Þjóðviljinn - 16.08.1986, Side 3
FRÉTTIR
Samningar
HP dæmt í Hafskipsskuld
Greinar HP um Hafskipsmálið olluþvíað Hafskip rifti munnlegum auglýsingasamningi ogfór ískulda-
mál við blaðið. HP dœmt á tœknilegumforsendum til að borgaþrotabúinu um 250þúsund. Björgólfur
reyndiað stöðvafyrstuHP- greinina með tilvísun til samkomulagsins
Helgarpósturinn skuldar þrota-
búi Hafskips 250 þúsund
krónur eftir að dómur féll í sumar
fyrir undirrétti í Reykjavík í máli
sem Hafskip höfðaði á hendur
blaðinu um greiðslu fyrir papp-
írsflutning. Upphaflega hatði ver-
ið samið munnlega um greiðslu
með auglýsingum í blaðinu en
eftir að HP hóf fræg greinaskrif
um Hafskipsmálið ákváðu for-
ráðamenn skipafélagsins að fara
innheimtu- og dómsleið í þessum
viðskiptum. Helgarpóstsmenn
hafa enn ekki ákveðið hvort mál-
inu verður áfrýjað.
í undirrétti var útgáfufyrirtæki
Helgarpóstsins, Goðgá hf., dæmt
til að greiða Hafskip 160 þúsund
Kaupið
Hækkun
um 3,39%
Þann 1. september hækka al-
menn laun um 3,39%. Sam-
kvæmt kjarasamningum í febrú-
ar sl. áttu laun félaga í BSRB og
ASÍ að hækka um 3% 1. septemb-
er en vegna 0,38% hækkunar
framfærsluvisitölu umfram það
sem ráð var fyrir gert bætist sú
hækkun við hin umsömdu 3%.
Að teknu tilliti til 3,39% hækk-
unar launa frá 1. september
benda áætlanir til þess að á 3.
ársfjórðungi verði kaupmáttur
taxtakaups svipaður eða lítið eitt
lakari en gert var ráð fyrir í febrú-
ar. - G.Sv.
Háskólinn
Bókarými
á þrotum
Það kemur fram í skýrslu
nefndarinnar um fjármál há-
skólans að bókakaupafé Há-
skólans er naumt skammtað og
aðstaða öll til rekstrar bókasafns
og lestrar bágborin. Ljóst sé að
Háskólabókasafn flytjist ekki í
Þjóðarbókhlöðu fyrr en að
nokkrum árum liðnum og verði
því að huga að bráðabirgða-
lausnum því allt bókarými sé á
þrotum.
Nefndin telur að lágmarks-
aukning í öflun bóka í samræmi
við vöxt háskólastarfseminnar
verði áætluð 200 bækur á ári til
1989, þannig að keyptar verði allt
3.400 bækur það ár. Æskilegt
markmið er hins vegar að mati
nefndarinnar að keyptar verði
6.200 bækur á árinu 1989, eða
aukning bókakaupa um 600
bækur á ári fram til 1989. Einnig
er mælt með mikilli aukningu
tímaritakaupa. _ vd.
Reykjavíkurflugvöllur
Listflug
Franska listflugsveitin sem
væntanleg var til landsins í gær-
kvöldi tafðist vegna bilunar í
einni vélinni, en mætir galvösk í
kvöld klukkan sjö á Reykjavíkur-
flugvöll og sýnir listir sínar yfir
vellinum.
króna skuld sem nú er með vöxt-
um og málskostnaði orðin um 250
þúsund. Hákon Hákonarson
framkvæmdastjóri Goðgár frá
ársbyrjun 1985 sagði Þjóðviljan-
um að fyrir tveimur árum hefðu
Helgarpóstsmenn farið að íhuga
eigin innflutning á pappír. Vorið
1984 hittust forstjóri Hafskips,
Björgólfur Guðmundsson, og rit-
stjóri Helgarpóstsins, Ingólfur
Margeirsson, senr einnig er
stjórnarmaður í Goðgá, og gerðu
með sér munnlegt samkomulag
um að Hafskip flytti pappír fyrir
Helgarpóstinn og fengi greitt
með auglýsingaplássi í blaðinu.
Hákon segir að slík vöruskipti
hafi verið forsenda þess að inn-
flutningurinn reyndist hag-
kvæmur, með beinum peninga-
greiðslunt hefði innflutt pappírs-
kíló reynst fjórum krónum dýr-
ara en hjá íslenskri heildsölu.
í stórurn dráttum er gangur
málsins síðan sá að Hákon fram-
kvæmdastjóri stöðvar innflutn-
inginn eftir að hann tekur við og
vill fá skriflegan hinn munnlega
samning, enda höfðu engar
auglýsingar birst, og innheimtu-
deild Hafskips sent blaðinu
reikning án tillits til samkomu-
lags ritstjórans og forstjórans. I
mars ’85 er haldinn fundur um
málið, og kom þar fram að Haf-
skipsmenn hefðu ákveðið að rifta
öllum auglýsingasamningum
vegna slæmrar fjárhagsstöðu.
Um það hafði Helgarpósturinn
ekki verið látinn vita, en á fund-
inum voru höfð uppi góð orð um
lausn.
Helgarpósturinn hóf greina-
skrif sín um Hafskipsmálið í júní
1985, og að birtum þremur Haf-
skipsgreinum barst HP inn-
heimtubréf frá lögfræðingi Haf-
skips. Þessu bréfi var svo fylgt
eftir með stefnu.
Eftir að Helgarpóstinum barst
bréf lögfræðingsins hringdi fram-
kvæmdastjóri Goðgár, Hákon
Hákonarson, í yfirmann mark-
aðsdeildar Hafskips, Jón Hákon
Magnússon, til að ræða þessi mál,
og sagði Jón þá við Hákon að ef
aðeins ein grein hefði birst hefðu
Hafskipsmenn sennilega staðið
við fyrra samkontulag, en úr því
að um. framhaldsskrif væri að
ræða yrði málið að ganga þessa
leið, þ.e. til dómstóla.
Hákon Hákonarson sagði
einnig í samtali við Þjóðviljann
að daginn áður en fyrsta HP-
greinin birtist hefði hann verið
boðaður á fund Hafskipsmanna
til að ræða skuldamálin. Björg-
ólfur forstjóri hefði þá rifjað upp
fyrra samkomulag sitt við HP, og
jafnframt beðið Hákon að reyna
að stöðva greinina.
Dómur féll í málinu fyrir rétt-
arhlé í sumar, og þótti dómurum
að sönnunarbyrði um hið munn-
lega samkomulag hvíldi á Helg-
arpóstinum, og hefðu HP-menn
ekki sannað nægilega samkomu-
lagsatriði, þótt víst væri að um
samkomulag hefði verið að ræða.
Útgáfufélag Helgarpóstsins tap-
aði síðan málínu á þeint tækni-
legu forsendum að fyrrverandi
framkvæmdastjóri hafði ekki
formlega mótmælt fyrsta rukkun-
arbréfinu frá innheimtudeild
Hafskips. Er þrotabú
skipafélagsins nú kvartmilljón
ríkara úr óvæntri átt.
-m
Skákþáttur
Hraðskák
Allt
velturá
veðrinu
15. mótið í útitaflmóti tímarits-
ins Skák fór fram við útitaflið í
Lækjargötu í gær en keppnin er á
milli bæjar- og sveitafélaga á
landinu sem senda fulltrúa á stað-
inn.
Jóhann Þórir Jónsson, sem
staðið hefur að skipulagningu
þessara móta sem og ýmissa ann-
arra skákmóta, sagði að þátt-
takan hefði verið mjög góð. Alls
hefðu 40 manns skráð sig og að
það væri mjög gott miðað við það
að þátttakendur eru ekki boðaðir
með fyrirvara heldur er boð látið
út ganga samdægurs. Þetta veltur
jú allt á veðrinu. Jóhann sagði
jafnframt að skákmótið færi fram
alla góðviðrisdaga fram á haust.
- K.ÓI.
Þátttakan á útiskákmótinu var góð og margt manna var mætt á staðinn til þess að fylgjast með. Neðst til vinstri á myndinni
má sjá Jóhann Þóri drepa peð og leggja drög að stórsókn sinni. Mynd: KGA.
Illt er að eggja obilgjaman
í áttundu skákinni hefði Karpoff
betur minnst þessa spakmælis Grettis
Ásmundarsonar forðuin. Áskorand-
inn hugðist fella heimsmeistarann
með hans eigin vopnum og valdi af-
brigði sem Kasparoff hafði teflt gegn
honum í síðasta einvígi þeirra félaga.
Kasparoff beið ekki eftir endurbót
Karpoffs í eigin taflmennsku heldur
stýrði taflinu út í lygnari sjó. En þá
hlcypti Karpoff taflinu upp og hirti
hættulega peðsfórn heimsmeistarans.
Kasparoff nýtti vel færi sín í skiptum
fyrir peðið og náði óstöðvandi sókn.
Karpoff féll þannig sálfræðilega á
eigin bragði og það getur orðið hon-
um dýrkeypt ef hann ætlar að ögra
Kasparoff aftur með að láta Kaspa-
roff hafa geigaf eigin vopnum, a.m.k.
varð íslcnskum fornkappa hált á því.
Hvítt: Kasarpoff
Svart: Karpoff
Drottningarbragð
1. d4 - d5 4. cxd5 - cxd5
2. c4 - e6 5. Bf4 - ...
3. Rc3 - Be7
Þessa stöðu hafa þcir félagar oft haft
fyrir framan sig og stýrt hvíta og
svarta liðinu á víxl. Þeir taka nú upp
þráðinn frá einvíginu í Moskvu þar
sem þrjár skákir í röð tefldust einmitt
svona, 20.-22. skákin.
5. ... - Rf6
Karpoff gengur núna í smiðju hjá
heimsmeistaranum nýja en áður hef-
ur hann jafnan leikið 5. - c6 eins og
t.d. í 21. skákinni í fyrra. Kasparoff
lék hins vegar eins og Karpoff gerir
núna í 20. og 22. skákinni. Leikurinn
5,- c6 leiddi til snarpra átaka í 21.
skákinni þar sem Karpoff mátti
þakka sínum sæla fyrir jafntefli.
Áskorandinn og hinn fallni heims-
meistari, Karpoff, hefur greinilega
lært sitt af hverju af heimsmeistaran-
um nýja því að nú ætlar hann sér
greinilega að koma honum á kné með
eigin vopnum. Sálfræðilega er því erf-
itt fyrir Kasparoff að þurfa að tefla
gegn sjálfum sér í bessari skák.
6. e3 - 0-0 7. Bd3 - c5
Kasparoff víkur strax út af tafl-
mennsku Karpoffs í 22. skákinni en
þar varð framhaldið 7. Rf3 Bf5 8. h3
c6 9. g4 Bg6 og staðan varð flókin og
hvítur (Karpoff) vann að lokum. Það
er engu líkara en Kasparoff kæri sig
ekkert um að fá að sjá endurbót
Karpoffs á taflmennsku svarts því rær
hann nú á rólegri mið. í því fellst að
vísu örlítill sálfræðilegur ósigur.
Leikurinn er vitaskuld alls ekki slæm-
ur þvíað hann hindrar flækjurnarsem
koma upp eftir 7. Rf3 Bf5.
BRAGI
HALLDÓRSSON
8. Rf3 - Rc6 ii. h3 - BxO
9. 0-0 - Rb4 12. Dxf3 - d4
10. dxc5 - Bxc5
Karpoff er fljótur að grípa tækifærið
til að losa sig við staka peðið.
13. Re4 - Be7 15. rk3 .
14. Hadl - Da5
Þessi leikur er peðsfórn. Fyrir hana
fær hvítur sóknarfæri og skjótari lið-
skipan.
15. ... - dxe3 16- fxe3 - Dxa2
Karpoff er greinilega í miklum víga-
hug. í fyrri einvígjunum var hann
ávallt ragur við að þiggja peðsfórnir
Kasparoffs en nú ætlar hann sér að
láta Kasparoff standa fyrir máli sínu
og sanna réttmæti fórnarinnar.
17. Rf5 - De6 19. Dh5! - g6
18. Bh6! - Re8
Eini Ieikurinn. Hvítur hótaði 20.
Bxg7 og síðan rnáti á h7. Hrókurinn á
f8 er núna í uppnámi.
20. Dg4 - Re5
21. Dg3 - Bf6 22. Bb5!! - ...
Snilldarlegur leikur. Kasparoff hirðir
ckkert um skiptamuninn heldur vill
hann halda sókninni áfram. Svartur
mætti sæmilega vel við una eftir 22.
Bxf8 því að þá hefur hann peð upp í
skiptamuninn og trausta stöðu en
hvítu peðin á b2 og e3 eru veik og
líklegt er að svartur hafi þá lítið að
óttast. Með textaleiknum hrekur
hvítur drottninguna á e6 úr vörninni.
22. ... - Rg7 25. Rxg7 - Dxb5
23. Bxg7 - Bxg7 26. Rf5 - Had8
24. Hd6 - Db3 27. Hf6 - Hd2
Örvænting, en ekki er auðvelt að
benda á vörn í stöðunni. Til þess eru
veilurnar í kóngsstöðunni of miklar.
28. Dg5 - Dxb2
29. Khl - ...
Þegar svona hæglætislegir kóngsleikir
eru sóknarleikir segir það ekki nema
eitt: Staðan er gjörunnin.
29. ... - Kh8
30. Rd4 - Hxd4
31. Dxe5
Og í þessari vonlausu stöðu féll Karp-
off á tíma. Staðan í einvíginu er nú
þannig að Kasparoff hefur náð foryst-
unni að nýju. Eftir hclgi tekur Jón
félagi rninn að nýju við þættinumeftir
þetta frumhlaup mitt.
Laugardagur 16. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3