Þjóðviljinn - 13.04.1986, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 13.04.1986, Blaðsíða 5
 ibúöir Frœðsla Námskeið og fundir um kynhlutverk og sjálfskennd Tveir svíar koma hingað til lands og frœða íslendinga um breytta stöðu karlmannsins með meiru í lok þessa mánaðar, dagana 25.-30. apríl, verða staddir hér á landi tveir svíar, þau Barbro Lennéer-Axeison sál- fræðingurog Hans Nestius formaðursænska Kynfræðif- élagsins, RFSU. Haldaþau tvö námskeið hér á vegum fræðslu- og ráðgjafarþjónust- unnar T engsla hf. og einn fræðslufund á vegum T engs- laog Kynfræðifélags íslands. Fræðslufundurinn verður hald- inn að Hótel Esju mánudags- kvöldið 25. þm. kl. 20 og fjallar hann um breytta stöðu karl- mannsins í einkalífi og atvinnu- lífi. Verður þar fjallað um mótun karlmannshlutverksins, tak- markanir og ágæti hins hefð- bundna hlutverks, klámiðnað- inn, tilfinningar karla, viðhorf þeirra til kvenna og loks um „nýja karlmanninn“. Þátttöku- gjald er kr. 400 fyrir félagsmenn Kynfræðifélagsins en 600 kr. fyrir aðra. Fyrra námskeiðið verður hald- ið að Hótel Esju mánudaginn 28. og þriðjudaginn 29. þm. frá kl. 9-16 báða dagana. Þar verður fjallað um fjölskylduvernd, hjón- abandið og framtíðina; ný við- horf og nýjar lausnir. Væntingar og vonbrigði fólks í nánum sam- böndum, ástin, hversdagsleikinn og kynlífið verða viðfangsefni námskeiðsins. Þátttökugjald er kr. 2.200. Seinna námskeiðið verður haldið í Risinu, Hverfisgötu 105, miðvikudaginn 30. apríl kl. 9-16. Það nefnist fagleg vinnubrögð, starfshlutverk og einkalíf og fjall- ar Barbro Lennéer-Axelson þar um gildi fagþekkingar, gæðakröf- ur og sjálfskennd í starfi ásamt ýmsum erfiðleikum sem fagfólk á við að glíma á vinnustað. Nám- skeiðsgjald er kr. 1.800. Skráning þátttakenda á fund- inn og námskeiðin fer fram í síma 25770 kl. 17-19 dagana 14.-16. apríl. —ÞH ^Bauknecht ísskápur, hellur, vaskur og skápur fyrir 25.208 (stgr.) SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 SÍMAR 681910-681266 Lina Húsverkin eru erfiður baggi (könnun á viðhorfum giftra kvenna á aldirnum 26-83 ára sem nýlega var gerð í Kína kom í Ijós að þær voru lang- flestar ánægðar með batn- andi lífskjörog bjartsýnará framtíðfjölskyldunnar. En þærhöfðu líkaýmsaróskir fram að færa. Þrjár konur af hverjum fjórum höfðu menntun yfir meðallagi en lágar tekjur. 59% kvennanna óskuðu eftir launahækkun. Lang- ar ferðir úr og í vinnu voru al- gengt umkvörtunarefni enda þurftu 33% kvennanna að eyða 2-3 stundum á dag í slíkar ferðir og 31% 1-2 stundum á dag. 63% kvennanna sögðust vilja fá stærri íbúð, 61% meiri menntun og helmingur kvennanna kvartaði yfir því að húsverkin væru erfiður baggi. Þriðjungur kvennanna eyddi 4- 5 stundum á dag í heimilisverkin en ívið fleiri eða 35,7% eyddi 2-3 stundum í þau. Það undrar því engan að stór hluti kvennanna sagðist eyða frístundum sínum í að „fá sér væran blund“ og 38% sögðust vilja komast burt í frí. SEÐLABANKIISLANDS Sölustaðir: bankar, sparisjóðir og helstu myntsalar. Árið 1886 voru í fyrsta skipti gefnir út peningaseðlar hér á landi. í tilefni af hundrað ára afmæli seðlaútgáfunnar hefur Seðlabankinn látið gera sérstaka 500 króna silfurmynt í takmörkuðu upplagi. Á framhlið myntarinnar er mynd íjallkonunnar, en Qallkonu- mynd var á bakhlið 50 kr. seðils 1886 og oft síðan á íslenskum seðlum. Á bakhlið er mynd af áraskipi undir seglum af gerð sem var algeng fyrir hundrað árum. Ágóði af sölu minnispenings þessa rennur til Þjóðhátíðarsjóðs, sem var stofnaður 1974 og veitir árlega styrki til varðveislu íslenskra menningarminja. Hámarksupplag er 20.000 eintök. Þar af eru allt að 5000 peningar sérunnir úr 925/1000 silfri og allt að 15.000 peningar í venjulegri sláttu úr 500/1000 silfri. Söluverð er kr. 1250 fyrir sérunninn pening í vandaðri gjafaöskju, en kr. 780 fyrir venjulega sláttu í öskju. VERÐMÆT EIGN VEGLEG GJÖF - GRIPUR MEÐ SÖFNUNARGILDI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.