Þjóðviljinn - 15.08.1986, Blaðsíða 13
HEIMURINN
Galdralæknar
í Swazilandi vilja ekki lengur
kallast galdralæknar. Þeir
segja nafngiftina niðurlægj-
andi og vilja fá annað nafn.
„Samband þjóðlegra lækna í
Swazilandi ' hafa skrifað yfir-
völdum bréf þar sem þeir fara
fram á að lög, sem Bretar settu
á nýlendutímanum um að þeir
væru galdaralæknar og mættu
því ekki sýna þau tól sem þeir
nota, verði afnumin. Á Swazi-
máli nefnast þeir nú Sangom-
as og eru vel yfir 5000 slíkir í
landinu. Læknarnir njóta þar
mikillar virðingar, fólk kemur
til þeirra í veikindum og fær
lækningu með aðstoð jurta-
lyfja og dýrainnyfla. Þeir ráða í
framtíð fólks með beinakasti
og senda fólki ill skeyti eftir
æðri leiðum, eftir pöntun.
Veðmál
ganga nú um það í Hong Kong
meðal stjórnenda hestaveð-
reiða að fólk verði innan
skamms farið að notast við
vasatölvur til að veðja á hesta.
Óttast fulltrúarnir að fólk muni
jafnvel geta tengt vasatölvurn-
ar við flóknari tölvur í gegnum
síma og látið reikna út mögu-
leika ákveðins hests.
Vasaþjófar
í París hafa nú orðið fyrir áfalli.
Lögreglan þar í borg hefur
handtekið fjóra Júgóslava
sem taidir eru vera í forsvari
fyrir hópum unglingaflokka
sem ræna ferðamenn í París.
Þjófaflokkarnir eru taldir stela
tugþúsundum af japönskum
jenum, bandarískum dollurum
og frönskum og svissneskum
frönkum á dag af ferða-
mönnum við helstu umferð-
argötur borgarinnar. Franska
útvarpið sagði að þessir þjófa-
flokkar næðu aðeins 10 prós-
entum af því sem daglega væri
stolið í Parísar en sagði rán
þeirra mjög áhrifarík þar sem
þeir kæmust yfirleitt upp með
40 prósent þjófnaðanna.
Lausar
skrúfur hindruðu fyrir stuttu
að kjarnorkuver í Bavaríu í V-
Þýskalandi yrði sett í gang að
nýju eftir árlega skoðun.
Skrúfurnar voru fimm, innan í
kjarnakljúfnum sjálfum í kæli-
kerfinu. Fjórar af þessum
skrúfum hafa nú fundist en yf-
irmenn kjarnorkuversins eru
æstir í að koma verinu i gang
og vilja nú starta því án þess
að fimmta skrúfan finnist.
„Það er allt í lagi þó skrúfan sé
á þeytingi innan í kljúfnum",
sagði einn þeirra.
Konur
í vestur-þýskum háskólum eru
mun framkvæmdasamari í
kynlífinu heldur en kariar í há-
skólum þar í landi. Svo segir í
niðurstöðum rannsóknar sem
háskóli einn í Hamborg lét
framkvæma. Ulrich Clement
heitir sá sem stóð fyrir þessari
rannsókn. Hann segir að kven-
stúdentar hafi á þeim áratug
sem nú er rumlega hálfnaður
öðlast mun meiri kynl-
ífsreynslu en karlstúdentar í
vestur-þýskum háskólum á
þessum tíma. Auk þess hafi
þær hafið fyrrnefnda iðju mun
fyrr. Clement sagðist hafa
heimsótt 13 háskóla í landinu
og spurt 1106 karlmenn og 861
kvenmann um kynlífsreynslu
þeirra.
ERLENDAR
FRÉTTIR
HJÖRLEIFSSON R E Ul E R
S-Afríka/Norðurlönd
Boltanum kastað til S.Þ.
Kaupmannahöfn - Utanríkis-
ráðherrar Norðurlandanna
fimm tilkynntu í gær að Norð-
urlöndin myndu þrýsta á um
frekari aðgerðir til að afnema
kynþáttaaðskilnaðarstefnuna
í S-Afríku með því að fá Sam-
einuðu þjóðirnar til að beita
sér af alefli.
Með þessu er ljóst að Svíar
hafa haft sitt í gegn með að Norð-
urlöndin fimm skuli beita sér á
vettvangi Sameinuðu Þjóðanna
frekar en að lýsa einhliða yfir
efnahagslegum refsiaðgerðum á
hendur S-Afríku. Ingvar Carls-
son forsætisráðherra Svíþjóðar
hefur verið gagnrýndur harka-
lega í Svíþjóð fyrir afstöðu sína til
S-Afríku. Stjórnarandstaðan
hefur gagnrýnt hann fyrir að fara
sér allt of hægt við að lýsa yfir
refsiaðgerðum og hafa sakað
hann um að svíkjast undan
merkjum fyrirrennara síns í
starfi, Olofs Palme.
Svíar eiga mun meiri
hagsmuna að gæta í S-Afríku en
aðrar Norðurlandaþjóðir, sér-
staklega hvað varðar vélbúnað til
námuiðnaðarins í S-Afríku. Út-
flutningur Svía Til S-Afríku nam
á síðasta ári 980 milljónum
sænskra króna og innflutningur
þaðan til Svíþjóðar nam 412
milljónum sænskra króna.
Danir lýstu í maí yfir algjöru
verslunarbanni við S-Afríku,
fyrir þrýsting stjórnarandstöð-
unnar, og Norðmenn hafa lýst því
yfir að þeir muni sömuleiðis
banna alla verslun við S-Afríku í
haust.
V-Þýskaland/ Geislavirkni
Minni en talið var
. -v
Átök við kjarnorkuver í V-Þýskalandi var ein afleiðinga kjarnorkuslyssins í
Tsjernóbíl.
Bonn - Ágiskanir v-þýskra vís-
indamanna um geislavirkni í V-
Þýskalandi vegna kjarnorku-
slyssins íTsjernóbíl voru alltof
miklar, sagði í yfirlýsingu frá
umhverfismálaráðuneyti V-
Þýskalands í gær.
í tilkynningunni sagði að
landsmeðaltal geislavirkni væri
aðeins einn tíundi þeirrar geisla-
virkni sem v-þýskir vísindamenn
gerðu ráð fyrir að væri í V-
Þýskalandi eftir að hennar varð
vart þar í landi. í tilkynningunni
var það haft eftir forstöðumanni
ríkisstofnunar sem sér um að
mæla geislavirkni frá kjarnorku-
verum, Erich Oberhausen, að V-
Þjóðverjar hefðu orðið fyrir 10 til
15 milliremum meiri geislavirkni
en þau 200 millirem af efninu ses-
íum 137 sem venjulega finnast í
V-Þýskalandi.
Þá sagði einnig áð mögulega
fyndust hærri tölur í kjöti og
rnjólk ef dýr fengju hey sem unn-
ið var þegar geislavirkni var sem
mest.
Umhverfismálaráðuneytið til-
kynnti að í undirbúningi væru lög
sem tryggja rnyndu betri og hrað-
virkari söfnun, samhæfingu og
mat á upplýsingum um geisla-
virkni. Þá yrðu einnig í lög leidd
ný mörk um hámark geislavirkni
fyrir allt landið.
Grenada
Bandarikjastjóm
sökuð um undirróður
St. George, Grenada-Ásakanir
hafa nú komið fram á Grenada
í Karabíska hafinu um að
Bandaríkjamenn hafi lagt
grunninn að fjöldamorðum á
Grenada þar sem 100 manns
létust og fyrir að hafa undirbú-
ið ýmsar aðgerðir til að steypa
ríkisstjórn Maurice Bishops.
Fjöldamorðin áttu sér stað í
valdaráni harðlínumanna í The
New Jewel Movement gegn
vinstri sinnaðri ríkisstjórn Bis-
hops. Bandaríkjamenn gerðu
síðan innrás í október árið 1983
og hrifsuðu stjórnartaumana af
hreyfingunni.
Það var fyrrum aðstoðarmaður
utanríkisráðherra, Bernard Co-
ard, sem kom fram með þessar
ásakanir í réttarhöldum yfir hon-
um og 18 öðrum mönnum sem
ákærðir hafa verið fyrir að hafa
myrt Maurice Bishop. f varnar-
ræðu sinni sagði Coard að Banda-
ríkjamenn hefðu fyrir alla muni
viljað skipta um ríkisstjórn og
koma Bishop og hans fylgis-
mönnum frá. Coard ásakaði
Bandaríkjastjórn um að hafa í því
augnamiði skipulagt ýmiss konar
undirróðursstarfsemi gegn ríkis-
stjórn Bishops. Nefndi hann
dæmi frá 1981 þegar sprengja
sprakk í þann mund sem útifund-
ur var að hefj ast með þeim afleið-
ingum að þrír létust. Allir fyrrum
hermennirnir sem ákærðir hafa
verið fyrir morðið á Bishop og
ýmsir leiðtogar vinstri manna,
sem nú eru fyrir rétti, eru nú án
lögfræðinga sér til varnar eftir að
lögfræðingar þeirra gengu úr rétti
til að mótmæla aðstæðum við
réttarhöldin.
Persaflóastríði ð
Nutu írakar
aðstoðar?
Teheran - Talsmaður æðsta-
ráðs varnarmála írans sagði í
gær að írakar hefðu notast við
aðstöðu í nágrannalöndunum
þegar þeir gerðu loftárásirnar
á Sirri eyju á þriðjudaginn.
Talsmaðurinn sagði að upp-
tökur á samtölum írakskra flug-
manna, ásamt upplýsingum frá
írönskum radarstöðvum, sönnu-
ðu að írakar hefðu notast við
stöðvar í nálægum löndum þegar
þeir gerðu árásina. Hann nefndi
hins vegar engin lönd. Talsmað-
urinn sagði að árásin hefði verið
„sýning sem fjölmiðlar hefðu
blásið út“.
Pakistan
Bhutto handtekin
Karachi - Leiðtogi Stjórnar-
andstöðunnar í Pakistan, Ben-
azir Bhutto, var handtekinn á
fréttamannafundi sem hún
hélt.
Þrjár vopnaðar lögreglukonur
gengu inn á fréttamannafundinn
og afhentu Bhutto tilskipun um
að hún skyldi sæta 30 daga varð-
haldi. Hún var síðan leidd á brott
í öflugri lögreglugæslu.
Lögregla í borginni Karachi
hóf fyrr um daginn skothríð í loft
upp til að dreifa fólki sem gekk
um götur borgarinnar til að mót-
mæla ríkisstjórn landsins. Fyrir
göngunni var Benazir Bhutto.
Lögreglan skaut úr haglabyss-
um og notaði táragas til að dreifa
göngu 5000 manna, hún notaði
einnig táragas fyrr um daginn til
að dreifa hópum unglinga sem
börðust við lögreglu í gamla
hverfi borgarinnar.
Bhutto var í fyrradag meinað
að fara til Lahore þar sem hún
ætlaði að tala á útifundi í gær.
Mótmælin gegn ríkisstjórninni
komu í kjölfar umfangsmestu að-
gerða stjórnvalda gegn stjórnar-
andstöðunni í 16 mánaða sögu
lýðræðisins sem nú er í landinu.
Bhutto sagði við fréttamann Re-
uter fyrir fréttamannafundinn í
gær að um það bil 1000 stuðnings-
menn fylkingar stjórnarand-
stöðuflokkanna 10 hefðu verið
handteknir í gær til að kæfa and-
spyrnu við ríkisstjórnina á þjóð-
hátíðardegi landsins. Fleiri fund-
ir voru skipulagðir í gær og höfðu
þeir allir verið bannaðir af yfir-
völdum.
ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Kúba/Sovétríkin
Þrengt að viðskiptum
Moskvu - í gær var haft eftir
diplómatískum heimildum í
Sovétríkjunum að sovésk yfir-
völd hefðu sett Kúbumönnum
stíf skilyrði í samningum þjóð-
anna í milli.
Samkvæmt þessum heimildar-
mönnum munu Sovétmenn m.a.
borga Kúbu lægra verð fyrir syk-
urtonnið en áður, 850 rúblur á
tonnið í stað 915 rúbla á tonnið á
síðasta ári. Þetta nýja verð mun
gilda fyrir 1986-1990. Opinber-
lega kostar rúblan nú 1,50 doll-
ara.
Samkvæmt fyrrnefndum
heimildarmönnum verða olíuvið-
skiptin með öðrum hætti en þau
hafa verið. Kúbanir hafa keypt
olíu af Sovétmönnum á lágu verði
og síðan selt hluta hennar aftur á
markaðsverði og bætt þannig
gjaldeyrisstöðu sína. Samkvæmt
nýja samningnum mun olíverðið í
þessum viðskiptum þjóðanna
verða óbreytt, 26 rúblur á tonnið,
þrátt fyrir mikið verðfall á olíu að
undanförnu. Reuter fréttastofan
hefur eftir kúbönskum embættis-
mönnum að þeir vilji hvorki játa
né neita þessum fregnum.
Samkvæmt hinum ónefndu
diplómötum fóru Kúbumenn
fram á hærra sykurverð en Sovét-
menn neituðu því. Þá munu So-
vétmenn ekki vilja hefja nýjar
framkvæmdir á Kúbu heldur
ljúka þeim sem nú eru í gangi.