Þjóðviljinn - 05.06.1986, Page 17
GARÐAR OG GROÐUR
Hýjasintur
í garðinn
Stofugreni
í stofuna
- litið í garðinn hjá Braga í Eden
Eden í Hverageröi er ein
stærsta blómasalan á landinu
og þeir eru ófáir sem hafa
heimsótt Braga Einarsson í
Eden. En færri hafa séð garð-
inn hans heima við húsið rétt á
bakvið Eden. Við hittum Braga
á skrifstofunni í Eden til að
spjalla um iauka og sumar-
blóm og var hann svo vinsam-
legur að sýna okkur garðinn
sinn um leið og hann útskýrði
hvernig meðhöndla ætti iauka.
„Góður garðyrkjumaður hugs-
ar vel fram í tímann. Bráðum er
hægt að fara að hugsa um haust-
laukana og hvað á að setja niður
fyrir næsta vor. Hingað kemur
fólk strax í febrúar til að kaupa
plöntur í garðskálana og í ágúst
fáum við haustlaukana sem settir
eru niður í október. Sjálfur hef ég
sett niður mikið af laukum í minn
garð og hér er árangurinn," sagði
Bragi, þegar gengið var um garð-
inn. Ekki aðeins túlipanar í öllum
regnbogans litum prýða beðin,
heldur og myndarlegar hýasint-
ur, eins og maður er vanur að sj á í
jólaskreytingum á stofuborðum.
Hýasintur
af haustlaukum
„Það er enginn vandi að rækta
hýasintur úti í garði. Þær eru sett-
ar niður á haustin og menn þurfa
aðeins að gæta að því að þetta eru
ekki samskonar laukar og notaðir
eru þegar fá á upp blóm um jól.
Ég set þær niður í nóvember og
þær standa vel og lengi í fullum
blóma að vori,“ sagði Bragi.
í Eden er hægt að kaupa mik-
inn fjölda af sumarblómum, fræ-
um og laukum og hefur Bragi selt
þessar vörur í bráðum 20 ár. Við
báðum hann að nefna nokrar teg-
undir sem sóma sér vel í sólríkum
gluggum eða gróðurskálum.
Hann nefndi t.d. jukku sem dæmi
um plöntu sem vill mikla birtu, en
þarf lítið vatn. í svalakassa er
lobelian prýðileg og dalíur og
petúníur í beðin.
„Fólk verður þó að gæta þess
að herða þessar plöntur smátt og
smátt áður en þeim er plantað út.
Láta þær standa á daginn úti á
svölum. Það hægir að vísu á
blómgunarhraðanum, en í stað-
inn standa blómin lengur."
Að lokum spurðum við Braga
hver væri hans uppáhaldsplanta.
„Ég hef aldrei verið spurður að
þessu í þau 30 ár sem ég hef verið í
þessu, en ég held að það sé stof-
ugrenið. Ég fékk fyrstu plöntuna
frá Puerto Rico árið 1959 og nú er
hún orðin risatré hérna inni í
skálanum,“ segir Bragi og sýnir
okkur stórt, fallegt tré sem líkist
grenitré og nær upp undir þak,
þegar gengið er inn í veitingasa-
linn í Éden.
„Stofugrenið er eins og ískris-
tall, formfagurt og fallegt með
reglulegum línum. Við seljum
mikið af litlum plöntum og þær
eru til mikiilar prýði hvar sem
þær eru,“ sagði Bragi að lokum.
Bragi í garðinum sínum. Við sjáum túlipanana og hýjasinturnar í forgrunninum.
Eigum mikið úrval af garð- og inniljósum.
í útiljósunum er álblanda, þannig að
þau ryðga ekki.
RAFBÚÐIN
Auöbrekku 18 — Kópavogi simi 42120
Hjá okkur er gróörarstöðin fuli
af úrvalsplöntum, sem bíða
eftir að komast í garðinn þinn:
- Rósir
- Skrautrunnar
- Fjölærar plöntur
- Sumarblóm
- Matjurtir
- og aö sjálfsögðu dahlíur og petuniur
GRÓÐRAR-
STÖÐIN
GRÆNAHLÍÐ
Furðugerði 23
(v. Bústaðaveg)
Sími 34122