Þjóðviljinn - 17.06.1986, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 17.06.1986, Blaðsíða 5
Minningarsamkvœmi 17. júní 1886 75 ár frá gerð minnisvarðans Áriö 1911, fyrir réttum 75 árum, var minnisvarði Jóns Sig- urðssonar eftir Einar Jónsson af- hjúpaður. Fyrirhugað var að af- hjúpa hann 17. júní en vegna deilna um staðsetningu tókst ekki að afhjúpa hann fyrr en haustið 1911. Strax þann fyrsta janúar hafði birst áskorun frá nefnd „til að gangast fyrir að reisa Jóni forseta Sigurðssyni minnisvarða". Minn- isvarðinn er ætlast til að verði líkneski á stalli og verði afhjúp- aður á aldarafmæli hans 17. júní 1911 svo framarlega sem samskot ganga svo greiðlega að þess verði auðið. Það lætur nærri að allir helstu áhrifamenn landsins, hvar í flokki sem þeir stóðu, séu í nefnd þessari. Formaður hennar er Tryggvi Gunnarsson, Bjarni frá Vogi er ritari, Hannes Hafstein er gjaldkeri, þar er Skúli Thor- oddsen forseti alþingis, Pjetur G. Guðmundsson formaður Dags- brúnar, þar er formaður UMFÍ og þar fram eftir götum. Um veturinn var mynd Einars til orðin í leir, og var m.a. sýnd í búðarglugga í bænum. B. Þ. Gröndal varð mikið hrifinn af myndinni (í þann tíma tóku menn yfir höfuð hverri mynd með mikl- um fögnuði) og orti um hana hugleiðingar: „Fögur er myndin, líking liðnrar æfi“ segir þar. Eða eins og á öðrum stað í kvæðinu segir: Þannig hann stóð á Þjóðfundinum sœla þróttmiklu og djörfu er orðin réð hann mœla. En þótt minning Jóns væri ó- spart haldið fram til að brýna menn til samstöðu, þá tókst ekki einu sinni að fylgja eftir þeirri samstöðu sem skapast hafði um nefndarkjörið sem fyrr var nefnt. Mánuðum saman eru blöðin að ympra á deilum um það, hvar minnisvarðinn eigi að standa: sumir vilja hafa hann á Skóla- brúnni, aðrir á Stjórnarráðsblett- inum. En þeir sem andmæla þeim bletti finnst of þröngt um Jón þar sem Kristján konungur níundi stendur með stjórnarskrána frá 1874. Nema hvað. Líkneskjan var ekki fullsteypt réttstundis. Minn- isvarðinn var ekki afhjúpaður fyrr en ellefta september 1911. Hann var settur á stjórnarráðs- blettinn - en var svo síðar færður niður á Austurvöll. Minnisvarðinn á leið í skip frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur árið 1911. Satt best að segja var sautjándajúníhátíðinfyrir sjötíu og fimm árum ekki fyrsta tilraunin til að efna til hátíðar á afmælisdegi Jóns Sigurðssonar. Sá sem fyrstur reyndi að hreyfa því máli var ágætur kaupmaður í Reykja- vík, Þorlákur Ó. Johnson, reyndarfrændi Jóns forseta ogmikillaðdáandi. Þorlákur hafði lagt Jóni lið með ýmsum hætti meðan þeir lifðu báðir. Hann sá um margt sem laut að útför Jóns hér heima, meðal annars um prentun og út- gáfu á ræðum og kvæðum sem flutt voru við þetta tækifæri. Hann átti mikinn hlut að því, að hægt var að afhjúpa minnisvarða um Jón í desember 1881. Þorlák- ur lét steinprenta stóra mynd af Forseta og sendi út orðsendingu þess efnis að „sérhver góður Is- Íendingur, er ann fósturjörð sinni, ætti að eignast þessa mynd sem allra fyrst“. Þessi mynd er enn til í ýmsum stofum og þykir vafalítið hið besta þing. Þorlákur Ó. Johnson lét einnig prenta og dreifa á ensku 57 blað- síðna ævisögu frænda síns. Heilladagur En mestan áhuga mun Þorlák- ur hafa haft á því að sannfæra íslenska þjóð um að sautjándi júní væri mesti heilladagur henn- ar og bæri henni að minnast þess árlega. Um það efni segir svo í bók Lúðvíks Kristjánssonar um Þorlák, „Úr heimsborg í Grjóta- þorp“, öðru bindi bls. 295: „Þessari hugmynd skýtur fyrst upp á fundi í stúkunni „Einingu" 4. apríl 1886. Þorlákur leggur þar fram tillögu þar sem hann stingur upp á að stúkurnar í Reykjavík gangist fyrir því í sameiningu að efna til minningarsamkomu 17. júní þá um sumarið. Ætlast hann til, að hún fari fram með þessum hætti: Allir templarar bæjarins hittist á ákveðnum stað, embætt- ismenn með einkenni sín, og síð- an haldi þeir í skrúðgöngu suður í krikjugarð, að leiði forsetahjón- anna. Fyrir skrúðgöngunni á að bera íslenska fánann (þ.e. fálka- merkið). Við minnisvarðann sé sungin ný kantata eða kvæði og ennfremur fluttar ræður. - Ekki verður séð af gjörðar- bók „Einingar“, hvernig fundar- mönnum hefur litist á tillögu Þor- láks, því að þess er einungis get- ið, að frestað hafi verið um óá- kveðinn tíma að taka ákvörðun um hana. Ekki varð af því, að fæðingar- dags Jóns Sigurðssonar væri í þetta skipti minnst með þeim hætti, sem Þorlákur hafði stungið upp á í „Einingunni", enda verð- ur ekki séð af gjörðarbók hennar, að um það mál hafi frekar verð rætt á fundum stúkunnar. Áform Þorláks að gera 17. júní að tylli- degi var þar með ekki úr sögunni, því að einmitt þennan dag 1886 kom margt manna saman í húsi hans, en ekki verður til fulh.ustu úr því skorið, að Goodtemplarar hafi einir staðið að samkvæminu. ur. Voru þar ræður haldnar og minni drukkin, og fór samsætið mjög vel fram, en fyrir því stóð Þorlákur kaupmaður Johnson“. Þetta er eina frásögnin, sem blöðin varðveita um kveikjuna að þjóðhátíðardegi íslendinga. Hversu fálát þau eru um þann at- burð, þá fyrst er minnst opinber- lega fæðingardags Jóns Sigurðs- sonar, gæti bent til þess, að ekki hefði verið mikill áhugi á að koma á þeirri siðvenju. Ókunn- ugt er um ræðumenn í samkvæm- inu 17. júní 1886 en fyrir minni forsetans var sungið þar brot af kvæði sem Steingrímur Thor- steinsson hafði ort sex árum áður.“ Lúðvík skýrir ennfremur frá því, að Þorlákur hafi efnt til sam- kvæmis 17. júní 1887. Þögn ríkir í blöðunum um þessa minningar- hátíð nema hvað ísafold birtir kvæði sem ort voru í tilefni dags- ins og getur þess að þau hafi verið sungin 17. júní „í fjölmennu sam- kvæmi hjá Þorláki Ó. Johnson“. Það er með öðrum orðum framtakssamur kaupmaður í Reykjavík sem hefur frumkvæði að því að byrjað er á því að gera 17. júní að tyllidegi og hefur mestan veg og vanda af fram- kvæmdinni. Lúðvík Kristjánsson segir í bók sinni, að það sé á huldu hvo.t áframhald hafi orðið eftir 1887, en blöðin íslensku veita að minnsta kosti enga vitneskju í því efni. Varðveist hefur ræða sem Þor- lákur Ó. Johnson flutti þegar minnisvarði Jóns Sigurðssonar var afhjúpaður. Þar leggur hann sérstaka áherslu á að „Enginn hefur eins vakið þjóðernistilfinn- ingu vora og Jón Sigurðsson því með sínu merkilega starfsama lífi hefur hann kveikt það ljós í hjört- um vorurr., að vér erum bæði farnir að skilja það, og vitum það, að vér erum sérstök þjóð með voru eigin tungumáli og þjóðréttindum. Jón Sigurðsson kenndi oss þann mikla sannleika, að virða ekki mennina eftir stöðu sinni, heldur eftir því sem þeir stæðu í stöðu sinni. Hann var í raun og veru sannur þjóðríkis- maður (Republikaner). Hann vildi kenna oss, að eftir því sem oss færi fram í öllu andlegu og verklegu, þá ættum vér að ná þeim þroska, er einkennir alla frjálsa og menntaða menn. Hann gat því aldrei verið neinn svokall- aður „klikkumaður", því að hans mikla og göfuga sál hafði miklu æðri og stærri sjóndeildarhring heldur en þann, sem takmarkað- ur er af eigingirni eða þokulegri hugsun um alla rétta pólitík. Það er því skylda vor að halda áfram í sömu stefnu og hann og jafnframt kenna börnum vorum að drekka af hans anda, svo að þjóð vor geti náð því takmarki, sem henni er ætlað. Lifi minning Jóns Sigurðs- sonar í heiðri og blessun á meðan nokkurt íslenskt hjarta bærist.“ Þorlákur Ó. Jonnson, kaupmaður og frændi Jóns átti hugmyndina að þjóðhátíðardegi 17. júní. Framan á sérprenti kvæða þeirra sem sungin voru, stendur, að samkoman hafi verið haldin af „Good-Templarafélaginu í Reykjavík", en Valdimar Ás- mundsson ritstjóri, sem var einn af félögum ,,Einingar“ og virðist hafa verið í samkvæminu, getur þess þannig í blaði sínu daginn eftir: Fór það vel fram „Fæðingardagur Jóns Sigurðs- sonar var í gær hátíðlegur haldinn af nokkrum frjálslyndum og fjör- ugum mönnum hér í bænum (flest Goodtemplarar) í veiting- asal húsfrú Kristínar Bjarnadótt- 100 ár frá því að hugmynd kviknaði að þjóðhátíðardeginum: Þriðjudagur 17. júní 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.