Þjóðviljinn - 26.07.1986, Side 2
FRÉTTIR
Alnœmi
Blóðþegi hefur smilast
Fékk blóðgjöfafsýkta blóðinu semfannst íBlóðbankanum á dögunum.
Hann er einkennalaus en merki smitsfannst í blóðinu. Þetta erfyrsta
tilfellið hér á landi um smit vegna blóðgjafar. Fleirifengu ekki blóðgjöfaf
sýkta blóðinu
etta átti sér stað áður en sú
tækni, sem við ráðum yflr í
dag til að rannsaka alnæmi í
blóði, kom til sögunnar, þannig
að það var ails ekki hægt að koma
í veg fyrir þetta, sagði Kristján
Erlendsson iæknir í hópi Sam-
starfsnefndar um varnir gegn al-
næmi, en í gær var kunngert að
fyrsti blóðþeginn sem smitast hef-
ur af alnæmi hér á landi væri
fundinn.
Sem kunnugt er fannst í Blóð-
bankanum blóð, sem blóðgjafi
sýktur af alnæmi hafði gefið. Þeg-
ar í stað var hafin rannsókn á því
hvort einhver hefði fengið blóð-
gjöf af þessu sýkta blóði og við þá
rannsókn kom fram að einn aðili
hafði fengið af því blóðgjöf. Við
rannsókn á þeirri manneskju
kom í ljós að hún var einkenna-
Iaus en merki smits fannst í blóði
hennar. Þetta er fyrsta og eina
tilfellið af þessu tagi sem vitað er
um hér á landi.
Kristján Erlendsson sagði að
við rannsóknina hefði komið í
ljós að fleiri fengu ekki blóðgjöf
af sýkta blóðinu. Kristján tók
fram að þetta atvik sýndi okkur
að útbreiðsla alnæmis væri ekkert
frábrugðin hér á landi en sem ger-
ist og gengur erlendis. Hann taldi
sennilegt að smit hefði verið hér
lengur en menn grunaði eða allt
frá árinu 1981.
Aðspurður um hvort þetta yrði
til að fólk færi að leggj a eigið blóð
í Blóðbankann, ef það skyldi síð-
ar á lífsleiðinni þurfa á blóðgjöf
að halda, sagði Kristján að slíkt
færi nú mjög í vöxt erlendis.
Hann sagðist aftur á móti ekki
vita hvort Blóðbankinn væri í
stakk búinn til að taka á móti
slíku bankainnleggi.
- S.dór
Sjónvarp
Alltá
íslensku
Menntamálaráðherra undir-
ritaði í fyrradag nýja reglugerð
um ríkisútvarpið, og segir þar
meðal annars að héðan í frá skuli
öllu efni sjónvarps fylgja íslenskt
tal eða texti. Undantekningar eru
erlendir söngtextar og beinar út-
sendingar að utan. Þeim skal þó
fylgja kynning eða endursögn
þular.
Það eru einkum íþróttaútsend-
ingar sem við þetta breytast, en
sá siður hefur tíðkast hingað til að
meginhluti erlends íþróttaefnis
hefur verið sendur út án íslensks
tals eða texta.
í reglugerðinni er einnig kveð-
ið á um að koma upp aðstöðu til
dagskrárgerðar og útvarpsút-
sendinga í öllum kjördæmum
landsins.
Þá er stefnt að því að RÚV
starfræki fræðsluútvarp í samráði
við fræðsluyfirvöld, og ríkisút-
varpinu heimilað að leigja öðrum
útvarpsleyfishöfum tól sín og
tæki.
Loks er þess að geta að
breyting hefur orðið á hlutverki
útvarpsráðs. Það hefur ekki
lengur úrskurðarvald um dagskrá
fyrirfram, en fær hana til kynn-
ingar. -m
Jóhannes Þórðarson frá Gimli í Manitóba t.v. afhendir Snorra Sigurðssyni framkvæmdastjóra Skógræktarfélagsins
dollara að upphæð 10.000 íslenskra króna. sem gjöf frá Vestur-íslendingum. Ljósm. E.ÓI.
Vestur-íslendingar
Þjóðræknisskógurinn vex
Skuldabréfavextir
Seðlabankinn
tilkynnir
Fólk reikni sjálft út hvort
það hefur verið féflett
Hér fer á eftir tilkynning sú sem
Seðlabankinn fann sig tilneyddan
til að gefa út í gær. Utgefendum
skuldabréfa er hverjum um sig
gert að finna út hvort þeir hafa
greitt hærri eða lægri vexti en lög
leyfa á hverju hinna tilgreindu
tímabila:
„Vegna fjölda fyrirspurna til
Seðlabankans um mismunandi
vaxtatöku banka og sparisjóða af
skuldara (útgefanda) skulda-
bréfa, sem annað hvort eru í inn-
heimtu eða kunna að hafa verið
keypt af hlutaðeigandi stofnun-
um, vill bankinn upplýsa eftirfar-
andi.
Þegar um er að ræða almenn
skuldabréf eða afborgunarlán
(veðskuldabréf eða skuldabréf
með áritun sjálfskuldarábyrgðar-
manna eru algengust) með
ákvæðum um breytanlega hæstu
vexti á hverjum tíma hefur Seðla-
bankinn samþykkt vexti hæsta
samkvæmt tillögum banka og
sparisjóða af slíkum skulda-
bréfum sem hér segir frá 1. janú-
ar 1985 til 1. mars 1986 en frá
þeim tíma ákveður Seðlabankinn
vexti þessa einhliða:
Frá:
I. 1.’85 34,0% á ári
II. 5.’85 33,0% áári
21.1 .’85 32,0% á ári
1.3. ’86 20,0% á ári
1.4. ’86 15,5% áári
Eftirfarandi vextir gilda fyrir
skuldabréf útgefin fyrir 11. ágúst
1984, svo og bréf með ákvæði um
að vextir fylgi meðaltali vaxta
nýrra, almennra skuldabréfa,
eins og það hefur verið auglýst:
Jóhannes Þórðarsonfrá Gimli í Kanada kemur hingað
tillands á hverju ári með dollara sem gjöf til
Skógræktar ríkisins frá Vestur-íslendingum
etta er sextánda sumarið sem
ég kem hingað til íslands en
síðustu sumrin hef ég komið með
dollara með mér sem gjöf til
Skógræktarfélags ríkisins frá
deildum í Þjóðræknisfélagi
Vestur-íslendinga í Gimli, Winn-
ipeg og Saskatchewan, sagði
Vestur-Islendingurinn Jóhannes
Þórðarson frá Gimli í Manitóba í
Kanada.
Jóhannes er Svarfdælingur og
fæddur árið 1897. Hann talar
mjög fallega íslensku alveg án
nokkurs hreims. Jóhannes segist
elska ísland mikið og því hefur
hann staðið fyrir þessari söfnun
undanfarin tíu ár. Sigurður
Biöndal skógræktarstjóri sagði
við afhendingu peninganna að
Vestur-íslendingar hefðu gefið
Skógræktinni peninga mörg und-
anfarin ár eða frá stofnun Skóg-
ræktarinnar á Alþingishátíðinni
1930. Skammt frá Hrafnagjá er
vestur-íslenskur reitur stofnaður
1930 og þar hefur verið gróður-
sett fyrir þessar peningagjafir.
Fyrir nokkrum árum var svo byrj-
að að gróðursetja af sama tilefni á
Ingunnarstöðum í Brynjudal í
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur
Hvalfirði. Og ákveðið hefur ver-
ið að gróðursetja þar fyrir þær
peningagjafir sem Skógræktinni
berst frá útlöndum.
Jóhannes sagði að hann væri
ánægður með hvernig peningun-
um er varið. Hann er fyrrverandi
skógræktar- og skógarhöggsmað-
ur. Einnig stundaðim hann bú-
skap.
Aðspurður sagði Jóhannes að
hann byggist vel við að koma
hingað aftur næsta sumar. „Ann-
ars skipulegg ég aðeins eitt ár í
einu,“ sagði hann að lokum.
Frá:
1.1. :'85 25,8% á ári
1.2. ’85 34,0% á ári
1.6.’85 30,9% á ári
1.8. ’85 31,4% á ári
1.9. ’85 32,0% á ári
1.4. ’86 20,0% á ári
1.5. ’86 15,5% á ári
Seðlabankinn lítur svo á að of-
angreindir vextir séu þeir hám-
arksvextir, sem beita má fyrir
greint tímabil í viðskiptum
tveggja aðila t.d. í afborgunar-
viðskiptum verslana við neytend-
ur eða í viðskiptum heildsala og
smásala, þegar skuldabréf með
ákvæðum um breytanlega vexti
eru notuð sem skuldaskjöl. Þegar
víxlar eru skuldaskjöl í slíkum
viðskiptum eru forvextir nú
15,25% á ári.
(Fréttatilkynning)
Afmœli
75 ára , j ^
75 ára er í dag laugardag, Árni t é Jk *
Ingimundarson trésmíðameistari Skarðsbraut 19 Akranesi. Hann
dvelst nú á heimili dóttur sinnar, Varmalandi Borgarfirði