Þjóðviljinn - 15.08.1986, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 15.08.1986, Qupperneq 15
IÞROTTIR UNGLINGA- KNATTSPYRNAN Kvennaknattspyrna Ovænt tap Vals Víkingur, Stjarnan og ÍA með bestu stöðu í 3. flokki, Breiðablik og Fylkir í 4. flokki, Fram, FH og Þór V. í 5. flokki Úrslitakeppni3., 4. og5. flokks karla á íslandsmótinu í knatt- spyrnu hófst í gær. Leikið er á fjórum völlum í Reykjavík, þrem- ur í Laugardal og svo á KR- vellinum. Óll lið léku sinn fyrsta leik í gærkvöldi og eru línur strax að byrja að skýrast. 3. flokkur 1. riðill: Stjarnan-Haukar................9-0 lA-Höttur.....................11-1 Stjarnan og ÍA berjast um sigur í 1. riðli og mætast í dag. í liðunum eru mjög öflugir og skemmtilegir strákar með næmt auga fyrir spili. 2. riðill: VíkíngurR.-Valur...............3-2 PórA.-ÍBl......................8-0 Valsmenn voru taldir sigur- stranglegastir og tapið gegn Vík- ingi kom því nokkuð á óvart. Þeir voru betri framanaf en síðan datt botninn úr leik þeirra. 4. flokkur 1. riðill: Breiðablik-Haukar..............9-0 Týr-Austri E...................6-0 Breiðablik er greinilega best í sínum riðli og er sigurstrang- legast í 4. flokki. 2. riðill: Fylkir-lA.............. . 4-3 KA-lBl.........................5-1 Eftir leik Fylkis og ÍA gerðu forráðamenn ÍA aðsúg að dóm- aranum og litlu munaði að slagsmál brytust út. Dómarinn hafði flautað leikinn af 5 mín. of snemma en flautaði síðan til leiks á ný. Pað töldu Skagamenn ólög- legt en framkoma þeirra var til skammar, sérstaklega að láta strákana verða vitni að látunum. Mikil óánægja er meðal utan- bæjarliðanna með þá ráðstöfun að láta leika á gervigrasinu. Pað var ekki síst það sem fór í skap Skagamanna, enda eru Fylkis- menn búnir að æfa á vellinum í allt sumar. Fylkir á nú alla mögu- leika á að leika til úrslita í 4. flokki, KA gæti sett strik í reikninginn en virðist þó ekki búa yfir sama styrkleika og Fylkir og ÍA. 5. flokkur 1. riðill: FH-Stjarnan....................9-0 PórV.-ÞrótturN.................5-1 2. rlðill: Fram-KR........................3-2 Þór A.-Bolungarvík............12-0 FH og Þór berjast greinilega um sigur í 1. riðli en Framarar eru ■mjög sigurstranglegir í 2. riðli eftir sigur á KR í jöfnum og spennandi leik. Önnur umferðin verður leikin í dag og hefst ki. 16. Þá mætast í 5. flokki Próttur N.-Stjarnan, Þór V.-FH, KR-Þór A. og Fram- Bolungarvík. Kl. 17.10 verður byrjað að leika í 4. flokki og þar mætast Fylkir-KA, ÍA-ÍBÍ, Austri-Haukar og Týr- Breiðablik. Leikir 3. flokks hefj- ast kl. 18.30 en þar leika saman Höttur-Haukar, Víkingur-Þór A., ÍA-Stjarnan og Valur-ÍBÍ. Eftir þessa leiki verður vafalítið hægt að spá í með nokkurri vissu um hvaða lið leika til úrslita í flokkunum á sunnudaginn. -v.stef/VS Valsstúlkur meistarar Sigruðu KR 5-0 og hafa unnið alla 11 leiki sína í 1. deild Valur varð íslandsmeistari kvenna í gærkvöldi, í fyrsta skipti í átta ár, með því að sigra KR 5-0 á KR-velIinum. Valsstúlkurnar eiga enn eftir að leika einn leik í deildinni, gegn ÍA á Akranesi, en úrslitin skipta ekki máli, þær hafa unnið alla sína leiki í deild og bikar í sumar og eru vel að meistaratitlinum komnar. Þeim gekk illa að finna rétta leið í KR-markið í fyrri háifleik en fengu góða hjálp, leiddu í hléi með sjálfsmarki. Fjögur mörk í seinni hálfleik tryggðu síðan sig- urinn og titilinn. Ragnheiður Víkingsdóttir, Ragnhildur Sig- urðardóttir, Ingibjörg Jónsdóttir og Bryndís Valsdóttir voru þar að verki. Á Akureyri lenti Breiðablik óvænt í erfiðleikum með Þór. Staðan var 1-1 í hálfleik en Ásta B. Gunnlaugsdóttir skoraði sigurmark Kópavogsliðsins rétt fyrir leikslok, 3-2. Hin mörk Blikanna gerðu Ásta María Reynisdóttir og Svava Tryggva- dóttir en Anna Einarsdóttir og Eydís Benediktsdóttir skoruðu fyrir Þór. ÍBK vann auðveldan sigur á fallkandídötum Hauka í Hafnar- Hart barist I hinum umdeilda leik Fylkis og ÍA I úrslitakeppni 4. flokks á gervigrasinu I gær. Fvlkismennirnir eru hærri í loftinu og þeir báru sigur úr býtum þegar upp var staðið. Mynd: E.ÓI. Spánn firði, 8-0, eftir5-0 íhálfleik. Katr- ín Eiríksdóttir skoraði 4 mörk, Inga Birna Hákonardóttir 2, Svandís Gylfadóttir og Kristín Blöndal eitt hvor. Staðan í 1. deild: Valur..............11 11 0 0 49-3 33 ÍA..................9 7 0 2 27-6 21 Breiðablik..........9 7 0 2 24-9 21 KR..................9 4 0 5 16-18 12 IBK................10 3 0 7 19-26 9 ÞórA...............11 2 0 9 13-33 6 Haukar.............9 0 0 9 0-53 0 Markahæstar: Kristín Arnþórsdóttir, Val...........21 Karítas Jónsdóttir, |A...............15 Ingibjörg Jónsdóttir, Val............11 Katrín Eiríksdóttir, IBK..............8 Ásta B, Gunnlaugsdóttir, Breiðabliki..7 -vs 4. deild HSÞ.b sigraði HSÞ.b vann góðan sigur á Sindra frá HornafirSi, 3-0, á Krossmúlavellinum í Mývatns- sveit í gærkvöldi. Þetta var fyrsti leikurinn á NA-svæði úrslita- keppninar í 4. deildinni í knatt- spyrnu og Mývetningar fara því vel af stað. Úrslitin segja þó ekki allt um gang leiksins sem einkenndist af mikilli baráttu og Hornfirðingar áttu ágæt færi, m.a. sláarskot. Róbert Agnarsson skoraði eina mark fyrri hálfleiks eftir innkast. Á síðustu 12 mínútunum gerði svo þjálfari Mývetninga, Hörður Benónýsson, útum leikinn með tveimur mörkum, 3-0. Sindri mætir Hvöt á Blönduósi á laugardaginn en tvö af liðunum þremur komast uppí 3. deild. -VS Barcelona notar ekki Archibald og Schuster Archibald með dótturliðinu í2. deild Skotinn Steve Archibald og Vestur-Þjóðverjinn Bernd Schuster leika ekki með spænska félaginu Barcelona í vetur. í spænsku knattspyrnunni má að- eins nota tvo erlenda leikmenn og í gær var tilkynnt í herbúðum Barcelona að það yrðu Gary Lin- eker og Mark Hughes sem félagið keypti frá Everton og Manchester United í sumar. ÍR-ingar I körfubolta ÍR-ingar halda körfuboltaskóla öðru sinni nú í haust og tckur hann til starfa á þriðjudaginn kemur, 19. ágúst, í íþróttahúsi Seljaskóla. Sigvaldi Ingimundar- son íþróttakennari er leiðhein- andi og skipuleggjandi skólans. Innritun fer fram í anddyri íþróttahússins á morgun, laugar- dag, milli kl. 13 og 16. Skólinn er fyrir börn á aldrinum 7-11 ára og verða 8, 10 og 11 ára börn fyrir hádegi en 7 og 9 ára eftir hádegi. Terry Venables þjálfari Barce- lona sagði að Archibald myndi leika með „dótturliði" Barce- lona, Barcelona Atletico, sem er í 2. deild en óvíst væri hvað biði Schusters. Schuster var sviptur fyrirliðastöðunni og settur útúr liðinu eftir framkomu hans í úr- slitaleik Barcelona og Steaua um Evrópumeistaratitilinn sl. vor. -VS/Reuter Sund Þrjú Þrír íslendingar verða meðal keppenda á heimsmeistaramót- inu í sundi sem hefst í Madríd á Spáni á sunnudaginn. Það eru þau Eðvarð Þ. Eðvarðsson, Magnús Már Ólafsson og Ragn- heiður Runólfsdóttir. Þau hafa öll burði til að ná langt á mótinu, ekki síst Eðvarð sem er í heimsklassa í 100 og 200 m bak- sundi. -VS England Evertonán lykilmanna Steve Archibald verður að láta sér nægja að leika í 2. deild. Everton, Englandsmeistararn- ir 1985, verða ekki mcð sitt sterk- asta lið í leiknum árlega um Góð- gerðaskjöldinn, gegn Liverpool, á morgun. Sex leikmenn eru meiddir, þar á meðal NeviIIe Southall, Derek Mounflcld og Pat Van Den Hauwe. Hins vegar er reiknað með því að Liverpool verði með sitt besta lið, þar með talinn Ian Rush sem seldur hefur verið til Juventus á Italíu en leikur samt með Liverpool út þetta keppnistímabil. Enska deildakeppnin hefst síð- an annan laugardag. Englands- og bikarmeistarar Liverpool sækja þá Newcastle heim en Everton leikur á heimavelli við Nottingham Forest. Aðrir leikir eru: Arsenal-Manch.Utd, Aston Villa-Tottenham, Charlton- Sheff.Wed., Chelsea-Norwich, Leicester-Luton, Man.City- Wimbledon, Southampton- Q.P.R., Watford-Oxford og West Ham-Coventry. -VS/Reuter Föstudagur 15. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.