Þjóðviljinn - 15.07.1986, Page 15
FRÉTTIR
Aldrei
aftur
Kjara-
dóm
Um 500 manns á
fjölmennum
fundi BHMR
Um 500 manns sóttu fund
háskólamenntaðra háskóla-
manna á Hótel Sögu á föstudag.
Mikill einhugur ríkti á fundinum
og fordæmdi hann samhljóða
starfshætti Kjaradóms og lýsti
sérstakri vanþóknun á þeim nið-
urstöðum sem dómurinn hefur
komist að.
„Með þessum hætti hefur Kjar-
adómur sannað vanhæfni sína og
fundurinn telur að þessa leið
Kristján Thorlacius formaður HÍK talar gegn Kjaradómi fyrir fullu húsi á Hótel Sögu fyrir helgina. Við hliðina á honum sitja þau Jónina Stefánsdóttir formaður
félags matvæla- og næringarfræðinga og Heimir Pálsson varaformaður HÍK. MyndAri.
megi aldrei aftur fara. Fundurinn
fagnar ákvörðun Launamálaráðs
að segja upp samningum og
krefjast þess að fjármálaráðherra
hefji þegar í stað samningavið-
ræður. Fundurinn minnir á loforð
fjármálaráðherra um leiðréttingu
dagvinnulauna og krefst þess að
full leiðrétting komi til á þessu
samningstímabili,“ segir í álykt-
un sem samþykkt var á fundin-
um. Þá var skorað á Launamála-
ráð og aðildarfélög BHMR að
finna leiðir til að ná fullum samn-
ingsrétti félagsmanna BHMR.
-»g-
Læknafélagið
Tækniskólakennarar
Tækifærinu klúðrað
FTK getur ekki látið hj á líða að
koma á framfæri nokkrum at-
hugasemdum í þessu sambandi,
enda alvarlegt mál á ferðinni.
Samkvæmt Iögum skal kjara-
dómur ákveða þeim starfsmönn-
um ríkisins, sem hann fjallar um,
launakjör, sem séu sambærileg
við þau, sem starfsmenn með
sambærilega menntun, sérhæfni
og ábyrgð í starfi njóta á al-
mennum vinnumarkaði.
Eins og áður hefur komið fram
í fjölmiðlum, hefur undanfarið
staðið yfir könnun á því, hver
þessi kjör væru, og lágu niður-
stöður fyrir nú í vor. Kröfugerð
félagsins um nýjan sérkjarasamn-
ing var byggð á þessum gögnum,
þannig að kjaradómur hafði nú
tækifæri til að byggja úrskurð
sinn á svo traustum gögnum sem
verða má, enda var könnunin
unnin á vegum beggja aðila máls-
ins, þ.e. ríkisins og viðsemjenda
þess.
Kjaradómur skammtaði fé-
lagsmönnum FTK hækkun um 3
- þrjá - launaflokka og einn í við-
bót þann 1. desember n.k.. Sýnt
hafði verið fram á, að til að ná
sambærilegum kjörum við við-
miðunarhæfa hópa á almennum
vinnumarkaði þyrfti hækkun að
vera um 18 - átján - launaflokk-
ar, eða um 70%. Úrskurður
kjaradómsþýðir9,3% frá 1. mars
og 3% í viðbót 1. desember. f
úrskurði dómsins er þetta kallað
leiðrétting og nefnt, að tilefni sé
til frekari leiðréttingar síðar.
Hlálegt er einnig, að dómurinn
beinir því til málsaðila að komast
sín á milli að samkomulagi um
þetta, en ástæða þess, að málið
fór fýrir kjaradóm var algert
viljaleysi fulltrúa ríkisvaldsins til
að leiðrétta á nokkurn hátt laun
Ályktun fulltrúaráðsfundar HÍK
11. júlí 1986.
Kjaradómur kvað upp dóm um
kjör háskólafólks í ríkisþjónustu
hinn 8. júlí sl. þar sem
kaupbreytingar eru ákveðnar
minni en orðið hafa hjá öðrum á
næstliðnum mánuðum en alls
engar leiðréttingar í samræmi við
fyrirliggjandi gögn. Þrátt fyrir af-
dráttarlaus gögn og ótvíræða
lagaskyldu vitnar hann til
óskyldra atriða og vísar að lokum
málinu frá sér aftur til deiluaðila
og lýsir sig^þar með vanhæfan að
gegna hlutverki sínu. Með þess-
um dómi hefur Kjaradómur jafn-
framt kveðið upp lokadóm yfir
sjálfum sér.
Ekkert stéttarfélag getur unað
því að eiga mál sín undir slíkri
þessara starfsmanna sinna.
Kjaradómur hefur nú klúðrað
því tækifæri, sem gafst til að upp-
fylla þá lagaskyldu, sem á honum
hvílir, sbr. það sem sagt er hér að
framan. í úrskurðum fyrri ára
hefur dómurinn ætíð skotið sér á
bak við skort á upplýsingum um
kjör á almennum vinnumarkaði,
en nú lágu fyrir mjög marktækar
upplýsingar um þetta efni.
Urskurður kjaradóms nú er
reginhneyksli. Hann er einnig
staðfesting á því, að hérlendis er
út í hött að ætla sér að reka kjara-
baráttu með faglegum og vönd-
uðum vinnubrögðum. Frum-
skógarlögmálin eru í fullu gildi og
annað ekki.
í framhaldi af umræddum úr-
skurði mun félagið beita sér fyrir
því að reyna að ná fram kjarabót-
um eftir þeim leiðum, sem löe
leyfa.
stofnun. Hið íslenska kennarafé-
lag mun ekki framar flytja mál sín
fyrir Kjaradómi. Félagið krefst
óskoraðs samningsréttar strax á
þessu ári.
Kennarar hafa á undan-
gengnum misserum ítrekað lýst
áhyggjum sínum af þróun launa-
mála kennara og gert grein fyrir
þeim áhrifum sem kjaramál hafa
á skólastarf í landinu og undir
það hafa stjórnvöld tekið þótt
þau sýni annað í verki. Hið ís-
lenska kennarafélag mun áfram
berjast fyrir því að íslenskt skóla-
kerfi verði þess megnugt að skila
þjóðinni vel menntuðum þegn-
um. Til þess verður leitað allra
hugsanlegra baráttuleiða.
Samþykkt einróma.
Unum
þessu
ekki
lengur
Stjórn Læknafélags íslands
fordæmir dómsúrskurð þann,
sem Kjaradómur felldi í máli L.í.
gegn fjármálaráðherra fh. ríkis-
sjóðs 8. júlí sl.
í dómsorðum segir Kjaradóm-
ur „að enn sé óeðlilegur munur á
kjörum háskólamanna í þjónustu
ríkisins og þeirra er starfa hjá
öðrum en ríkinu". Síðan vísar
hann leiðréttingu á þessum mun
til samningsaðila! Málið fór hins
vegar í dóm vegna þess að samn-
ingar tókust ekki, eða réttara sagt
að viðsemjandi L.í. gaf ekki kost
á neinum samningaviðræðum.
Að auki hefur Kjaradómur nú,
í annað sinn á 15 mánuðum, fellt
dóm í sérkjarasamningi L.í. án
þess að fjalla um eina einustu sér-
kröfu félagsins aðrar en smávægi-
legar launaflokkatilfærslur.
Þetta hefur hann gert þrátt
fyrir að formaður samninga-
nefndar ríkisins hafi fyrir dómn-
um sagt, að hann teldi sig ekki
einu sinni þurfa að standa við
bókanir, sem hafi verið gerðar í
fyrri samningum.
Með þessum úrskurði kemur
berlega í ljós, að Kjaradómur
gætir eingöngu hagsmuna annars
aðilans, þ.e. ríkisins, og er þar
með óhæfur til að sinna hlutverki
sínu.
Félagið hlýtur því að spyrja,
hver sé hinn raunverulegi samn-
ingsréttur þess nú og hvaða leiðir
séu færar til úrbóta. Þessum að-
ferðum verður ekki unað lengur.
Reykjavík 10. júlí 1986
Stjórn Læknafélags íslands
Félagsráðgjafar
Enn eitt kjaftshöggið
Mælirinn er fullur. Nú er mál
að skrípaleiknum linni. Það er
sóun á almannafé að setja á svið
kjararannsóknir, samningastarf
og kjaradóma, þegar fyrirfram er
ákveðið, hver útkoman skuli
verða.
Röðun félagsráðgjafa í launa-
flokka sýnir enn á ný virðingar-
leysið fyrir menntun og ábyrgð
fólks, sem vinnur í félags- og
heilbrigðisþjónustu - virðingar-
leysi fyrir mannlegum verð-
mætum.
Félagsráðgjafar hjá ríkinu
vinna allt í senn forvarnar-,
umönnunar- og meðferðarstörf
og spara því opinbera ærið fé.
Mikil eftirspurn er eftir þjónustu
félagsráðgjafa af hálfu almenn-
ings. Um það geta allir stofnanir
vitnað og tölur tala sínu máli, en
skýrslur til yfirvalda þar að lút-
andi (m.a. kjaradóms) eru virtar
að vettugi.
Ráðamenn gera sér ekki ljóst
hve margir leita til félagsráðgjafa
og hvers vegna. Sú staðreynd er
áberandi, að ráðamenn taka yfir-
leitt ekki við sér, fyrr en þeir eða
þeirra nánustu þurfa á félagsráð-
gjöf að halda.
Félagsráðgjafinn er mjög
mikilvægur hlekkur í félags- og
heilbrigðisþjónustu. En sá hlekk-
ur flyst yfir í einkageirann yrði
það ríkinu dýrt að kaupa fé-
lagsráðgjöf sem útselda vinnu.
Stjórnendur ríkisstofnana og
fjármálaráðuneytið ættu að huga
að því að læra aftur að leggja
saman tvo og tvo svo út komi
fjórir, en ekki eitthvað annað.
Það er dýrt spaug og óhagkvæmt
að kasta til höndunum við rekstur
opinberra stofnana, sem byggðar
hafa verið upp með hag okkar
allra fyrir augum og á kostnað
okkar allra. Það er óhagkvæmt í
rekstri, að búa illa að ríkisstarfs-
mönnnum sem krefjast þess eins
að fá leiðréttingu launa. Þessar
leiðréttingar höfum við nú beðið
eftir í hátt á þriðja ár. Miklar von-
ir voru bundnar við kjaradóm
sem lögum samkvæmt skal gæta
þess að ríkisstarfsmenn njóti
sambærilegra kjara og þeir menn
með svipaða menntun, sérhæfni
og ábyrgð sem vinna hliðstæð
störf hjá öðrum en ríkinu. Þessar
vonir eru að engu orðnar. Kjara-
dómur hefur algjörlega brugðist
skyldu sinni, þar sem í úrskurði
dómsins er engin tilraun gerð til
að leiðrétta þann mismun, sem er
á launum háskólamenntaðra
ríkisstarfsmanna og þeirra sem
starfa hjá einkaaðilum.
Ljóst er að þessa leiðréttingu
verður að fá eftir öðrum leiðum
og spurningin er ekki hvort, held-
ur hvenær kemur samningsrétt-
urinn?
Fulltrúaráð HÍK
Lokadóntur yfir
Kjaradómi
Þriðjudagur 15. júlí 1986 ÞJÓÐVILJINN SÍÐA 19