Þjóðviljinn - 13.04.1986, Blaðsíða 18
Nr. 512
KROSSGÁTA
T ~ 3 7 ? é> 7- T~ V 7 /D T~
// 12 /3 Jf T 10 17 iT V 3 Ji>~ 12 8 V U
)7~ 5? <7 /i 10 s? W 17 5 20 7 S" 17 22 21
3 10 )G 22 9 23 /3 W s /7 2? 18 17
8 23 ?r J3 12 )2 $? /é )3 J7 2? u 27 6~
r n 17- íT V /«Á S 9 3 V 17 I/ 23 13 52
3 J3 22 9 JO 3 23 6~ 1 2& >2 52 w~ u
2? /3 3 23 13 S? sr # >7 r 27 13 17 22 27
XX 22 33 29 (? é’ 7- 5? )2 6 é 6“ 7 £T
3 í>~ (o V IV 9 £T J2 iT 17 5? ,zK % T
3 V Jh 2 1(? íT V fi /Ý 22 T~ 7 3 S'
s? 7- zo /3 7- jT S? $( 17 Zj 7 V 17 5 17
T JÝ V )7 2é> H 2? h 17 /3 c? 22
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
SKÁK
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá þekkt
örnefni á Suðurlandi. Sendið þetta nafn sem lausn á
krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt:
„Krossgáta nr. 512“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin
verða send til vinningshafa
9 !(? 2io 17 22 IS 13 27 13
Stafirnir mynda íslenskt orö eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
stafjykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Verðlaunin fyrir krossgátu nr.
509 hlýtur Jóhann Sigurðs-
son, Grundargötu 10, 580
Siglufirði, en þau eru skáld-
sagan Göngin eftir argen-
tínska skáldið Ernesto Sabato
sem Forlagið gefur út.
Lausnarorðið var Guðbjörn.
Verðlaunin fyrir krossgátu nr.
512 eru skáldsagan Hörkutól
stíga ekki dans eftir banda-
ríska rithöfundinn Norman
Mailer. Árni Ibsen þýðir en
bókaútgáfan Nótt gefur út.
BRIDGE
Af íslandsþingi
Um páskana var Skákþing ís-
lands haldið að venju. Að vísu var
keppni í Landsliðsflokki frestað
þar til í haust og er það miður því
fyrir bragðið verður íslandsmót-
ið svipminna.
í áskorendaflokki kepptu 35
skákmenn og varð Jón Garðar
Viðarsson hlutskarpastur með 7
vinninga af9mögulegum. Jafnirí
öðru sæti urðu Þorvaldur Loga-
son og Hjalti Bjarnason með 6V2
vinning. Þarna kepptu margir
sterkir skákmenn, flestir ungir að
árum. Er það að mörgu leyti mið-
ur hvað hinir eldri skákmenn letj-
ast á að tefla á mótum nú hin
síðari ár. Sömuleiðis saknaði
maður utanbæjarmanna en þeir
voru með alfæsta móti að þessu
sinni.
Sigurvegarinn, Jón Garðar, er
frá Akureyri og enn ungur að
árum þótt hann hafi á þessu móti
tilheyrt „eldri deildinni". Hann
teflir traust og vandað, ekki um
of á tvísýnu en kann vel að gera
sérmatúrlitlu. Skákirhans verða
oft langar en það er svo sem eng-
inn skaði því það skiptir meiru
hver verkið vann heldur en hvað
hann var lengi að því.
í sjöundu umferð glímdi Jón
Garðar við Pál Þórhallsson og
varð það í rauninni úrslitaskákin í
mótinu því eftir sigur á henni
dugðu Jóní Garðari tvö jafntefli
til að ná efsta sætinu. Skákin er í
lengra lagi og því best að vinda
sér strax í að skoða hana.
Hvítt: Páll Þórhallsson.
Svart: Jón Garðar Viðarsson.
1. d4 - d5
2. c4 - eó
3. Rc3 - c5
4. e3 - Rf6
5. Rf3 - cxd4
6. exd4 - Be7
7. Bg5 - 0-0
8. Bd3 - dxc4
Staka miðborðspeði verður til.
9. Bxe4 - a6
10. 0-0 Rc6
11. Hcl - b5
12. Bd3 - Bb7
13. Hel - Rb4
14. Bbl - Rb-d5
15. Re5 - Hc8
16. Dd3 - g6
17. Dh3 - Rxc3
18. bxc3 - Bd5
Staðan er að festast í ákveðinni
mynd. Hvítur hefur tekið á sig peða-
veikingar á drottningarvæng, stakt
peð á a2 og bakstætt á c3. Það vantar
ekkert nema tvípeð einhvers staðar
hjá honum til að fullkomna myndina.
Svartur sækir í framhaldinu að veiku
peðunum en á meðan ætlar hvítur sér
hins vegar að máta svart. Spennandi
barátta er í uppsiglingu.
19. Dh4 - Hc7
JÓ*N
TORFASON
Góður leikur. Svartur þarf að skipta
upp mönnum til að draga úr sóknar-
þunga hvíts. Hann valdar biskupinn
og býður því næst kaup. Hrókurinn
valdar líka sjöundu reitarstöðina og
er það mikilvægt síðar meir
20. He3 - Rh5
21. f4 - Bxg5
Eftir 21. ... fó kæmi 22. Rxg6 og hvít-
ur fengi þunga sókn.
22. fxg5 - h6
Svartur verður að losa sig því annars
kemur einfaldlega g2-g4 og Hh3 og
hvítur vinnur. Hvítur er nánast þving-
aður til að fórna á g6.
23. Bxg6 - ...
Eftir 23. Rxg6 fxg6 24. Bxg6 Rf4 25.
Dxh6 Hg7 snýst taflið svarti í hag.
23. ... - fxg6
24. Rxg6 - Dxg5
25. Dxg5 - hxg5
26. Rxf8 - Kxf8
Riddari og biskup eru um það bil jafn
mikils virði og hrókur og peð svo liðs-
afli má tefljast jafn. Svartur stendur
þó betur því menn hans ná að vinna
saman en hvítur á í erfiðleikum með
veiku peðin sín. Hann reynir nú að
fækka þeim.
27. He5 - Hg7
28. a4 - Rf6
Líklega var 28... Rf4 snarpara.
29. axb5 - axb5
Þá er einu veiku peði færra.
30. Hbl - Bc4
31. Hal - Rd7
32. Ha8+ - Ke7
33. He3 - Hf7
34. h3 - Hfl +
35. Kh2 - HI2
36. Hg8 - Kf6
37. Hg3 - Hf5
Hvítur á ekki hægt um vik. Riddarinn
getur farið til d5 og sett á c3-peðið, en
annar möguleiki er að fara til f4 og
leika biskup til d5 og angra g2-peðið.
Hvítur skiptir nú upp á enn einu peð-
inu.
38. h4 - gxh4 43. Hxh4 - Kg5
39. H3-g6+ - Ke7 44. Hh3 - Rb6
40. H6-g7+ - Hf7 45. Kgl - Rd5
41. Hxf7 - Kxf7 46. Kf2 - Kg4
42. Hh8 - Kg6 47. Hg3+ - Kf5
Ef til vill var reynandi að leika 47. Hf3
til aö halda svarta kónginum frá mið-
borðinu.
48. Hf3+ - Ke4
49. Kel - ...
Betra var 49. g4 því þá verður svartur
fyrst að sækja g-peðið (Re7 eða Rf4)
og raunar er óvíst hvort hann getur
unnið þá stöðu. Nú koma upp merki-
leg tafílok.
49. ... - Rf4 51. Kf2 - Kf5
50. Hg3 - Bd5 52- Hg8 - ...
52. ... - Bxg2
Ef hvítur drepur á g2 vinnur svartur
peðsendataflið því kóngur hans er
nær peðunum en sá hvíti.
53. Kg3 - Bd5 57. Ke3 - b4
54. Hf8+ - Ke4 58. Ke2 - b3
55. Hxf4+ - Kd3 59. Hf8 - b2
56. Kf2 - Kxc3
Hvítur gafst upp. Svarta frípeðið
rennur upp í borð og kostar hrókinn
og er þá eftirleikurinn auðveldur.
Það var sama hvað hvítur tók til
bragðs í lokin. Svartur ber biskupinn
fyrir hróksskákir frá áttundu reita-
röðinni og ef hvítur skákar í borðinu
veður peðið áfram með leikvinningi.
Hvíti kóngurinn kemst heldur aldrei
fram fyrir peðið.
Landsliðin valin
Bridgesamband íslands hefur valið
landslið íslands 1986. Eru þau skipuð
eftirtöldum spilurum: I opnum flokki
sem spilar á Norðurlandamótinu í
Noregi: Jón Baldursson, Sigurður
Sverrisson. Þorlákur Jónsson og Þór-
arinn Sigþórsson.
I kvennaflokki, sem einnig spilar í
Norðurlandamóti kvenna í Noregi:
Esther Jakobsdóttir, Valgerður
Kristjónsdóttir, Dísa Pétursdóttir og
Soffía Guðmundsdóttir. Þær Dísa og
Soffía eru frá Akureyri.
I yngri flokki, sem keppir á Evr-
ópumóti yngri landsliða í Ungverja-
landi: Karl Logason, Svavar Björns-
son, Jakob Kristinsson og Júlíus Sig-
urjónsson. Auk þeirra mun Ragnar
Magnússon taka sæti í liðinu.
Fyrirliði í Noregi verður Björn
Theodórsson og fyrirliði í Ungverja-
landi verður Ólafur Lárusson.
ÓLAFUR
lArusson
Frá Bridge-
sambandi íslands
Undanrásir íslandsmótsins í tví-
menningskeppni verða spilaðar um
næstu helgi (12.-13. apríl) í Gerðu-
bergi í Breiðholti. Spiíamennska
hefst kl. 13 og vcrða spilaðar tvær
lotur á laugardeginum. Þriðja lotan
hefst svo kl. 13 á sunnudegi og lýkur
spilamennsku um kl. 18 þann dag.
Þegar þetta er skrifað, voru yfir 120
pör (240 manns) skráð til þátttöku.
sem er algjör metþátttaka á íslandi í
einni keppni. Spilað verður eftir
Mitchell-tvímenningsfyrirkomulagi,
28 spil í hverri lotu, alís 84 spil í und-
anrásum. 24 efstu pörin öðlast síðan
rétt til þátttöku í úrslitakeppninni,
sem verður spiluð á Loftleiðum um
helgina 26.-27 apríl.
Frá Bridgedeild
Skagfirðinga Rvk:
Úrslit í eins kvölds tvímennings-
keppni sl. þriðjudag urðu:
NIS:
Matthías Þorvaldsson -
Kristján Ólafsson
Ragnar Björnsson -
Sœvin Bjarnason
Magnús Sverrisson -
Guðlaugur Sveinsson
Guðrún Hinriksdóttir -
Haukur Hannesson
stig
411
347
326
325
AIV:
Friðjón Margeirsson -
Ingimundur Guðmundssson 384
Jón Þorvarðarson -
Þórir Sigursteinsson 367
Björn Árnason -
Daníel Jónsson 345
Árni Alexandersson -
HjálmarS. Pálsson 332
A þriðjudaginn verður framhaldið
eins kvölds tvímenningskeppnum.
Öllu spilaáhugafólki velkomin þátt-
taka. Spilað er í Drangey v/ Síðumúla
35 og hefst spilamennska kl. 19.30.
Frá Bridgefélagi
Táknafjarðar
Úrslit í páskatvímenning félagsins
urðu sem hér segir (spilað á 7 borð-
um); Stig
1. Guðmundur S. Guðmunds. -
Ólafur Magnússon 177
2-3. Agúst Pélursson -
lngveldur Magnúsdóltir Patrfj 169
2-3. Ólöf Ólafsdóttir -
Björn Sveinsson 169
4. Þórður Reimarsson -
ÆvarJónasson 165
5. Geir Viggósson -
Símon Viggósson 164
Nýlokið er tveggja kvölda Butler-
tvímenningskeppni. Úrslit urðu þar
(spilað á 5 borðum):
stig
1. Guðlaug Friðriksdóttir —
Steinberg Ríkharðsson 46
2. Guðmundur S. Guðmundsson -
Ólafur Magnússon 32,
3. Þórður Reimarsson -
ÆvarJónasson 8
Frá Barðstendinga-
félaginu í Reykjavík
Mánudaginn 7. apríl lauk 5 kvölda
Barómeterkeppni félagsins (30 pör)
Sigurvegarar urðu Sigurbjörn Ár-
mannsson og Helgi Einarsson með
480 stig.
Staða efstu para:
Stig
1. Sigurbjörn Ármannsson -
Helgi Einarsson 480
2. Þórarinn Arnason -
Ragnar Björnsson 273
3. Edda Thorlacíus -
Sigurður ísaksson 213
4. Jónína Halldórsdóltir -
Hannes Ingibergsson 211
5. Friðjón Margeirsson -
Valdimar Sveinsson 171
6. Jónas Jóhannsson -
Guðmann Hauksson 106
7. Gunnlaugur Þorsteinsson -
Hermann Ólafsson 78
8. Þorsteinn Þorsteinsson -
Sveinbjörn Axelsson 74
18 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. apríl 1986