Þjóðviljinn - 13.04.1986, Side 20
Tœkniundur
Nýmóðins
kúabjalla
Franskt tœki gefur frá
sér hljóðmerki þegar
kýr erkomin að burði
hvort tækið fer ekki í gang þegar
aðrar og hversdagslegri þarfir
segja til sín hjá kúnum.
Eins og þegar börn koma í
heiminn getur þaö veriö erfiö-
leikum bundið fyrir kýr aö
fjölga kyni sínu. Það er því
nauðsynlegt aö einhver
mannvera sé nærstödd til aö-
stoðar ef burður gengur illa.
Nú hefur franskt fyrirtæki sett
á markað nýja tegund kúabjöllu
sem ætti að fækka vökunóttum
bænda vegna kúa sem eru að
burði komnar. Þetta tæki nefnist
Vel-Appel og er sett á malirnar
eins og myndin sýnir nokkrum
dögum áður en kýrin á að bera.
Þegar að burði kemur lyftir kýrin
hala sínum eins og vera ber og
setur þá af stað hljóðmerki sem
heyrist í litlu móttökutæki sem
bóndinn getur haft í vasa sínum
eða á náttborðinu. Dregur hljóð-
merkíð einn kílómetra.
í heimild okkar, breska blað-
inu Observer, segir að tækið kosti
tæpar 20 þúsund krónur í Bret-
landi. Þar er hins vegar ekki svar-
að þeirri brennandi spurningu
Lœkningaráð
Lost-
bylgjur
eyða
krabbameini
Orkuríkar hljóðbylgjur
eru notaðartil að brjóta
nýrnasteina og eyða
krabba
Orkuríkar hljóöbylgjur hafa
verið notaöar til aö sundra og
pyða nýrnasteinum, en
bandarískir læknar telja nú
einnig mögulegt að nota
þessa aöferö til að hefta og
útrýma krabbameini.
Aðferðin byggir á sérstökum
búnaði, sem vestur-þýskir læknar
fundu upp og kallast lithotriper.
Sjúklingurinn situr þá í sérstöku
vatnsbaði og gegnum vatnið eru
sendar orkuríkar hljóðbylgjur,
lostbylgjur, sem beinast að nýr-
unum og mola nýrnasteinana. En
Williar Falk, yfirmaður þvagfær-
aþjónustunnar í Sloan-Klettering
krabbarannsóknastöðinni í New
York, hefur sýnt fram á að sama
aðferð dugar býsna vel til að
vinna á krabbameinsfrumum.
Hann hefur gert tilraunir með
krabbameinsfrumur sem eru
ræktaðar í tilraunaglösum og
staðfest að lostbylgjurnar eyða
þeim. í dýrum sem hafa krabb-
amein stöðva eða hægja lost-
bylgjurnar einnig vöxt krabba-
frumanna.
Fyrrnefndur Falk telur of
snemmt að segja hvort aðferðin
muni duga á mannfólkið líka.
Ekki er vitað afhverju krabb-
afrumurnar eru næmar fyrir lost-
bylgjunum, en ekki heilbrigðu
frumurnar. En læknirinn hefur
hins vegar fundið að tvö af þeim
stigum sem krabbafrumurnar
ganga í gegnum eru sérlega við-
kvæm fyrir lostbylgjunum.
Hægt er að beina bylgjunum að
sérstökum stöðum líkamans, sem
gerir þær enn eftirsóknarverðari
sem lækningamiðil, því þannig
má minnka líkur á aukaverkun-
um.
-ÖS
MGAR
ÞÚ KAUP1R
SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÖÐS
HAGNAST
Spariskírteini ríkissjóðs eru góð
fjárfesting og skila þér miklum
arði. Þú getur valið á milli þriggja
möguleika á ríkulegri ávöxtun spari-
fjár þíns, þú tekur enga áhættu og
ert tryggður gegn hvers konar spá-
kaupmennsku.
Gon ftiLK / SlA
Fleiri njóta góðs af en þú.
En það eru fleiri en þú sjálfur sem
hagnast á viðskiptunum. Afkomend-
ur þínir - æskufólkið sem erfa á
landið - nýtur einnig góðs af sparn-
aði þínum.
Tryggjum framtíð barna okkar.
Við þekkjum öll mikilvægi þess að
búa vel í haginn fyrir komandi kyn-
slóðir. Börnum okkar viljum við
tryggja velferð og sem áhyggju-
minnsta ævi. Okkur er að sjálfsögðu
bæði ljúft og skylt að stuðla að
þessu. Ein leiðin til þess er að kaupa
spariskírteini og halda með því
lánsfé og vöxtum innanlands; hefta
erlendar lántökur.
Með kaupum á spariskírteinum
ríkissjóðs leggur þú lóð á þessa vog-
arskál, sjálfum þér, börnum þínum
og barnabörnum til farsældar um
ókomin ár.
Sölustaðir spariskírteina
ríkissjóðs eru:
Seðlabanki íslands, viðskiptabank-
arnir, sparisjóðir, nokkrir verðbréfa-
salar og pósthús um land allt.
RIKISSJOÐUR ISLANDS