Þjóðviljinn - 16.08.1986, Page 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
REYKJAVIK
200 ÁRA
SUNNUDAGS-
BLAÐ
Nú liggur Ijóst fyrir að það var
íslenski utanríkisráðherrann,
Matthías Á. Mathiesen, sem kom
í veg fyrir að Norðurlöndin
skipuðu embættismannancfnd til
að kanna möguleikana á sam-
eiginlegri yfirlýsingu um kjarn-
orkuvopnalaus Norðurlönd. Á
sameiginlegum fundi utanríkis-
ráðherra Norðurlanda nú í vik-
unni var tillaga þess efnis lögð
fram af hálfu Danmerkur og
reyndist íslenski utanríkisráð-
herrann sá eini sem henni var
andvígur.
í samtali við Þjóðviljann í gær
kvaðst Matthías Á. Mathiesen
ekki hafa getað fellt sig við tillögu
Dana. Það er rétt, sagði Matthí-
as, að ég átti þátt í því að hún var
ekki samþykkt.
- Var einhver annar andsnúinn
tillögunni?
Nei, ég var sá sem stöðvaði það
að gengið væri frá samþykkt þess-
arar tillögu á fundinum í gær. Til-
laga Dana er alls ekki í samræmi
við það sem Alþingi hefur sam-
þykkt.
Að sögn Matthíasar Á.
Mathiesen kveður tillaga Dana á
um einhliða yfirlýsingu um kjarn-
orkuvopnalaus Norðurlönd.
Matthías kveðst ekki sjá til-
ganginn með slíkri yfirlýsingu þar
sem Norðurlöndin séu þegar
kjarnorkuvopnalaus. Hann vek-
ur athygli á því að tillagan tekur
einungis til landanna en ekki
hafsins umhverfis þau.
Af íslands hálfu er gerð krafa
til þess að málið sé skoðað í mun
víðara samhengi og þá sem liður
víðtækari samningum austurs og
vesturs um gagnkvæma afvopnun
og slökun spennu í Norður-
Evrópu eða allt frá austurströnd
Grænlands til Úralfjalla og þá
jafnt í lofti, á láði og legi. •
G.Sv.
Ármann Guðnason afhenti Davíð Oddssyni hliðið í tilefni afmælis Reykjavíkur. Hliðið var upphaflega rifið niður í Gúttóslagnum fræga, þegar reykvískt
verkafólk atti kappi við lögregluna.
Reykjavík 200 ára
Afmælishliðið opnað
Gefandinn Armann Guðnason kolasali: Fann hliðið íbrotajárnshrúgu fyrir
aldarfjórðungi. Fimm daga afmæli framundan
Eg flutti út brotajárn á árunum
milli ’60 og ’70 og árið 1962 sá
ég hliðið eitt sinn í brotajárns-
hrúgunni, þekkti það strax og
kippti því frá, sagði Ármann
Guðnason kolasali þegar hann af-
henti borginni járnhliðið sem var
á girðingu umhverfís Austurvöll á
sínum tíma.
Girðing þessi var rifin af lög-
reglunni eftir Gúttóslaginn árið
1932, þar eð lögreglan taldi að
hætta væri á að fólk notaði staur-
ana sem vopn í óeirðum. Enginn
veit hvar hliðið hefur legið á
þessu þrjátíu ára tímabili en lík-
legt er að það hafi legið í brota-
járnshaug einhvers staðar í borg-
inni. Það var Davíð Oddsson
borgarstjóri sem veitti hliðinu
viðtöku fyrir hönd borgarinnar
og sagði hann að það færi á Ár-
bæjarsafn. Þess má geta að Ár-
mann á einnig gömul póstkort af
bæjarlífi Reykjavíkur á sýning-
unni á Kjarvalsstöðum sem verð-
ur opnuð í dag.
Sjálft Reykjavíkurafmælið
verður svo á mánudaginn, - en
alls stendur hátíðin í fimm daga.
-vd.
Viðskipti
HP skuldar
Hafskip
Helgarpósturinn var nýlega
dæmdur til að greiða þrota-
búi Hafskips um 250 þúsund
krónur vegna ógreiddra
reikninga fyrir pappírsinnflutn-
ing.
Upphaflega hafði verið gerður
samningur um að greiða flutning-
inn með auglýsingaplássi í blað-
inu, en eftir að HP hóf greinaskrif
um Hafskipsmálið í fyrra sendu
Hafskipsmenn lögfræðinga af
stað til að innheimta féð. HP tap-
aði málinu í undirrétti á tæknileg-
um forsendum.
Að sögn Hákons Hákonar-
sonar framkvæmdastjóra útgáfu-
félags HP sagði yfirmaður mark-
aðsdeildar skipafélagsins í símtali
að greinaskrif HP um Hafskip
væru ástæða þess að í stað fyrra
samkomulags væri farið að Helg
arpóstinum dómstólaleiðina.
Sjá síðu 3
Kartöfluframleiðendur
Enim ekki svindlarar
Páll' Guðbrandsson: Innflytjendur sömdu umaðflýta uppskeru. Nokkrir verslunareigendur
selja ólíkar kartöflutegundir á sama verðiþráttfyrir mismunandi söluverð hjá okkur
Aðalástæðan fyrir hinum mikla
verðmun á fyrstu uppske-
runni í ár og í fyrra stafar af því
að fyrsta uppskeran í ár er fyrr á
ferðinni, sagði Páll Guðbrands-
son formaður Félags kartöflu-
bænda um kartöfluhækkunina.
Að sögn Páls er yngri uppskera
dýrari fyrir það að kartöflurnar
eru ekki fullvaxnar þegar þær eru
teknar upp. Aðspurður hvers
vegna fyrsta uppskeran var svo
fljótt á ferðinni í ár þar eð enginn
sjáanlegur skortur hefði verið á
kartöflum, sagði Páll að innflytj-
endur á erlendum kartöflum,
sem jafnframt sjá í flestum tilvik-
um um sölu á íslenskum kart-
öflum, hefðu farið þess á leit við
íslenska framleiðendur að flýta
uppskerunni. Ástæðan væri hag-
stæðari viðskiptakjör fyrir inn-
flytjendur, en að sögn Páls þurfa
innflytjendur ekki að staðgreiða
íslenskum kartöfluframleiðend-
um vöruna en geta beðið með
greiðslu þar til kaupmenn hafa
greitt þeim sem er allt upp í 75
daga.
Páll sagði að hann vildi ekki
ásaka milliliðina fyrir of háa
álagningu. „Hins vegar,“ sagði
Páll „erum við ákaflega óhressir
með ýmsa verslunareigendur, en
margir þeirra hafa selt premier-
kartöflurnar á sama verði og gull-
augað og rauðu kartöflurnar, en
kílóið af premierkartöflunum fá
þeir 10 krónum ódýrara frá okkur
en kílóið af hinum kartöflunum.“
-K.Ól.
Skák
Kasparoff vann
Karpoff féll á tíma í 8. skákinni í vonlausri stöðu eftir aðeins 31 leik
en þá átti hann eftir að leika tíu leiki áður en tímamörkunum væri náð.
Heimsmeistarinn hefur nú náð forustu á ný í einvíginu. Staðan er nú
þannig að Kasparoff hefur V/i vinning en Karpoff 3Vi vinning.
Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
Matthías stöðvaði málið
/ / ,
Matthías A. Mathiesen: Eg stöðvaðiþað að gengið vœrifrá samþykktþessarar tillögu. Island eitt á móti