Þjóðviljinn - 13.04.1986, Page 6
Borgarmál
Sigurjón Pétursson íviðtali við Þjóðviljann:
Valdatíðborgarstjórnarmeirihlutans
einkennistaf flokksrœði og valdníðslu.
Gœðingum hyglað leynt og Ijóst.
Alþýðubandalagið á tvímœlalaust
sóknarmöguleika íborginni
Sigurjón Pétursson hefur verið
oddviti Alþýðbandalagsins í
Reykjavík í 16 ár og hefur verið
valinn til forystu enn eitt kjörtím-
abilið. Hann hafnaði í fyrsta sæti í
forvali Alþýðubandalagsins ekki
alls fyrir löngu og verður væntan-
lega í forystu fyrir borgarfulltrú-
um flokksins á næsta kjörtíma-
bili.
„Ég er fæddur á Sauðárkróki
árið 1937. Foreldrar mínir voru
Pétur Laxdal trésmiður og Ingi-
björg Ögmundsdóttir verka-
kona,“ segir Sigurjón þegar blað-
amaður hefur komið sér fyrir á
heimili hans og spurt um stað-
reyndir varðandi uppruna borg-
arfulltrúans. En Sigurjón stopp-
aði ekki lengi við í fæðingarbæn-
um. Þegar hann var orðinn átta
ára gamall flutti fjölskyldan til
Siglufjarðar eins og margir aðrir
á þeim tíma þegar síldin fyllti alla
firði. Þar var mikið byggt á þess-
um tíma og næg atvinna fyrir tré-
smiði sem aðra. Þessir uppgangs-
tímar vöruðu þó ekki að eilífu og
16 ára gamall fluttist Sigurjón til
Reykjavíkur þar sem hann hefur
búið síðan.En hvað hefur hann
þá verið að fást við?
Mikið í pólitík
„Ég hafði gengið í barnaskóla á
Siglufirði og skömmu eftir að ég
kom hingað til Reykjavíkur hóf
égnám ílðnskólanum, í trésmíði,
og vann jafnframt við húsasmíðar
hjá föður mínum. A námsárun-
um hóf ég fyrst afskipti af pólitík
og verkalýðsmálum, var ritari og
síðar formaður Iðnnemasam-
bandsins og þegar ég lauk tré-
smíðanáminu árið 1952 hélt þetta
áfram í Trésmiðafélagi Reykja-
víkur. Þar sat í stjórn í nokkur ár,
lengst af sem varaformaður, og
starfaði mikið að þessum málum.
Á sama tíma var ég í Æskulýðs-
fylkingunni og í Sósíalistaflokkn-
jum, og það má segja að öll mín
vera hér í höfuðborginni hafi ein-
kennst af pólitísku starfi“, segir
Sigurjón.
En svo komstu inn í borgar-
stjórn árið 1970. Hvernig bar það
að?
„Já, það er nú ekki einu sinni
víst að ég viti hvers vegna ég fór
þarna inn í upphafi. En þetta var
nú þannig að þeir borgarfulltrúar
sem þá voru fyrir Alþýðubanda-
lagið, þeir voru þá þrír, ákváðu
að hætta allir í einu. í þá tíð rað-
aði uppstillingarnefnd á lista
flokksins og ég var beðinn að
taka efsta sæti á listanum, sem ég
gerði, og Adda Bára Sigfúsdóttir
tók annað sætið. Síðan höfum við
starfað að þessum málum óslitið
og að mínu mati haft mjög góða
samvinnu, enda er Adda Bára
minn kærasti samstarfsmaður í
gegnum tíðina, að öllum öðrum
ólöstuðum.“
Róstursamt
„Við komumst bæði inn í borg-
arstjórn í þessum kosningum árið
1970, en það er ekki hægt að
segja að það hafi horft byrlega
fyrir Alþýðubandalaginu á þess-
um tíma. Það höfðu orðið miklar
sviptingar í vinstri hreyfingunni
skömmu áður og buðu fram tvær
vinstri fylkingar auk Alþýðu-
bandalagsins, bæði hægra og
vinstra megin við það, svo at-
kvæðin dreifðust talsvert á þeim
vængnum. Er. það hafðist að ná
tveimur alþýðubandalagsmönn-
um inn.
í næstu kosningum þar á eftir
fengum við fleiri atkvæði en áður
og bættum þriðja fulltrúanum
við. Það verður ekki annað sagt
en að þarna höfum við lifað upp-
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. apríl 1986