Þjóðviljinn - 15.07.1986, Page 6
FLÓAMARKAÐURINN
Bíll óskast
Á einhver gamlan en traustan bíl
sem hann vill losna við á ca.
40.000.- á borðið? Uppl. í síma
686954, eftir kl. 19.
íbúð óskast
Bókavörð bráðvantar íbúð í Reykja-
vík til lengri tíma. Sími 79187 eða
17087.
Furustólar óskast
Óska eftir að kaupa 4 furustóla.
Uppl. í síma 39263, eftir kl. 18.
Til leigu
16 m2 vinnuaðstaða til leigu á
teiknistofu í miðbænum. Hagstæð
leiga. Uppl. í síma 14170,38838 og
17124.
Til sölu
Svartur Marants hljómtækja-
skápur, 110 cm hár, verð kr. 2.500.
Uppl. í síma 36858 á kvöldin.
Óska eftir
góðu, sterku reiðhjóli og barnastól
á hjólið. Uppl. í síma 17087.
Til sölu
Gallalaus handlaug o.fl. til sölu.
Uppl. í síma 10921.
Frá Bláhvammi
Væntanlegir gestir athugið, allt fullt
fyrrihluta ágúst, nokkrir dagar lausir
í júlí. Vinsamlegast hafið samband
tímanlega. Verið velkomin.
Steinunn og Jón
Ferðaþjónustu bænda
Bláhvammi
641 Húsavík
Sími 96-43901.
íbúð óskast
Óskum eftir 2-3ja herb. íbúð á
sanngjörnu verði. Góðri umgengni
heitið og skilvísum mánaðar-
greiðslum. Uppl. gefur Kristín Fjóla í
síma 99-1460 og Þórlaug í síma 99-
1466, eftir kl. 17.
Borðstofusett til sölu
Kringlótt stækkanlegt borð með 6
stólum og skenk, verð kr. 12.000.
Ennfremur 4 stakir stólar og lítið
borð á kr. 2.500, Philco þvottavél á
kr. 10.000, 5 arma Ijósakróna og 2
vegglampar á kr. 3.000. Uppl. í
síma 42119.
Til sölu
barnarúm. Uppl. í síma 28074, eftir
kl. 18.
Til sölu
Barnarúm og burðarpoki. Ódýrt.
Sími 15989.
Aðstoð við
heimilisstörf óskast
einu sinni í viku í Snælandshverfi
Kópavogi. Sími 40007.
Lítil íbúð
til sölu á Stokkseyri
Uppl. í síma 622106 eftir kl. 18.00.
Til sölu
vel með farin Pentax ME super
myndavél með 50 mm iinsu. Selst
með flassi og tösku. Sími 672133.
ATH.!
Er er 18 ára og mig vantar vinnu.
Flest kemur til greina. Uppl. í síma
97-3442.
Til sölu
18 tommu Raleigh telpnahjól. Uppl.
í síma 75518.
Atvinna óskast
Óska eftir ræstingarvinnu á kvöldin.
Er vön. Uppl. í síma 41456.
Notuð reiðhjól
Til sölu lítið telpnareiðhjól og tvö
drengjahjól, 20 tomma og 24
tomma. Uppl. í síma 73267.
Stefán (9 ára) og
Sólveig (7 ára)
vantar vel með farin reiðhjól. Uppl. í
síma 17245.
Óskum eftir
notuðu sjónvarpstæki fyrir lítið eða
ekkert. Sími 622829.
Til sölu
Austin Mini ’78
Þetta er hinn besti bíll en er með
ónýtt annaö brettið (nýtt fylgir). Ek-
inn um 50 þús. km. Verð kr. 40 þús.
Uppl. gefur Bára í síma 681663 f.h.
og 666842 e.h.
Óska eftir að kaupa
notað og ódýrt segulbandstæki,
þarf bæði að vera hægt að spila af
þvíog takaupp. Uppl. Ísima42109.
Tapað - Fundið
Brúnn hestur tapaðist úr girðingu
við Helgafell í Mosfellssveit. Hest-
urinn er frostmerktur og einnig ein-
kenndur með NC. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um hestinn vin-
samlegast hringið í síma 82848.
Kaupmannahöfn
Herbergi með húsgögnum til leigu í
sambýli við 4 íslendinga í júlí, ágúst
og september. Uppl. í síma 18138.
Skilvinda óskast
Á nokkur skilvindu sem hann er
hættur að nota og vill láta. Ef svo er
þá hringdu í síma 45663.
Kenwood þurrkari
Gamall, góður, lítill Kenwood þur-
rkari til sölu á ca. 2.500-3.000 kr.
Uppl. í síma 78343.
Til sölu
Góður hornsófi og stækkanlegt eld-
húsborð, nýlegt. Uppl. í síma
77337.
Einstæð móðir
óskar eftir ódýrri þvottavél. Uppl. í
síma 23059 eða 40667.
Gráfeldar-hillur til sölu
10 nýlegar Gráfeldar-hillur, 30x80,
til sölu. Uppl. í síma 622456 ídag og
á morgun.
Til sölu
barnavagn (Emmaljunga), burðar-
rúm, baðborð, burðarpoki (ónotað-
ur), hoppróla (ónotuð). Allt sem
nýít. Uppl. í síma 13784.
VW Fastback
1600 Tl '72 til sölu ódýrt. Gengur
eins og klukka. Skoðaður. Uppl. í
síma 16408.
íbúð óskast
Óska eftir tveggja herb. íbúð á
leigu. Öruggar mánaðargreiðslur.
Uppl. í síma 38229.
Eins árs rauður
Emmalunga barnavagn til sölu.
Uppl. í síma 78504.
STAÐAR NEM!
Öll hjól eiga að stöðvast
algerlega áðuren
að stöðvunarlínu
er komið.
UMFERDAR
'RÁÐ
Byggðastefna...
Framhald af bls. 5 ■
Þegar umræður hófust um
uppstokkun Framkvæmdastofn-
unar, tilurð þróunarfélags,
Byggðastofnunaro.s.frv. gekk ég
á Alþingi eftir afstöðu þeirra
Framsóknarmanna, ekki síst for-
sætisráðherra sem bar málin
fram. Þá voru svör hans þau og
svipað lét hann hafa eftir sér á
fundum, að hann væri út af fyrir
sig hlynntur því að annað hvort
Þróunarfélagið eða Byggðastofn-
un yrði staðsett úti á landi, t.d. á
Akureyri. Ég flutti því þá
breytingartillögu við frumvarp
um Þróunarfélagið að staðsetn-
ing þess yrði ákveðin á Akureyri.
Svavar Gestsson og Halldór
Blöndal fluttu hliðstæða tillögu
við frumvarp um Byggðastofnun
og átti því forsætisráðherra ekk-
ert að vera að vanbúnaði að gera
upp hug sinn.
Þegar að atkvæðagreiðslu um
staðsetningu Byggðastofnunar
kom, færðist formaður hins mikla
byggðastefnuflokks undan með
þeirri afsökun að eðlilegra væri
að stjórn stofnunarinnar tæki um
þetta ákvörðun. Svonefndir
„landsbyggðarþingmenn“ Fram-
sóknarflokksins fylgdu foringja s
num af Vestfjörðum með sorg-
lega fáum lindantekningum. Þar
með glataðist dýrmætt tækifæri
og í hópi 17 andstæðinga tillögu-
nnar var meira en þriðjungur eða
6 Framsóknarmenn.
Við þessa atkvæðagreiðslu
hinn 12. júní 1985 gerði ég eftir-
farandi grein fyrir atkv. mínu og
virtist því miður ætla að reynast
sannspár:
„Hr. forseti. Ég tel það eðlilegt
að ákveða það í lögum hvar
stofnun af þessu tagi sé staðsett.
Hér er á ferðinni byggðapólit-
ískt mál og það er löggjafans og
einskis annars en hans að
ákveða hvar þessi stofnun skuli
staðsett. Það er sannfæring mín
að ef sú breyting sem hér er lögð
til nær ekki fram að ganga hér á
löggjafarsamkomunni þá verði
ekki af henni. Þess vegna segi ég
já;“
Eg var s.s. þá og er ekki síður
nú sannfærður um að það sé bor-
in von að báknið í Reykjavík
muni nokkurn tímann taka
ákvörðun um að flytja sjálft sig
eitt né annað.
Því má svo bæta við að fenginni
þessari niðurstöðu varðandi stað-
setningu Byggðastofnunar, að
fellt var með 15 atkvæðum gegn
14 að binda staðsetningu væntan-
legs Þróunarfélags við Akureyri.
Af þeim 15 atkvæðum voru 6
Framsóknaratkvæði. Þar fylgdu
forsætisráðherra ekki ómerkari
burðarásar byggðastefnu en ráð-
herrar sjávarútvegs- og félags-
mála, formaður þingflokksins og
formaður stjórnar Framkvæmda-
stofnunar auk formanns Þingvall-
anefndar. Allir eru þessir þing-
menn af landsbyggðinni, enda er
einasti þingmaður flokksins af
SV-horninu í efri deild en þær at-
kvæðagreiðslur sem hér hafa ver-
ið raktar áttu sér stað í neðri deild
dagana 12. og 14. júní 1985.
Raddir
fortíðarinnar
Geir Gunnarsson hefur í sam-
ræmi við stefnu Alþýðubanda-
lagsins og afstöðu allra þing-
manna þess á Alþingi barist
áfram og til þrautar innan stjórn-
ar Byggðastofnunar fyrir því að
aðsetur stofnunarinnar flyttist
norður yfir heiðar.
Sérstök könnun sem Hagvang-
ur gerði á kostum og göllum
slíkra flutninga leiddi ekki í ljós
neina sérstaka vankanta. Þeir
vankantar, samanber fréttatil-
kynningu Byggðastofnunar frá 9.
júlí sl., hafa verið uppgötvaðir
annars staðar.
Viðbrögð ýmissa í þessu máli
vekja hjá manni hugleiðingar um
afstæði tímans. Getur verið að
örtölvubylting og örbylgjusend-
ingar hafi farið framhjá heilli
hjörð menntamanna í tiltekinni
stofnun? Hefur svo til heill
stjórnmálaflokkur frosið fastur á
tímum vorskipa fyrir seglum og
póstlesta með hestum? Er ekki
nokkuð kaldhæðnislegt að stofn-
un sem eðli málsins samkvæmt
ætti ekki hvað síst að beita sér
fyrir bættum samgöngum skuli
bera þær fyrir sig í þessu máli? Og
það þrátt fyrir þá byltingu sem
tölvuvæðing og beinlínutenging,
póstfax, síma- og sjónvarpsfund-
ir, ásamt stórbættum og ár frá ári
batnandi samgöngum á landi og í
lofti veldur, svo fátt eitt sé nefnt.
Að falla á
eigin prófi
Á ýmsan hátt hefur kreppt að
landsbyggðinni undanfarin ár.
Stjórnarstefnan hefur meira og
minna verið dreifbýlinu og höf-
uðatvinnugreinum þess fjand-
samleg samtímis óhagstæðum
ytri skilyrðum framanaf. Einn
stór orsakavaldur er einhæf
verkaskipting sem er í grófum
dráttum sú að landsbyggðin
stendur að framleiðslu og verð-
mætasköpun en þéttbýlið á SV-
horni landsins sýslar við þjón-
ustu. r
Þetta greina höfundar Byggða-
kaflans í síðustu ársskýrslu Fram-
kvæmdastofnunar réttilega og
upplýsa að 94% nýrra starfa á ár-
unum 1982-1984 hafi orðið til í
þjónustugreinum. Aðeins 22%
þeirra þjónustustarfa komu í hlut
landsbyggðarinnar þó meira en
helmingur nýliða á hinum ís-
lenska vinnumarkaði alist upp á
landsbyggðinni.
Það er ekki síst þetta ójafnvægi
sem verður að breytast. Meðal
annars með því að byggja upp og
færa til þjónustustarfsemina í
landinu þannig að uppbygging og
rekstur hennar valdi ekki af sjálfu
sér ójafnvægi. Byggðastofnun og
starfsemi hennar er hluti af þess-
ari þjónustu. Það má því segja
með rétti að Byggðastofnun og
meirihluti stjórnar hennar hafi
fallið á sjálfs síns prófi og það
meira að segja eins og sagt var í
Menntaskólanum á Akureyri
„hundfallið".
Afgreiðsla meirihluta stjórnar
Byggðastofnunar á tillögu Geirs
Gunnarssonar um flutning stofn-
unarinnar til Akureyrar veldur
vissum kaflaskilum í byggðamál-
um og umræðum um flutning
stofnana og dreifingu þjónustu-
starfsemi út um landið.
En hér og nú eiga ekki og mega
ekki verða sögulok, aðeins kafla-
skil. Stjórnarmenn og stofnun
sem byggist á þeirri herfræði mið-
aldanna að víggirða og verja einn
tiltekinn kastala geta í svip, ha-
fandi gnægð af slátri og góða
eldunaraðstöðu, fagnað sigri en í
tímans þunga nið samfara tækni-
byltingu og framförum býr fyrir-
heit um aðra niðurstöðu.
Með kærri kveðju minni til
nefnds meirihluta stjórnar
Byggðastofnunar og starfsmanna
fylgir ein lítil dæmisaga af við-
skiptum mínum og bónda nokk-
urs norður í landi á sl. vetri við
Byggðastofnun við Rauðarárstíg
í Reykjavík. Lærdóma dragi hver
sér.
Ein lítil dæmisaga
að lokum
Á síðastliðnum vetri tók ég að
mér að taka við láni frá Húsnæð-
isstofnun sem umboðsmaður
fyrir kunningja minn, bónda
norður í landi. Áður en lánið
kæmi til afhendingar hjá Veð-
deild Landsbanka Islands þurfti
samþykki nokkurra annarra veð-
hafa fyrir að víkja með veðrétt
fyrir láni byggingarsjóðs. Ég
hafði samband við aðra veðhafa
og bað þá senda venjulega stað-
festingu í þessu sambandi til Veð-
deildar. Nokkrum dögum síðar
er ég hugðist taka við láninu kom.
í ljós að enn vantaði viðkomandi
heimild frá einum aðila, þ.e.a.s.
Byggðastofnun. Ég kannaði mál-
ið og fékk þau svör hjá stofnun-
inni að vegna þess að einhver
brögð hefðu verið að því, að Veð-
deild gleymdi að innheimta af
lánum í svona tilfellum gjald (að
mig minnir 500 kr.) fyrir þá aðila
sem gæfu eftir veðrétt, þá treysti
Byggðastofnun sér ekki lengur til
að senda leyfin beint þangað
heldur sendi þau í póstkröfu til
viðkomandi sem síðan yrði að
senda þau til baka sjálfur.
Bóndi þessi býr all langt frá
pósthúsi og við strjálar póstsam-
göngur þannig að þessi „lipurð“
Byggðastofnunar tafði afgreiðslu
lánsins um 10-12 daga og virðist
geta gert í hliðstæðum tilfellum.
Allir aðrir veðhafar, nær sem
fjær Reykjavík, senda umbeðin
gögn beint til Veðdeildar bréf-
lega eða með skeyti sem bárust á
1-3 dögum.
Og þar sem dæmisaga er ekki
dæmisaga nema hún túlki sig sjálf
verður hér settur punktur.
Steingrímur J. Sigfússon
alþingismaður.
FRÁ LESENDUM
Safnar íslenskum
bítlaplötum
Mér hefur borist bréf frá
dönskum plötusafnara. Hann
safnar bítlaplötum hvaðanæva að
úr heiminum. Honum bráðvant-
ar íslenskar bítlaplötur í safnið.
Skilyrði er að plöturnar hafi kom-
ið út á tímabilinu 1963-’67 og til-
heyri eftirtöldum músíkstílum:
Merseybíti, ryþma-blúsi, bfl-
skúrsrokkí, sýrupoppi eða öðru
því sem flokkast undir bítlamús-
ík.
Músík án söngs eða þjóðlaga-
popp kemur ekki til greina.
Þeir sem geta liðsinnt safnar-
anum skulu senda plöturnar til:
Thomas Gjurup
Börnehöjen 51*
Himmelev.
4000 Roskilde
Danmark
Hann segist reiðubúinn að
borga vel fyrir sig.
Með von um að gamlir að-
standendur Dáta, Óðmanna,
Hljóma og annarra bítlahljóm-
sveita bregðist vel við,
Vafasöm
skoðanakönnun
Könnun sú sem einhverjir á
Ríkisútvarpinu létu gera hjá
Hagvangi nú nýlega og hverrar
niðurstöður voru birtar 9. júlí sl.,
er í marga staði mjög vafasöm, ef
ekki fölsuð. Hvers vegna var ekki
Félagsvísindastofnun Háskólans
falið að gera þessa könnun? Hver
trúir því að menn vilji hlusta og
sjá fréttir lesnar með látum og
hamagangi? Hinn nýi stíll í Ríkis-
útvarpinu er þraujhugsuð og
margreynd formúla frá Banda-
ríkjunum, forrit sem búið er að
setja inn í hausinn á íslenskum
fjölmiðlum. Gera verður könnun
þar sem öllum valkostum er stillt
upp, svo að fólk geti valið.
Hermundur Eilífsson.
Jens Guð.
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 15. júlí 1986