Þjóðviljinn - 16.08.1986, Qupperneq 5
Meingallað skattakerfi
Afnema ber tekjuskatt einstaklinga. Skattleggjum gróða stórfyrirtœkja. Burtmeð virðisaukaskattinn.
Innheimtum söluskattinn hjá heildsölunum. Tryggjum afkomu ríkissjóðs
Skattakerfið íslenska er
meingallað. Það er ekki aðeins
hriplekt og gefur þeim sem að-
stöðu hafa til tækifæri til að svíkja
undan heldur er það sérstaklega
hannað með það í huga að stóru
fiskarnir sleppi í gegnum netið
með löglegum hætti. Megin at-
orka skattyfirvalda og löggæsl-
unnar beinist að seiðunum á
meðan golþorskurinn syndir um
lygnan sjó. Og hér er ekki neitt
náttúrulögmál á ferðinni heldur
afleiðing af pólitískum vilja.
fslenskur almenningur furðar
sig á því hvers vegna stóru fyrir-
tækin í landinu sleppa alltaf
undan því að greiða skatta til
ríkisins. Hann furðar sig einnig á
því að maðurinn í næsta húsi sem
á nýjan bfl, sumarbústað og fór í
heimsreisuna í fyrra borgi vinnu-
konuútsvar. Og hann furðar sig á
því hvers vegna hann sjálfur
greiðir 20-30% tekna sinna í
beina skatta og trúlega helmingi
meira í óbeina skatta. Niðurstað-
an er því sú að launamaðurinn
stendur undir kostnaði við
samneysluna en þeir sem meira
mega sín sleppa. Hér er á ferðinni
sósíalismi andskotans.
Gífurlegur
hallarekstur
Margar greinar eftir lærða og
leika hafa verið á þrykk settar þar
sem skeytunum er beint að
skattsvikurunum. Hér skal ekki á
þann bagga bætt en bent á ýmis
dæmi í skattakerfinu þar sem
mönnum og fyrirtækjum er gef-
inn kostur á að losna undan skatt-
heimtunni sem auðvitað þýðir að
almenningur verður að greiða æ
hærri toll. Fjármálaráðherra hef-
ur ekki neitað þeirri staðhæfingu
að tekjur ríkisins hafi rýrnað um
eina 3 miljarða í tíð núverandi
ríkisstjórnar með þeim afleiðing-
um að hallarekstur ríkissjóðs
verður meiri í ár en nokkru sinni í
sögu lýðveldisins. Ekki stafar
þessi slæma staða af því að launa-
menn hafi sloppið betur en áður.
Þvert á móti virðist ljóst að hækk-
un á tekjuskatti einstaklinga ætl-
ar að verða meiri í ár en við höf-
um mátt þola síðustu áratugina
og er gert ráð fyrir 650 miljóna
króna aukningu tekna ríkissjóðs
vegna þess arna.
Ótal leiöir til
Allir vita að stærstu fyrirtæki
landsins með miljarða veltu
greiða ekki eyri í tekjuskatt.
Ástæðan er m.a. sú að þeim er
heimilt að flytja hagnað af sölu
tiltekinna eigna sinna yfir á fjár-
festingar í öðrum þáttum og kont-
ast þar með undan skattheimtu.
Þessu þarf auðvitað að breyta
skilyrðislaust og með því mætti
auka tekjur ríkisins um hundruð
miljóna.
Fyrirtækjum er einnig heimilt
að leggja '/4 rekstrarhagnaðar
síns í sérstakan varasjóð, en það
þýðir á mæltu máli að fjórðungi
hagnaðar er skotið undan skatt-
inum. Miljarðar liggja þar.
Arður af hlutabréfum er
skattfrjáls á íslandi. Auðvitað
eru það fyrst og fremst efnaðir
menn sem kaupa og eignast
hlutabréf. Þessir menn hafa þar
leið til að losna undan greiðslu
skatta vegna þess að hlutabréfa-
kaup eru dregin frá skattskyldum
hagnaði að verulegu leyti sam-
kvæmt íslenskum skattalögum.
Við sjáum í skattskránni að
menn sem eiga miklar eignir
greiða óverulegar upphæðir, að-
eins brot af tekjum, í eignaskatt.
Ástæðan er sú að eignaskatturinn
er sk. flatur skattur, þ.e. hann
stighækkar ekki eftir því sem
eignir eru meiri. Þessu þarf
auðvitað að breyta þannig að
eignaskattar falli algerlega niður
af húsnæði til nauðþarfa en hann
hækki stigmagnað eftir því sem
eignin er stærri.
Hlutaf élagalögin
gölluð
Nú vitum við öll að það eru
ekki aðeins þeir stóru sem sleppa
í gegnum net skattheimtunnar.
Alls kyns smáatvinnurekendur
og einstaklingar mez rekstur
komast undan greiðslu opinberra
gjalda. Algengasta leiðin til þess
er sú að menn stofna hlutafélag.
Tökum sem dæmi 5 manna fjöl-
skyldu. Allir eru hluthafar og öll
vinnaþau hjáfyrirtækinu. Rekst-
urinn gengur vel. Eigendurnir
telja fram lúsarlaun og greiða
skatta í samræmi við það en fyrir-
tækið, sem í raun og veru er ekk-
ert annað en gervifyrirtæki til að
svíkja undan skatti, hefur ótal
leiðir til að koma hagnaðinum
undan eins og áður hefur verið
rakið. Þessu þarf að breyta.
Burt með
tekjuskattinn
Tekjuskattur einstaklinga er
hugsaður sem leið til að jafna
tekjum á milli manna. Því miður
hefur þetta mistekist og það
ásamt ýmsu öðru leiðir hugann
að því hvort ekki sé tímabært og
raunar sjálfsagt að afnema skatt-
inn í því formi sem hann er nú.
í nágrannalöndum okkar er
tekjuskatturinn aðaltekjustofn
ríkissjóðs. Hér er allt annað uppi
á teningnum. Aðeins 10% af
tekjum íslenska ríkisins koma í
gegnum tekjuskatt einstaklinga
og innheimta af fyrirtækjunum er
með þeim hætti sem áður hefur
verið lýst. Stundum hefur það
verið reiknað út að mun dýrara sé
fyrir ríkissjóð að innheimta þessa
tíund en hún gefur í aðra hönd.
Þess vegna liggur beint við að af-
nema tekjuskattinn af tekjum
einstaklinga og ná inn margfalt
meiri tekjum í ríkissjóð með
þeim breytingum á skattalögum
sem áður hefur verið minnst á.
Virðisaukaskattur
fráleitur
Dæmi um þau fálmkenndu
vinnubrögð sem einkenna lög-
gjafann þegar á að taka á skatt-
amálunum eru hugdetturnar um
virðisaukaskatt í stað söluskatts.
Reynslan af virðisaukaskattinum
í nágrannalöndunum er afar
slæm. Skattinum er miskunnar-
laust skotið undan auk þess sem
allt vöruverð ntyndi stórhækka
nteð tilkomu hans. Matvæli eru í
dag undanþegin söluskatti en
eftir virðisaukaskatt myndu þau
hækka um 20% í verði. Þarf ekki
að ræða frekar um afleiðingar
þess fyrir afkomu heimilanna.
í stað þess að gefast upp á sölu-
skattinum sem slíkum þarf að
breyta innheimtu hans. í stað
þess að taka skattinn af smásölu
er hægt að innheimta hann af
heildsölunum að svo miklu leyti
sem tollurinn getur ekki annast
það verkefni. Heildsalar í
landinu eru að vísu of margir en
örfáir þeirra flytja inn bróðurpart
þeirrar vöru sem ber söluskatt.
Með þessu væri hægt að auka inn-
heimtuna um miljarða á ári. Það
þýddi ekki hærra vöruverð því al-
menningur greiðir þennan skatt í
dag, sem að miklu leyti verður
eftir í vösum þeirra sem eiga að
innheimta hann. Þessi aðferð
dygði að sönnu ekki til að inn-
heimta söluskattinn af þjónust-
unni, en honum er hvort eð er
skotið undan að mestu leyti. Með
því að afnema skattinn af þjón-
ustu myndi hún lækka um fjórð-
ung án þess að tekjur ríkisins
minnkuðu að verulegu marki.
Heímatilbúinn
vandi
Það er hverjum manni Ijóst að
hin hörmulega staða ríkisfjár-
mála nú er af heimatilbúnum or-
sökum. Þorsteinn Pálsson hefur
litið á það sem sitt hlutverk að
ganga erinda stórfyrirtækjanna,
verðbréfabraskaranna og eigna-
manna en hert á sultaról almenn-
ings með óhóflegri og magnaðri
skattheimtu en áður hefur verið.
Þótt okkur launamönnum þyki
nóg um 650 miljóna króna tekj-
uskattsaukann í ár er það þó eins
og dropi í hafið á móti þeim af-
slætti sem skjólstæðingar Sjálf-
stæðisflokksins í stóreignamann-
astétt haf fengið á síðustu árum.
Ætli menn sér að takast á við
þann vanda af dug og djörfung
þarf að gera uppskurð á skatta-
kerfinu í heild með það fyrir
augum að létta álögum af
nauðþurftartekjum almennings
en búa svo um hnúta að þessir
með breiðu bökin gjaldi samfé-
laginu það sem þeini ber.
Valþór Hlöðversson
Laugardagur 16. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5