Þjóðviljinn - 05.06.1986, Blaðsíða 19
GARÐAR OG GRÓÐUR
GARÐAR OG GRÓÐUR
Magðalenuribsið er með sterkustu trjáplöntum sem hægt er að fá og laufgast snemma á vorin. Ljósm. E. Ól.
Skógræktarfélag Reykjavíkur
íslendingar
bráðlátir í
garðræktinni
- segir Ásgeir
Skógræktarfélag Reykjavík-
ur í Fossvoginum þekkja flest-
ir Reykvíkingar. Það er upphaf-
lega félag áhugamanna „sem
vilja vinna að trjárækt og skóg-
rækt í Reykjavík og nágrenni
og auka skilning á þeim mál-
um.“ Félagið veitir
leiðbeiningar og . rekur trjá-
ræktarstöð og plöntusölu í
Fossvoginum og er ársfram-
lelðslan um 400 þúsund
plöntur. Um 1300 manns eru
félagsmenn í Skógræktarfé-
laginu og fá þeir veglegt ársrit
og aðgang að ýmiss konar
fróðleik.
Ásgeir Svanbergsson, hæstráð-
andi til sjóðs og lands (og aðal-
lega lands) í plöntusölunni var
tekinn tali á dögunum og
leiðbeindi hann blaðamanni um
svæðið.
Mikill fjöldi fræa er sáð árlega
hjá Skógræktarfélaginu og í nýju,
mjög fullkomnu gróðurhúsi gát
að líta smáplöntur í þúsundatali í
litlum, svörtum bökkum.
„Þetta eru malaðir fiskikassar,
en við framleiðum þá í samvinnu
við Skógræktarfélag Eyfirðinga.
Eitt fræ fer í hvert box í kassan-
um,“ segir Ásgeir. Þarna er sjálf-
virkt vökvunarkerfi sem flýtir
mjög fyrir og einfaldar alla um-
hirðu.
Einnig er mikið ræktað frá
græðlingum og þegar við gengum
um svæðið var einmitt verið að
Ijúka við að ganga frá inni í litlu
gróðurhúsi á annað hundrað
græðlingum sem safnað var í
mikilli fræsöfnunarferð um Al-
aska í fyrra.
„Það er mikið af fallegum trjá-
tegundum sem ættaðar eru það-
an, og einnig frá Kína og Rúss-
landi. íslendingar eru bráðlátir í
garðræktinni eins og flestu öðru
og vilja fá allt strax.
Sannleikurinn er sá að það er
mjög mikið þolinmæðisverk að
koma upp fallegum garði, fólk
verður að reka sig á og læra af
mistökunum. Garðar eru sjaldn-
ast fallegir fyrstu árin, plönturnar
eru tíma að koma sér fyrir í mold-
inni og það dugir ekki að gefast
upp þótt þær séu ræfilslegar
fyrsta árið. Ég bendi fólki
gjarnan á sterkar og harðgerðar
tegundir eins og t.d. gaddarifs
eða magðalenurifs, sem ég held
næstum að gæti vaxið á Norður-
pólnum.
Okkar höfuðmarkmið er að
selja fólki ódýrar og harðgerar
trjáplöntur og við erum sífellt að
spreyta okkur á nýjum tegund-
um, sem við teljum að hafi góða
möguleika hér á landi.“
Lerki Péturs mikla
Ásgeir gengur með okkur að
stórum kassa, þar sem sérkenni-
legt fíngert lerki teygir sig upp í
sólina:
„Við erum að reyna hér eina
nýja tegund, þetta heitir mýrar-
lerki og er nánast ódrepandi, það
vex hægt en örugglega og á von-
andi eftir að skjóta hér víða ró-
tum í bókstaflegri merkingu.
Lerki er ákaflega fallegt tré, frá-
bær viður til smíða, enda lét Pét-
ur mikli rækta stóran lerkilund
skammt frá Leningrad til þess að
koma þar upp efniviði í möstur á
herskip.“
Við skoðum elsta hlutan af
skógræktinni, þar sem byrjað var
að rækta árið 1932. Árið 1946 var
félagið stofnað og á það því 40 ára
afmæli nú um svipað leyti og
borgin verður 200 ára:
„Við höldum upp á þessi af-
mæli með því að gefa borginni
falleg grenitré hér úr lundinum
og þau á að setja á svæðið við
Þjóðarbókhlöðuna. “
Eru ákveðnar trjátegundir
tískufyrirbæri? spyrjum við Ás-
geir, þegar við sjáum fólk rogast
út með furutré í tugatali frá sölu-
skúrnum:
„Já, smekkur garðarkitekt-
anna speglast gjarnan í sölunni.
í Skógræktinni í Fossvoginum er trjáplöntunum sáð i litla bakka, sem unnir
eru úr möluðum fiskkössum. Ásgeir með einn slíkan.
Fjöldamargar tegundir af trjáplöntum eru jafnan til sölu hjá Skógræktarfé-
laginu, en opnað er í maí.
VOR-
VÖRUR
Svanbergsson
góða gróðurmold og lítið að
marka auglýsingar um „úrvals
heimkeyrða gróðurmold" sem
allir kannast við. Mold þarf að
standa vel til þess að vera góð til
ræktunar. Klesst mómold getur
orðið góð gróðurmold með tím-
anum, en fólk á að láta moldina
standa ákveðinn tíma og blanda
hana svo t.d. með vikri til að
auðvelda framræsið í henni. Ég
skil ekkert í því að einhver
bissnessmaðurinn skuli ekki hafa
komið auga á þennan möguleika
til atvinnustarfsemi og skora á
djarfan hugvitsmann að koma
upp góðum „moldarbanka" með
mismunandi moldargerðum, svo
fólk geti gengið að þessu grund-
vallaratriði í garðræktinni vísu.“
Og að lokum, Ásgeir, átt þú
sjálfur uppáhaldstrjáplöntu?
„Ætli ég segi ekki eins og góður
kennari: hver einstaklingur er
sérstakur. Þannig er það líka með
plöntur. Planta sem þrífst vel er
falleg,“ og þar með var Ásgeir
farinn að sinna viðskiptavini.
Fyrir nokkrum árum var brekku-
víðirinn langvinsælastur í lim-
gerðin, nú vill enginn sjá hann,
en í staðinn kaupir fólk alaskavíði
eða gljávíði. Svona er þetta
breytilegt. Sígrænu plönturnar
eru einna vinsælastar núna, bæði
í kassa og ker og einnig í garðana.
Sérstaklega má nefna furu, sem
er sannarlega „inni“ í ár. Því mið-
ur hefur furan hér á Reykjavíkur-
svæðinu víða komið illa undan
vetri, litlar stafafuruplöntur hafa
sólbrunnið víða, en það má
hugga fólk með því að þær eru
alls ekki dauðar.
Ég sagði að garðaarkitektar
hefðu talsvert að segja um það
hvaða plöntur njóta vinsælda, en
kynningar og skoðanaskipti
mættu vera meiri, því stundum
skortir nokkuð á þekkinguna á
þeim trjátegundum, sem
teiknaðar eru inn á garðaskipu-
lagið.“
Undirstaðan
aðalatriðið
Áttu ráð handa fólki sem er að
byrja garðrækt?
„Þeir sem eru að koma sér upp
garði við nýbyggingar þurfa fyrst
og síðast að vanda til moldarinn-
ar sem verður framtíðarvegur
gróðursins. Það er erfitt að fá
HERAZ
Göngu- og innkeyrsluhlið
Girðingarefni
Lóðanet
Túngirðingarnet
Skrautnet
Gaddavír
Girðingarstaurar
gulrætur undir dúk - gulrætur án dúks
AGRYL - P 17 verndardúkur
Garðyrkjuáhöld
Trjáklippur
Garðhrífur
Skóflur
og ýmis smátæki
Ásgeir með hluta af græðlingunum
sem Óli Valur garðyrkjuráðunautur
safnaði í Alaskaferðinni í fyrra.
MJOLKURFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Laugavegur simi 11125
Fimmtudagur 5. júní 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
‘ * * ■■ (SPi
HnSl
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 5. júní 1986