið hagnýtra vísinda. Nú er
röðin komin að tannviðgerðum
en í Leníngrad í Sovétríkjunum
eru læknar farnir að beita leysi-
geislum við lækningu á tannkýl-
um og öðrum meinsemdum í
munnholinu.
Á þessum tíma fyllast tónlistarhallir
Vtnarborgar af perlum listasögunnar.
Óperur á borð við Tannhauser, La Gioconda
og Manon Lescaut, margir ballettar og
stórhl|ómsveitir undir stjórn frægra
hljómsveitarstjofa.
Nær hálfnuð er saga . . .
Þú getur gengið um sögusvið miðalda í
þessari töfrandi borg, sótt fjölda leiksýn-
inga, notið veitinga- og kaffihúsa heims-
borgarinnar, teygað eðalvfn meðvfnbænd-
um Grinzing, trallað með jassgeggjurum og
verslað fyrir verð sem kemur þér þægilega
á óvart.
Spennandl skoðunarferðlr um Austurrfkl,
Ungverjaland og Tékkóslóvakfu.
Frá Vfnarborg gefst þér tækifæri til að
heimsækja og skoða fjölda heillandi staða.
Litið er inn í hús meistara Haydn í dagsferð
til Burgenland og Rohrau. Siglt á Dóná í
dagsferð til Wachau. í 2ja daga ferðum gefst
tækifæri til að sjá hinar einstæðu borgir
Salzburg, Budapest og Prag.
Hafðu samband við Faranda og fáðu nánari
upplýsingar. Við útvegum aðgöngumiða á
listviðburðina.
Iffavandi
Vesturgötu 5, sfmi 17445
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS FIMMTUDAGSTÓNLEIKAR
17. APRÍL KL. 20.30 í HÁSKÓLABÍÓI
Stjórnandi: Páll P. Pálsson Páll P. Pálsson: HENDUR fyrir strengjasveit
Einsöngvari: Ellen Lang, sópran Mozart: Aríur úr BRÚÐKAUPI FIGAROS
Beethoven: AH PERFIDO
Síbelius: SÖNGLÖG og SINFÓNÍA nr. 5 í Es-dúr
Tónlistarfélagið laugardaginn 19. apríl kl. 14.30 í Austurbæjarbíói
Tónleikar: ELLEN LANG, sópran WILLIAM LEWIS, píanó
Miðasala í bókaverslunum Eymundssonar og Lárusar Blöndal og í ístóni og við innganginn.