Þjóðviljinn - 17.06.1986, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 17.06.1986, Blaðsíða 14
FLOAMARKAÐURINN Áskrifendur athugið að hringja milli kl. 5 og 7 í síma 681333. Til sölu er Vauxhall Viva ’74 Selst ódýrt. Sími 11251. Tvær ungar og helðarlegar stúlkur óska eftir 3ja herb. íbúö til leigu í Reykjavík. Hafa meðmæli. Uppl. í síma 16113 á kvöldin. Hvíld og hressing Sérhús og einkasundlaug, fæöi eftir samkomulagi. Vinsamlegast pantiö tímanlega. Verið velkomin. Biáhvammur Reykjaneshverfi (Mý- vatnsvegur 87) 641 Húsavík. Sími 96-43901. Til leigu góö kjallaraíbúð í Hlíðunum fyrir ró- legt fólk, helst eldri hjón. Ibúðin leigist til tveggja ára á sanngjörnu verði. Tilboð merkt „Rólegt" send- ist á auglýsingadeild Þjóðviljans, Síðumúla 6, fyrir 25. þ.m. Atvinna óskast 30 ára kona óskar eftir framtíðar- starfi frá 1. ágúst. Hef reynslu í ritara- og skrifstofustörfum. Er reglusöm og stundvís og hef góð meðmæli. Uppl. í síma 28595 eftir kl. 19 í kvöld og næstu kvöld. Húsnæði óskast Ung kona óskar eftir 4ra herb. íbúð til leigu í Reykjavík sem fyrst - til lengri tíma (1 -2 ár). Erum tvö í heim- ili. Reglusemi og skilvísum greiðslum heitið. Vinsamlegast hringið í síma 28895 eftir kl. 18 í kvöld og næstu kvöld. Húsnæði í boði 3ja herb. íbúð á góðum stað í Reykjavík til leigu. Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Þjóðviljans fyrir 20. júní merkt „Húsnæði 412". Ritvél - bjartsýni Hver vill gefa Æskulýðsfylkingunni ritvél? Má vera notuð. Sími 17500. Gísli Þór. íbúð til leigu í Gautaborg með húsgögnum. Sími 83806. Vanur vélritari óskar eftir hálfsdagsvinnu í sumar. Vinnutimi eftir samkomulagi. Uppl. í síma 14875. Fjórir stólar Fást fyrir lítið eða ekkert. Sími 10633. Ung og heiðarleg stúlka óskar eítir einstaklingsíbúð eða herbergi í júlí og ágúst. Uppl. í síma 16113 á kvöldin. Til sölu vegna brottflutnings selst ódýrt hvítmálað hjónarúm (190x150), skrifborð, tveggja manna svefnsófi, sófaborð, skatthol, svart/hvítt sjón- varpstæki, rautt kvenreiðhjól (Kalk- hoff) o.fl. Uppl. í síma 74873. Ungt par sem er að byrja að búa vantar ýmis- legt í búið, m.a. ísskáp, þvottavél, fataskáp o.fl. Uppl. í síma 42214 eftir kl. 18.00. Húshjálp Get tekið að mér húshjálp. Uppl. í síma 76178. Til sölu góð og vel með farin systkina- tvíburakerra. Kr. 4.000.- Hjóla- skautar nr. 36 kr. 500.-. Uppl. í síma 672414. Vil kaupa gott þríhjól og tvo dúkkuvagna. Uþpl. í síma 672414. Erum tvö sem vantar 1 -2ja herb. íbúð 1. ágúst. Sem næst Kennaraháskólanum. Uppl. í síma 77238 og 36411 eftir kl. 18. 3 gullfallegir kettlingar fást gefins. Uppl. í síma 18953. Reglusöm ung hjón óska að taka á leigu tveggja til þriggja herbergja íbúð frá l.ágúst n.k. Uppl. í síma 19296 á kvöldin. Til sölu lítið notaður Fisher ST-780 hátalar- ar fyrir samkomusali, bíóneða diskótek. Fást fyrir lítið gegn stað- greiðslu. Burðarrúm til sölu Kr. 1.500.-. Uppl. í sima 686259. íbúð óskast Mæðgur bráðvantar 2ja—3ja her- bergja íbúð sem fyrst í nágrenni Landspítalans. Góð meðmæli. Uppl. í síma 23872. Auglýsið í Þjóðviljanum -----------Síml681333.------- Austurbergiö 109Reykjavik ísland sími756 00 Frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti Auglýstar hafa verið til umsóknar eftirtaldar kennarastöður við skólann: Tvær stöður í hjúkrunarfræðum, ein staða í eðlisfræði, ein staða í félagsfræði, ein staða í málmiðnum og ennfremur hálfar stöður í bókmenntum, efnafræði og rafmagnsfræð- um. Umsóknarfrestur er til 20. júní. Skólameistari verðurtil viðtals í sambandi við stöður þessar á skrifstofu sinni dagana 18., 19. og 20. júní kl. 10.00-12.00 árdegis. Skólameistari _______________HEiMURINN____________ Bundaríkin Reagan á í vandræðum með þingið Ronald Reagan verður stöðugt hœgrisinnaðri ískoðunum og um leið stöðugt harðari varðandi stefnu sína í utanríkismálum. Bandaríkjaþing er hins vegar ekki á sömu skoðun og Reagan og deilir hart á ákvarðanir hans. Par ber hæst Salt IIsamningurinn og afnám hansfrá hendi Reagans. Bak við þetta ersvo sú staðreynd að þingkosningar eru íhaust Ronald Reagan hefur nú verið sex ár á forsetastóli í Bandaríkj- unum og er enn á leið til hægri. Nú er talið að þessi hægri dans hans geti orðið honum mikill baggi. Staða hans í hinni lang- vinnu baráttu við bandaríska þingið er orðin tæp. Reagan tókst með naumindum að bjarga vopnasölusamningnum við Saudi Araba fyrir horn og yf- irlýsing hans um dauða Salt II samningsins vakti mikla reiði á þinginu. Hann á nú enn á hættu að lenda í miklum átökum á þing- inu út af þessari ákvörðun sinni. Þrátt fyrir að Reagan hafi per- sónulega lagt sig mjög í fram- króka við að fá 100 miljón dollara aðstoð sína við andspyrnuöfl í Nicaragua samþykkta, hefur það ekki gengið hingað til. Þá má einnig nefna áætlun hans um varnir og erlenda aðstoð fyrir árið 1987. Þeirri áætlun hefur hreinlega verið slátrað á þinginu. Áætlun hans um aðstoð við skæruliða í Angóla hefur mætt þar mikilli andstöðu. Hann horfir þessa dagana upp á löggjafann semja áætlun um harðar refsiað- gerðir gegn stjórnvöldum í S- Afríku, nokkuð sem hann hefur lýst sig algjörlega mótfallinn. Reagan á í vök að verjast með tillögur sínar Reagan „færist sífellt meira tii hægri og þetta hefur vakið upp hörð viðbrögð á þinginu, hann á nú í vök að verjast á þinginu með margar tillagna sinna“, segir C. William Maynes, ritstjóri hins bandaríska Foreign Policy Maga- zine, sem er tímarit um utanríkis- mál. Maynes sagði að það kæmi hins vegar ekki fram að fullu fyrr en í þingkosningum í nóvember hversu alvarieg staða hans er. Ef Reagan missir meirihluta sinn í Öldungadeildinni (flokkur hans, Repúblikanar, hefur þar meiri- hluta) eða að þingmenn sem styðja harðlínustefnu hans, missa þingsæti sitt er ljóst að utanríkis- stefna Reagans mun bíða mikinn álitshnekki. Nú liggja fyrir mörg mál sem enn eru óleyst á þingi en einna þyngst á vogarskálunum er málið um Salt II samninginn. Mikill meirihluti þingmanna í Fulltrúa- deildinni og Öldungadeildinni hefur þegar samþykkt skriflega Salt II samninginn og meðlimir beggja deilda hafa í hyggju að þrýsta á Reagan með að fara eftir samningnum. Hugmyndin er sú að neita Reagan um fjármagn sem gæti orðið til þess að brjóta í bága við Salt samninginn frá 1979. Þegar fréttist að Reagan hefði afskrifað Salt II, tók það Repúblikanann Norman Dicks ekki nema klukkustund að safna 75 talsmönnum þess efnis að mót- mæla tilkynningu Reagans. Thomas ONeill, Demókrati og forseti Fulltrúadeildarinnar, sagði um þessa ákvörðun Reag- ans:„Stjórnin hefur nú tekið fót- inn af hemlunum varðandi fækk- un kjarnorkuvopna og hefur stig- ið á bensíngjöf aukins kjarnorku- vígbúnaðar." Maldað í móinn Fulltrúar í Hvíta húsinu reyndu segir Reagan. að malda í móinn varðandi þessa ákvörðun og sögðu að þjóðin og aðrir erlendis hefðu ekki verið búnir undir þessa ákvörðun for- setans. „Þetta eru ekki lok af- vopnunarstefnunnar, það bara hljómar þannig fyrir fólki," sagði einn þeirra. Háttsettur fulltrúi innan Reagan stjórnkerfisins sagði að með því að slátra Salt II samkomulaginu hafi Reagan gef- ið í skyn að hann hafi lítinn áhuga á afvopnunarmálum og Stjörnu- stríðsáætlun hans sé fyrst og fremst hugsuð sem sóknaráætl- un. „Mig hryllir við þeirri tilhugs- un að þurfa eftir þingkosningar í haust að reyna sem þingmaður Repúblikana í öldungadeildinni að skýra það út hvers vegna for- setinn hvarf frá Salt II samkomu- laginu eftir að hafa farið eftir því í fimm ár,“ sagði Norman Dicks. Þá verður að nefna annan mann til sögunnar sem er varnar- málaráðherrann í stjórn Reag- ans, Caspar Weinberger. Hann hefur verið sakaður um að vera ekki að hafa mikið fyrir því að ræða við þingið um fjárútlát til varnamála. Sagt er að hann hafi jafnvel neitað að ræða slíka hluti við þingið. „Allir fyrrum varnam- álaráðherrar hafa lagt fyrir þingið hugmyndir sínar um það hversu mikið skuli fara í varnamál, og og haft þær að einhverju leyti í lík- ingu við það sem líklegt væri að þingið gæti samþykkt," er haft eftir háttsettum manni í Pen- tagon. Aðstoðarmenn Weinber- gers hafa neitað þessum ásökun- um. Hann er nú sagður vera einn versti óvinur sjálfs sín. Reagan hefur stöðugt verið há- vær um 100 miljón dollara stuðn- inginn við andspyrnuöflin í Nic- aragua. Ýmsir sérfræðingar í málefnum bandaríska þingsins telja hins vegar að ef hann ætlar að eiga einhverja von um að fá einhverja peninga fyrir and- spyrnuöfl í Nicaragua, verði hann að gera ákveðnar tilslakanir. Repúblikanar í öldungadeildinni hafa reynt að ná samningum við miðjumenn í þingflokki Demó- krata. En jafnvel þó tillaga nái fram að ganga í Fulltrúadeildinni gæti hún tafist mánuðum saman í Öldungadeildinni. Skorið niður Reagan fór fram á 320 miljarða til varnarmála fyrir næsta ár. Fulltrúadeildin sem var undir þrýstingi um að minnka halla ríkissjóðsins, skar beiðnina niður í 301 miljarð dollara. Fulltrúa- deildin skar hana síðan niður í 285 milljarða dollara. Nú eru í gangi viðræður um málamiðlun varðandi þessi útgjöld til varna- mála en nú þegar er ljóst að Reagan verður að sætta sig við mun minna en hann fór fram á í upphafi varðandi „Stjörnustríðs- áætlun“ sína. Sú áætlun er mið- punkturinn í hernaðarstefnu hans. Sama er uppi á teningnum varðandi beiðnir hans um aðstoð Bandaríkjanna til erlendra ríkja og samtaka. Báðar deildir hafa skorið niður beiðnir um framlög. Þá hafa mikilvægar nefndir í Fulltrúadeildinni samþykkt til- lögur um að lögleiða nýjar refsi- aðgerðir á S-Afríku og búist er við að Fulltrúadeildin samþykki þessar tillögur, þrátt fyrir ítrek- aðar yfirlýsingar forsetans um að slíkt leiði aðeins til hins verra. Nú eru þingkosningar í haust þannig að ljóst þykir að Reagan verður að slaka á ef honum á að takast að koma einhverjum af fyrrnefn- dum málum í gegnum Bandaríkj- aþing. 18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 17. júní 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.