Þjóðviljinn - 15.07.1986, Side 7
I
t
Vinstri- og hægriblokkirnar í frönskum stjórnmálum stjórna landinu saman, -
eða hvor blokk sínum hluta nauðugar viljugar. Forseti er sósíalistinn Mitter-
rand, forsætisráðherra nýgaullistinn Chirac. í Frans er núorðið litið á þessa
„sambúð" (cohabitation) sem tímabundna undantekningu í stjórnmálasögunni
og gert ráð fyrir að önnur hvor blokkin taki við öllum völdum eftir forsetakosn-
ingarnar 1988. (þeim kosningum gæti svo farið að höfuðandstæðingarnar hétu
Jacques Chirac og Frangois Mitterrand... Myndin ertekin á leiðtogafundinum í
Tókíó í maí.
Þennan frakka þarf ekki að
kynna, enda von á honum til
landsins í haust með liði sínu Ju-
ventus frá Ítalíu. Platini er raunar
af ítölskum ættum, og er eitt
dæmi af mörgum um þann ávinn-
ing sem frakkar hafa haft af
allrahanda innflytjendum, enda
kalla þeir stundum land sitt „terre
d’asile" - griðland flóttamanna.
Franskar bókmenntir standa á
traustum grunni, og enn leggja
frakkar til nokkra helstu rithöf-
unda heimsins. Myndin er af
Claude Simon, Nóbelsverð-
launahafa 1985.
Frakkar eru líka geimveldi, aðal-
þjóðin í Ariane-samstarfinu, sem
nú er skæður keppinautur
Bandaríkjamanna í gervihnatta-
bisness. Myndin er af „Spot”,
fyrsta athugunarhnettinum, sem
tekur 800 Ijósmyndir á dag úr 820
kílómetra hæð, og sýnir glögg-
lega aðstæður á tíu fermetra
bletti.
TGV-lestin, eitt helsta tæknistolt frakka. Lestin fer 270 kílómetra á klukkutíma,
er 200 metra löng og tekur 386 farþega. TGV-lestin verður komin á allar
þjóðleiðir innan ríkisins eftir tvö ár, og í framtíðinni verður hún einnig send til
Lundúna undir Ermarsund þegar fjandvinirnir beggja vegna sundsins hafa
grafið sig hvor í annars faðm.
Frakkland sama-
sem menning;
París hefur lengi
verið í slíkum far-
arbroddi í menn-
ingarefnum að
fáar borgir stand-
ast samjöfnuð.
Myndin er af Pont
Neuf brúnni sem
búlgarski lista-
maðurinn Christo
„pakkaði inn“ í
fyrrahaust.
Marianna, eitt
þjóðartákna
frakka, og pers-
ónugervingur
franska lýðveldis-
ins, - eða lýðveld-
anna, - það sem
nú er við lýði er
kallað hið fimmta
þeirra. Maríanna
er höfðáfrönskum
Parísarmaraþonið er haldið í maí, og síðast hlupu um 11 þúsund manns.
Hlaupið hefst á Champs Elysées, helstu breiðgötu Parísar. Frakkar eru frá
fornu fari mikil íþróttaþjóð og eru vinsælustu greinarnar fótbolti, rúgbí og
hjólreiðar. Þeir sækja fast að halda Ólympíuleikana 1992 í París.
14. júlí
Allons enfants
de la patrie
Þjóðhátíðardagurfrakka, Bastilludagurinn, var haldinn hátíð-
legur í gær með flugeidum, hersýningum, ræðuhöldum, skrúð-
göngum og dansiböllum á götum úti: sennilega einn tilþrifa-
mesti þjóðhátíðardagur á vesturlöndum ásamt hinum banda-
ríska 4. júlí og 17. maí í Noregi. Haldið er uppá töku Bastillunnar
1789, sem markaði upphaf stjórnarbyltingarinnar miklu, - en í
Frans eru ailir byltingarsinnar hvar í flokki sem þeir standa; eina
spurningin er hvaða byltingu menn miða við. Það gefur 14. júlí í
Frakklandi síðan aukinn gleðisvip að þá eru frammundan
sumarfrí sem ná hámarki í ágústmánuði þegar franskar borgir
tæmast og strendurnar fyllast.
Við tökum þátt í þjóðhátíð frakka með þessari myndasíðu
sem á upptök sín hjá upplýsingadeild franska utanríkisráðu-
neytisins, og er ætlað að kynna okkur Frakkland 1986.
Og tökum undir hvatninguna til barna föðurlandsins í Stríðs-
söng Rínarhersins - Marseillaise-inum: „Allons enfants de la
patrie...“
-m
penmgum, og
brjóstmynd henn-
ar stendur í öllum
ráðhúsum Frakk-
lands. Maríanna
skiptir reglulega
um svipmót, og
nýjasta Maríann-
an var höggvin
andlitsdráttum
leikkonunnar Cat-
herine Deneuve,
sem nú hefur
leikið í á sjötta tug
kvikmynda. Dene-
uve var valin í al-
mennri skoðana-
könnun, og tók við
af annarri Marí-
önnu sem Brigitte
Bardot léði al-
kunnafegurðsína.
Þriðjudagur 15. júlí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7